Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000 X>"V Fréttir Almannavarnir segja fólki að hlaupa í dyraop í jarðskjálftum: Stórhættulegar leiðbeiningar - segir Guðbjörg sem upplifði 7,1 stigs jarðskjálfta í Bandaríkjunum 1989 Guðbjörg Guðmundsdóttir Russel bjó í Santa Clara (Silíkondal) í Kali- forníu í Bandaríkjunum í 24 ár og þekkir því vel þá tilfinningu að búa við stöðuga jarðskjálftahættu. Hún undrast mjög þær áherslur sem gefnar eru hér á landi í leiðbeining- um til almennings um fyrstu við- brögð við jarðskjálfta. Þær séu í sumum tilfellum stórhættulegar. „Ég lærði það þegar ég þjó hér áður að fólk ætti helst að hlaupa í dyraop þegar jarðskjálfti riði yfir. Það væri öruggasti staður hússins. Ég lærði það hins vegar eftir stóra jarðskjálftann í Kaliforníu í október 1989 að þetta er mikill misskilning- ur. Það getur hreinlega drepið fólk að gera þetta. Þessi skjálfti var fyrst sagður 6,5 til 6,8 á Richterskala. Síðar var staðfest að skjálftinn var upp á 7,1. Þegar hann reið yfir sat ég og eiginmaðurinn úti á verönd á húsinu okkar. Út á veröndina eru dyr með stórri glerhurð og önnur með flugnaneti. Dóttir okkar, sem þá var tíu ára, var uppi á annarri hæð hússins að læra, en klukkan var rétt um fimm síðdegis. Við sátum úti og vorum að drekka kaffi. Þá ríður yfir þessi rosalegi skjáifti. Það gekk allt í þylgjum, húsið, tré, grindverk og allt saman. Fyrsta hugsun okkar heggja var að hlaupa upp til dóttur okkar. Við stökkvum þvi af stað og ætlum inn um opna dyragættina. I tvígang þeyttist eig- inmaður minn til baka og í jörðina. Ég stóð upp og reyndi líka að kom- ast inn en með sama árangri. Þetta voru ólýsanleg átök. Maðurinn minn reyndi í þriðja skiptið en ekk- ert gekk. Það sem gerðist var einfaldlega það að í látunum lamdist hurðin Guöbjörg Guömundsdóttir Russel Reynsla mín frá Bandaríkjunum seg- ir manni aö það sé stórhættulegt að standa í dyraopi í jarðskjálfta. fram og til baka af miklu afli og lenti á okkur þegar við reyndum að komast inn. Ég gat reyndar aldrei skilið af hverju glerhurðin brotnaði ekki. Dóttir mín var uppi á efri hæðinni og reyndi að komast í dyrnar á herberginu sínu. Þá fóru bækur að hrynja úr hillum og út- gönguleiðin lokaðist. Hún hljóp þá undir skrifborðið sitt eins og öllum krökkum í amerískum skólum er kennt að gera ef eitthvað slíkt hend- ir. Það er talið það eina sem geti varið mann fyrir brotnandi gleri og öðrum hlutum. Að mínu mati er þó ekkert öruggt í miklum jarðskjálft- um, aflið er svo ólýsanlegt. Reynsla mín frá Bandaríkjunum segir manni að það sé beinlinis stór- hættulegt að standa í dyraopi í jarð- skjálfta - nema hurðin sé þá tekin af fyrst. Þá er sama hvort þar er um að ræða rennihurð eða venjulega hurð. Hún lemst af miklu afli og sá sem verður fyrir því getur klemmst illa og stórslasast. fslendingar verða að hætta að kenna fólki að gera þetta.“ -HKr. Verðum að meta aðstæður „Ég hef ekki áður heyrt álíka sögur en þessi saga kemur mér þó ekki á óvart,“ segir Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna riksins um lífsreynslu Guðbjargar Guðmundsdóttir Russel úr jarðskjálfta í Bandaríkjunum en eftir þá reynslu varar Guðbjörg fólk við að standa í opnum dyrum þegar jarðskjálfti ríður yfir. Sólveig Þorvaldsdóttir. „Astæðan fyrir því að við ráðleggjum fólki að hlaupa í opn- ar dyr er sú að þá er maður kominn í skjól frá fallandi hlutum plús það að þá kemur maður í | veg fyrir að útgöngu- leið teppist. Við höf- um heyrt sögur frá íslendingum sem upplifðu jarðskjálfta fyrr á öldum á Suðurlandi og það fyrsta sem það ger- ir þegar það upplifir skjáifa seinna á æviskeiðinu er að opna dyr þar sem það hefur upplifað það sem börn að lokast inni,“ segir Sólveig sem telur ekki ástæðu til þess að taka dyraráðið út úr símaskránni, þó svo Guðbjörg hafi ekki haft góða reynslu af því. „Leiðbeiningamar í símaskránni eiga misjafnlega við í hverju tilviki fyrir sig og verður fólk að vega og meta aðstæður sjálft. Við ráðleggjum fólki líka að fara undir borð eða út í horn en auðvitað geta sum borð brotn- að þannig að það er ekkert algilt í þessu,“ segir Sólveig og bendir á að leiðbeiningarnar í símaskránni séu endurskoðaðar á hverju ári en þær byggjast á víðtækri jarðskjálfta- reynslu víðs vegar úr heiminum. „Það er einfaldlega ekki hægt að búa til almennar reglur sem gilda alls staðar. Það sem hjálpar í einu tilviki gerir það ekki endiiega í öðra en það sem gildir þó fyrst og fremst í þessu máli er að koma sér úr þeirri aðstöðu að hlutir geti fallið á mann og halda ró sinni,“ segir Sólveig. -snæ Á tali viö almættiö. Allsherjargoðinn var í sambandi á meðan hann beið eftir að athöfnin hefðist. Tæknin er því takmarka- laus, hvort sem menn eru allsherjar- goðar eða eitthvað annaö. Rugstjóri framtíðarinnar Flugmódelklúbburinn Þytur var með viðamikla sýningu á flugvelli sínum við Hafnarfjörð í tilefni 30 ára afmælis klúbbsins. Hér er Jón Erlendsson, flugmaður hjá Gæslunni, að aðstoða Davíð Elíasson, 7 ára, við að fljúga þyrlu. Á bak við þá er Guðmundur Kristinsson, formaður félagsins. Stöðvarf j örður: Tvær konur létu greipar sópa Brotist var inn á tveimur stöð- um á Stöðvarfirði aðfaranótt föstudagsins. I öðru tilfellinu var brotist inn í íbúð gamallar konu en hún kom að innbrotsþjófunum við iðju sína. Gamla konan spjall- aöi við þjófana, tvær konur á þrí- tugsaldri, og höfðu þær sig á brott skömmu síðar. Þær munu þó hafa tekið nokkra smáhluti sem gamla konan saknar. Konurnar voru handteknar síðar um daginn og voru þá komnar til Egilsstaða. Málið var fljótlega upplýst enda játuðu konurnar á sig verknaðinn. Það var svo ekki fyrr en síðar sama dag að upp komst að einnig hafði verið brotist inn í íbúð Stöðvarhrepps sem leigð er út til ferðamanna. Þar var aðkoman öllu verri og hafði bókstaflega öll- um heimilistækjum verið sópað út. Lögreglu grunaði strax að sömu konur hefðu verið þar að verki og hófst þegar víðtæk leit að þeim. Vitað var að þær höfðu tjaldað á Reyðarfirði en þær voru hins vegar handteknar á Fá- skrúðsfirði og voru þá á suður- leið. Við leit í bil kvennanna fannst mestallt þýfið sem saknað var úr íbúð Stöðvarhrepps. Kon- urnar voru fluttar til yfirheyrslu og aftur játuðu þær á sig innbrot. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði hefur konunum verið sleppt enda málin tvö upplýst en því er við að bæta að konurnar hafa báðar komið áður við sögu lögreglu og voru m.a. teknar með lítils háttar af fíkniefnum í Breiðdal fyrr í síð- ustu viku. -aþ Enn hætta Veðurstofa Islands telur að enn séu þó nokkrar líkur á jarðskjálfta af stærðinni 6,0 á Richterskalanum. Steinunn Jakobsdóttir jarðeðlis- fræðingur sagði í samtali við DV að enn væri svo mikil virkni á svæð- inu að ekki væri hægt að útloka skjálfta. Hún vildi þó ekkert spá fyr- ir um hvenær sá skjáifti yrði. „Ann- aðhvort mun spennan minnka stig frá stigi þar til ástandið verður eðli- legt eða stór skjálfti mun ríða yflr. í sögulegu samhengi hafa skjáiftar þó færst vestar. I augnaþlikinu sjáum við ekki að skjálfti sé á leiðinni en viljum þó ekki segja að hættan sé liðin hjá.“ -ÓRV Biskup messar fyrir austan fjall Biskup íslands, herra Karl Sigur- björnsson, fór aust- ur yfir fiall í gær- kvöld til að vitja safnaðar síns og var hann með þakk- ar- og bænastund í Oddakirkju klukk- an níu. Rjúpum fækkar á íslandi Samkvæmt vortalningu Náttúru- fræðistofnunar íslands hefur rjúp- um fækkað á íslandi með þeirri undantekningu að um fjölgun er að ræða á Suðausturlandi eftir tveggja ára fækkunartímabil. RÚV greindi frá. BESTA með forystu Baldvin Björgvinsson og áhöfn skútunnar BESTU voru i gær 27 sjó- mílum á undan Gravlinga, skútunni sem er önnur af þrettán skútum í keppninni. Fyrir rúmum 2 sólar- hringum var BESTA 130 sjómílum á eftir Gravlinga sem hafði forystu. Síðustu daga hefur íslenska áhöfnin unnið sig upp úr 10. sæti upp í það fyrsta. Stenst EES stjórnarskrá? Tómas Ingi 01- rich, formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis, segir ekk- ert benda til þess að EES-samningurinn stangist á við stjórnarskrá íslend- inga en Halldór Ás- grímsson utanríkis- ráðherra hafði sagt að svo kynni að vera. Loðnan farin að veiðast Loðnan er farin að gefa sig. Að- faranótt fóstudags fyllti færeyska tog- og nótaveiðiskipið Christian i Grotinum sig af loðnu sunnan af landinu. Loðnuveiðar máttu hefjast 20. júní og því munu nótaskip HB hf. á Akranesi fara fljótlega til loðnuveiða nú þegar síldveiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum er að ljúka. Rektor hvetur til yfirvegunar 565 kandídatar útskrifuðust frá Há- skóla íslands við hátiðlega athöfn á laugardag. Páll Skúlason rektor hvatti kandídatana til að staldra við og ræða það hvað það er sem gefi lífinu gildi í mannlífmu. Útburðarmáli lokið Eftir hálfs árs þrautagöngu í kerf- inu hillir undir lausn í húsnæðis- málum einstæðrar konu sem borin var út úr íbúð Félagsbústaða í byrj- un janúar sl. ásamt bömum sínum. Félagsmálayfirvöld borgarinnar hafa ákveðið að útvega henni leigu- íbúð hjá Félagsbústöðum eftir að Rauði krossinn hljóp undir bagga með henni með fjárstuðningi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.