Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Blaðsíða 17
Ekki eins og að
afgreiða í búð
Steinbergur Finnbogason,
25 ára fasteignasali
„Öll sölumennska er hrein og bein
veiðimennska. Þetta er samt ekki eins
og að vinna í búð. Starf mitt gengur út
á það að ná kúnnanum, ná eignunum
og vera miiligöngumaður þar á milli,“
segir Steinbergur Finnbogasort sem
vinnur sem fasteignasali hjá Fasteigna-
miðluninni í Siðumúla 11. Steinbergur
verður heldur betur að nota veiði-
mannataktana í vinnunni því eins og
flestir í fasteignabransanum þá er hann
á prósentum. „Auðvitað er maður með
Laun fasteignasalans Steinbergs eru prósentu-
tengd þannig að hann verður að standa sig ætli
hann að koma heim með fisk í soðið.
fullt af trixum en engin óheiðarleg," seg-
ir Steinbergur og brosir tvírætt. Það
V' * Mjf
sem hann segir að skipti mestu máli í
sínu starfi er að hafa áhuga og þekk-
ingu á því sem maður er að fást við og
koma vel fyrir. Einbeitingin þarf að
vera 100%, ekkert má koma honum á
óvart og hann þarf alltaf að vera skrefi
á undan þeim aðila sem að málinu
kemur.
„Það er ákveðinn thriller að loka
samningum sem örugglega má líkja við
það þegar veiðimaður nær bráðinni,"
segir Steinbergur sem segist samt fá
miklu meira út úr fasteignasölunni
heldur en hefðbundinni veiðimennsku.
Hann segist þó hafa gert mistök í samn-
ingum vegna fljótfæmi og græðgi en
hefur að sjálfsögðu lært af þeirri
reynslu.
> ,
ÉÉ''
Minnir mikið á sjómennskuna
Ragnar Már Gunnarsson, 28 ára verðbréfamiðlari
„Að gera góðan díl er
eins og að setja í góðan
lax,“ segir verðbréfamiðl-
arinn Ragnar Már Gunnar-
son sem hefúr siðustu tvö
árin unnið hjá fyrirtækinu
Burnham. „Þetta starf
minnir mikið á sjómennsk-
una en ég var sjómaður í
mörg sumur. Verðbréfasal-
an er ekki ósvipuð því að
vera að vinna á færum.
Þetta er tamavinna. Mað-
ur finnúr góðan blett og
rífur upp 400-500 tonn. Þá
er allt brjálað en þess á
milli koma rólegir tímar,“
segir Ragnar sem hefur
mikið veiðieðli í sér. Fyrir
utan að hafa verið á sjón-
um þá er hann mikið í sil-
ungi og laxi og fer líka á
fuglaveiðar. „Ef marka má
umræðuna sem hefur verið
undanfarið í fjölmiðlum þá
eru vinnubrögðin ansi mis-
jöfn í verðbréfageiranum.
Hér hjá okkur erum við
með óskrifuð lög sem
ganga út á það að við vinn-
um við að ná sem bestum
kjömm fyrir kúnnann en
erum ekki í samkeppni við
kúnnann með þvi að vera
að fjárfesta fyrir okkur,“
segir Ragnar og segist um-
gangast sína kúnna með
frjálslegri framkomu og á
vinabasis.
„Myndir þú treysta manni í gallabuxum og hippamussu
fyrir nokkrum milljónum?" spyr veröbréfamiölarinn
Ragnar sem mætir í jakkafötum í vinnuna, einkennis-
fötum veröbréfamiölara víöa um heim.
4,,
V
%
viðmot
virkar
langbest
Aðalheiður Inga
Þorsteinsdóttir,
25 ára fréttamaður
Ef það er eitthvert starf
sem maður þarf að sýna
veiðimannatakta í þá er
það tvímælalaust frétta-
mennskan. „Það er reynd-
ar meira um það að frétta-
menn sem starfa á inn-
lendum fréttum þurfi að
leggja beitu fyrir viðmæl-
endur sína,“ segir Aðal-
heiður Inga Þorsteinsdótt-
ir sem sjálf vinnur á er-
lendum fréttum á frétta-
stofu Ríkissjónvarpsins.
„Ég hef nokkrum sinnum
farið í laxveiði en einung-
is veitt einn silung á æv-
Fréttakonan Aöalheiöur hefur einungis veitt einn silung á
ævi sinni en landaö þeim mun fleiri fréttum.
inni. Ég er nú ekki meira
fiskin en það,“ segir Aðal-
heiður, en áður en hún
fór á skjáinn starfaði hún
um árabil sem blaðamað-
ur á Morgunblaðinu og
veiddi þó nokkrar frétt-
imar þar. „Ég á nú samt
langt í land með að vera
fullnuma í þeirri list að
lokka fréttir upp úr fólki
og þó svo væri myndi ég
örugglega ekki gefa að-
ferðina upp. Það sem mér
finnst virka best er bara
að vera ég sjálf,“ segir Að-
alheiður og er ekkert að
reyta af sér brandarana
til þess að fá meira upp úr
viðmælendum sínum.
„Eðlilegt viðmót virkar
eflaust langbest til að
landa fréttinni,“ segir Að-
alheiður og bætir við að
starfið sé fjölbreytt og
spennandi. „Stressið og
hraðinn eru líka alveg ör-
ugglega ávanabindandi.“
18. febrúar 2000 f Ókus
17