Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Blaðsíða 6
Með
Dj. Muggs
í South
Central
Ekki hefur sést mikið í skottið á
Quarashi-mönnum á láglendi
Reykjavíkurborgar upp á síðkastið.
Eins og margir vita héldu þeir félag-
ar utan fyrir nokkrum mánuðum til
New York-borgar. Þar gruíluðu þeir í
hljóðveri og gekk ágætlega, að sögn
kunnugra. Nýlega barst til eyrna
Fókuss að drengirnir hefðu í gegnum
einn af aðdáendum sinum í Stóra
eplinu kom-
ist í sam-
band við
Soul Assass-
in-gúrúinn
dj Muggs.
Muggs er
heilinn á
bak við
'æk hljómsveitir
‘W”' eins og Hou-
fij, Se of Pain,
F u n k -
doobiest og
Cypress Hill.
Er óhætt að
segja að sú
síðastnefnda
sé best af
þ e s s u m
þremur og einfaldlega í guðatölu í
rappheimum. Þannig fór að Vestur-
bæingarnir mættu galvaskir til L.A.
og hittu þar sjálfan Muggs fyrir í
hljóðveri. Hann hafði hlustað á plöt-
ur þeirra og sagði þær vera góðan
skít. í þrjá daga fór fram upptökulota
þar sem Muggs bjó til eitt nýtt lag
með Quarashi og fékk félaga sinn úr
Cypress Hill, Sen Dog, til að bösta
feitar rímur með. Muggs endurhljóð-
blandaði síðan eitt lag eftir strákana
þar sem hann söng m.a. viðlagið sjálf-
ur við texta eftir þá. Það er ljóst að
Quarashi er komið í feitar álnir í
Vesturheimum. Heyrst hefur að senn
líði að samningadrögum við stór út-
gáfufyrirtæki en enn er ekkert á
hreinu. Vesturbæingamir halda senn
aftur utan til Englaborgarinnar
þannig að ef einhver þarf að ná í þá
er best að leita á götuhornum South
Central þar sem þeir eru að drekka
40’s bjór og reykja jónur með Muggs
og Sen Dog.
Quarashi-menn dúkk-
uðu upp með dj
Muggs og héngu með
honum í 3 daga
hljóðveri.
Systur á sömi
Þau sterkustu bönd sem geta tengt tvær manneskjur eru úr blóði gerð. Sama þó
þær séu staddar hvor sínum megin á jarðkringlunni fær ekkert því breytt. Þannig
fer það oft að systkini eiga sömu áhugamál og leggja jafnvel sama ævistarf fyrir
sig. Þumalputtareglan er þó sú að einstaklingarnir eru algerar andstæður hvað per-
sónuleika varðar. En þegar málið snýr að hæfileikunum taka blóðböndin við. Fókus
leitaði uppi þrjú systrapör sem öll eiga það sameiginlegt að starfa í sama geira.
Ragna Sara og Eva María Jónsdætur:
Tróðu sér inn í ísskáp
Það eru tvö ár á
milli Rögnu Söru og
Evu Maríu Jóns-
dætra sem eru
fæddar og uppaldar
ásamt yngri bróður í
Hlíðunum í Reykjavík.
Leiðir þeirra hafa legið
þétt saman og nú vinna
'W þær báðar við sjón-
varpsþáttagerð,
Sara hjá Ríkis-
sjónvarpinu en
Eva Maria tekur
sérstök verk-
efni með fram
barnauppeldi.
Aöþiöséud í
sama bransa,
hefur það meó
þaó aö gera aó
þiö séuö syst-
ur?
„Já, ör-
gglega.
Við höfum
einhvern
v e g i n n
alltaf hald-
ist í hend-
ur með
f 1 e s t a
hluti,“ segir
Eva María
telur
upp að þær hafi báðar farið í jassball-
ett, sömu sveitina, skúrað saman,
borið saman út blöð, passað sömu
bömin, búið báðar í Frakklandi og
báðar verið aðstoðarstúlkur töfra-
manns.
„Við höfum samt farið ólíkar leið-
ir að sjónvarpinu. Ég fór í mann-
fræðinám, þaðan á fréttadeild Mogg-
ans og síðan í Kastljósið á meðan
Eva Maria fór i bókmenntafræðina,
gerðist skrifta og fór þaðan í dag-
skrárgerð á meðan ég fæst við frétt-
ir,“ útskýrir Ragna Sara
„Já, Sara þarf að leita sannleikans
á meðan ég get látið eins og
hann sé ekki
til,“ bætir
Eva María
við.
Voruö þiö
og eruð sam-
rýndar?
„Bæði og.
Það koma
tímabil hjá
öllum systkin-
um þegar slett-
ist upp á vin-
skapinn," segir
Ragna Sara og
minnist þess að
þegar Eva María var nýorðin gelgja
þá var hún alls ekki tilbúin til þess
að hafa hana i eftirdragi. í dag er vin-
Þegar Ragna Sara (27 ára) og Eva María (29 ára)
voru yngri þóttust þær oft vera sama manneskjan
og notuöu t.d. Ijósakort og annaö saman.
skapurinn hins vegar eins og best
verður á kosið og ekki spUlir fyrir að
Eva María er nýbúin að eignast sitt
fyrsta barn sem fær Rögnu Söru til
að koma oftar í heimsókn. Frá æsk-
unni eiga þær systur margar
skemmtilegar minningar og var ým-
islegt brallað, ekki síst á kvöldin þeg-
ar þær áttu að vera famar að sofa.
„Ein af hræðilegustu minningun-
um er þegar við vorum í feluleik og
ætluðum að athuga hvort við gætum
báðar falið okkur í ísskápnum í einu.
Sem betur fer brotnaði neðsta hillan
undan þunganum áður en okkur
tókst að loka. Það vOdi okkur
eiginlega til lífs,“ segir Eva Mar-
ía en þær systur fóldu sig i hálf-
an dag vegna hræðslu yfir því
að verða skammaðar fyrir
brotnu hilluna.
„Ég er hlédrægari og feimn-
ari en Eva María og væri til í
að vera laus við feimni eins og
Eva,“ segir Ragna Sara og gjó-
ar augunum til Evu Maríu.
„Ég myndi vilja vera ein-
beitt og drífandi eins og Sara.
Hún lokar sig af og linnir ekki
látum fyrr en hún er búin að
því sem hún ætlar sér. Ég er
meiri flökthugi, geri hlutina í mörg-
um áfóngum."
„Það má segja að við séum
mamma okkar og pabbi endurfædd,"
segir Ragna Sara. „Ég er algjör
pabbi,“ segir Eva og hlær og Sara
bætir við: „Já, og ég er algjör
mamma.“
H e r ra Herbalife a 11 u
Það er ekki oft sem minningar-
greinar eru birtar í Fókus en ein-
staka sinnum falla frá slíkir braut-
ryðjendur og heiðursmenn að hjá
því verður ekki komist. Þegar rætt
er um stærstu afrek mannkyns eru
nokkrir atburðir sem iðulega koma
upp í hugann, eins og bygging
píramídanna, geimferðir og annað
þviumlíkt. Uppbygging alþjóðafyr-
irtækisins Herbalife er eitt þessara
atriða sem mannkyninu mun seint
liða úr minni en sá harmleikur var
kunngjörður í vikunni að stoftiandi
fyrirtækisins og aðalvítamín-
sprauta, Mark Hughes, hefði and-
ast í svefni aðeins 44 aö aldri.
Ástæður þessa ótímabæra dauðs-
faUs hafa enn ekki fengist uppgefn-
ar en öllum má ljóst vera að það
tengist ekki vörum Herbalife sem
hjálpað hafa milljónum manna um
heim allan að kljást við offitu og
greiða leið þeirra að bættri heilsu.
Dó hann ekki úr Herba-
life?
Mark Hughes var eins og hver
annar 18 ára Bandaríkjamaður á
áttunda áratugnum þegar móðir
hans lést með sviplegum hætti eftir
að hafa tekið inn of stóran skammt
af megrunarpillum. Eftir að hafa
komist yfir áfallið ákvað Mark að
ekki þýddi að gleyma þessu, eitt-
hvað þyrfti að gera. Og það gerði
Mark og síðan hefur hann helgað líf
sitt baráttunni gegn offitu og ólifn-
aði, baráttu sem háð var í minn-
ingu móður hans. Sumir myndu
kannski segja að það væri kald-
hæðni örlaganna að Mark skyldi
sjálfur vera kallaður burt svo ung-
ur, því vissulega hafa margir mein-
fýsnir menn viljað meina að eig-
in vörur hafi loks dregið Mark
Hughes til dauða og hann hafi
átt það skilið.
Jarðarför á vefnum
En þær hugmyndir eiga ekki
við rök að styðjast eins og sann-
aðist á ummælum Margrétar
Hrafnsdóttur, konu Jóns Ótt-
ars Ragnarssonar, en þau eru
umfangsmiklir Herbalifesölu-
menn. Margrét sagði Mark hafa
haft slæman asma sem barn og
fyrr á þessu ári fékk hann slæma
lungnabólgu og virðist ljóst að
það hefur dregið hann til dauða.
Sagði Margrét Los Angeles vera í
tárum en íslendingar hafa held-
ur ekki verið þeir sömu alla vik-
una. Það vill reyndar svo
skemmtilega til að fyrsta síðan
sem kemur upp þegar Herbalife
er slegið inn á Alta Vista er Her-
balifesíöa ísleifs Gíslasonar. ís-
leifur virðist vera gott dæmi um
syrgjandi íslending því hann
hefur ekki enn haft fyrir því að
tilkynna lesendum um andlát
Mark Hughes. Áhugasamir
syrgjendur Marks geta svo fylgst
grannt með útför hans á morgun á
Ekki hefur enn fengist staöfest hvernig
Mark Hughes dó en þegar hann var átján
missti hann móöur sína þegar hún át of
mikiö af megrunarpillum.
heimasíðunni www.herbalife.com.
6
f Ó k U S 26. maí 2000