Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjólmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plótugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Gróðafíkn í grasrótirmi Sala almennings á heimild til nota á sjúkraskrám sínum í gagnagrunn deCode hefur ekkert með siðalögmál að gera. Þetta er bara tilraun til að láta markaðslögmál nútímans gilda í þágu fleiri en þeirra, sem hafa þægilega aðstöðu hafa til að græða mikla peninga. Samkvæmt markaðslögmálunum hljóta að felast verð- mæti í rétti fólks til að banna innsetningu skjala um sig. Hver einstaklingur fyrir sig hefur einokun á sínum þætti og getur reynt að gera sér mat úr því. Ef allir notuðu slíkan rétt, yrði enginn gagnagrunnur. Ekki þýðir hins vegar fyrir hvem fyrir sig að skreppa inn í deCode og reyna að selja aðganginn að sínum gögn- um. Það þýðir örugglega ekki heldur fyrir 5.000 manns að láta gera það fyrir sig sameiginlega. En tvær grímur kjmnu að renna á menn, ef þeir væru 20.000. Bandaríkjamenn eru sérfræðingar í að láta alla vinna fyrir einn og einn fyrir alla. Frægust hafa orðið prófmál- in, sem rekin hafa verið fyrir hönd tugþúsunda manna gegn tóbaksframleiðendum og ýmsum öðrum, sem fram- leiða skaðlega vöm undir fölsku flaggi. Fólk virðist ekki þurfa að taka neina áhættu með því að taka þátt í aðgerðinni. Engin Qárútlát eru boðuð. Menn þurfa bara að undirrita beiðni um úrsögn úr gagnagrunninum og umboð handa lögmönnum til að gera sem mest úr hugsanlegum verðmætum. Eins og í Bandaríkjunum taka lögmenn prósentu af því sem kann að innheimtast, en vinna að öðrum kosti ókeypis. Þessi aðferð er vinsæl í Bandaríkjunum eins og dæmin sanna, en fróðlegt verður að sjá, hvort menn kveikja á þessu á sama hátt hér á landi. Ef deCode stendur andspænis því að missa 20.000 manns úr grunninum af hugmyndafræðilegum ástæðum og aðra 20.000 af peningalegum ástæðum, munu ráða- menn fyrirtækisins fara að byrja að reikna kosti og galla þess að semja við umboðsmenn hópsins. Til að byrja með mun deCode neita öllum samningum og saka umboðsmennina ýmist um öfund eða illgirni, eins og forstjórinn hefur raunar þegar gert. Áfram munu ráðamenn deCode stinga við fótum, þangað til kemur að einhverjum töfraflölda, sem fær þá til umþóttunar. Eftir er að sjá, að íslendingar líkist Bandaríkjamönn- um og taki sig saman tugþúsundum saman um að búa til stórt sameiginlegt verðgildi úr mörgum smáum. Fyrri reynsla af samstöðu manna í hagsmunamálum bendir ekki til, að ástæða sé til að vænta mikilla afreka. Nytsamlegt er samt, að málið sé prófað. Við lifum í þjóðfélagi, þar sem hinir auðugu og voldugu nota mark- aðslögmálin hiklaust til að bæta stöðu sína á kostnað hinna. Það er engan veginn siðlaust, að smælingjarnir geri sameiginlega tilraun til slíks hins sama. Þótt illa hafi gengið að fá menn til samstöðu til að- gerða gegn bensínhækkunum, verður að hafa í huga, að flárhagslegur ávinningur hvers og eins var ekki áþreif- anlegur. Dæmi er hins vegar um, að menn hafl tekið við sér, ef væntanlegur gróði þeirra sjálfra var augljós. Mikil þátttaka í kennitölubraski vegna útboða á hluta- fé í bönkum bendir til, að margir íslendingar séu tilbún- ir að hafa örlítið fyrir því að ná sér í aukapening fyrir ekki neitt. Munurinn var þó sá, að þá gat sérhver fram- kvæmt verkið án samstarfs við aðra í stórum hópi. Ef nógu öflugur hópur myndast um þetta mál, hefur fengizt staðfesting á, að markaðslögmál gildi að fullu hér á landi. Gróðafíknin sé komin í grasrótina sjálfa. Jónas Kristjánsson Þegar utandagskrárumræða var á Alþingi um svonefndan Vatneyrardóm var aðeins einn þingmaður í þingsal, segir Gísli m.a. í greininni. - Á Alþingi, fjárlög rædd. Fjarvera Framsóknar svo að þeir þurfi ekki að kvarta hvað varðar að koma sínu fólki í emb- ætti. Óhætt er að full- yrða að aldrei hefur ver- ið sett og skipað í ýmsar stöður viðurkenndum stuðningsmönnum ríkis- stjórnarflokkanna eins og nú síðastliðin 2-3 ár. Um er að ræða stjórnir, ráð, forstjórastóla, emb- ætti og nánast hvað sem er sem ráðherrar festa hendur á - og það er ekk- ert smáræði. Nær umræöan ekki eyrum fólks? Það er eðlilegt að velta þessari spurningu fyrir sér. Útsendingar frá . „Þaö er ástæða til að skoða við- veru ráðinna og kjörinna og skip- aðra starfsmanna mjög víða í ríkiskerfinu. Og það er verðugt verkefni að gera skilvirkar tillög- ur um aðhald og aga á vinnu- stöðum og að auki meðferð al- mannafjármuna, samkvæmt fjár- iögum.u Kjallarínn Gísli S. Einarsson þingmaður Samfylking- arinnar á Vesturlandi Svo undarlega hefur borið við frá því að Aiþingi kom saman að loknu mánaðarhléi að fjarvera framsókn- armanna hefur vakið athygli þeirra sem á þingi eru. Ástæða fjar- veru þeirra er ekki ljós en þó er eins og þeir hafi áttað sig á því að það er miklu vænlegra til árangurs að halda fundi vítt og breitt um landið, enda auglýsa þeir grimmt fundarher- ferð í blöðum og út- varpi (það er gott að hafa nóga pen- inga). Ágreiningur í ýmsum málum Þegar utandag- skrárumræða var á Alþingi um svo- nefndan Vatneyr- ardóm var aðeins Jónína Bjartmars hv. þingm. við- stödd í þingsal. Enginn ætlaðist til að hún tæki til máls, nýkomin til þings. En skilaboð hafa borist i gegnum uppsláttarfréttir blaða um ágreining Framsóknar og íhalds í ýmsum málum. Mest eru áberandi andstæðar skoðanir um kvótamál- in. Einnig má greina ágreining um kjördæmamálið og einkarekstur útvarps svo eitthvað sé nefnt. Líklega er Framsókn farin að undirbúa átök til að rétta sinn hlut í samskiptum stjórnarflokkanna, þó umræðum svo sem utan dagskrár eru á þeim tíma sem flestir eru í vinnu og þessar umræður vekja takmarkaða athygli. Ef þingfrétta- menn gera slíkum umræðum ekki því betri skil fara þær framhjá meirihluta þjóðarinnar. Þetta er framsóknarmönnum sennilega ljóst og þess vegna er þeim sama hvort þeir séu viðstaddir umræð- ur eða ekki. Fiarvera ráðherra í óundirbún- um fyrirspumum er einnig farin að vekja athygli, a.m.k. á þingi. Það er ekki gott að segja hvemig á að koma til skila því sem fram fer á Alþingi svo vel sé. Það er unnt að fylgjast með umræðum á Inter- netinu, það er unnt að fylgjast með umræðum frá kl. 13.30-16.00 og síðan næsta morgun á virkum dögum að nokkru leyti. Það verður að segja Ríkissjón- varpi til hróss því með því geta þeir sem heima eru fylgst að nokkru með því sem er að gerast, á þessum vettvangi. Ríkissjón- varpið gæti nefnilega sýnt endur- tekið efni á þessum tíma og fengið gott áhorf og með því styrkt sína stöðu í samkeppninni. Eru sjónvarps/útvarps- sendingar mögulegar? Á fjölmörgum vinnustöðum eru í notkun útvarpsheyrnaskjól. Lík- legt er að ýmsir myndu nýta sér hlustun á störfum þingsins ef þeir ættu þess kost. Einnig þarf að skoða hvort ekki er tæknilega unnt að leysa þetta mál án óhóf- legs kostnaðar, bæði hvað varðar útyarp og sjónvarp. í upphafí þessa stutta spjalls var nefnd fjarvera þingmanna. Það er ástæða til að skoða viðveru ráð- inna og kjörinna og skipaðra starfsmanna mjög víða í ríkiskerf- inu. Og það er verðugt verkefni að gera skilvirkar tillögur um aðhald og aga á vinnustöðum og að auki meðferð almannfjármuna, sam- kvæmt fjárlögum. Mín tillaga er sú að menn taki sig á! Þessum orðum er beint til allra innan þess sviðs sem hér er nefnt, einkageirinn sér um sig bæði hvað varöar lagaumhverfi og annað. Gísli S. Einarsson Skoðanir annarra Vísitala neysluverðs „Vísitala neyzluverðs lækkaði um 0,3% nú í febrú- ar og er það í fyrsta sinn í heilt ár, að vísitalan lækk- ar... Þessi lækkun eru góð tíðindi, þótt rekja megi lækkunina að nokkru til útsölutímans. Lækkunin nú hefur vafalaust jákvæð áhrif á fjármálamarkaðinn, því bankar og verðbréfafyrirtæki spáðu hækkun vísi- tölunnar í febrúar, nema FBA spáði lítilsháttar lækk- un (0,15%). Á móti kemur, að kjarasamningarnir framundan valda mikilli óvissu um þróunina... Hag- stofan vinnur nú að gerð nýs neyzluverðsgrunns. Full ástæða er til þess að nota tækifærið og samræma í leiðinni íslenzku vísitöluna neyzluverðsvísitölum í þeim nágrannalöndum, sem við berum okkur saman við í verðbólguþróun." Úr forystugreinum Mbl. 12. febrúar. „Búnaðarbankasiðferði" „í síðasta mánuði komu upp tilfelli þar sem verð- bréfafyrirtæki þóttu hafa gengið ansi langt í því að heimila starfsmönnum sínum að kaupa sjálfir óskráð bréf, sem þeir voru að versla með og hagnast duglega á þeim viðskiptum. Búnaðarbankinn virðist ókrýndur foringi í þessum efnum og heyrist nú víða talað um „Búnaðarbankasiðferði" þegar verið er að vísa til sið- leysis í verðbréfaviðskiptum... Það segir sína sögu þegar bankaráð bankans þarf að koma saman til að áminna bankastjórnina og segja síðan í sérstakri sam- þykkt, sem send er til fjölmiðla, að bankaráðið sé að gera þessa samþykkt til að „taka af allan vafa um að bankaráð Búnaðarbanka íslands hf. leggi áherslu á að bankinn fylgi gildandi reglum um veröbréfaviðskipti." Birgir Guðmundsson í Ritstjórnarspjalli i Degi 12. febrúar. Gagnagrunnurinn „Ég tel að allt tal um persónuvernd í sambandi við grunninn sé til þess fallið að villa um fyrir fólki til að leiða athyglina frá því að hann mun auka réttindi og öryggi sjúklinga gagnvart læknum. Gagnvart heil- brigðiskerfinu. Það er sem sagt verið að „sauma að“ læknum í þeim skilningi að mæla árangur af þeirra störfum. Ég tel að læknar á Islandi eigi að fagna þessu og vinna með því sem ríkisstjómin hefur ákveðiö í stað þess að skipa sér í raðir stjórnleysingja og berjast gegn ákvörðuninni og jafn mikilvægu skrefi í þágu framtíðarlækninga. Ráðast þannig gegn sínum eigin framtíðargrundvelli.“ Vilborg Traustadóttir, form. MS-félags íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.