Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2000, Blaðsíða 2
18
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 2000
Sport
DV
MánúdágsviStaliö
KR-ingar
eru búnir að
tapa 12 stigum í
fyrstu níu leikjunum eða þrem-
ur fleiri en á öllu tímabilinu í
fyrra.
undir hans sljóm og tapaði að-
eins tveimur en Pétur hefur náð
55,5% árangri með KR-liðið til
þessa.
^^^\^^^^leikjunum í
sumar en hafa aft-
ur á móti aðeins unnið tvo
af níu seinni hálfleikjum og tap-
að þremur.
KR-ingar hafa tapað tveimur
heimaieikjum í sumar eða tvö-
falt meira en í öllum átján leikj-
unum undir stjóm Atla Eð-
valdssonar.
KR hefur ekki unnid í síðustu
fjórum leikjum sínum í deild-
inni en það em tólf ár síðan KR
hefur beðið lengur en fjóra leiki
eftir sigri þegar liðiö vann ekki
í síðustu sex leikjum sínum
1988.
KR-ingar hafa skoraó átta af
12 mörkum sínum i fyrri hálf-
leik og markatala liðsins í
seinni hálfleik er aöeins 4-6.
Markatala KR-liðsins í fyrra í
seinni hálfleik var 23-7, þar af
11-5 eftir fyrstu níu leikina.
Guómundur Benediktsson var
búinn að leggja upp fimm mörk
eftir fyrstu níu leÚcina í fyrra,
Guðmundur á enn eftir að
leggja upp mark í sumar.
-ÓÓJ
Pétur Pétursson náði 69,7% ár-
angri með Keflavíkurliðið 1994,
liðið vann þá sjö leiki af ellefu
KR-ingar hafa ekki verið und-
ir eftir fyrri hálfleik í fyrstu níu
íslands- og bikarmeistarar KR hafa ekki
náð sannfærandi úrslitum í síðustu leikjum.
Þrjú stig eru uppskeran í síðustu fjórum
leikjum og eru neikvæðar raddir famar að
hljóma um vesturbæinn. Það er skrýtið í ljósi
þess að KR hefur verið í efsta sæti
Landssimadeildarinnar lungann úr mótinu og
er nú í öðru sæti. Það er því mikil pressa á
Pétri Péturssyni, þjálfara KR-inga, jafnvel
meiri heldur en gengur og gerist erlendis.
- Hvemig er að þurfa að búa við þessa
pressu sem er á þjálfara KR ef hlutimir ganga
ekki nákvæmlega upp?
Ég fmn að sjálfsögöu fyrir pressu en hún
kemur ekki endilega frá félaginu sjálfu. Ég set
pressu á sjáifan mig því ég vil vinna titla. Ég
sagði það fyrir mót að það eina sem kæmi til
greina hjá KR-ingum væri að vinna alla þá
titla sem í boði væm og við það stend ég. Það
er meira en ég hef heyrt nokkum annan
þjáifara í efstu deild segja. Menn losa sig oft
undan pressu með því að setja fram loðin
markmið en þannig er þaö ekki hjá mér.
Þegar ég spilaði sjálfur setti ég mér ávallt há
markmið og reyndi að vinna út frá þeim. Ég
get því miður ekki spilað sjálfur lengur en ég
treysti strákunum í liðinu 100% til að klára
dæmið sem viö byrjuðum á.
- Ertu sáttur við leik liðsins og stöðu eftir
níu umferðir?
Ég er ekki sáttur við að vera í öðru sæti.
Mér fmnst við eiga meira skilið miðað við það
hvemig KR-liöið hefur spilað. Liðið hefur
verið að spila góða knattspymu og þá hafa
fyrri hálfleikimir oft verið sérstaklega góðir.
Það hefur hins vegar ekkert dottið fyrir
okkur. Við höfúm nýtt færin illa og við það
hefur myndast ákveðið óöryggi i liðinu. Við
höfum ekki náð að klára leikina strax í byrjun
og hleypt andstæðingimum óþarflega mikið
inn í leikina. Heppnin virðist hafa tekið sér
bólfestu alls staðar annars staðar en í
vesturbænum og hún er mikilvæg ef árangur
á að nást.
- Hvað hefur vantað í leik KR-liðsins?
Ég er svo sem ekkert óánægður með leik
liðsins. Ég leyfi mér að fullyrða að við höfum
fengið sex til sjö dauðafæri að meðaltali í
hverjum einasta leik, ef leikurinn gegn ÍBV er
undanskilinn, án þess að andstæðingamir
hafi fengið eitt einasta. Það sýnir betur en
nokkuð annað að við erum að reyna eftir
fremsta megni að spila sóknarknattspymu á
meðan önnur lið liggja í skotgröfunum og bíða
færis. Þaö er hins vegar alveg ljóst að við
verðum að nýta færin betur. Það er staðreynd
að ekkert lið hefur efni á að misnota sex til sjö
dauðafæri í leik.
- KR-liðið hefur ráðið ferðinni í fyrri
hálfleik í vel flestum leikjum en síðan bakkað
og gefið hinu liðinu færi á að komast inn í
leikinn. Hvað veldur?
Staðreyndin er sú, og það þekkir maður
sem gamall leikmaður, að þegar færin falla
ekki okkar megin grípur um sig hræðsla og
menn hörfa ósjálfrátt. Hins vegar eru tvö lið
inn á vellinum í hverjum leik og einhvem
tima í leiknum þarf hitt liðið að sækja. Þegar
lið spila eins framarlega og KR-liðið hefur
gert í sumar er alltaf hætta á fá á sig mark.
Við höfum líka átt í vandræðum með meiðsli.
Frá því að mótið byrjaði hafa miðjumennirnir
okkar verið mikið meiddir sem er mjög slæmt
þar sem leikur liðsins stýrist mikið af
miðjumönnunum.
- Hvaða breytingar ætlar þú að gera í ljósi
úrslita síðustu leikja?
Það er mikið af leikjum fram undan, aðeins
þrír dagar á milli leikja og því lítill tími til
breytinga. Að visu eiga þessir leikir að koma
mönnum i betra form og ég hef fulla trú á að
við vinnum okkur út úr þessu. Við erum
búnir að vera á toppnum nánast allt tímabilið
þrátt fyrir að lykilmenn hafi verið meiddir og
ég fer ekki ofan af því að KR er meö besta lið
á íslandi í dag.
Ef það er krísa í vesturbænum þá velti ég
þvi fyrir mér hvemig staðan er hjá hinum
liðunum. Við höfum allt til alls, frábæra
leikmenn, frábæra stuðningsmenn og frábæra
umgjörð og ég held að það sé aðeins
tímaspursmál hvenær KR-liðið hrekkur í
gang.
-ÓHÞ