Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 9
Eftir að hafa unnið Ford-fyrirsætukeppnina hér á landi í fyrra hélt
Margrét Una Kjartansdóttir til Kína þar sem hun varð í þriðja sæti
sem fulltrúi íslands í alþjóðlegu Ford-fyrirsætukeppninni.
Hún samþykkti að gefa Heiðari Sumarliðasyni innsýn í líf fyrirsætunnar.
■J-J-
verið að
„Áður en ég fór til Kína vissi ég
ekkert við hverju ég átti að búast,
þannig að þetta var eins og að'
koma í annan heim. Það er mikill
agi þarna og allt mjög strangt. Við
stelpurnar sem vorum í keppn-
inni fengum hins vegar í raun
ekki tækifæri til að kynnast kín-
versku þjóðinni neitt af viti. Við
vorum bara á okkar fimm stjömu
hóteli á milli þess að við æfðum
fyrir keppnina og heimsóttum
þessa helstu ferðamannastaði
eins og Torg hins himneska frið-
ar, Forboðnu borgina og Kínam-
úrinn,“ rifjar Margrét upp en hún
er 16 ára fyrsta árs nemi í
Menntaskólanum við Sund. Mar-
grét segir það ganga ágætlega að
sameina fyrirsætustörf og námið.
„Fyrisætuverkefnin koma i töm-
um. Stundum er ekkert að gera og
svo er allt í einu nóg að gera. Ég
stefni á að klára skólann en það
sem gerist eftir það er hins vegar
algerlega óráðið, ég tel þó nokkuð
líklegt að ég geri eitthvað tengt
náttúrufræði enda er ég á nátt-
úrufræðibraut. Ég veit í raun ekk-
ert hvar ég verð eftir 20 ár en ég
vona hins vegar að ég verði kom-
in með svona eitt, tvö börn þegar
þar að kemur,“ segir Margrét
áhyggjulaus.
Kínverjar borða allt
Margrét er yngst þriggia systk-
ina og ólst hún upp í Bústaða-
hverfmu í Reykjavík. „Eldri syst-
ir mín er fyrirsæta og ég fylgdist
svolitið með henni í þessu og
fannst þetta ansi spennandi. Ég
fór því á fyrirsætunámskeið hjá
Eskimo Models og var eftir það
komin á skrá hjá þeim. Það var
svo hringt í mig og ég beð-
in um að taka þátt í
Fordkeppninni sem
ég og samþykkti.
Það að enda uppi
sem sigurvegari
var hins vegar það
síðasta sem ég átti
von á. Það kom
mér enn meira á
óvart að lenda í þriðja
sæti í alþjóðlegu keppn-
inni,“ segir Margrét
sem einnig gengur
undir nafninu Malla.
Aiþjóðlega keppnin vakti gifur-
lega athygli íjölmiðla í Kína og
var sjónvarpað beint á einni
stærstu sjónvarpsstöð landsins.
„Þegar ég var að labba á ein-
hverju torgi í Peking rak ég aug-
un í blaðsölubás með fullt af dag-
blöðum og innan um öll þessi kín-
versku tákn sá ég að forsíða eins
blaðsins var með mynd af mér.
Þetta var mjög skrýtið. Mér þótti
hins vegar leitt að geta ekki keypt
blaðið þar sem ég var ekki með
neirm pening." Margrét hafði
mjög gaman af þessari lifsreynslu
en var þó ekkert yfir sig hrifin af
matnum sem var á boðstólum.
„Þetta var ekkert líkt þeim kín-
verska mat sem ég hef bragðað
hér heima, hann var öllu lakari.
Ég vissi i raun aldrei hvað ég var
að borða þarna því þetta voru
alltaf hlaðborð. Ég hefði þess
vegna getað verið að borða hund
eða eitthvað álíka," segir Margrét
og bætir því við að hún hafi heyrt
þama úti að Kínverjar borði allt
sem flýgur nema flugvélar og allt
sem gangi nema menn.
Á leið til New York
Margrét fékk í kjölfar keppn-
innar þriggja ára samning við
Ford-umboðsskrifstofuna. Síðast-
liöið sumar fór hún til London og
var þar í einn mánuð í prufum og
myndatökum. Hún sneri þangað
aftur í haust og starfaði við tísku-
vikuna. „Það er mikill munur á
þvi að vera fyrirsæta á Islandi og
í útlöndum. Úti ertu allan daginn
í prufum að reyna að koma þér á
framfæri en það er mjög lítið um
prufur á íslandi, þú ert á skrá og
svo er hringt í þig ef þú hefur
fengið einhver verkefni." Margrét
fór í fylgd
m ó ð u r
sinnar í
b æ ð i
r
skiptin út til London en stefhir á
að fara til New York til að vinna
í sumar og þá án móður sinnar.
„Ég er ekkert smeyk við að fara
ein þama út, þrátt fyrir allt það
sem maður hefur heyrt og séð í
sjónvarpinu þegar þessi Macln-
tyre Undercover-þáttur frá BBC
var sýndur, enda kom Ford-fyrir-
sætuskrifstofan ekkert nálægt
þessu máli. Það em engir gamlir
perrakarlar hjá Ford þar sem hún
er meira og minna rekin af kon-
um,“ segir Margrét og segist
treysta fólkinu hjá Ford algerlega
og er ekkert að stressa sig á þvl
að vera að fara ein út í hinn stóra
heim. „Ef það kemur upp eitt-
hvert mál þá fer ég bara heim,“
segir Margrét og lætur sér fátt
flnnast um áhyggjur utanaðkom-
andi af hinum þyrnum stráða
heimi fyrirsætubransans. Mar-
grét bætir þvi við að nú sé komið
16 ára aldurstakmark fyrir kepp-
endur í Ford-keppninni og er hún
mjög hlynnt því að setja takmörk-
in við þann aldur.
Hógværðin uppmáluð
Margrét er frekar fhaldssöm
og er ekkert að reyna að feta
út fyrir troðnar slóðir. „Ég
tolli yfirleitt nokkuð vel í
tískunni en ég er ekk-
ert að reyna að vera
neitt tískuskapandi
þar sem ég er frem-
ur feimin og hóg-
vær og er lítið fyr-
ir það að láta
mikið á mér
bera,“ segir Mar-
grét sem eyðir frl-
tíma sínum með
vinum sínum og
kærasta. Hann
heitir Birgir, er
jafn gamall henni
og er einnig í MS.
„ M é r
f
/ /<
I
fggŒ’g f
l
flnnst gaman að horfa á góðar bíó-
myndir og hlusta á tónlist." Mar-
grét vill þó ekki nefna neina sér-
staka tórdistarstefnu sem hún að-
hyllist fremur en aðra en hún seg-
ist þó hlusta mest á X-ið og Radíó.
Hún hefur einnig áhuga á ljós-
myndun og fór eitt sinn á nám-
skeið í sliku og það helsta sem
stóð upp úr var að hún eyðilagði
filmuna sem hún átti að vinna
með. Margrét se'gir að frami
hennar í fyrirsætubransanum
hafi ekki breytt henni sem per-
sónu á nokkurn hátt. „Það hefur
kannski aukið aðeins sjálfstraust-
ið að hafa komist svona langt í
þessari keppni en ég byggi sjáifs-
mynd mina ekkert á þessu, þó
þetta sé ágætisuppbót. Þetta gefur
manni samt mjög mikið og er
þroskandi, svo fær maður einnig
tækifæri á að ferðast til landa
sem maður mundi annars aldrei
koma til. Ég lít ekkert á þetta sem
einhverja viðurkenningu á því að
vera falleg," segir Margrét hóg-
værðin uppmáluð eins og vana-
lega.
R fftWl
■ -
Él K. í, *.
I
W
» T « ffájít-
f V • ?-
I Lj',.
Wm / 4jr
m « . X
„Ég er ekkert smeyk við að fara ein þarna út, þrátt fyrir allt það
sem maður hefur heyrt og séð í sjónvarpinu þegar þessi Maclntyre
Undercover-þáttur frá BBC var sýndur, enda kom Ford-
fyrirsætuskrifstofan ekkert nálægt þessu máli. Það eru engir gamlir
perrakarlar hjá Ford þar sem hún er meira og minna rekin af konum.“
14.april 2000
f ó k u s
9