Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Blaðsíða 4
4 Fréttir MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000 DV Samband ungra framsóknarmanna ræðir aðild að ESB: Siglir í kjölfar Samfylkingar - segir Össur Skarphéðinsson sem fagnar því að framsóknarmenn taki við sér „Það eru misjafnar skoðanir á þessarri ályktun hjá þingmönnum en i sjálfu sér varðar okkur ekkert um það. Við förum í það sem okkur þykir skynsamlegast og erum nátt- úrlega með framtíðina í huga og mér finnst að sumu leyti menn full- fljótir á sér að loka á þessa umræðu. Það verður bara að taka þetta á dag- skrá og við munum beita okkur í þessu máli á næstu mánuðum, það er alveg ljóst,“ segir formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna, Einar Skúlason, um ályktun er varðar aðild íslands að ESB en mál- ið var tekið fyrir á Sambandsþingi flokksins á Hólum í Hjaltadal um helgina. „í ályktuninni er skorað á ríkis- stjómina að heQa þegar í stað vinnu við að skilgreina samningsmarkmið Islendinga í hugsanlegum aðildar- viðræðum. Að við áttum okkur á stöðunni með það hvað við sækj- umst eftir eða hvað við viljum fá út úr aðildarumsókn. Við viljum þannig að staðan sé ljós ef við fór- um í viðræður við ESB,“ segir Ein- ar sem var endurkjörinn formaður án mótframboðs á þinginu. Svik við framtíðina „Það voru átök um málið enda er þetta stefnubreyting. Á tímabili stefndi i að það yrði lögð fram meira en ein tillaga sem yrði bara kosið um en svo náðu menn saman að lokum og ályktunin var sam- þykkt samhljóða," segir Einar. Þannig aö ungir framsóknarmenn vilja aðild aó ESB? „Ef aðstæður kalla á það en það er margt sem spilar inn. Það er t.d. stórt atriði hvað Norðmenn gera. Ef þeir ganga í ESB þá eru forsendur fyrir EES-samningnum brostnar vegna þess að það er ákveðið batterí í kringum þann samning sem þarf að reka og við stöndum ekki und- ir því ásamt Lichtenstein. Við viljum að umræð- an sé opinská og að menn séu tilbúnir þegar kemur að því. Það eru kosn- ingar í Noregi á næsta ári og það stefnir allt í að þeir sæki um á næstu tveimur til þremur árum. Okkur finnst það vera svik við framtíðina að hafa ekki málið á dag- skrá. Þá eru menn bara að stinga höfðinu í sandinn," segir Einar. Skynsemin í örum vexti Einn af þeim þingmönnum sem gleðst yfir ályktuninni er formaður Samfylkingarinnar, Össur Skarp- héðinsson. „Samfylkingin hefur samþykkt að það sé nauðsynlegt að heQa vinnu við að skilgreina samn- ingsmarkmið okkar vegna þess að við teljum að það sé nauðsynlegt áður en menn ganga til samninga um aðild. Ég sé ekki betur en að ungir framsóknarmenn séu búnir að taka stefnu Samfylkingarinnar hráa í þessum efnum og ég hef ekk- ert við það að athuga, það sýnir bara að þeir eru á skynsamlegum vegum. Ég fagna þessari nálgun,“ segir Össur og bætir við að ungir framsóknarmenn sigli í kjölfar Sam- fylkingarinnar og það sé greinilegt að þar sé skynsamt fólk í fyrirrúmi. „Skynsemin er í örum vexti hjá Framsóknarflokknum í þessu efni sem er meira en hægt er að segja um hinn stjórnarflokkinn," segir Össur að lokum. -snæ Sólstöðublót ásatrúarmanna á Þingvöllum: Ekki til höfuðs kristnum mönnum - segir Jörmundur Ingi Hansen allsherjargoði DV MYND NH Frá Sólstöðublóti ásatrúarmanna. Allsherjargoðinn, Jörmundur Ingi Hansen, ásamt Jónínu Kristínu Berg, goöa á Vesturlandi, og Eyvindi Eiríkssyni Vestfjarðagoða. Ásatrúarmenn héldu Sólstöðublót sitt á Þingvöllum á laugardaginn. Allsherjargoði lauk þar helgun landsins og kveikti níunda land- námseldinn á fóstudagskvöldið. Á laugardaginn var síðan fjölbreytt dagskrá með giftingu að heiðnum sið, siðfestu, sem er nokkurs konar ferming að heiðnum sið, og margt annað tengt siðum og menningu ásatrúarmanna. „Þetta er allt að fornum hefðum. Þing var alltaf sett á fimmtudaginn í 22. viku ársins sem er mjög nálægt því að vera á miðju sumri. Kristnir menn settu einfaldlega Jónsmess- una niður á miðsumar, síðan var dagatalinu breytt og þess vegna eru nú þrír dagar á milli miðsumars og Jónsmessu," sagði Jörmundur Ingi Hansen allsherjargoði á Þingvöll- um. Jörmundur segir að samkvæmt drögum að íslandssögu, sem Jón Sigurðsson skrifaði, hefði Jón kom- ist að þeirri niðurstöðu að úrskurð- ur Þorgeirs Ljósvetningagoða hefði verið kveðinn upp 24. júní. Á laug- ardaginn var því 1001 ár frá því að Þorgeir kvað upp um með að íslend- ingar skyldu vera kristnir. Jörm- undur segir að ásatrúarmenn séu ekki á Þingvöllum til höfuðs kristni- hátið sem verður þar um næstu helgi. „Fólk heldur að við séum með þessu að gera það en það er hinn mesti misskilningur því að 999, þeg- ar kristni var lögtekin, þvi hún var samþykkt 999 en tók gildi árið 1000, var þinginu um léið frestað um eina viku. Þess vegna er vikutími á milli hinnar kristnu þinghátíðar og hinn- ar heiðnu. Þetta er því allt saman niðurneglt eftir lögunum þannig að hvorki við eða Alþingi höfðum um aðra daga að velja," sagði Jörmund- ur. Hann vill ekki meina að með samkomu ásatrúarmanna sé verið að heiðra minningu þess að þeir hafi sleppt tökunum á trúarlífi landsmanna fyrir 1001 ári. „Alls ekki, en það er allt í lagi að minnast þess að með þeirri ákvörðun sem var tekin var íslandi bjargað frá borgarastyrjöld og kannski því sem verra hefði orðið, erlendum yfirráð- um. Menn sáu að annaðhvort var að víkja sér fimlega undan höggi eða vera sleginn niður og menn vildu frekar semja og því var þetta sam- komulag gert. Menn ætluðu hins vegar aldrei að hætta að vera heiðn- ir. Það sést af því að hér voru menn að banna heiðnar athafnir alveg fram á Qórtándu, jafnvel fimmt- ándu, öld sem voru náttúrlega enn þá stundaðar samkvæmt því sam- komulagi sem gert var við kristni- töku. Það er kannski raunverulega fyrst með því sem kristnir menn kalla siðbót, þegar þeir drápu Jón Arason, að þetta dettur út. Þá skeð- ur það merkilega að menn fara að iðka kaþólsku eins og hún væri galdur og margir þeir sem voru dæmdir fyrir heiðna siði ýmsa voru dæmdir því að þeir voru að gera eitthvað kaþólskt," sagði Jörmund- ur Ingi allsherjargoði. -NH DV-MYND GF Lágfóta á kreiki Þorvaldur G. Helgason, refaskytta á Hólmavík, og sonur hans, Júlíus Garðar, með tófuyrðlinga í fanginu. Tófur við bæjar- dyr á Ströndum DV, HÓLMAVÍK: „Þegar hún er búin að hreinsa úr hreiðrunum og fuglinn hefur forðað sér þá snýr hún sér að lömbunum. Þá er tímabært að ná sér í skotleyfi og fá sér byssu,“ sagði Guðmundur H. Þórðarson á Ljúfustöðum eftir að hafa fylgst með ref fara rænandi um kríuvarpið í nokkur skipti að kvöld- lagi í innan við 100 m fjarlægð frá íbúðarhúsinu. Hann segir að þó fuglarJiafl fært varp sitt nær híbýl- um mánna í von um skjól og vernd dugi þþð ekki lengur þegar ágangur- inn erforðinn slíkur. Um það leyti sem bændur voru að undirb'úa að sleppa fé sínu á fjall í maí vakti Guðmundur athygli ná- granna sinna á hvítu dýri sem nán- ast var á stærð við kind og skokkaði um hlíðar og gaf gætur matarbirgð- unum innan girðinga sem þar fóru um veikum fótum við vernd mæðra sinna. Sú tófa hefur enn ekki náðst. Svo er komið á þessum slóðum að varla er svefnfriður fyrir tófugaggi á kyrrum vetrarnóttum. -GF Hervar Gunnarsson: Fagnar mótfram- boði Óánægjuraddir hafa heyrst innan Verkalýðsfélags Akraness með framgöngu Hervars Gunnarssonar, formanns félagsins, og lýstu nokkr- ir félagsmenn því yfir að undirbún- ingur fyrir mótframboð gegn hon- um væri í deiglunni. í samtali við DV sagðist Hervar fagna þeim áhuga sem nú er orðinn á störfum í verkalýðsfélaginu. „Þetta hafa verið vanþakklát störf og ég tel það vera hollt verkalýðs- hreyfingunni að fá fram ný framboð og það stuðlar að lýðræðislegum vinnubrögðum," segir Hervar. -jtr 'i/bíwiíð ii Kwc>i|«i| 04 ííðlj MraOTTk ÁKLÍREÝRi Á JRbb Ogn * £4= Víöa bjart veöur í kvöld verður austanátt, 8 til 13 m/s og skýjað meö suðurströndinni, en annars hægari vindur og bjart veöur. Gera má ráð fyrir stöku síðdegisskúr suðvestanlands. Hiti veröur á bilinu 7 til 17 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands. Sólarlag í kvöld 24.02 00.53 Sólarupprás á morgun 02.59 01.37 Síödegisflóö 13.33 18.06 Árdegisflóö á morgun 01.58 06.31 Skýringará veóurtaknuns ^VINDATT lOV-Hm -10° ^SVINDSTYRKUR NraoST í nwtrum á sekóndu HEIÐSKÍRT .30 30 o LÉnSKfjAO HÁLF- SKÝJAÐ AISKÝJAÐ SKÝJAÐ w RIGNING SKÖRIR SIYDDA SNJÓK0MA , ^í§í* : ; ===== ÉUAGANGUfí PRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA iitametin oröin gömul teöriö hefur leikið við landsmenn im helgina. Ekki hafa þó verið ilegin veðurmet en skv. Almanaki >jóðvinafélagsins er mesti hiti sem nælst hefur á íslandi 30.5 gráður á eigarhorni 22.6. 1939. Mesti hiti í löfuöborginni mældist 9.7.1976, >4.3 gráöur. Mesti hiti sem mælst lefur í heiminum er öllu meiri eða >8 gráður í Mexíkó þann 11.8 Rigning sunnanlands Á morgun er gert ráö fyrir austanátt, 10 til 15 m/s um sunnanvert landiö. Hægari vindur veröur noröanlands og úrkomulítið Norðanlands. Hiti verður á bilinu 9 til 14 stig. mmmm Vindur: X-X,»/« Hiti ÍO til o mmrfM Vindur: O. OOT x-x ,v, > o4 Hiti 10°tii VM Vindur: 'vn X-X m/, > Hiti 10°til o Veöurstofan gerir ráö fyrlr fremur suöaustlægri átt víðast hvar. Vætusamt veröur sunnan og vestanlands. Suöaustlæg átt meö vætu sunnan- og vestanland en annars úrkomulaust aö mestu. Veöurstofan gerir ráö fyrir fremur suöaustlægrl átt víöast hvar. Vætusamt veröur sunnan og vestanlands. AKUREYRI skýjað 8 BERGSTAÐIR alskýja ö 5 BOLUNGARVÍK heiöskírt 9 EGILSSTAÐIR 9 KIRKJUBÆJARKL. rigning 8 KEFLAVÍK léttskýjaö 12 RAUFARHÖFN alskýjaö 5 REYKJAVÍK úrkoma í gléttskýjað STÓRHÖFÐI 14 BERGEN skýjaö 22 HELSINKI hálfskýjaö 17 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 17 OSLÓ 17 STOKKHÓLMUR skýjaö 7 ÞÓRSHÖFN skýjaö 11 ÞRÁNDHEIMUR þokumóða 23 ALGARVE skúr 12 AMSTERDAM léttskýjaö 24 BARCEL0NA skúr á síð. kls. 16 BERLÍN alskýjaö 18 CHICAGO súld 11 DUBLIN þoka á síö. kls. 14 HALIFAX skúr á síö. kls. 17 FRANKFURT skúr 13 HAMBORG skýjaö 5 JAN MAYEN skýjaö 18 LONDON skúr á síö. kls. 12 LÚXEMBORG léttskýjaö 26 MALLORCA 15 MONTREAL þokumóöa 23 NARSSARSSUAQ skýjaö 23 NEW YORK skýjaö 19 ORLANDO skýjaö 24 PARÍS rign. á síö. kls. 16 VÍN skýjaö 24 WASHINGTON rennd 11 WINNIPEG léttskýjað 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.