Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2000, Síða 33
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
37
Þessi mynd eftir Roni Horn er mynd
manaöarins í Listasafni ísiands.
Roni Horn í
Listasafninu
Bandaríska listakonan Roni Horn
hefur undanfarin 25 ár komið reglu-
lega til íslands og lítur á landið sem
vinnustofu sina. Sýningin hennar
nú í Listasafni íslands ber yfirskrift-
ina PI sem vísar til hinnar stærð-
fræðilegu einingar um sambandið
milli þvermáls og ummáls hrings og
er í senn rökræn og frumspekileg.
Verkið samanstendur af 45 ljós-
myndum sem teknar voru á íslandi,
á stað úti á landi þar sem fólk lifir
sínu hversdagslega lífi, og tengjast
könnun listakonunnar á gagn-
kvæmu sambandi manns og staðar.
Þá endurspeglar sýningin reynslu
-----------listakonunnar af
Sýningar dvö1 hennar
nyrstu
a
svæðum
íslands umhverfis heimskautsbaug.
Það ber ekki að líta á sýninguna
sem tilraun til að lýsa þessum svæð-
um í sjálfu sér, heldur sem rann-
sókn á samskiptum listakonunnar
við þetta umhverfi í tíma og rúmi.
Sýning þessi hefur vakið mikla at-
hygli og farið víða um Bandaríkin
og meginland Evrópu, auk þess sem
myndimar hafa verið gefnar út í
glæsilegu bókverki. Sýning Roni
Hom er i sal 2 og til 5. mars.
Upplestur í Gerðarsafni
í dag kl. 17 verður upplestur á veg-
um Ritlistarhóps Kópavogs í Gerðar-
safni. Kópavogsskáldin Helga K. Ein-
arsdóttir, Valgerður Benediktsdóttir
og Þórður Helgason lesa ljóð og sögur
eftir sig og aðra og Þórhallur Gunn-
arsson leikari les sögu eftir móður
sína, Guðríði Lillý Guðbjömsdóttur.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Menningar- og friðarsam-
tök íslenskra kvenna
Aðalfundur verður haldinn í kvöld
kl. 20 í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10
(bakhús). Gestur fundarins verður
Petrína Rós Karlsdóttir frönskukenn-
ari. Mun hún segja frá námskeiði í
Tungumálamiðstöðinni í Graz, sem
kallaðist Tungumálakennsla og frið-
ur (Language Teaching and Peace).
Fundurinn er öllum opinn.
Amigos
Barbeque
og blús
Nokkuð er um liðið síðan heyrst hefur í einum
okkar mesta blúsmanni, Halldóri Bragasyni, sem í
mörg ár rak blúshljómsveitina Vinir Dóra. Dóri
kom mörgum ungum tónlistarmönnum á bragðið í
blúsnum enda fór hann ótrauður slóðir sem fáir
hér á landi hafa gert og hefur ávallt haldið tryggð
við tregann, auk þess sem hann sá til þess að
þekktir bandarískir blúsmenn heimsóttu okkur,
meðal annars Pinetop Perkins, sem hann hljóðrit-
aði plötu með.
Skemmtanir
í kvöld ætlar Dóri að hóa í vini sína og leika
blús á veitingastaðnum Amigos í Tryggvagötu.
Blúskvöldið á Amigos gengur undir nafninu Bar-
bique og blús. Eins og nafnið gefur til kynna verð-
ur boðið upp á barbeque-mat og segja þeir sem til
þekkja að enginn matur bragðist betur með blúsn-
um. Með Dóra í kvöld eru margreyndir blúsmenn,
sem áður hafa leikið með honum, gítarsnillingur-
inn Guðmundur Pétursson, Jón Ólafsson á bassa
og hinn óþreytandi Ásgeir Óskarsson á trommur.
Hefja þeir leik um klukkan 22.
Halldór Bragason fer á slóöir blúsins á Amigos í kvöld.
Stormviðvörun
Viðvörun: Búist er við stormi
(meira en 20 m/s) á Suðurlandi og
Miðhálendinu. Austan og norðaust-
an 10-15 m/s og smáél við norður-
Veðrið í dag
og austurströndina, en 10-23 m/s
og fer að snjóa syðst á landinu ná-
lægt hádegi.
Frost verður yfirleitt á bilinu 0 til
5 stig - minnkandi norðaustanátt og
léttir til sunnanlands í nótt.
Höfuðborgarsvæðið: Austan
8-13 og síðan 13-18 m/s, dálítil snjó-
koma með köflum siðdegis. Minnk-
andi norðaustanátt og léttir til í
kvöld og nótt. Hiti verður um frost-
mark í dag, en kólnar í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 18.06
Sólarupprás á morgun: 09.15
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.03
Árdegisflóð á morgun: 05.25
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö -2
Bergstaöir léttskýjað -6
Bolungarvík skýjaö -3
Egilsstaöir -2
Kirkjubœjarkl. léttskýjaö -2
Keflavíkurflv. skýjaö -1
Raufarhöfn alskýjaö -3
Reykjavík léttskýjaö -3
Stórhöfói alskýjaö 2
Bergen léttskýjaö -1
Kaupmhöfn slydda 1
Ósló heiöskírt -10
Stokkhólmur -2
Þórshöfn rigning 3
Þrándheimur skýjaö -6
Algarve heióskírt 9
Amsterdam léttskýjaö 4
Barcelona léttskýjaö 9
Berlín skýjaö -1
Chicago léttskýjað -6
Dublin léttskýjaó 1
Halifax rigning 4
Frankfurt snjók. á siö. kls. 1
Hamborg þokumóóa -1
Jan Mayen snjóél -8
London skýjaö 3
Lúxemborg snjók. á síð. kls. -1
Mallorca hálfskýjað 13
Montreal -11
Narssarssuaq alskýjaö 1
New York skýjaó -3
Orlando heiöskírt 15
París hálfskýjaö 2
Róm þrumuveöur 5
Vín snjóél 3
Washington léttskýjaö 3
Winnipeg skýjaö -17
Hafís og loftslag
1 dag kl. 16.15 heldur Dr. Martin W.
Miles fyrirlestur um hafísmælingar pg
loftslagsbreytileika við norðanvert
___________________Norður-At-
Samkomur sal Háskólans
á Akureyri.
Dr. Miles dvelst sem gistifræðimaður
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar í
Davíðshúsi á Akureyri. Fyrirlesturinn
er á ensku og er öllum opinn.
Grunnskólahátíð
í Hafnarfirði
í kvöld verður Grunnskólahátíðin í
Hafnarfirði haldin í íþróttahúsi Víði-
staðaskóla. Það eru nemendur á ung-
lingastigi og Æskulýðsráð Hafnarfjarð-
ar sem standa að hátíðinni. Verða flutt
ýmis verk eftir nemendur á unglinga-
stigi. Foreldrum og öðrum aðstandend-
um unglinganna boðin ókeypis að-
gangur á sýninguna. Um kvöldið verð-
ur dansleikur fyrir unglinga i grunn-
skóladeildum skólanna í íþróttahúsinu
við Víðistaðaskóla. Húsið opnar kl.
20.30 og verður margt spennandi í
boði. Hljómsveitirnar Súrefni og Sálin
leika fyrir dansi. Að dansleik loknum
verða rútuferðir um bæinn þannig að
allir komist heilir heim.
Mosfellsheiði
ófær
Góð vetrarfærð er á flestum vegrnn á Suður- og
Suðvesturlandi, en þó er ófært um Mosfellsheiði
og þungfært um Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er
verið að hreinsa heiðar og fjallvegi en þar er tals-
Færð á vegum
verður skafrenningur. Á Norður-, Norðaustur- og
Austurlandi er verið að hreinsa allar aðalleiðir og
ættu vegir að verða færir innan tiðar. Hálka er
víöast hvar.
Steini Krupa í Klaustrinu
Á hinum myndarlega veitinga-
stað Klaustrinu við Hverfisgötu
verður djassinn í heiðri hafð-----
ur i kvöld þegar Kvartett
Steina Krupu stígur á svið og_____
flytur þekkta djassstandarda, lög
sem allir ættu að kannast við.
Kvartett Steina Krupu er þannig
skipaður að Steini eða Þorsteinn
Skemmtanir
Eiríksson, eins og hann heitir
fullu nafni, leikur á trommur, Sig-
urjón Árni Eyjólfsson er á saxó-
fón, Sveinbjörn Jakobsson á gítar
-----og Gunnar H. Pálsson á
bassa.
_____Allt eru þetta þrautreyndir
spilarar sem kunna vel við sig í
sveiflunni.
dags®)
Bruce Willis og Nick Nolte í hlut-
verkum sínum.
Morgunverður
sigurvegara
Fjöldi þekktra leikara prýðir
Breakfast of Champions sem sýnd
er í Bíóborginni. í aðalhlutverk-
um eru Bruce Willis, Albert Finn-
ey, Nick Nolte, Barbara Hersey,
Glenne Headley, Lukas Haas,
Buck Henry og Omar Epps.
Myndin er byggð á frægri skáld-
sögu eftir Kurt Vonnegut og leik-
stýrt af Alan Rudolph. Breakfast
of Champions er svört kómedía
um brostna menn i brothættri
veröld. Dwayne Hoover (Bruce
Willis) er einn virtasti við-
skiptajöfurinn í
Midland City. Risa- /////////
Kvikmyndir
vÉÍiÉÍ
veldi hans stækkar og
stækkar í sama hlutfalli og heilsa
hans bilar og er nú svo komið að
hann er á mörkum þess að fá
taugaáfall. Á meðan er misskilinn
rithöfundur, Kilgore Troat (Al-
bert Finney), á leiðinni til Mid-
land City þar sem hann er heið-
ursgestur á fyrstu menningarhá-
tíð borgarinnar.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsum:
Bíóhöllin: Bringing out the Dead
Saga-bíó: Englar alheimsins
Bíóborgin: Breakfast of Champions
Háskólabíó: Stigmata
Háskólabíó: American Beauty
Kringlubíó: Toy Story 2
Laugarásbíó: The Insider
Regnboginn: Anywhere but here
Stjörnubíó: Bone Collector
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
í ÁSKRIFT
í SÍMA
550 5000
Náðu
forskoti f
viðskipfum
á Vfsí.is
visir.is
Notaöu visifingurinn’.