Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2000, Page 15
15
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 2000
X>V____________________________________________________________________________________________Menning
Undradrengurinn
Harry Potter
Bamabókaunn-
endur hér á landi
fengu að kynnast
hinum fræga
Harry Potter fyrir
siðustu jól og lík-
aði mörgum vel.
Nú er von á fjórðu
bókinni um dreng-
inn í byrjun næsta
mánaðar, nánar
tiltekið verður
hún komin í bókabúðir á Bretlandi
þann 8. júlí.
Nú hafa fregnir borist af því að ein
og háif milljón bóka hafi þegar verið
prentaðar, til þess að mæta gríðarlegri
eftirspum eftir bókinni. Allt yfir fimm
þúsund eintökum þykir mjög gott mið-
að við fyrstu prentun og er einsdæmi
að nokkur bók sé prentuð í slíku
magni. Aðstandendur búa sig einnig
undir að slá öll met þegar kemur að
því að selja bókina og gera ráð fyrir
þvi að þurfa að prenta hana strax aft-
ur.
Aðdáendur Harry Potters í Amer-
íku, Ástralíu, Kanada, Nýja Sjálandi
og írlandi fá bókina í hendur um leið
og hún kemur út í Bretlandi, en við
hin verðum að bíða eitthvað lengur.
JK. Rowling, höfundur bókarinnar,
vill lítið segja um plottið í nýju bók-
inni en lét þó Reuters fréttastofuna
hafa þetta eftir sér: „Síðast þegar þið
hittuð hann, þá var hann þrettán ára.
Nú er hann sem sagt fjórtán og hefúr
uppgötvað að hitt kynið er bara þó
nokkuð spennandi. Og það sem ég hef
sagt nokkrum sinnum áður og endur-
tek nú, er að það verður dauðsfall. Já,
það verður dauðsfall í nýju bókinni."
Og þá verða forvitnir bara að setjast
niður og þýða.
Kjarval, Kristján
og allir hinir
Um helgina var
opnuð sýning á úr-
vali íslenskra
verka í eigu Lista-
safhs íslands. Sýn-
ingin mun standa
yfir til ágústloka
og er sýnt í öllum
sölum safnsins.
Á sýningunni,
sem ber yfirskrift-
ina Islensk myndlist á 20. öld er að
finna verk eftir á fimmta tug myndlist-
armanna, sem allir eru listaunnendum
vel kunnir. Svo aðeins nokkurra sé
getið má tiltaka Þórarin B. Þorláksson,
Kjarval, Júliönu Sveinsdóttur, Nínu
Tryggvadóttur, Erró, Kristján og Sig-
urði Guðmundssyni, Hrein Friðfinns-
son og Gerði Helgadóttur.
í tengslum við sýninguna verða dag-
lega myndbandasýningar, þar sem má
sjá kvikmyndir um íslenska lista-
menn, s.s. Ásgrím Jónsson, Jón Stef-
ánsson, Jón Gunnar Ámason, Þorvald
Skúlason og Erró.
Sumartónleikaröð
Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar
Annað kvöld eru fyrstu tónleikam-
ir í Sumartón-
leikaröð Lista-
safns Sigurjóns
Ólafssonar sem nú
er boðið upp á í
tólfta skipti. Á tón-
leikunum leika
þau Sigurbjöm
Bemharðsson
fiðluleikari og
Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari eftirtalin
verk: Sónata í e-moll eftir W.A. Mozart
og Duo Concertante eftir Igor Stravin-
sky. Þau frumflytja einnig verkið Ex-
promptu eftir Pál P. Pálsson á þessum
tónleikum.
Bæði Sigurbjöm og Anna Guðný
eru landsþekktir hljóðfæraleikarar og
hafa þau komið fram víða, jafnt innan
lands sem utan.
Tónleikamir standa i u.þ.b. eina
klukkustund og fer miðasala fram i
safninu.
DV, París:
Kynferði tölvunnar
Það er mikil eftirlætisiðja Frans-
manna um þessar mundir að finna
út kynferði hinna ýmsu starfsgreina
og hluta, svo hægt sé að viðhafa um
þetta rétt heiti. Er þess skemmst að
minnast að fyrir fáeinum mánuðum
urðu heiftarlegar deilur um það
hvernig ætti að nefna konu sem
gegnir embætti ráðherra. Sósíalist-
ar sem ráða lögum og lofum börðu
það að lokum í gegn að starfsheitið
yrði kvenkennt í þvi tilviki, líkt og
það væri kallað „ráðfrú“ á íslensku,
þrátt fyrir hávær mótmæli frönsku
akademíunnar.
Nú segir sagan, að Fransmenn
séu hlaupnir með þetta upp í stjórn
Evrópubandalagsins og að undirlagi
þeirra hafi verið ákveðið að kanna
hvers kyns sé sá hlutur sem gengur
undir nafninu „PC-tölva“. Heitið er
reyndar karlkyns á frönsku, eins og
orðið „ráðherra", en allur er var-
inn góður. Til að fulls hlut-
leysis væri gætt voru
settar á fót tvær
nefndir, önnur
skipuð konum
og hin körlum.
Var hvorri um
sig falið að rétt-
læta niðurstöð-
una með fernum
rökum.
Kvennanefndin
komst að þeirri nið-
urstöðu að gripur-
inn væri tvímæla-
laust karlkyns, þvi að:
- til að hann komi að
einhverju gagni
þarf fyrst að
kveikja á honum,
- hann er fullur
af upplýsingum en
hefur ekkert ímyndun-
arafl,
- það er ætlast til að
hann sé til aðstoðar en oft-
ast er það hann sem er
vandamálið,
- um leið og búið er að
binda sig við hann kemur í ljós að
með því að bíða eilítið lengur hefði
maður getað fengið mun afkasta-
meira módel.
Karlanefndin komst hins vegar
að þeirri niðurstöðu að tölvan gæti
ekki verið annað en kvenkyns þvi
að:
- enginn skilur rök hennar
nema sá einn sem fann hana upp,
- tungumálið sem hún notar til
samskipta við aðrar af sama tagi er
engum manni skiljanlegt,
- hver einasta skyssa sem mað-
ur gerir geymist í minni hennar og
kemur þaðan aftur þegar síst skyldi,
- um leið og búið er að binda sig
við hana kemur í ljós að maður þarf
að eyða helmingi launa sinna i
fylgihluti.
Þetta frjóa og árangursríka nefnd-
arstarf telja Fransmenn sterk rök
gegn þeim ófáu sem álíta ennþá að
Evrópubandalagið sé gagnslaust í
öllu því sem máli skiptir.
Einar Már Jónsson
Tónlist
Ljóð bókavarðanna
Ekki horfa á útvarpið
meðan þú ekur
Ingvi Þór Kormáksson hefur sent
frá sér 14 laga plötu með lögum við
ljóð ýmissa skálda sem eiga það eitt
sammerkt að hafa unnið á Borgar-
bókasafni Reykjavíkur um lengri
eða skemmri tíma. Reyndar er
einnig tekið fram á umslagi að ekki
hafa öll safnaskáldin komist inn á
plötuna. Ingvi Þór hefur samið og
gefið út töluvert af tónlist síðast-
liðna tvo áratugi. Sérstaklega hefur
hann verið iðinn við að semja lög
við ljóð samtímaskálda en lauslega
áætlað voru slík lög orðin yfir 50
talsins áður en þessi plata kom út.
Það er ekki hlaupið að því að semja
inda að vera samið um leið og text-
inn. Borgardætur flytja lagið á við-
eigandi hátt af smekkvísi. Flutning-
ur allur er í háum gæðaflokki, enda
er valinn maður í hverju hlutverki,
jafnt í söng sem hljóðfæraleik. Út-
setningar eru i höndum Eðvarðs
Lárussonar og þær eru vel gerðar og
viðeigandi í öllum tilvikum. Með
þessari plötu hefur Ingvi náð því að
koma öllum þessum mismunandi
ljóðabrotum til skila á svo smekk-
legan hátt að eftirtektarvert er. Um-
slag er fallegt og gott og inniheldur
allar þær upplýsingar sem vert er
að hafa, m.a. öll ljóðin á plötunni.
Ársæll Másson
Dans stöðumælanna
Lagahöfundur Ingvi Þór Kormáksson.
Ýmsir flytjendur. Dreifing: ísiensk
miðlun og Japis. 2000.
lag við nútímalegan Ijóðatexta.
Formfestan er laginu nauðsyn en
hún er oftast lítil i ljóðunum og er
yfirleitt að einhverju leyti brotin
upp sé hún yfirhöfuð til staðar. En
Ingva ferst þetta vel úr hendi. Lög-
in eru vel gerð og vekja athygli á
sjálfum sér ekki síður en textunum.
Þau eru af ýmsum toga, enda eru
ljóðin mjög fjölbreytt í formi jafnt
sem innihaldi. Mörg skáldanna eru
velþekkt. Þau eru Kristín Ómars-
dóttir, Oddur Bjömsson, Úlihildur
Dagsdóttir, Einar Ólafsson, Þóra
Jónsdóttir, Hannes Sigfússon,
Gunnar Dal, Magnús Gestsson, Pjet-
ur Hafstein Lárusson, Hrafn A.
Harðarson, Emma Hansen, Friðrik
Guðni Þórleifsson, Anton Helgi
Jónsson, Snorri Hjartarson, Þór-
hallur Þórhallsson, Jón Björnsson,
Michael Dean Óðinn Pollock og
Ingvi Þór semur sjálfur textann við
upphafslag plötunnar en það lag er
fyrirtaks dægurlag upp á gamla
móðinn sem nýtur þeirra forrétt-
Mosfet 45 • MARC X •
MACH 16 • Octaver • EEQ
Setjum tækið
í bílinn þér að
kostnaðarlausu
DEH-P6100-R
• 4x45 magnari • RDS
• Stafrænt útvarp FM MW LW
• 24 stöðva minni • RDS
• BSM • Laus framhlið
• RCA útgangur
• Klukka • Þjófavörn
• Loudness þrískiptur
• 3 Banda tónjafnari
____rííi___
RdDIOfö&IISf
Geislagötu 14 • Sfmi 462 1300
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is