Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 13
Pearl Jam er loksins komin með nýja plötu. En hún er ekki að miða inn á vinsældirnar og segist bera virðingu fyrir hlustendunum sínum. Þetta er því ekki innihaldslaust popp heldur gáfulegt rokk. Dr. Gunni tékkaði á kauðunum. „Við vildum færa aödáendum okkar eitthvaö krefjandi," segir Eddie um lagiö. „Viö viröum hlustendur okkar og sjáifur vil ég fá eitthvaö innihaldsríkt þegar ég kaupi plötu, les bók eöa fer í bíó.“ Sjötta hljóðversplata Pearl Jam kom út í vikunni. „Binaural" heit- ir hún og hefur verið að fá þessa líka finu dóma. Platan er fjöl- breytt og hljómsveitin er trú sjálfri sér. Rólegheitarokk a la Neil Young suilast saman við hrá og pönkuð lög, þungarokk og bítlapopp og eitt lagið er ekkert annað en Eddie Vedder að raula og spila á hawaii-gítar. Hljóm- sveitin fer sínar eigin leiðir og er drullusama um ímynd og mark- aðsmál. Þeir ákváðu t.d. að fyrsta smáskífulagið ætti að vera fimm mínútna ballaðan „Nothing As it Seems“ sem er alls ekki líklegasta lagið til vinsælda. „Við vildum færa aðdáendum okkar eitthvað krefjandi," segir Eddie um lagið. „Við virðum hlustendur okkar og sjálfur vil ég fá eitthvað innihaldsríkt þegar ég kaupi plötu, les bók eða fer í bíó.“ Stærsti smeliurinn var slys Pearl Jam varð til 1 Seattle 1990 og er lífseigust af grugg-böndun- um sem spruttu upp í borginni og Pearl Jam varö til í Seattle 1990 og er lífseigust af grugg-böndunum sem spruttu upp í borginni og urðu vinsæl í byrjun síöasta áratugar. Stjörnukerfi Ifókus ★ ★ ★ ★ ★ Gargandi snilld! ★ Notist í neyð. ★ ★★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun. ★ ★ ★ Góð afþreying. •? Skaðlegt. ★ ★Nothæft gegn leiðindum.^®'®' plötudómar urðu vinsæl í byrjun síðasta ára- tugar. Bandið hlýtur að teljast með þeim vinsælustu í Bandaríkj- unum í dag því það hefur selt þar 22 milljónir eintaka af plötunum sínum. Vinsælasta lagið þeirra er gamalt popplag, „Last Kiss“, sem þeir gáfu út á smáskífu aðdáenda- klúbbsins síns fyrir jólin 1998. Þetta átti bara að vera gott í skó aðdáendanna en lagið fór eins og eldur í sinu og að lokum var það gefið út á almennum markaði. Lagið hékk svo á vinsældalistum um allan heim síðasta sumar og náði 2. sætinu i Bandaríkjunum sem er met fyrir Pearl Jam. Allir semja Bandið hóf upptökur á nýju plötunni i september sl. í hljóð- veri gítarleikarans Stones Goss- ards í Seattle. Það hefur stundum hrikt í stoðum bandsins því egó þeirra félaganna hefur átt það til að bólgna út en nýja platan var gerð í sátt og samlyndi. Allir meðlimirnir semja lög á plötunni, m.a. trommarinn Matt Cameron sem var áður í Soundgarden og Eddie í fýling. fór að spila með Pearl Jam 1998. Innihald textanna er af ýmsum toga. Vedder semur þá flesta og velt- ir m.a. fyrir sér sjálfsvirðingu nú- timamannsins í heimi þar sem eftirlit með einstaklingunum eykst sifellt. Gítarleikarinn Stone pælir hins vegar m.a. í því hvað rak strákana tvo í Columbine há- skólanum til að drepa 12 sam- nemendur sína. Ef einhverjum finnst þetta þungar pælingar má geta þess að meðlimir Pearl Jam eru komnir vel yfir þrítugt og svo er líka heill sægur af þunnildum sem rokkar um píur og fyllirí. Pearl Jam fylgir plötunni eftir með massífum tónleikatúr um cillan heim langt fram á næsta vetur. Dr. Gunnl „Ný“ Kraftwerk-plata „Expo 2000“ var fyrsta nýja Kraftwerk lagið síðan 1991 og síð- ar í mánuðinum er svo von á fyrstu „nýju“ Kraftwerk plötunni í 10 ár. Hún heitir „A Short Introd- uction to Kraftwerk" og á henni eru demóútgáfur og nýjar útsetn- ingar á lögum eins og „The Mod- el“, „Autobahn" og „Trans-Europe Express". Með plötunni fylgir 88 bls. bæklingur með brotum úr sjaldgæfum viðtölum, myndum og öðru skemmtilegu. Gamlir jálkar og grað- hestar Fjöldi merkilegra platna er að koma út. Á næstu dögum kemur ný plata með Sonic Youth, „NYC Ghosts & Flowers", þar sem gömlu jálkarnir blanda saman aðgengi- legum rokktöktum og þungri steypu. Eins og spurst hefur út er bandið á leiðinni hingað. Fleiri gamlir - og jafnvel eldri - jálkar verða með nýjar plötur. Motörhead verða með „We are Motörhead" þar sem Lemmy og félagar juð- ast m.a. á Sex Pistols- laginu „God Save the Queen“, golfleikarinn Alice Cooper kemur sterkur inn með „Brutal Planet" og fyrsta stúdióplata Iron Maiden í átta ár er á leiðinni og heitir „Brave New World“. Það mætti halda að þessi upptalning og sigur Olsen-bræðra í Júró væri merki um minnkandi æskudýrkun í poppinu en svo er þó ekki. Af nýlegri graðhestum með nýjar plötur má minnast á rapparann Eminem með „The Marshall Mathers LP“, gróðurhús- arapparana í Jurassic 5 sem gefa út „Quality Control" og Kid Rock sem gefur út safn af gömlu stöffi undir nafninu „The History of Rock“. ★★★ Hljómsveitin: EllÍOtt Smith piatan: Figure 8 Útgefandi: Dreamworks/Skífan Lengd: 52 : 06 mín. ★ ★★ Hijómsveitin: Dead Prez piatan: Lets Get Free Útgefandi: Loud/Skífan Lengd: 69 : 32 mín ★★★ Hljómsveitin: Speedy J piatan: A Shockong Hobby Útgefandi: Novamute/Japis Lengd: 56 : 08 mín. hvaöf fyrir hvernf ^^fa^rVý'rfcPi^r' niöurstaöa Fimmta sólóplata feimna rokktrú- badorsins frá New York sem er flutt- ur til L.A. Elliott gaf út fyrstu þrjár plöturnar hjá litlu sjálfstæðu fyrir- tæki en skrifaói undir hjá stóru merki eftir að fá óskarsverölaun fyrir lag sitt í myndinni Good Will Hunting. Hann fylgir nú eftir hinni ágætu plötu „X0“. Dead Prez er ein bjartasta vonin í bandarísku hip hoppi. Þeir eru mjög pólitískir og er oft líkt við hljómsveit- ir eins og Public Enemy. Þeir stic.man og M-1 eru orðnir leiðir á gangster rappi, dópúílingum og öðru rugli. Þeir vilja alvóru breytingar. Þessi plata er þeirra stefnuyfirlýsing. Melódíurnar drjúpa eins og smjör af þessari plötu. Það eru mikil Bítlaá- hrif (.Rubber Soul“ og þar fram eftir götunum), sumt minnir jafnvel á Simon & Garfunkel og yfir öllu liggur sterkur 70’s-fIIIngur. Þeir sem fíla Belle & Sebastian, Big Star og Elvis Costello ættu einnig að tékka á Elliott. Fyrir utan augljósan markhóp (svarta Amerikana) þá er þetta þlata fyrir alla þá sem kunna að meta kraftmik- ið og innihaldsríkt hiþ hop. Chicago- rapparinn Common er á meöal aðdá- enda Dead Prez. Elliott er mikill Bítlamaður og er I McCartney-deildinni. Hann söng Bítlalagið „Because" sem var loka- lagið í American Beauty og tók sumt af nýju plötunni upp í Abbey Road. Þessi hægláti maður verður næstum því æstur þegar hann segir frá því aö hann notaði sama píanó og notað var I „Penny Lane". „Peningareru rót hins illa“ segja þeir Dead Prez félagar. Þeir brenna seðla á tónleikum. Þetta er auðvitað I al- gjörri andstöðu við boðskaþ Puff „It's all about the Benjamins" Daddy. Dead Prez eru virkir í allskon- ar samfélagsstarfsemi og eru að vinna að opnun félagsmiöstöðvar. Þessi sextán laga plata hefði þolað niðurskurð. Tónlistin er of keimlík til aö halda athygli hlustandans í 50 mínútur. Hljóðvinnslan er á tíðum full áferðarmjúk og væmin en þegar best tekst upp er gaman að Elliott. Þá sýnir hann snilli í Ijúfu poppdeildinni. Textasmiður er hann einnig góður. Notaleg plata en blóðlítil. dr. gunni Þessi plata er hressandi innlegg í tónlistarflóru ársins 2000. Tónlistin er oft flott og það er einhver sann- færingarkraftur I þessu sem hrifur mann með sér. Tónlistarlega eru þeir kannski ekki að finna upp hjólið, en það er samt margt vel gert. trausti júlíusson Hollenski tónlistarmaðurinn, Jochen Paap, hefur gefið út efni undir nafn- inu, Speedy J„ undanfarin ár. Tón- listin hans er einhverskonar sam- bland af teknó og industrial-tónlist. Hann hefur stundum gert tiltölulega poþpaða hluti, en hér er hann í ex- perimental hugleiðingum. Þetta er instrúmental-plata. Dramat- ískir hljóðskúlptúrar, bjögun og læti. Þetta er tónlist sem maöur sér frekar fýrir sér á einhveiju framsæknu kvöldi í Gula húsinu við Lindargötu, heldur en á kaffihúsi eða klúbbi. Hún er um margt skyldari noise-hðndlurum eins og Einsturzende Neubauten, heldur en teknó-tónlist samtlmans. Speedy J. hefur gefiö út heilan hell- ing undanfarin ár. Hann var lengi á merki Richie Hawtin, Plus8 og svo á hann töluvert af efni útfgefnu hjá Warp. Platan hans frá 1997 „Public Energy No. 1“ þykir hans merkasta verk til þessa. Þetta er ágæt plata. Speedy J býr til raf-pönk sem á köflum nær að verða mjög tilþrifamikið. Þetta er þlata sem maður spilar þegar maður vill láta trufla sig. Þetta er oft myndræn tón- list. Platan er eins og feröalag um ímyndað og á köflum stórbrotið landslag. Sérstakt og spennandi. traustl júlíusson 19. maí 2000 f ó k u s 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.