Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2000, Qupperneq 15
33
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 200
ekinn í sturtu
MYNDIR VÍKURFRÉTTIR
Havel á sundi
Hér er Havel ásamt samferðafólki.
hingað koma mæta gjarnan oftar en
einu sinni meðan á dvöl þeirra
stendur,“ segir Magnea.
Dapur Dani
Hún segir eitt og annað skemmti-
legt hafa gerst. Fyrir nokkrum vik-
um kom upp mál sem snerist um
tvítugan Dana og sjötugan ís-
lending.
Daninn var á ferðalagi hérlendis
og að sjálfsögðu brá hann sér í Bláa
lónið. Hann var klæddur samkvæmt
nýjustu tisku við komuna og
skemmti sér konunglega í baðinu.
Havel hresstist
Vaclav Havel, forseti Tékklands, á
sundi í Bláa lóninu.
Síðan kom babb í bátinn þegar
hann ætlaði að klæða sig eftir
hressandi bað. Skápurinn hans var
tómur og flnu fótin horfin. Það gekk
maður undir manns hönd til að
leita að fotum en án árangurs. Það
varð úr að starfsfólkið skrapaði
saman fótum á hann þar sem sitt
.var af hverju tagi. Þannig til reika
hélt Daninn ungi dapur í bragði til
Reykjavíkur á hótel sitt. Um kvöld-
ið þegar allir gestirnir voru farnir
uppgötvaði starfsmaður að einn
skápurinn var læstur. Masterlykill
sem gengur að öllum skápum var
tiltækur og þar sem skápurinn var
opnaður kom í ljós að í honum var
göngustafur, hattur og frakki. Þetta
voru föt sem augljóslega voru af
eldri manni og við leit i fotunum
fundust skilriki. Þegar hringt var
heim til hans kom á daginn að hann
hafði farið í fötum Danans og staf-
laus skilaði hann sér heim.
„Okkar kenning er að sjálfsögðu
sú að baðið hafl haft svo gífurleg
áhrif að hann hafi ekki þurft staf og
í samræmi við betra líkamsástand
hafl hann talið við hæfi að fara í föt-
um sem pössuðu við ástand hans.
En gamanlaust þá fékk Daninn fötin
sín aftur og sá gamli fékk stafinn
sinn og fótin,“ segir Magnea mark-
aðsstjóri og skemmtir sér konung-
lega við minningarnar um ungan
Dana og gamlan íslending. -rt
Nýbaöaöur
Sá heimsþekkti leikari, Kevin Costner, er hér nýkominn úr baöi í hinu bláa
lóni. Hann áritaði fyrir þá sem þess óskuöu og var hinn alþýblegasti.
Reykjanesbærergóðurstaður til að halda heimilifjarri ys og þys
höfuðhorgarsvæðisins en um leið örskammtfrá stórborgarbragnum.
• Áhugavert mannlíf
Leikhús, söfn og veitingastaðir skapa skemmtilega
stemningu sem vert er að kanna nánar.
• Góðir útivistarmöguleikar
Stórbrotin náttúra, kraumandi jarðhitasvæði
og einstakar náttúruperlur
sem koma skemmtilega á óvart.
• Fjölbreytt afþreying
Uppgangur í ferðaþjónustu hefur alið af sér nýjan heim
þar sem saman koma nýir siðir og fjölbreytt afþreying.
• Alvöru iþróttabær
Aðstaða til íþróttaiðkunar er með besta móti, frábærir
golfvellir, sundlaugar, íþróttahús og fýrsta fjölnota
íþróttahúsið á íslandi.
• Góð samfélagsþjónusta
Reykjaneshær hefur lagt metnað sinn
í að byggja upp gott samfélag þar sem þarfir
íbúanna eru hafðar að leiðarljósi.
• Góðir atvinnumöguleikar
Sveigjanleiki og sjálfstæði íyrirtækja á Suðumesjum
hefur vakið athygli og uppgangur í atvinnulífinu er ekki
síst þessum þáttum að þakka.
Hér standa menn saman en skapa um leið samkeppni á
markaði sem eflt hefur einstaklinga og
fyrirtæki öllum til heilla.
• Öflugt menntasamfélag
Góðir grunnskólar, framsækinn ijölbrautaskóli
og öflug miðstöð símenntunar með auknum möguleikum
á háskólanámi.
í Reykjanesbæ ergott að búa og starfa
Markað s- og
ATVI N N U MÁLASKRI FSTOFA
REYKJANESBÆJAR
HAFNARGÖTU 57, 230 REYKJANESBÆ
SlMI 421 6700 • FAX 421 6 199
Vefsíða: www.mb.is
REYKJANESBÆR
Reykjaneshær
...bær, nærrí borg
Hvers vegna Reykjanesbær?