Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Page 17
Það er ekki á hverjum degi sem netverji skrifar á síðuna sína pistla sem vaida breytingum á lagafrumvörpum á Alþingi. Þetta tókst Þresti Frey Gylfasyni háskóla- nema. Fókus varð hrifinn og ákvað að spjalla við kappann um málin og forvitnast um hvað ræki hann áfram í þessari sannleiksþörf sinni. Klárari en alþingismenn „Ég hef ákveðnar skoðanir á öll- um mögulegum og ómöguleginn hlutum og vantaði vettvang til þess að viðra þær,“ segir Þröstur Freyr, tvítugur laganemi við Háskóla ís- lands, aðspurður af hverju hann opnaði sína eigin heimasíðu. Það væri svo sem ekki í frásögur fær- andi nema fyrir það að umfjöllun- arefni tveggja pistla hans hefur náð út í þjóðmálaumræðuna og jafnvel inn á hið háa Alþingi og geri aðrir betur. Annað þessara mála var hin dýra heimasíða Stjómarráðsins og hitt v a r í lagafrumvarpi um vitnavernd. Þröstur segir: „Ég les tiltölulega allt sem kemur frá Alþingi. Þar sá ég annars vegar að fjárframlög til heimasíðugerðar Stjórnarráðsins voru alveg stjamfræðilega há og hins vegar fann ég misræmi í laga- frumvarpi um vitnavemd. Sérstak- lega var seinna málið skrýtið af því að fyrir mistök var allt í einu mögu- legt að finna málsbætur vegna of- beldis gegn vitnum. Alþingismenn tóku hins vegar ábendingunni. Það var reyndar of lítill tími til að taka það upp á þessu þingi en það verð- ur líklega tekið fyrir í Allsherjar- nefnd í haust." Mannvernd eða rógburð- artæki Þröstur er hvergi nærri hættur pistlaskrifum sínum og er nú með tvo hluti til athugunar. „Ég kíkti inn á vefsíðu Mannvemdar um daginn og brá nokkuð. Mér flnnst það skrýtið að félag sem stofnað er til vemdar persónuupplýsingum fólks er að skrifa um ágreining í stjóm íslenskrar erfðagreiningar, auk annarra hluta um fyrirtækið. Það flnnst mér skrýtið og hafa mjög lítið með markmiö félagsins að gera og ég ætla mér að skoða það mál betur.“ Þröstur bíður lika spenntur eftir ársskýrslu Alþingis og ætlar að skoða hana ofan í kjölinn. Þröstur segist vera alveg hlutlaus í sinni gagnrýni og hann hikar ekki við að taka hvern sem er á bein- ið ef finnur eitt hvað athuga- vert, enda er h a n n ó f 1 o k k s - bundinn og hefur engra hagsmuna að gæta neins staðar. Þeir sem hafa áhuga L að kynna sér þetta geta kíkt heimasíðu kauða www.hi.is/~thfg. ct ál ða ái „Hvaða skít ætli ég geti grafið upp næst?“ Taska frá Furla fyrir konur með hreina samvisku. Skóverslunin 38 þrep, kr. 5900 Ekkerl Sr Ef þú ert þessi opna týpa þá ættu þessar glæru plasttöskur að henta þér vel. Það er nefnilega ekkert hægt að fela i þeim og allt þitt hafurtask blasir við þeim sem vilja sjá. En ætti nútímakonan hvort sem er að hafa eitthvað að fela? Þær eru einnig praktiskar í meira lagi þar sem auðvelt er að frnna gemsann eða annað sem maöur er að leita að án þess að þurfa að sturta úr töskunni. Það er auðvelt að finna það sem mann vantar í þessari glæru snyrti- buddu. Ath.: dótið sem er í buddunni fylgir og er innifalið í verðinu. Skarthúsiö, kr. 690 -c Útskriftarfatnaður InWear Mcitíníque S: 588 0079 * f 19. maí 2000 f ÓkUS 17 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.