Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Side 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
DV
Ríkisstjórnin í
Japan hélt velli
Yoshiro Mori,
forsætisráðherra
Japans, og stjórn
hans héldu velli í
þingkosningunum
í gær en styrkur
hennar í þinginu
verður mun minni
en áður. Stjómar-
flokkarnir fengu 56,5 prósent þing-
sæta en voru með tvo þriðju hluta
fyrir kosningarnar.
Flokkur Moris missti hreinan
meirihluta sinn i neðri deild þings-
ins og verður þvi upp á náð og mis-
kunn tveggja lítilla samstarfsflokka
sinna kominn.
„Þetta var ekki gott en við börð-
umst vel,“ sagði Mori.
www.romeo.is
Viö leggjum mikinn metnaö
í pökkun og frágang á öllum
póstsendingum.
Allar sendingar dulmerktar.
1 00% trúnaöur.
Rafstöðvar
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
Sól- og öryggisfilma á rúSur. Vernd
gegn nita/birtu - uppiitun og er góö
þjófavörn.
LitaCar filmur inn á bílrúður, gera bílinn
öruggari, þægilegri, glæsilegri og
seljanlegri.
Asetning meöhita - fagmenn
Þ/ó/v
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
Stjórnarandstæðingar í Simbabve:
Mugabe forseti
er búinn að vera
Stjórnarandstæðingar í Simbabve
létu sér í léttu rúmi liggja hótanir
um að meina þeim þátttöku í ríkis-
stjórn, jafnvel þótt þótt þeir færu
með sigur af hólmi í þingkosning-
um helgarinnar. Sögðu þeir að Ro-
bert Mugabe forseti væri búinn að
vera.
Gífurleg þátttaka var í kosning-
unum um helgina og svo kann að
fara að stjómarandstöðuflokkurinn
MDC velgi Mugabe vel undir ugg-
um. Forsetinn hefur setið við völd í
tuttugu ár.
Fréttaskýrendur telja að MDC
kunni að fá meirihluta atkvæða.
John Nkomo, formaður stjórnar-
flokksins ZANU-PF, sagði hins veg-
ar á fundi með fréttamönnum að
samkvæmt stjórnarskrá landsins
hefði Mugabe einn rétt til að skipa
nýja ríkisstjórn úr hópi kjörinna
fulltrúa þjóðarinnar.
„Það verður engin breyting á rík-
isstjórninni. ZANU-PF mun mynda
Óhræddur andstæöingur
Morgan Tsvangirai, leiötogi stjórnar-
andstööunnar í Simbabve óttast
ekki hótanir stjórnvalda.
stjórn hver svo sem úrslitin verða.
Það verða engir úr stjórnarandstöð-
unni í stjórn," sagði Nkomo.
Morgan Tsvangirai, leiðtogi
MDC, vísaði hótuninni heim til föð-
urhúsanna.
„Það er sama hvað hann gerir.
Þetta eru endalokin. Það kemur
alltaf að því að tjaldið fellur," sagði
Tsvangirai.
Talning atkvæða úr þingkosning-
unum hófst snemma í morgun. Að
sögn formanns yflrkjörstjórnar,
Mariyawanda Nzuwah, er reiknað
með að búið verði að telja 75 pró-
sent þeirra í kvöld.
Nzuwah sagði að embættismönn-
um hefðu ekki borist neinar fregnir
af alvarlegum árekstrum kjördag-
ana tvo.
Kosningarnar voru haldnar í
skugga ofbeldisverka síðustu fjóra
mánuðina þar sem stuðningsmenn
stjórnarinnar lögðu undir sig
bújarðir hvítra bænda.
Hillary í göngu samkynhneigðra
Hillary Rodham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum og frambjóöandi til öldungadeildarinnar, tók ásamt þúsundum
annarra þátt í árlegri göngu samkynhneigöra í New York.í gær. Viö hliö hennar gekk Barney Frank, þingmaöur
demókrata í fulltrúadeildinni og yfirlýstur hommi. Þau veifuöu glaðlega til stuöningsmanna sinna.
Leynireikningar kristilegra demókrata í Þýskalandi:
Ráðuneyti Kohls eyddi
meira en milljón skjölum
Allt að 1,2 milljónum skjala var
eytt úr tölvuneti þýska kanslara-
embættisins á valdatíma Helmuts
Kohls kanslara. Þýskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að frá þessu
yrði skýrt á miðvikudag fyrir sér-
stakri þingnefnd sem rannsakar
leynilegar fégjafir til flokks Kohls,
kristilegra demókrata.
Kohl, sem hefur viðurkennt að
hafa tekið við ólöglegum peningja-
gjöfum en þrætt fyrir að hafa þegið
mútur, verður sjálfur yfirheyrður af
þingnefndinni á fimmtudag. Mál
þetta hefur varpað dökkum skugga
á feril hans.
í tímaritinu Der Spiegel og blað-
inu Welt am Sonntag kemur fram
að stórum hluta skjala í gagnasafni
kanslaraembættisins hafi verið eytt
Þrengir aö Kohl
Helmut Kohl kann aö lenda í vand-
ræöum fyrir þingnefnd í vikunni.
skömmu fyrir kosningamar í sept-
ember 1998 þegar kristilegir
demókratar biðu ósigur fyrir jafnað-
armönnum. Kohl hafði þá setið í
embætti í 16 ár.
Ekki kemur fram í fréttum blað-
anna hvort í eyddu gögnunum komi
fram hver beri ábyrgð á eyðingu
þeirra.
Der Spiegel segir að sérlegur
rannsóknarmaður leynireikninga-
málsins, Burkhard Hirsch, muni
skýra frá því að átt hafi verið skjöl
sem snerta umdeilda sölu á austur-
þýsku olíuhreinsistöðinni Leuna til
franska olíufélagsins Elf árið 1992.
Tölvusérfræðingum tókst að end-
urheimta allt að einni milljón texta-
skjala en um hálf milljón skjala var
aðeins endurheimt að hluta til.
Nyrup fær smáhjálp
Poul Nyrup
Rasmussen, forsæt-
isráðherra Dan-
merkur, fékk stuðn-
ings norska starfs-
bróður síns, Jens
Stoltenbergs, í gær
vegna fyrirhugaðr-
ar þjóðaratkvæða-
greiðslu í Danmörku um evruna,
sameiginlegan gjaldmiðil ESB. Stol-
tenberg sagði í blaðaviðtölum að
hann væri fylgjandi því að Danir
tækju upp evruna.
Uppþot í Alsír
Fimm manns að minnsta kosti
slösuðust í átökum óeirðalögreglu
og hundraða mótmælenda sem
minntust þess í Alsír í gær að tvö ár
voru liðin frá morðinu á vinsælum
söngvara.
Létust í sprengingu
Gasleki í stærstu olíuhreinsistöð
Kúveits olli gríðarlegri sprengingu
snemma í gærmorgun. Fjórir létust
og flmmtíu slösuðust.
Stríösglæpamaður tekinn
Breskir friðargæsluliðar brutust
inn á heimili meints serbnesks
stríðsglæpamanns frá Bosniu í gær,
handtóku hann og fluttu til Haag í
Hollandi.
Stöðvum endurvinnslu
Svend Auken, umhverflsráðherra
Danmerkur, leggur til á fundi um
mengun í Norðaustur-Atlantshafi í
vikunni að hætt verði að endur-
vinna notað kjamorkueldsneyti.
Stjórnarskrá ESB í nánd
Jacques Chirac
Frakklandsforseti
sagði við upphaf
heimsóknar sinnar
til Þýskalands í gær
að hann teldi að
Evrópusambandið
gæti eignast eigin
stjórnarskrá á
næstu tveimur árum. Víst er að um-
mæli hans kæta gestgjafa hans.
Árásum hætt
Rússnesk stjórnvöld hættu í gær
öllum loft- og stórskotaliðsárásum á
Tsjetsjeníu og sögðu að hersveitir
innanríkisráðuneytisins ættu að
uppræta þá uppreisnarmenn sem
eftir væru.
Fórnarlamba minnst
Madeleine Al-
bright, utanríkis-
ráðherra Banda-
ríkjanna, minntist í
gær fórnarlamba
kommúnismans í
pólsku hafharborg-
inni Gdansk. Þar
varð til verkalýðs-
hreyfmgin Samstaða sem átti þátt í
að binda enda á kalda stríðið.
Ekki fyrir svarta
Bandaríski hershöfðinginn fyrr-
verandi, Colin Powell, sagði í gær
að Repúblikanaflokkurinn væri
ekki góður fulltrúi blökkumanna.
Powell er sjálfur svartur
repúblikani.
Þúsundir stuðningsmanna Car-
denas, vinstrisinnaðs frambjóðanda
til forsetaembættisins í Mexíkó,
sóttu fund á aðaltorgi höfuðborgar-
innar I gær.