Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 12
I dag er Inga hamingjusamlega gift, tveggja barna móðir og stundar djáknanám við guðfræðideild HÍ. Nafn: Tinna Ivarsdóttir Nafn: Þórhildur Sigurðardóttir Aldur: 15 ára Hæð: 173 cm Hver er ég? Ég er villiköttur, svartur og brúnn. Ef þú værir gæludýr hvaða gæludýr myndirðu vilja vera? Pardus eða Ijón því þau eru villt, kröftug og frjáls. Hvar viltu búa í framtíðinnl? Ég vil búa á ítal- íu. Ég hef farið þangaö áöur og þar er mjög gott að vera. Góð menning, góður matur og hiti. Hvað gerirðu verst? Ég þoli ekki að þrífa og geri það ekki vel því ég er svo óþolinmóð. Nafn: Hildur Hálfdánardóttir. Aldur: 15 ára. Hæð: 168,5 cm. Hvað er hræringur? ís meö kurli. Hvað heldurðu að þú hafir veríð í fyrra lifi? Selur, því ég syndi svo vel. Uppáhaldsfyrirsæta? Helga Braga. Hvaða land langar þig mest til að heim- sækja? Spán til þess að sjá einhverja brúna kroppa. Aldur: 15 ára Hæð: 170 cm Hver ertu? Ég er nemi í Húsaskóla. Er í krabba- merkinu og stefni á aö verða eitthvað mikið. Hvaða land langar þig mest til þess að heim- sækja? Mig langartil Afríku eða Indlands. Þetta eru svo framandi lönd og menningin er mjög framandi. Uppáhaldsfyrirsæta? Claudia Schiffer Hvað gerirðu verst? Ég er eins og asni í iþrótt- um. Nafn: Berta Dröfn Ómarsdóttir Aldur: 15 ára Hæð: 172 cm Hver ertu? Ég er nemandi í grunnskóla Grinda- víkur. Með skólanum vinn ég í bakaríi en mig langar til þess að verða fatahönnuður í fram- tíðinni. Ég hef mjög gaman af því að syngja. Hvar viltu búa í framtíðinni? Eftir að ég er búin að búa nokkur ár í Reykjavík og Frakklandi þá vil ég bara koma aftur heim til Grindavíkur. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað? Kanina. Hvað heldurðu að þú hafir verið í fyrra lífi? Sveppur, því hárið mitt ber þess merki en ann- ars þá trúi ég ekki á fyrra lif. Inga i fylgd meö Eileen Ford Algjört kúltúrsjokk að koma í keppnina úti „Ég sendi nú sjálf inn mynd þeg- ar ég heyrði að það var verið að ^ auglýsa eftir stelpum," segir Inga Bryndís Jónsdóttir. Hún var sig- urvegari í fyrstu Fordkeppninni sem haldin var hér á landi árið 1982. Inga segir ástæðuna fyrir því að hún tók þátt einfaldlega hafa verið þá að hana hafi eins og svo margar aðrar ungar stelpum dreymt um að gerast fyrirsæta. „Það var enginn sem benti mér á að skrá mig. Þetta var algjörlega mín hugmynd.“ Hörð keppni Sem sigurvegari þurfti Inga að leggja leið sína vestur um haf til lands hamborgararassa og svína- riíja til að taka þátt heimskeppni Ford. „í þá daga hét hún Face of the Eighties en ekki Supermodel of the World eins og nú,“ segir Inga. Reynsla sína af þeirri keppni segir Inga ekki hafa veriö neitt sér- lega skemmtilega. „Ég var svoddan krakki og hafði aldrei áður komið út í heim. Síðan var maður allt í einu staddur i Bandaríkjunum og varð bara fyrir algjöru kúltúr- sjokki. Það var allt svo stórt og mikið einhvem veginn." Annað sem Inga segir hafa komið sér úr jafnvægi var allt umstangið í kringum keppnina. Allir þurftu að H vinna í því að vekja athygli á sér og keppnin var hörð en slíku átti hún ekki að venjast hér á landi. Hún segir samt aðalástæðuna fyrir því hve illa þetta virkaði á hana vera þá að hún hafi ekki ver- ið neitt undirbúin fyrir þetta. „Þetta var allt svo nýtt hér heima og óskipulagt sem slíkt. En ég var í fylgd konu og hún reyndist mér mjög vel.“ Inga tekur líka fram að keppnin úti hafi verið mjög vel skipulögð og vel séð um alla kepp- endur. Hleypir hún litlu í þetta? Eftir aðalkeppnina vann Inga við módelstörf í ein 3 til 4 ár. „Ég vann í New York, Þýskalandi og Frakklandi en þar sem ég var í framhaldsskóla á þessum árum þá var þetta nú bara meira svona vinna með skólanum heldur en að- alstarf. Ég gerði nokkur verkefni á vetuma og var síðan yfir sumarið í þessu líka.“ Aö lokum hætti hún þar sem hún hreinlega hafði ekk- ert gaman af því að sitja fyrir framan myndavél. Inga á dóttur sem er fjögurra ára og aðspurð hvað hún myndi gera ef sú litla ætlaði sér í fyrirsætustörf, svaraði Inga að ef dóttirin væri eitthvað lík henni þá myndi hún gera það sem hún ætlaði sér, sama hvað hver tautaði og raulaði. Stílistar: Hargrét og Dýrleif Hár: Katrin og Jonna á Kúltúru Förðun: Nemar i föröunarskóla No name Fókusmyndir: Teitur Aldur: 16 ára Hæð: 176 cm Hver ertu? Ég er reyklaus nemandi í grunn- skólanum á Akranesi. Bý með foreldrum og systkinum á Akranesi. Hvað heldurðu að þú hafir verlð í fyrra lifi? Ég held ég hafi verið munkur því mamma mín var það. Hvar vlltu búa í framtiðlnni? Á Akranesi því það hef ég gert alla mína ævi en ég hefði ekk- ert á móti því að prófa að búa erlendis. Ef þú værir gæludýr hvaða gæludýr myndirðu vilja vera? Köttur því allir eru svo góðir við þá. Nafn: Yrja Kristinsdóttir Nafn: Margrét Óda Ingimarsdóttir Aldur: 17 ára Hæð: 174 cm Hver er ég? Ég er nemi á nýmálabraut við Menntaskólann við Hamrahlíð. Ég bý með fjöl- skyldu minni á Seltjarnarnesinu en ég á þrjár yngri systur. Ég er mikill Svíi í mér þar sem ég bjó i Sviþjóð í 11 ár. Ég er ekki i sambandi. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað? Kínverskt brauð Hvað helduröu að þú hafir verið í fyrra lífi? Ég held ég hafi verið köttur vegna þess að ég er alltaf að klóra sjálfan mig og svo hef ég svokölluð kattaraugu. Hvaða land langar þig mest til þess aö helm- sækja? Sviþjóð. Það er æðislegt land og ég gæti vel hugsað mér að flytjast þangað eftir menntaskólanámið. Nafn: Telma Reynisdóttir Aldur: 16 ára Hæð: 172 cm Hver ertu? Nemi i Seljaskóla, yngst af þremur systkinum. Hvaö þykir þér vænst um í lífinu? Rúmið mitt. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðaö? Ég veit það ekki. Ég er ekki mikill matgæðingur. Hvenær verða skór það stórir að þeir hætta að vera kvenlegir? Skór verða aldrei það stórir aö þeir hætta að vera kvenlegir. Nafn: Birna Markúsdóttir. Nafn: Erla Tinna Stefánsdóttir. Aldur: 16 ára. Hæð: 176 cm. Hver ertu? Ég er skrafgjarn Garðbæingur og mikil íþróttamanneskja. Hvað heldurðu að þú hafir veriö í fyrra lífi? Lamb, því ég er með svo krullað hár. Hvar viltu búa i framtíðinni? Á einhverjum góöum stað þar sem mér líðurvel, sama hvort það er erlendis eða ekki. Hvaða iand langar þig mest til að heim- sækja? Afríku til þess að sjá dýrin og hið villta lif þar. FYRlRSfETFIN £□□□ Sf ókus 12 f Ó k U S 14. april 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.