Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Qupperneq 14
*
>
j*
>
*
>
f Ó k U S 18. febrúar 2000
Jón Elís Guðmundsson gengur dags daglega undir nafninu
Jón massi. Frá því hann setti á stofn sitt eigið skellinöðru-
verkstæði í Breiðholtinu á unglingsaldri hefur hann verið
viðloðandi alls kyns rekstur. Hann hefur starfað sem einka-
þjálfari í mörg ár, komið sjálfum forsetanum og öðrum
valinkunnum íslendingum í gott form og á nokkur íslandsmet
í kraftlyftingum. Nú er hann hins vegar búinn að trappa niður
þjálfunina, segist hafa fundið sjálfan sig og er farinn að selja
barnaföt víða um land. Snæfríður Ingadóttir hitti massann.
Voðvabunt
í barnafötum
Þegar maður rennir augunum yfir
Jón massa þá stoppar maður ósjálfrátt
við hendumar á honum. Þær eru, eins
og aðrir hlutar líkamans, kubbslegar
og kraftalegar, með óvenju stuttum
nöglum.
„Ég hef alla tíð nagað mikið á mér
neglumar og kem ekki til með að
breyta því,“ segir Jón ákveðinn og
skammast sín ekkert fyrir að það sjá-
ist i kvikuna á honum enda er það
ekki margt sem Jón skammast sín fyr-
ir eða horfir á með eftirsjá.
„Maður tekur alltaf rétta ákvörðim
á þeim tíma sem maður tekur hana,
hversu vitlaus sem hún kannski virð-
ist vera í dag,“ segir Jón sem hefur
fengið ýmsar kjaftasögur á sig í gegn-
um árin og kannski ekki nema von
þar sem ekki hefur beint farið lítið fyr-
ir honum.
„Ég hef fengið alls konar kjaftasög-
ur á mig, hvort sem það eru sterar, eit-
urlyf eða annað. Landinn er bara
svona. Ég hef líka kannski gefið góðan
höggstað á mér. Mér fmnst voða gam-
an að vera til en í rauninni spennti ég
bogann of hátt. Ég var búinn að fjár-
festa grimmt, bæði í bílum og fasteign-
um, og það varð mér að falli, þannig
komu miklar kjaftasögur. Svo fór mað-
ur náttúrlega líka mikið í djammið
þegar illa gekk,“ segir Jón þar sem
hann situr dálítið stressaður með
hendurnar spenntar um stólarmana
og bætir við: „Það er ekki svo langt
síðan ég vaknaði til lífsins og fann mig
endanlega og vildi fara að takast á við
það sem stendur mér næst.“
Skeliinöðrugæi
úr Breiðholtinu
Jón Elís er 27 ára gamall. Hann er
fæddur og uppalinn í Fellunum og á
tvö systkini. Hann hafði strax mikinn
áhuga á tækjum og tólum og opnaði
sitt eigið skellinöðruverkstæði 13 ára
gamall. Fjórtán ára tók hann þátt í
sínu fyrsta kraftlyftingamóti.
„Ég kynntist strák í Kópavoginum
sem var einu ári eldri en ég og var að
æfa kraftlyftingar og þannig æxlaðist
það að ég byrjaði að æfa. Þessi strák-
ur heitir Auðunn Jónsson og er ein
skærasta stjaman i kraftlyftingaheim-
inum í dag,“ segir Jón sem segist alltaf
hafa verið sterkur og fundist gaman
að taka á. Að loknum grunnskóla lá
leiðin beint út á vinnumarkaðinn og
Jón hefur ekki sest á skólabekk síðan
hurðin í Fellaskóla skelltist á eftir
honum, að frátöldum nokkrum einka-
þjálfaranámskeiðum í Köln. Hann
byrjaði að vinna hjá Rafmagnsveit-
unni og þegar hann var 17 ára gamall
kaupir hann sér loftpressu og byrjar
að hamra á verktakalaunum sem
trylltur maður. Á sama tíma flytur
hann einnig að heiman. Ári seinna,
þegar Jón Páll opnar líkamræktarstöð-
ina Gym 80, fer Jón að vinna hjá hon-
um. Rúmlega tveimur árum seinna
deyr Jón Páll og Jón Elís kaupir stöð-
ina ásamt fleirum. Þá er Jón 21 árs
gamall og er á stöðinni í tvö ár í við-
bót en dregur sig þá út úr rekstrinum
vegna samstarfsörðugleika. Næsta
hálfa árið þjálfar Jón í Ræktinni en
flytur sig svo yfir i World Class þar
sem hann hefur verið æ síðan og tek-
iö margan mætan íslendinginn í gegn
- allt þar til fyrir 9 mánuðum þegar
hann ákveður að trappa þjálfunina
niður.
Barnaföt frá Donnu Karan
Jón hefur alla tið verið viðloðandi
alls konar viðskipti, svo sem fasteigna-
sölu og bílabrask. Og það eru einmitt
hans nýjustu viðskipti sem eru ástæð-
an fyrir því að hann hefur tekið sér
hlé frá þjálfuninni í bili.
„Ég vann í þessu frá kl. 8 á morgn-
ana til kl. 20 á kvöldin þannig að
þjálfunin tók alla mina orku og maður
var bara gjörsamlega útkeyrður. Ég
titla mig enn sem einkaþjálfara þvi ég
er alls ekki búinn að syngja mitt sið-
asta í þessu starfi og um næstu mán-
aðamót þarf ég t.d. að fara að þjálfa
nokkra aðila. Mér finnst þetta líka
skemmtilegt og rosalega gefandi starf
en ég verð bara að fá smátíma til að
sinna mínu nýja fyrirtæki," segir Jón
og er þá að tala um bamafatakeðjuna
Fídus sem hann, ásamt Söm Regins-
dóttur, konu sinni, er eigandi að.
Það var fyrir rúmum þremur árum
að Jón byrjaði í bamafatabransanum
þegar hann kom inn í Do re mí-keðj-
una.
„Það var aðili sem ég treysti algjör-
lega í blindni og skrifað upp á mikið af
pappírum fyrir án þess að fylgjast nán-
ar með fjárhagnum. Ég er svona gæi
sem framkvæmir en það endaði bara
með ósköpum og ég fór úr þessum
rekstri fyrir fjórum mánuðum en verð
líklega næstu 3 árin að súpa seyðið af
þvi rugli. Þetta hefur verið alveg
hrikalega dýr skóli, örugglega dýrari
en Harvard, en ég hef líka alveg örugg-
lega lært meira en í Harvard," segir
Jón, dæsir og heldur áfram:
„Við konan mín erum nýbúin að
stofna okkar eigin heildsölu og emm
með nokkrar búðir úti á landi, undir
merkinu Fídus, og svo tvær búðir
uppi í Kringlu sem heita Morane og
Zele. Do re mí var meö ódýrari varn-
ing en við verðum með meiri tísku-
fatnað og flottari merki, eins og Mex
og Donnu Karen. Þetta verða bama-
fatabúðir með klassa."
Heldurðu virkilega að fólk vilji
kaupa svona dýr og flott fót á krakk-
ana sína?
„Já, við íslendingar erum svo hrika-
lega snobbaðir. Kaupmátturinn hefur
aukist alveg gríðarlega og við eyðum
meira bæði í bömin okkar og útlitið,"
segir Jón og er viss um að það verði
góð sala í barnafötunum.
Á meira en 20 bíla
Bílar hafa óumdeilanlega verið stór
hluti af lífi Jóns.
„Ég er með sjúklega dellu og á í
kringum tuttugu og eitthvað bíla. Ég á
hvem bíl aldrei mjög lengi og er alltaf
að selja og kaupa. Einhvem tímann
fékk ég þá hugmynd að ég ætlaði að
eiga þrjátíu og eitthvað bíla svo ég
gæti skipt um bíl á hveijum degi alla
daga mánaðarins," segir Jón sem er
með bílaplan sem lítur út eins og besta
bílasala. Akkúrat núna er James
Bond-bíllinn Z-3 í miklu uppáhaldi hjá
Jóni og hann segist líka hafa mjög
gaman af mótorhjólinu sínu, Hondu
CBR 900. Þó að bílamir skipti Jón
miklu máli þá er það samt fjölskyldan
sem er númer eitt.
„Margt fólk á mínum aldri sinnir
ekki fjölskyldunni sem skyldi. Auðvit-
að skipta allir hlutir einhverju máli
en kjaminn er og verður fjölskyldan. í
dag eru endalausir skilnaðir og fram-
hjáhöld og eitthvert bull út um allt.
að
fara
að
Ekki það að
maður hafí
ekki einhvem
tímann tekið
þátt í þessu
sjálfur en
einhvers
staðar verð-
ur maður
stoppa og
hugsa. í dag legg ég
metnað minn í það að
sinna fjölskyldunni.
Ég er búinn að reyna
mikið um ævina en
þetta er það sem skipt-
ir mig mestu máli í
dag,“ segir Jón sem á
hálfs annars árs
gamlan son með
sinni núverandi
konu.
Lærdómur
á Balí
Þrátt fyrir að líf-
ið hafi farið ágæt-
lega með Jón og
hann segist vera
hamingjusamur
maður í dag er
ekki hægt að
sleppa honum án
þess að spyija:
Hefurðu aldrei
séó eftir því að
hafa ekki gengið
menntaveginn?
„Vegna fjár-
hags- og fjölskylduaðstæðna var
menntun bara ekki til umræðu hjá
mér. Ég þurfti bara að fara að vinna.
Ég er mjög fljótur að læra og skynja
hluti en það að maður er ekki mennt-
aður hefur óneitanlega tafið mann of-
boðslega mikið,“ segir Jón sem er þó
alls ekki bitur.
Nú brennur margt ungt fólk í skinn-
inu eftir því að komast út í viðskiptalíf-
ið og er að spá í hvort það eigi aö klára
skólann fyrst eóa bara hrinda þessari
frábœru bisnesshugmynd, sem það er
með í kollinum, í framkvœmd. Meö
hverju mœlir þú?
„Þeir sem hafa tækifæri til þess að
mennta sig ættu að gera það. Áður en
25 ára aldri er náð sér maður ekki eft-
ir þvi að vera ekki menntaður en fer
svo allt í einu að fatta hvað þetta er
mikilvægt. Það er ekkert mál að vera
héma og vinna fyrir nýjum bíl, leig-
unni og vera á Skuggabamum um
helgar. Svo tekur bara allt annað við,“
segir Jón sem sér sjálfan sig fyrir sér
í trékofa á Balí eftir 20 ár.“ Ég hef
aldrei farið til Balí en það hefur lengi
verið draumur minn að fara þangað
og vera þar á sumrin og lesa og læra.
Ég myndi kaupa mér minn eigin kenn-
ara og segja honum hvað mig langar
til að læra,“ segir Jón dreyminn.
Hvaö er þaö sem þú myndir svo vilja
lœra?
„Ég hef mjög gaman af trúmálum og
andlegum málefnum. Mér finnst mik-
ilvægt að skilja hvers vegna maður
gerir þennan hlut en ekki hinn. Auð-
vitað getur maður kannski aldrei skil-
ið sjálfan sig til fullnustu en maður
getur þó allavega orðiö enn betri
manneskja," segir Jón sem ömggt er
að enginn efast um að sé góð mann-
eskja nú þegar.
„Eg ætla að taka
kg í samanlögðum ár-
angri i kraftlyftingum.
Ég vil ekki deyja án
þess að það sé búlð,“
segir kraftlyftingamað-
urinn og einkaþjálfarfnn
Jón massi sem hefur
þjálfað margar okkar
þekktustu poppstjörnur
og þingmenn.
i
14