Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Síða 9
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
DV
Fréttir
9
Hávær umræða um brottkast á fiski:
Grétar Mar hlýtur að
tala af eigin reynslu
- segir Emil Thorarensen, stjórnarmaður LÍÚ
„Þessi umræða er komin út fyrir
öll velsæmismörk," segir Emil
Thorarensen, útgerðarstjóri á Eski-
flrði og stjórnarmaður í Landsam-
bandi íslenskra útgerðarmanna, um
þær fréttir sem birst hafa af brott-
kasti á fiski.
„Ég þekki engin dæmi þess að sjó-
menn séu að henda fiski i þeim mæli
sem um er talað. Auðvitað á alltaf
sér stað eitthvað brottkast en það er
hverfandi lítið og um er að ræða hrá-
efhi sem ekki er hægt að nýta. Þetta
er ekkert öðruvísi en fyrir daga
kvótakerfisins. Það að halda því
fram að útgerðarmenn fyrirskipi
brottkast er fráleitt. Slíkt hefur
aldrei tiðkast hjá okkar útgerð. Enda
myndu sjómenn aldrei láta bjóða sér
slíkt. Þeir sjómenn og skipstjómar-
menn sem ég þekki til eru
ábyrgir í umgengni sinni
við fiskimiðin," segir Emil.
Hann segir mikla reiði
vera meðal sjómanna og
útgerðarmanna vegna
tíðra árása þar sem vegið
sé gróflega að æru þeirra.
Emil segist hafa ákveðna
skýringu á því hvers vegna
umræðan sé í þessum far-
vegi.
„Umræðan um þetta er
afleiðing af lýðskrumi
Sverris Hermannssonar al-
þingismanns og Grétars
Mars Jónssonar, forseta
Farmannasambandsins.
Þeir hafa haldið því á lofti
að sjómenn væm örgustu
Fjúkandi reiður
- Austfíröingar
ástunda ekki þá
umgengnishætti
sem ætla má aö
viögangist suöur
meö sjó, segir Emil
Thorarensen.
sóðar í umgengni við auð-
lindina og tilgangurinn er
augljóslega sá að grafa und-
an kvótakerfinu. Grétar
Mar hlýtur þar að tala af
eigin reynslu. Það er óþarfi
hjá honum að ætla okkur
Austfirðingum þá um-
gengnishætti sem ætla má
að viðgangist suður með
sjó,“ segir Emil.
Hann segir helsta vand-
ann í dag snúast um kvóta-
lausa báta.
„Þeir eru alltof margir
um alltof fáa fiski. Hæsti-
réttur íslands ber ábyrgð á
því vandamáli með sinni
niðurstöðu í Valdimars-
málinu," segir Emil. -rt
Margir sóttu atvinnulífssýningu á Hvammstanga:
Þjappar fólki saman
— segir framkvæmdastjóri
DV, HVAMMSTANGA:
Talið er að á þriðja þúsund
manns hafi sótt atvinnulifssýning-
una „Atvinna 2000“ sem haldin var
í félagsheimilinu á Hvammstanga á
dögunum en þar kynntu um 55 aðil-
ar úr Húnaþingi vestra framleiðslu
sina og þjónustu.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
iðnaðarhúsnæði í Standbæ og
Prjónaverksmiðjuna ísprjón.
Þetta er önnur atvinnulífssýning-
in sem haldin er á Hvammstanga.
Sú fyrsta var fyrir þremur ámm og
þá eins og nú var Bjöm Hannesson
framkvæmdastjóri. Bjöm sagði í
samtali við DV að mjög gaman væri
að taka þátt í undirbúningi sýning-
skemmtilega móral sem var ríkj-
andi á fimmtudagskvöldið og föstu-
daginn þegar fólk var að koma sín-
um básum upp. Þá var verið að
skoða hver hjá öðrum og lána á
milli það sem vantaði. Svona sýn-
ingar þjappa fólki saman og virka
mjög hvetjandi, ég er ekki í vafa um
það,“ sagði Björn Hannesson. ÞÁ
JEPPAFJAÐRIR - JEPPALOFTPÚÐAR.
LOFTPUÐAFJÖÐRUN
I BILA - VAGNA - TRAILERA -TJALDVAGNA
HÚSBÍLA - KERRUR - FELLIHÝSI O.FL.
FJAÐRIR
I VÖRUBILA - VAGNA - RÚTUR - KERRUR.
3
FJAÐRABLÖÐ - FJAÐRAKLEMMUR -
FÓÐRINGAR - SLITBOLTAR -
MIÐFJAÐRARBOLTAR - GÚMMÍHRINGIR.
DRATTARBEISLI
Á FÓLKSBÍLA OG JEPPA frá 7.700.
Vonduð vara frá Evrápu og Ameríku.
GOTT VERÐ.
Fjaðrabúðin Partur, Eldshöfða 10, Reykjavík.
Símar 567 8757 og 587 3720.
^Smáauglýsingar
leigumarkaðurinn
550 5000
DV-MYND ÞÁ
Ráðherra tekur til hendinni
Valgeröur skoöaöi m.a. prjónaverksmiöjuna ísprjón. Hún lýsti yfir undrun
sinni á því framtaki og dug sem einkenndi atvinnulíf í Húnaþingi vestra.
ráðherra opnaði sýninguna og sagöi
í ávarpi sínu mjög ánægjulegt og
mikilsvert að fólk geti verið stolt af
sínu lífsviðurværi í byggðunum,
sýning sem þessi væri mikið fram-
tak og hvatning og sýndi fram á þá
miklu möguleika sem fælust í at-
vinnu og búsetu á landsbyggðinni.
Ráðherrann var mjög ánægður með
sýninguna og skoðaði m.a. nýbyggt
arinnar. „Mikil samstaða býr þama
að baki og það er mikil vinna að
undirbúa svona sýningu. Fyrir
þremur árum voru margir þessara
aðila nýbyrjaðir sína starfsemi og
hún frekar lítil í sniðum. Mér sýnist
að sýningin þá hafi orðið þeim
hvatning og þeir komu öflugri til
leiks nú.
Það var gaman að skynja þennan
Athugasemd herstöðvaandstæðinga:
Segjast fleiri en þrír
Formaður félags
herstöðvaandstæðinga
vill koma á framfæri
athugasemd vegna
baksíðumyndar DVþann
10. júlí írá mótmælmn
herstöðvaandstæðinga
við Reykjavíkurhöfn.
„Þegar aðgerðum var
lokið bar að ljósmyndara
DV sem bað um að fá að
smella myndum af
nokkrum í hópnum... í blaðinu er
ranglega fullyrt að þeir þrír ein-
staklingar sem birtast á myndinni
séu þeir einu sem tekið hafi þátt í
Gegn NATO
Hin umdeilda mynd
talar sínu máli.
mótmælunum, en jafn-
vel sá hópur sem ljós-
myndarinn náði í skott-
ið á var mun fjölmenn-
ari. Af þessu dregur
textahöfundur svo mikl-
ar ályktanir um stöðu
herstöðvaandstöðunnar
á íslandi. í ljósi þessara
vinnubragða og talna-
meðferðar verður að
skoða fullyrðingar blaða-
mannsins um að Reykvíkingar hafi
upp til hópa tekið herskipunum
fagnandi."
Þessu er komið á framfæri.
Við erum svo sannfærð um gæði millilandaþjónustu okkar að þú færð fyrstu
fimmtán mínúturnar ókeypis. Skráðu þig á islandssimi.is eða í síma 594 4000.
millilandasímtöl