Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Page 9
Oskir þú eftir að komast í kynni við virkilega sérstaka konu þá er
heimasíðan www.womenbehindbars.com eitthvað fyrir þig. Þar er
hægt að komast í samband við spólgraðar glæpakonur sem sitja í
bandarískum fangelsum og óska eftir hjásvæfum eða jafnvel
eiginmönnum til að eiga Ijúfar stundir með þegar þær sleppa út.
Glæpakvendi óska
eftir kynlífsfélögum
„Ég elska ferðalög og allskyns
útiveru. Er hrifin að rómantísk-
um og sexí kvöldstundum og
kvöldverðum við kertaljós.“ Þetta
segir hin 27 ára gamla Barbara
um sjálfa sig á heimasíðunni
www.womenbehindbars.com en
þar óskar hún eftir að komast í
samband við skemmtilegan mann
yfir flmmtugt með framtíðarsam-
band í huga. Þeir sem kveikja á
þessari auglýsingu verða hins
vegar að bíða aðeins eftir Barböru
því hún losnar ekki úr kvenna-
fangelsinu fyrr en í janúar á
næsta ári. Biðin eftir Barböru er
samt frekar stutt miðað við marg-
ar þær stúlkur sem lagt hafa út
auglýsingar á þessari heimasíðu
því margar þehra sleppa ekki út
fyrr en eftir mörg ár.
Vilja breyta lífi sínu
Fyrirtækið sem stendur á bak
við heimsíðuna hefur verið á Net-
inu síðan 1997. Hugmyndin á bak
við siðuna er kominn frá manni
að nafni Frank Muniz. Hann
ákvað að hjálpa vinkonu sinni
„Ég er hvers manns hugljúfl. Ástríðu-
full, hugulsöm og skemmtllegur fé-
lagsskapur," segir Helen sem er eln
þelrra kvenna sem auglýsa eftlr
maka á síðunni www. womanbehlnd-
bars.com. Helen sleppur úr fanga-
klefanum í ágúst.
sem sat í fangelsi til að komast í
samband við umheiminn og setti
auglýsingu fyrir hana á Netið.
Þegar hún var sett inn hafði
kærastinn yflrgefið hana, fundið
sér nýja ástmey og sú sem sat í
fangelsinu var mjög einmana og
algjörlega niðurbrotin. Síðan þá
hefur starfsemi Franks undið upp
á sig og í dag er hann með tvær
manneskjur í vinnu við að slá inn
auglýsingar á síðuna. Hann segir
að það sé mikil þörf á síðu sem
þessari því konurnar sem auglýsa
á síðunni hjá honum viiji gjarnan
fá annað tækifæri og séu virkilega
tilbúnar að breyta lífl sínu til hins
betra þegar þær sleppa út.
Ekki upplýsingar
um glæpinn
í dag eru um 1600 konur sem
eru á skrá á síðunni og er þeim
skipt niður í flokka eftir aldri og
húðlit. Að sögn forsvarsmanna
síðunnar er tilgangur hennar sá
að gefa konum sem sitja í banda-
rískum fangelsum tækifæri til að
lifa eðlilegu lífl þegar þær sleppa
út. Margar þeirra hafa misst allt
samband við vini sína og kunn-
ingja og verið útskúfað úr fjöl-
skyldunni. í auglýsingum kvenn-
Barbara er 27 ára gömul og hefur
gaman af allri útlvist.
anna stendur ekki hvað þær eru
dæmdar fyrir heldur er þar ein-
ungis sagt frá í hvaða fangelsi þær
sitja og einnig eru gefnar upplýs-
ingar um hæð, háralit og þyngd.
Að auki hafa margar þeirra skrif-
að nokkur orð um sjálfar sig og
látið skanna inn mynd af sér.
Konumar sem hafa sett nafn sitt á
síðuna eru sumar að auglýsa eftir
góðum eiginmönnum meðan aðr-
ar óska einungis eftir heitu kyn-
lifl. Vilji maður komast í samband
við eitthvert af glæpakvendunum
þá verður maður að borga um 250
íslenskar krónur fyrir að fá hvert
heimilisfang uppgeflð.
Konudagur
Gefð'enni blóm. Gefðu henni blðmavönd og
sólin brosir við þér. Hún er konan þín, mann-
andskoti. Móðir barnanna þinna og því er það
minnsta sem þú getur gert að gefa henni
blóm.
Já, konudagurinn er á sunnudaginn. Þá krjúpa
feöur og synir þessa lands og virða konuna. í
þeirra augum er konan ekki minnihlutahópur.
Hún er helmingur mannskyns
og upphafiö af mannlegri
jarövist. En þvi miður hef-
ur henni ekki gengið vel
aö aðlagast nútímanum
og á síðustu öld stökk
hún ofan í skotgrafirnar
og gerði sig að minnihluta-
hópi.
Gefið henni launahækkun. Það er það sem
konan á skilið. Gommu af peningum. í það
minnsta jafnmikla peninga og karlar fá fyrir aö
vera karlar. Því ættu atvinnurekendur að gefa
öllum konum launahækkun á mánudaginn.
Síðan geturðu auðvitað boðið henni út að
borða, sent henni
skeyti eða bara sagt
henni að þú kunnir að
meta hvaö hún hefur
gert fyrir mannskyniö.
I það minnsta verð-
uröu að sýna móður
þinni, systur og dóttur
þá virðingu sem hún á
skiliö. Lestu að lokum
kvennabókmenntir.
Þær munu bæta þinn
innri mann.
InWear
Kringlunni
18. febrúar 2000
f ó k u s
9