Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2000, Side 2
20
MÁNUDAGUR 20. MARS 2000
Sport__________________________________________________
íslandsmeistaramótið í sundi 2000 á Keflavíkurflugvelli
Unga sundfólkið fékk að njóta sín
á innanhússmeistaramótinu í sundi
sem fram fór um helgina í sundlaug
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Þetta var í annað sinn á þremur
árum sem mótið fer fram úti á velli
og hefur reynst mjög vel að halda
mótið þar. Sundlaugin er mjög góð
og herinn tekur vel á móti besta
sundfólki landsins.
Ólympíuár
Þar sem þetta er Ólympíuár var
margt af okkar besta sundfólki lands-
ins ekki með þar sem það var allt að
miða við að ná lágmörkum inn á leik-
ana á móti í Svíþjóð sem fer fram í
apríl.
íslandsmetin urðu því ekki nema
tvö hjá kvennasundsveit SH en
margir nýir fengu aftur á móti tæki-
færi til að blómstra og nýttu það með
góðum árangri.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir frá
Akranesi varð sunddrottning móts-
ins en hún vann alls til sex gullverð-
launa en Friðfinnur Kristmannsson
frá Selfossi vann til flestra gullverð-
launa í karlaflokki, eða fimm.
íris Edda Heimisdóttir úr Keflavík,
efnilegasta bringusundkona landsins,
setti tvö glæsileg stúlknamet á mót-
inu en alls vann íris Edda til þrennra
gullverðlauna í bringusundi.
Fjögur inn á NMÍ
Af yngsta sundfólkinu voru fjögur
sem tryggðu sig inn á Norðurlanda-
mót unglinga á mótinu en þetta eru
þau Guðgeir Guðmannson frá Akra-
nesi, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir úr
Ægi, Anja Ríkey Jakobsdóttir úr SH
og Berglind Ósk Bárðardóttir úr SH.
Anja Ríkey er aðeins 13 ára en vann
til tvennra bronsverðlauna í 100 og
200 metra baksundi.
Auk þeirra voru mörg krakkanna
rétt við nauðsynleg lágmörk og það
má því búast við myndarlegum hóp á
Norðurlandamótið næsta vetur.
Aðstöðuskortur
Þrátt fyrir að bandaríski herinn
eigi allt gott skilið fyrir gera sund-
fólkinu kleift að halda mótið með
þessum glæsibrag er orðið aðkaflandi
fyrir áframhaldandi framfarir sund-
fólksins okkar að komið verði upp al-
vöruaðstöðu innanhúss fyrir mót
sem þessi hér á landi. Aðeins ráða
tvær sundlaugar á landinu, sund-
laugin á Keflavíkurflugvelli og sund-
laugin í Eyjum, við að halda þetta
mót. -ÓÓJ
Friðfinnur Kristmannsson
sést hér á verðlaunapalli í
50 metra flugsundi en alls
vann Friðfinnur, sem er
ftá Selfossi, til fimm gull-
verðlauna á mótinu.
Boðsundssveit SH í kvennaflokki
setti tvö íslandsmet á mótinu
og hún sést hér efst á
palli á föstudegin-
um eftir að hafa
synt 4 x 200
metra skrið-
sund á 8 mín-
útum, 45
sekúndum
og
brot-
um.
íris Edda
Heimisdóttir.
Úrslitin:
Karlar:
50 metra flugsund
1. Friöfinnur Kristinsson, Selfossi . 25,61
2. Hjörtur Már Reynisson, Ægi ... 26,00
3. Davíð Freyr Þórunnarson, SH .. 26,43
200 metra fjórsund
1. Ómar Friðriksson, SH....2:10,00
2. Gunnar Steinþórsson, Ægi ... 2:12,07
3. Magnús S. Jónsson, Keflavík .. 2:14,11
1500 metra skriðsund
1. Tómas Sturlaugsson, Ægi ... 16:07,57
2. Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi 17:37,00
3. Hakon Jónsson, Breiðablik .. 17:51,36
50 metra skriðsund
1. Friðflnnur Kristinsson, Selfossi . 24,05
2 Guðmundur Haíþórsson, SH ... 24,38
3. Gunnar Steinþórsson, Ægi......21,62
50 metra baksund
1. Guðmundur Halþórsson, SH ... 27,11
2. Ásgeir Ásgeirsson, Ármanni ... 28,07
3. Heiðar Ingi Marinósson, Vestra . 29,51
400 metra fjórsund
1. Ómar Friðriksson, SH.......4:38,30
2 Magnús S. Jónsson, Keflavik .. 4:43,94
3. Gunnar Steinþórsson, Ægi ... 4:49,95
100 metra bringusund
1. Hjalti Guðmundsson, SH.......1:0421
2 Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi. 1:04,41
3. Jón Oddur Sigurðsson, Njarðv. 1:07,27
100 metra flugsund
1. Friðflnnur Kristinsson, Selfossi . 57,07
2 Hjörtur Már Reynisson, Ægi ... 57,11
3. Davíö Freyr Þórunnarson, SH .. 58,76
200 metra baksund
1. Ásgeir Ásgeirsson, Ármann .. 2:07,87
2. Guðmundur Hafþórsson, SH .. 21026
3. Bergur Þorsteinsson, KR.....2:14,63
200 metra skriðsund
1. Ómar Friðriksson, SH........1:54,92
2 Tómas Sturlaugsson, Ægi .... 1:58,18
3. Ásgeir Valur Flosason, KR ... 2:02,01
100 metra fjórsund
1. Friðfinnur Kristinsson, Selfossi 1:00,07
2. Gunnar Steinþórsson, Ægi ... 1:01,53
3. Jón Oddur Sigurðs., Njarðvik . 1:01,98
400 metra skriðsund
1. Ómar Friðriksson, SH........4:0126
2 Hákon Jónsson, Breiðabliki... 4:32,52
3. Jóhann Ragnarsson, ÍA.......4:32,95
200 metra bringusund
1. Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi. 218,49
2 Hjalti Guðmundsson, SH.......2:2120
3. Guðlaugur Guðmunds., Keflav. 2:28,42
200 metra flugsund
1. Hjörtur Már Reynisson, Ægi .. 2:09,77
2 Guðgeir Guðmundsson, Akranesi 20926
3. Kristján Guðnason, SH ....2:20,60
100 metra baksund
1. Guðmundur Hafþórsson, SH ... 5827
2 Ásgeir Ásgeirsson, Ármanni .. 1:01,19
3. Bergur Þorsteinsson, KR....1:08,52
100 metra skriðsund
1. Friðfinnur Kristinsson, Selfossi . 53,05
2. Gunnar Steinþórsson, Ægi.....53,77
3. Heiðar Ingi Marinósson, Vestra . 5525
50 metra bringusund
1. Hjalti Guömundsson, SH......29,77
2 Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi .. 3021
3. Jón Oddur Sigurðs., Njarövík .. 30,91
Konur:
50 metra flugsund
1. Kolbrún Ýr Kristjánsd. Akranesi 28,69
2 Elín Sigurðardóttir, SH.........29,08
3. Sigurbjörg Gunnarsd., Njarövík . 31,04
200 metra fjórsund
1. Flora Christina Montagni, KR . 2:22,05
2 íris Edda Heimisd., Keflavík .. 2:23,91
3. Sunna Björg Helgadóttir, SH .. 2:26,19
800 metra skriðsund
1. Lára Hrund Bjargardóttir, SH . 9:13,49
2. Louisa ísaksen, Ægi...........92216
3. Karítas Jónsdóttir, Akranesi .. 925,57
50 metra skriðsund
1. Kolbrún Ýr Kristjánsd. Akranesi 27,07
2 Elín Sigurðardóttir, SH...........2720
3. Ragnheiður Ragnarsd., Breiðab.. 27,78
50 metra baksund
1. Kolbrún Ýr Kristjánsd. Akranesi 30,07
2 Elin Siguröardóttir, SH..........31,39
3. Ragnheiöur Ragnarsd., Breiðab.. 31,40
400 metra fjórsund
1. Flora Christina Montagni, KR . 5:00,80
2. Sunna Björg Helgadóttir, SH .. 5:13,52
3. Elín María Leósdóttir, Akranes 5:2026
Gullbros Kolbrúnar
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir úr
Sundfélagi Akraness vann til sex
gullverðlauna á íslandsmeistara-
mótinu um helgina og varð því
sigursælasti sundmaður
mótsins.
Kolbnín vann 50 metra
flugsund, 50 metra skriðsund,
50 metra baksund, 200 metra
baksund, 100 metra
fjórsund og 100 metra
baksund.