Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Síða 13
Fyrir tveim árum gaf Eagle Eye Cherry út fyrstu plötuna sína, Desireless, og sagði
við það tækifæri: „Ég vona bara að platan seljist nógu vel til að ég fái að gera aðra.“
Nú, 4 milljón eintökum síðar, er kappinn kominn með nýja plötu og viðtökurnar
hafa verið svo góðar að hann fær örugglega að gera eina enn.
Ef síminn hríngir
fljúga lögin út um gluggann
Amarauga fæddist I Svíþjóð 1971
og pabbi hans, djassarinn Don
Cherry, nefndi soninn þessu flipp-
aða nafni. „Pabbi var á tónleikatúr
þegar ég fæddist. Hann kom heim
og ég var sofandi í fyrsta skipti
sem hann sá mig. Ég vaknaði og
opnaði annað augað og þá gaf hann
mér þetta nafn.“
Fjölskyldan bjó í sænskri sveit
en Eagle og systir hans, söngkonan
Neneh Cherry, flæktust oft með
pabba og hinum djasskörlunum í
hljómsveitarrútunni þegar þau
voru lítil. Þeim likaði lífemið vel
og fengu bakteríuna. Tólf ára var
Eagle sendur í skóla tO New York.
Eftir námið reyndi hann fyrir sér
sem trommari og leikari áður en
hann sneri til Svíþjóðar og hóf upp-
tökur á fyrstu plötunni sinni.
„Ég hafði góða tUfinningu fyrir
lögunum sem ég haföi samið en var
samt ekki viss um að þessi bijálaði
tónlistarbransi væri fyrir mig. Það
em svo mörg dæmi um fólk sem
hefur glatað neistanum. Mér fannst
Sviþjóð öruggt umhverfi til að
byrja í.“
Platan virkaði sem galdur á
gagnrýnendur. - „Sumir eru
þannig að þegar maður heyrir
fyrsta lagið með þeim veit maður
að þeir eiga eftir að verða risanúm-
er,“ sagði t.d. tímaritið Uncut - og
Eagle varði tveim árum I að fylgja
plötunni eftir með tónleikum um
aUan heim.
Vill hlutina fönkaða
Eftir túrinn fór Eagle Eye beint
að spá í næstu plötu og enginn ann-
ar en Rick Rubin bauðst til að
hljóðstýra henni. „Maður gerir
sína fyrstu plötu fyrir skít og kanii
og hún gengur vel,“ segir Eagle.
„Þá freistast margir til að fá ein-
hvem rosa tískuhljóðstjómanda og
breyta öllu. Fyrir mestu er þó að
vita hvað maður vill. Ég vissi um
leið að Rick væri rétti maðurinn
fyrir mig. Ég fila hvað hann hefur
Stjörnukerfi Ifókus
★ ★ ★ ★ * Gargandi snilld! * Notist í neyö.
★ * ★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun.
*** Góö afþreying. skaðlegt.
★ ★ Nothæft gegn leiðindum.vev
plötudómar
„Eg ætla ekki að taka þetta of alvarlega og alltaf að reyna að muna að þetta gengur út á að búa til tónlist en ekki að
vera í flottum fötum og vera með kúl sólgleraugu.“
einfaldan stíl og aö honum þykir
gaman að taka lögin upp læf.“
Það kom þó smávægÖegt babb í
bátinn. Eftir tveggja ára tónleika-
túr átti Eagle engin ný lög. „Rick
varð dálítið stressaður af því hann
var búinn að bóka hljóðver," segir
Eagle. Hann dreif sig því í að leigja
hæð í New York, fékk söngvarann
Chris Watkins (úr blúsbandinu
Preacher Boy) til liðs við sig og
saman sömdu þeir sex lög sem tek-
in voru upp á átta dögum skömmu
síðar. Fleiri lög vom tekin upp í
Svíþjóð á jafn snöggan hátt. „Ég
fíla ekki hátæknileg stjömustríðs-
hljóðver," segir Eagle. „Ég fíla að
hafa hlutina meira fönkaða með
gömlum, góðum analóg-græjum.“
Náttúrlegir hæfileikar
Niðurstaðan er lífræn og lifandi
plata sem heitir Living in the Pres-
ent Future. Fyrri plata Eagle Eye
var miklu rólegri en þessi því nú
er tónlistin spriklandi hress á töff
máta og gripandi melódíur út um
allt. Eagle virðist hafa náttúrlega
hæfileika til að semja gott popp-
rokk en vill sjálfur ekki skilgreina
hæfileikana.
„Ég vil ekki kafa of djúpt í þá
sálma því lagasmíðar era mér mjög
viðkvæmt mál. Ég veit að daginn
sem ég samdi Save Tonight (vin-
sælasta lagið af síðustu plötu) hefði
ég alveg eins getað farið að spila
fótbolta og lagið hefði glatast að ei-
lífu. Lögin eru eins og fiðrildi sem
fljúga í kringum mig. Ef síminn
hringir þá fljúga þau út um glugg-
ann.“
Margir hafa beðið eftir dúett
systkinanna og hann er á nýju plöt-
unni, lagið Long Way around. Það,
eins og flest önnur á plötunni, hef-
ur alla möguleika á að verða smell-
ur en þegar hefur lagið Are You
still Having Fun? notið vinsælda.
Þegar fyrsta plata Eagle Eye kom
út sló hann ákveðna vamagla á
veru sína í hákarlavatni popp-
bransans. Hann sagði: „Ég ætla
ekki að taka þetta of alvarlega og
alltaf að reyna að muna að þetta
gengur út á að búa til tónlist en
ekki að vera í flottum fotum og
vera með kúl sólgleraugu."
En hefur hann staöið við stóru
oröin?
„Ég viðurkenni að ég hef stund-
um gengið með kúl sólgleraugu og
þetta er búið að vera miklu við-
burðaríkara en ég átti von á. En ég
er samt undrandi á að því að mér
finnst ég vera sami náunginn og
þegar ég byrjaði."
Dr. Gunni
Axl verður fyrir ónæði
Aumingja Axl Rose. Síðustu sex
árin hefur hann lifað í einangrun og
eytt 6 milljón dölum í nýja G‘NR-
plötu. Nafnið er Chinese Democracy
en ekkert bólar á henni þó sagthafi
verið að hún ætti að koma
út í vor. Ekki bætir úr
skák að brjálaður að-
dáandi 37 ára kona,
Karen, hefur verið að
1 ofsækja hann síðustu
árin. Fyrir þrem árum
læddist hún inn og kom
að Axl spilandi á gítar í
eldhúsinu. Hún sagði hann hafa
kallað á hana með hugarorku. í síð-
ustu viku var hún enn að sniglast í
kringum heimilið og þá var hringt á
lögguna. Nú sagðist hún vera eigin- ^
kona Axl og öskraði: „Ef ég fæ hann
ekki fær hann engin!" á meðan hún
var dregin í burtu. Axl vildi ekki tjá
sig en Karen gistir fangageymslur.
Enga bolafleygjandi
vitfeysinga hér, takkl
Annað furðufyrirbæri er meistari
Michael Jackson. Fyrir skömmu
ljóstraði hans fyrrverandi kokkur
því upp að Mikki fengist ekki til að
borða matinn sinn fyrr en búið væri
að gefa honum bamaleg nöfn. „Ég
bjó til Péturs Pan-
pitsu fyrir hann og j
sækadelískan
sverðfisk,“ sagði
kokksi. Hótel!
Dorchester í [
London hefur bann-
að Mikka að gista [
þar framar - ekki af 1
því að hann hafi!
heimtað barnamat heldur af því að
hann henti bol niður af svölunum til
æstra aðdáenda. Krakkamir hlupu
á eftir bolnum og ung stelpa varð
fyrir bíl. Þó stelpan slasaðist ekki
illa vilja hóteleigendumir ekki hafa
svona vitleysu. Michael var í
London til að syngja á einkatónleik-
um fyrir soldánin af Brunei og á
góögerðatónleikum fyrir vinkonu
sína, Elizabeth Taylor.
Pönkið tapar fyrlr rétti
Dead Kennedys var eitt aðalpönk-
bandið í den. Það hætti 1986 og með-
limirnir fóru hver sína leið. Söngv-
arinn Jello Biafra gerði sólóplötur
og rak fyrirtækið Alternative
Tentacles. Hinir
meðlimirnir
kærðu Jello fyr-
ir vangreiddar
tekjur af lögun-
um og fyrir að
vilja ekki nota
þau í auglýsing-
ar. Levi’s vildi
nota Holidays in Cambodia í sjón-
varpsauglýsingu en Jello fannst það
vitaskuld ekki pönkinu þóknanlegt.
Nýlega fengu hinir Dead Kennedys-
meðlimimir 220.000 dali upp úr
krafsinu sem Jello verður að greiða
þeim. Við dómsuppkvaðninguna
sagði Jello sár: „Mér er refsað fyrir
að halda í gömlu gOdin og vilja ekki
selja mig auðvaldinu."
hvaðf
★★★★★
Hljómsveitin: 200.000
naglbítar
Platan: Vögguvtsur fyrir
skuggaprtns
Útgefandl: Spor
Lengd: 52:34 mín.
★★★★
Hljómsveitin: JuStÍCe
Platan: Hears To The
Future
Hydrogen Duke-
Utgefandi:
box/Þruman
Lengd: 36 : 26 mín.
★★★
Hljómsveltin: SonÍC Youth
Platan: NYC Ghost &
Flowers
Útgefandl: Geffen / Skífan
Lengd: 42 : 43 mín.
Önnur plata akureyrska rokktriósins.
Á þessari plötu ná þeir nýjum hæö-
um í þeim persónulega rokkstíl sem
kynnt var á fyrstu plðtunni. Hin var
góö en þessi er enn betri, nánast
óaðfinnanleg. Að megninu til er inni-
haldið kraftmikiö og melódtskt rokk,
en í bland eru angurværar perlur og
hægar, drungalegar pælingar.
Þetta er ný plata frá Tony Bowes,
öðru nafni Justice. Hann hefur lengi
verið þekktur á drum & bass sen-
unni, t.d. fyrir plötur eins og
.Viewpoints” og safnplötuna .The
Greatest Hit“ sem kom út í fyrra. Á
þessari nýju plötu kveður hins vegar
viö nýjan tón hjá honum.
Ellefta plata New York tilraunarokkar-
anna ógurlegu. Þetta fóik er oröið
hálffimmtugt svo fáir búast viö ein-
hverju byltingakenndu frá þeim leng-
ur (nóg af þeim lúxus í fortíðinni).
Hinn ferski Jim O'Rourke vinnur með
þeim í þetta skiptið og er það far-
sælt samstarf.
fyrir hvernf
Sé eðalrokk eða -popp þinn tebolli
ættiröu að kynna þér þessa plötu.
200.000 naglbítar er ekki eins og
nein önnur hljómsveit en vissulega
minna þeir stundum ögn á aðra. Villi
minnir t.d. á Jónsa þegar hann syng-
ur í felsettu, strengirnir minna stund-
um á tónlistina úr Twin Peaks og
stundum minnir bandið á Blur.
Þessi plata ætti að höfða til allra
þeirra sem kunna að meta uppá-
tækjasamt breakbeat. Þetta er plata
fyrir stofuna eöa bílinn. Hún er vita-
gagnslaus á dansgólfið. Tónlistin er
frekar fjölbreytt, rapparinn Danoyd
kemur fram í laginu ,Wack MC's' og
iögin .Cycle 11“ og „Beat Drop“ eru
ekta elektró.
Sonic Youth aðdáendur eru fjölmarg-
ir og gleypa við hvaöa vitleysu sem
er frá bandinu. Þeir eru örugglega
sáttir við þessa plötu. Hún er eins
konar óður til New York. Textalega er
bandið hér í svipuðum fíling og Ijóð-
skáld „beat“-kynslóöarinnar og um-
slagið er unnið upp úr teikningu
Willlams Burroughs.
skemmtilei
staöreynd
Platan byrjar og endar á spiladós og
það sem rúmast þar á milli eru ein-
hvers konar myrkar vögguvísur, þetta
yrði lesiö upp til agna hjá Addams
flölskyldunni. Textarnir liggja ekki al-
vegf augum uppi, þeireru dularfullir
og litaðir af ógninni af hinu óþekkta,
en um leið barnslega einfaldir.
Hydrogen Dukebox útgáfan og
systramerkið Recordings of
Substance hafa gefið út glás af
flottri tónlist á undanförnum árum. Á
meðal nýlegra gripa frá útgáfunni eru
„Fjaka* með lcarus og „Neo Ouija"
með Metamatics sem báöar eru frá-
bærar.
I fyrra var öllum hljóðfærum Sonic
Youth stolið. Þau voru með einhverja
tugi af gíturum sem þau höfðu breytt
og afmyndað á ýmsan máta til að ná
fram sínu sérstaka sándi sl. 12 árin
eða svo. Þau þurftu þvf aö byrja frá
grunni með hamar og nagla. Sonic
Youth spilar svo að öllum líkindum í
Reykjavík seinna f sumar.
niöurstaöa
Ekki spurning, þessi plata er meöal
þeirra ailra bestu sem fslenski rokk-
bransinn hefur alið. Lagasmíðar,
raddpælingar, sánd og spilamennska
sameinast í fjölbreyttri heild sem
hlustendur munu smám saman fá á
heilann. Frábærlega skemmtilegt og
gefandi fslenskt rokk eins og það ger-
ist ailra best. Húrra! dr. gunnl
Justice var alltaf liðtækur í d&b tón-
listinni. Þessi plata sýnir hins vegar
á honum nýja hliö. Þetta er mjög flott
tónlist og sýnir að Justice lumar á
allskonar hugmyndum. Þetta er
dæmi um hvað menn geta gert þeg-
ar þeir hundsa strauma og stefnur
og láta hugmyndaflugiö ráöa ferö-
inni.
trausti júlíusson
Sonic Youth eru hér í betra formi en í
lengri tíma, sumt er hið fínasta gítar-
hjakk og það er merkilega létt yfir
þeim. Platan græðir á því að vera stutt,
þau hafa ekki tíma til að juðast óend-
anlega á gíturunum eða vera með til-
gerðarlega langhunda. Plata sem vinn-
ur vel á, en er samt alllangt frá snilld-
arverkum bandsins. dr. gunni
26. ma! 2000
f ó k u s