Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2000, Blaðsíða 32
Opel Zafira FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2000 Iðnskólinn: Númerabirtir felldi „frímann" Skólastarf í Iðnskólanum í Reykja- vík lamaðist að mestu í gærmorgun eftir að auglýst var á útvarpsstöðvum að kennsla þar félli niður vegna veðurs og ófærðar. Á meðan fllefldir iðnskóla- nemar kúrðu áfram undir sæng börð- ust lítil böm til skóla eins og ekkert væri. „Þetta var nemandi héma viö skól- ann sem hringdi á útvarpsstöðvamar og við vitum hver þetta var því Bylgj- an gaf okkur upp símanúmer þess sem hringdi með tilkynninguna tU þeirra. Þeir era með númerabirti og nemand- inn hefur ekki áttað sig á því,“ sagði Inga Guðrún, símamær í Iðnskólan- um, í morgun. „Það vora ekki bara nemendumir sem tóku mark á þessum tilkynningum í útvarpinu heldur margir kennarar líka. Þannig að það vora aðeins nokkrir kennarar að kenna fáum nemendum hér í gær,“ sagði Inga Guðrún. Ekki er ljóst hvemig bragðist verð- ur við athæfl nemandans í Iðnskólan- um sem nú gengur undir nafninu „frí- mann“ en mál hans er til skoðunar á borði skólameistara. -EIR Bíldudalur: Eldur í verslun Um sjöleytið í rnorgtm var slökkviliðið á Bíldudal kvatt út vegna elds í matvöruverslun á staðnum. Að sögn lögreglunnar virðist hafa kviknað í út frá raf- magnsofni. Eldur reyndist ekki vera mikill og gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans. Skemmdir urðu aðallega af reyk og sóti .-JSS í gærmorgun afhenti Ólafur Magn- ússon, fyrir hönd Umhverfisvina, Davíö Oddssyni, forsætisráöherra, 45.386 undirskriftir Islendinga um aö fyrirhuguö Fljótsdalsvirkjun veröi sett í lögformlegt umhverfis- mat. Umhverfisvinir eru óformleg samtök fóiks víöa á landinu sem voru stofnuö til þess aö vinna aö söfnun undirskrifta til marks um vilja þjóöarinnar aö fyrirhuguö virkj- un fái sanngjarna málsmeöferö. Fyrir miöju stendur Siv Friðleifs- dóttir. DV-mynd GVA Guðbjörn Páll Sölvason viö brunarústir húss síns aö Hafnargötu 8 í Höfnum. DV-mynd Arnheiöur Tveggja hæða timburhús í Höfnum brann til kaldra kola Missti nánast allt sitt í brunanum - rætt við eigandann, Guðbjörn Pál Sölvason stýrimann DV, Suðurnesjum: „Mín fyrstu viðbrögð voru þau að hringja í neyðarlínuna og ég var eins og biluð grammófónplata og vissi lítið hvað ég var að segja,“ sagði Guðbjöm Páll Sölvason, eig- andi tveggja hæða timburhúss að Hafnargötu 8 í Höfnum sem brann til kaldra kola aðfaranótt mánu- dags. Guðbjöm var staddur í Njarðvík og var því húsið mann- laust. Það var um klukkan hálfþijú sem tilkynning barst slökkviliði Brunavama Suðumesja sem sendi út allt tiltækt lið og vom slökkvi- liðsmenn komnir á staðinn 15 mín- útum eftir að kall barst. Jón Guð- laugsson er varaslökkviliðsstjóri BS: „Þegar við komum á vettvang var þakið fallið og húsið alelda. Vindhraði var þá um 35 metrar á sekúndu, fárviðri, færð þung og afar hált. Nokkru eftir að við kom- um fór rafmagnið af og þar með stöðvuðust dælumar sem halda uppi vatnsþrýstingi á brunahönum svo við gátum aðeins notast við það vatn sem var á bílunum." Jón sagði að þeir hefðu átt fullt í fangi með að halda sjálfum sér vegna gríðarlegs vindstrengs og að lítið hefði mátt út af bera til að eld- ur næði að komast I nærliggjandi timburhús og lögðu þeir áherslu á að bjarga því. Slökkvistarf tók rúman klukkutíma en vakt var framundir morgun að slökkva í glæðum. Eigandinn Guðbjöm Páll var að vonum sleginn þegar við hittum hann í morgunsárið en hann missti nánast allar sínar verald- legu eigur í brunanum. „Ég treysti mér ekki úteftir fyrr en í birtingu í morgun. Það var nágranni minn og kunningi, Jón Borgarsson, sem hringdi og tilkynnti mér að kvikn- að væri í húsinu. „Guðbjöm keypti húsið, sem var næstum aldargam- alt, árið 1991, nokkru eftir að hann flutti frá Flateyri, og ætlaði i fyrstu aðeins að skipta um þak og glugga í því en vegna þess hvað það var illa farið ákvað hann að taka það alveg í gegn. „Það má eiginlega segja að ég hafi nánast endurbyggt það bæði að innan og utan og lagt allt mitt í það.“ Guðbjöm, sem lengst af hefur verið stýrimaður en þurfti að koma í land eftir að hafa slasast á hendi, segist hafa heillast af Höfn- unum þegar hann flutti úr Önund- arfirðinum en húsið stóð nánast nokkur fet frá sjónum þar sem „brimið þvær hin skreipu sker“ og vakti húsið athygli vegfarenda fyr- ir það hversu faflegt og vel uppgert það var. Húsið og innbúið var vátryggt en verið er að rannsaka eldsupp- tök. -AG Veðrið á morgun: Él nyrðra en léttara fyrir sunnan Spáð er norðanátt, 10-15 m/s, og éljum norðan til og á Austfjörðum en léttskýjuðu sunnanlands. Frost verður 1-10 stig, kaldast inn til landsins. Veðrið í dag er á bls. 37. Sjóslysið: Leití birtingu í birtingu í morgun hófst aftur leit að skipverja sem saknað var eftir að ellefu tonna bátur, Gunni RE-51 fórst suðvestur af Akranesi um hádegi i gær. Tveir menn vora í bátnum. Þyrla Landhelgisgæslunanr bjargaði öðrum þeirra úr gúmbjörgunarbáti, en hins var leitað fram í myrkur í gærdag. í morgun hófu flugbjörgunar- sveit Akraness og björgunarsveitir Akraness og Borgamess leit að nýju og var m.a. áætlað að ganga fjörur. Sjá bls. 2 -JSS Þór Magnússon: Nauðsynlegt „Ástæðan fyrir brottrekstri fjár- málastjóra er að þetta þótti nauðsynleg aðgerð til að stokka upp fjármál safns- ins,“ segir Þór Magnússon þjóðminja- vörður. Eins og fram kemur á bls. 2 hefur Hrafni Sigurðssyni, fjármála- stjóra Þjóðminjasafrisins, verið sagt upp störfum en útgjöld safnsins fóra þriðjung ffarn úr fjárlögum frá því í fyrra en framúrkeyrslan nemur að minnsta kosti 50 mifljónum að sögn Sigurðar. „Menn taka þessum hlutum aldrei vel,“ sagði Sigurður en skiptar skoðanir hafa verið meðal starfsmanna um réttmæti brottvikningarinnar. -hól Haft er eftir Jakobi Magnússyni f norska Dagblaðinu að Norsk Hydro hefði aldrei fengið leyfi til að byggja álver í Noregi á sama hátt og fyrir- tækið notfærir sér viðkvæma ís- lenska náttúru. í sama blaði segir að Björk og 45 þúsund íslendingar muni mótmæla aðgerðum Norð- manna. Á myndinni eru Jakob, Egil Myklebust og Ásdfs María Franklín á fundi íslenskra og norskra um- hverfisverndarmanna í gær. Fékk á sig brotsjó Túnfiskveiðibáturinn Byr frá Vest- mannaeyjum lenti í slæmu veðri við írlandsstrendur aðfaranótt sunnu- dags, fékk á sig brotsjó og skemmdist lítillega. Að sögn Sævars Brynjólfs- sonar útgerðarmanns urðu engin slys á mönnum en þeir gerðu þó stopp á írlandi til að taka olíu og annað. Bát- urinn fór út fyrir um viku síðan í tveggja mánaða túr og er á leiðinni suður fyrir Asoreyjar. -hdm Cirnilegur 115 g Áningarborgari, franskar, súperdós, Piramidelle-súkkul., kr. 590. Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi simi 564 2100 Netfang: midjan@mmedia.is SYLVANIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.