Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
Skoðun DV
m
Ertu búinn að grilla
mikið í sumar?
Jakob Marteinsson trésmiöur:
Ekki neitt, en stendur til bóta.
Ómar Örvarsson sendibílstjóri:
Já, alveg helling, og geri á
meðan veður leyfir.
Tómas Rizzo, 13 ára:
Já, eða foreldrar mínir.
Unnar Jónsson tæknifræöingur:
Já, alltaf að grilla.
Jenný Guðmundsson
barnabókavöröur:
Við fyrstu sólarglætu í Vestmanna-
eyjum, þá grilla ég.
Ólöf Elíasdóttir:
Já, uppi í bústað og fer stundum
til dóttur minnar sem er
dugleg að grilla.
Sífellt þrengir að ríkisútvarpi
Magnús Sigurðsson
skrifar:
Sá tími nálgast nú óðum að ráða-
menn og Alþingi verða að gera upp
við sig hvort hér eigi að halda úti
ríkisfjölmiðli af þeirri stærðargráðu
sem Ríkisútvarpið er. Tímarnir
hafa breyst ótrúlega hratt á íslandi
hvað fjölmiðlun áhrærir og ríkisút-
varp er auðvitað úr takti við þá
breytingu að gera öllum kleift að
nálgast aðra innlenda Ijósvaka-
miðla, og flesta þeirra ókeypis. -
Raunar alla nema Stöð 2, sem held-
ur uppi ójafnri samkeppni við ríkis-
sjónvarp, þar sem það síðarnefnda
hefur eins konar þumaiskrúfu á
landsmönnum og skyldar alla sem
eiga sjónvarpstæki til að greiða fyr-
ir afnot tækisins.
Auðvitað er ríkisfjöimiðill óþarf-
ur á íslandi úr því sem komið er.
Ríkissjónvarp er enn meiri óþarfl,
aukinheldur sem dagskrá þess er í
óþökk meirihluta þeirra sem greiða
fyrir hana hvort sem þeir vilja eða
ekki. Ríkissjónvarpið er enn fremur
afspymulélegt sem fréttamiðill og
„Nú liggur ekkert annað
fyrir en að ráðamenn, með
menntamálaráðherra í far-
arbroddi, taki einarða af-
stöðu gegn því ofríki sem
ríkisfjölmiðill sýnir fólki í
formi sjálfvirkrar
gjaldtöku. “
hefur enga tiiburði til að komast
upp úr því fari sem er langt fyrir
neðan meðalmennsku, með mál-
stirða þuli og fréttamenn og lýkur
engri frétt öðruvísi en skilja fólk eft-
ir með spurningarmerki í augum
þegar skyndilega er klippt á frétt
sem nauðsynlegt hefði verið að
ljúka með svari.
Um hljóðvarp ríkisins gildir ann-
að þótt þar sé fréttastofan að sjálf-
sögðu líka úr takti við tímann. Rík-
ishljóðvarp (útvarp) getur hugsan-
lega verið góður kostur sem leið-
andi menningartæki til afþreyingar
og upplýsinga, og hefur sýnt bestu
tilburðina gegnum tíðina, svo að
fólk hlustar gjarnan á dagskrána
eða einhvem hluta hennar þegar
því hentar. Hér á ég að sjálfsögðu
við Rás eitt, en ekki Rás 2, sem ekki
örlar fyrir neinni menningu á og er
fjarlæg öllum almenningi. Undan er
þó skilið dægurmálaútvarp rásar-
innar þá fáu tíma á dag sem hún
reynir að nálgast málefni í sviðsljós-
inu. Hún virti þó hinn almenna
borgara ekki meira en svo að hún
lokaði á þá hlustendur óskuðu eftir
að láta álit sitt í ljós í tæpa klukku-
stund fimm daga vikunnar í þættin-
um Þjóðarsálin. - Þar sýndi Ríkisút-
varpið lítilsvirðingu sína gagnvart
þessum sama almenna borgara.
Nú liggur ekkert annað fyrir en
að ráðamenn, með menntamálaráð-
herra í fararbroddi, taki einarða af-
stöðu gegn því ofríki sem ríkisfjöl-
miðill sýnir fólki í formi sjálfvirkr-
ar gjaldtöku. Sjónvarpinu og Rás 2 á
að loka í fyrstu atrennu og flnna
ríkishljóðvarpi fastan grundvöll í
fjárlögum.
Iðnaðarmenn á stjá fyrir austan
„Iðnaðarmenn munu vœnt-
anlega fá glampa í augu
við þá staðreynd að þarna
muni tryggar greiðslur af
hálfu hins opinbera. “
Eysteinn
skrifar:_____________________________
Ég er einn þeirra sem hef ekki
mikið álit á iðnaðarmönnum hér á
landi. Þeir hafa reynst mér dýrir,
svikulir og sýnt mikla óbilgirni i
'viðskiptum. Ég tek þó fram að ég
hef ekki farið fram á „svarta“ vinnu
af þeirra hálfu. Og ég held því líka
fram, að iðnaðarmenn, umfram
margar aðrar starfsstéttir hér á
landi, hafi komið efnahagslíflnu í
ógöngur með geysiháum launa-
staðli, svikum og kæruleysi í störf-
um. Um þetta1 eru mýmörg dæmi.
Og ábyrgð iðnaðarmanna og verk-
taka í byggingu húsa hefur ekki ver-
ið upp á marga fiska þegar til hefur
átt að taka.
Mér brá verulega þegar ég sá frétt
um að iðnaðarmenn væru nú albún-
ir til að koma að uppbyggingu
skemmdra húsa í austursveitum
vegna jarðskjálftanna. Iðnaðarmenn
munu væntanlega fá glampa í augu
við þá staðreynd að þarna muni
tryggar greiðslur af hálfu hins opin-
bera. Ég hygg þó að margir eigend-
ur hinna skemmdu húsa muni ekki
ýkja áhugasamir að stofna til viða-
mikilla viðgerða á húsum sínum
hálfhrundum sumum. Einhverjir
þeirra munu eflaust leita á önnur
mið til búsetu, jafnvel fara beint til
höfuðborgarinnar.
Iðnaðarmenn munu samt vera
komnir á s'tjá fyrir austan til að
kanna hvaða verkefni þar sé að
finna og hvað megi upp úr þeim
hafa. Ég, sem skattborgari, hvet til
mikillar varfæmi af hálfu ríkisins
og eftirlits þegar og ef að því kemur
að iðnaðarmenn taka til hendinni,
því þarna verður væntanlega ekki
unnið „svart“ og því meiri ástæða
fyrir iðnaðarmenn og verktaka að
uppfæra tölur til hins ýtrasta áður
en hinn vinsæli virðisaukaskattur
leggst ofan á summuna. Það er því
að mörgu að hyggja af hálfu hins op-
inbera.
Pagfari
Fótbolti er málið
Þó eflaust séu flestir komnir með upp í
háls af jarðskjálftaumræðu þá eru slíkir
stórviðburðir varla í boði nema einu sinni á
öld. Dagfara þykir því Qandakomið ekkert
að því að bera örlítið meira í þann bakka-
fulla læk.
Það hefur vakið óskipta athygli lands-
manna hversu Ríkissjónvarpið sýndi mikla
sálarró og stillingu þegar 17. júní skjálftinn
hristi landsmenn. Þrátt fyrir að hús nötruðu
víða um land, kaffl skvettist úr krúsum,
myndir hristust af veggjum og blómavasar
brotnuðu mélinu smærra, þá var enginn titring-
ur merkjanlegur hjá þessari virtu menningar-
og öryggisstofnun Islendinga. Stöð tvö og Bylgj-
an voru strax uppfullar af skjálftafréttum og
fréttatímar teygðir og togaðir í allar áttir. Nýj-
ustu fréttir voru spilaðar aftur og aftur þar til
þær voru fyrir löngu hættar að vera nýjustu
fréttir og fréttamenn bættu stöðugt í eyðurnar.
Á Rikissjónvarpinu sátu menn hins vegar i
stóískri ró og fylgdust grannt með tuðrusparki
suður í Evrópu. Þar var sko enginn flumbru-
gangur eða asi.
Knattspyrnubullur allra landa eru sammála
um það aö fótbolti sé það merkilegasta fyrirbæri
sem fundið hefur verið upp síðan mannfólkið
Það er svona rétt eins og þegar maður
veifar hendi eldsnöggt fyrir framan
hœnu, hún hreinlega dáleiðist og er
minnst sólarhring að uppgötva hvað
var um að vera.
skreið út úr hellum og niður úr trjám fyrir
margt löngu. Þessi sannindi hefur Ríkissjónvarp-
ið gert að sínum. Ströng túlkun ráðamanna þar
á bæ á lögum um neyðarþjónustu og upplýsinga-
skyldu við almenning á neyðarstundu er alveg á
hreinu. Það skal spila fótbolta.
Sjónvarpsmenn virðast hafa talsvert til síns
máls. Þeir hafa meira að segja af einskærri
fórnarlund gert tilraun á sjálfum sér til að
sanna kenninguna. Með því að sýna fótbolta
sex tíma á dag og sleppa helst öllum frétta-
tímum, þá þarf ekkert að senda út leiðinlegar
tilkynningar um jarðskjálfta og svoleiðis. Við
linnulaust tuðrugláp hefur nefnilega komið í
ijós að mannskepnan dettur gjörsamlega úr
sambandi. Það er svona rétt eins og þegar
maður veifar hendi eldsnöggt fyrir framan
hænu, hún hreinlega dáleiðist og er minnst
sólarhring að uppgötva hvað var um að vera.
Þessu er eins farið með ríkisstarfsmenn hjá
Sjónvarpinu, þeir detta hreinlega úr sambandi
og hafa því ekki rænu á að kveikja á fréttasett-
inu þó lög og reglur geri ráð fyrir því á neyðar-
stundu.
Svo þegar himinn og jörð eru hrunin allt í
kringum þá og rykið tekið að setjast, þá er frétt-
in og upplýsingaþörfin hvort sem er orðin úrelt.
Þannig er búið að sanna það fyrir þjóðinni að
besta ráðið sé að sýna fótbolta allan sólarhring-
inn. Þá verði almenningur að lokum orðinn svo
heiladauður að hann tekur ekki einu sinni eftir
því þó jörð skjálfi upp á sex, sjö eða átta á Richt-
er'
Á veginum við Vífilsstaði
- Eintómar holur og „þvottabretti".
Ófær vegur
Magnús Magnússon hringdi:
Einn er sá vegur í alfaraleið og í
næsta nágrenni við höfuðborgina sem
nánast ætti að loka ef ekki á að gera
þar bót á. Þetta er vegurinn milli Víf-
ilsstaða og Elliðavatns, en þar ek ég
daglega. Þetta er malarvegur með sín-
um holum og þvottabrettum sem hér
voru alþekkt áður en malbikið kom til
sögunnar utan Reykjavíkur. Það er
óskiljanlegt að ekki skuli vera búið að
klæða þennan kafla malbiki svo fjöl-
farinn sem vegurinn er, en þarna fara
um eða yfir 2000 bílar dag hvem að
sögn. Þarna á að loka eða gera úrbæt-
ur hið fyrsta.
Hver á að skera úr
kantsteinum?
Friða skrifar:
Ég og fleiri íbúar í gömlu hlutum
borgarinnar erum orðin leið á að
horfa á illgresi sem vex úr kantstein-
um og gangstéttarhellum án þess að
nokkuð sé að gert. Maður sér einn og
einn íbúa vera að dunda við að fjar-
lægja þetta, en borgin lætur þetta
drabbast ár eftir ár. Borgin hlýtur að
vera ábyrg fyrir þessari hreinsun.
Eða er ætlast hún til að íbúranir
hreinsi þetta, hver hjá sér?
- Lesendasíða DV hafði samband
við hreinsunardeild Reykjavíkur og
fékk þær upplýsingar að borgin væri
ábyrg fyrir þessari og annarri hreins-
un gatnakerfisins, og hefur unglinga-
vinna m.a. annast hana.
Lúðvík og úrkastið
Kristján Jðnasson hringdi:
Ágæt grein f DV nýlega eftir Lúð-
vík Gizurarson hrl. hefur líklega
hrundið af stað skriðu athafna. Hann
kom m.a. inn á kvótaleiguna, þar sem
sjómenn fleygja öllu verðlitlu og hirða
aðeins það dýrasta úr aflanum, þvi
annars borgaði sig ekki að vera með
leigukvóta yfirleitt. Lengi er búið að
minnast á þetta og af mörgum. En svo
brá við eftir þessa grein Lúðvíks, að
skyndilega er nú farið að rannsaka
kerflsbundið hvemig úrkastið gengur
fyrir sig. Þetta verður að sjálfsögðu aö
gera á laun, því sjómenn reyna hvað
þeir geta að flrra sig ábyrgð. En loks
er þó kominn skriður á málið.
Reykjavíkurflugvöllur
- Slysagildra þar sem margir hafa farist.
Hve margir hafa
farist?
Jóhannes Einarsson skrifar:
I umræðunum um Reykjavíkurflug-
völl og hugsanlegan flutning innan-
landsflugs til Keflavíkurflugvallar,
hefur ekki verið gerð nægileg úttekt á
þeirri hættu sem stafar af Reykjavík-
urflugvelli þar sem hann er nú. Það
væri t.d. ómaksins vert að upplýsa
hve mörg slys hafa orðið á og við flug-
völlinn, segjum síðustu 40 árin eða
svo. Hve margir hafa farist í þessum
slysum og flokka orsakir þeirra. -
Ekki er neinum vafa undirorpið að
Reykjavíkurflugvöllur er slysagildra
og hún verður sífellt skæðari með
hverju árinu sem líður vegna nær-
veru við aukið þéttbýli og umsvif í
námunda við völlinn.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
ÞverhoKi 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.