Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
Frettir
Sveinbjörn Jónsson endurreisir heimili sitt á Hellu eftir Suðurlandsskjálftana:
3 milljónir króna
úr eigin vasa
- menn fá ekki nýjan Benz fyrir Trabant, segir byggingatæknifræðingur Viðlagatryggingar
„Það liggur fyrir að Viðlagasjóður
borgar ekki meira en brunabótamatið
hljóðar upp á en sökkullinn er ekki
inni í brunabótamatinu og þær 2-3
milljónir sem í hann fara koma úr
mínum vasa,“ segir Sveinbjöm Jóns-
son, íbúi á Freyvangi 12 á Hellu, sem
missti heimili sitt í þjóðhátíðarskjáift-
anum 17. júní síðastliðinn.
Sveinbjöm hefur nú haflð byggingu
á nýju einbýlishúsi sínu af svipaðri
stærð og það sem eyðilagðist í Suður-
landsskjálflanum fyrri. Hann er sá
fyrsti sem hefur enduruppbyggingu á
húsi sem skemmdist í skjálftanum á
Hellu en hann reiknar með að flytja
inn fyrir jól. Þrír aörir hafa fengið
leyfi fyrir endumppbyggingu húsa
sinna en hafa ekki farið út í fram-
kvæmdir en sá kostnaður fólks sem
hlýst af leigu á meðan húsnæðisleysi
varir og kostnaður við að rífa ónýt hús
er borgaður með styrkjum frá sveitar-
félögum og Rauða krossinum. En ljóst
er að endurbyggingarkostnaður húsa
verður ekki dekkaður með bótum við-
lagatryggingar.
„Ég stend mjög vel miðað við marga
aðra því ég hef engar skuldir á bakinu
en það er ljóst að sumir munu eiga
erfitt með þetta,“ segir Sveinbjöm.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
sveitarstjóri á Hellu, segir talsverða
óvissu umlykja það hve stóran hluta af
DV-MYNDIR HILMAR ÞOR
Uppbygging
Sveinbjörr Jónsson, íbúi á Freyvangi 12 á Heliu, sem missti heimiii sitt í þjóöhátíöarskjálftanum 17. júní síöastliöinn.
Sveinbjörn hefur nú hafiö byggingu á nýju einbýlishúsi sínu af svipaöri stærö og þaö sem eyöilagöist.
uppbyggingarkostnaði
muni borga.
Viðlagasjóður
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Uppbygging hafin
Guömundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjóri á Hellu, segir mikiö verk fram
undan viö aö koma öllu í þaö form sem var fyrir jaröskjálftana á Hellu.
Hreppsskrifstofan fórekki varhluta af náttúruhamförunum en þar komu
sþrungur í veggi og myndir féllu af veggjum. Komiö hefur í Ijós aö Viölaga-
trygging nægir ekki til aö endurreisa hús.
„Brunabótamatið á að vera end-
urstofnsverð en þess era þegar dæmi
þar sem brunabótamatið er lægra en
endurstofnsverðið. Svo verður að taka
tillit til þess að fólk er að byggja alveg
nýtt og þá er þetta verðmætari eign en
áður,“ segir hann.
Guðmundur segist vænta þess að
því fólki verði hjálpað sem eigi í vand-
ræðum með að endurbyggja heimili
sín.
„Það væri hægt að veita þeim styrki
eða gera sérstakar ráðstafanir eins og
mig minnir að hafi verið gerðar í
Súðavik eftir snjóflóðið. Þá vora sett
bráðabirgðalög um endurmat á þeim
fasteignum sem þar vora, enda er ljóst
að mörg af þessum mötum héma era
orðin gömul og oft hafa hús verið gerð
upp síðan þá. Það væri einfaldast í
þessu að gera endurmat til nútíma-
hátta þannig að brunabótamatið end-
urspegii raunverulegt verðmæti," seg-
ir hann.
Benz fyrir Trabant
Freyr Jóhannesson byggingartækni-
fræðingur, sem starfar með Viðlaga-
tryggingu íslands, þvertekur fyrir að
Viðlagatrygging muni bæta meira en
branabótamat segir til um.
„Brunabótamatið er hæsta talan sem
við borgum og það er hvorki löglegt né
eðlilegt að borga nýtt hús fyrir gamalt.
Maður fær ekki nýjan Benz fyrir gaml-
an Trabant og þessar hugmyndir koma
frá þeim sem era að fiska í gruggugu
vatni,“ segir hann.
Að sögn Freys á trú fólks um að það
eigi að fá ný hús upprana sinn að rekja
til raglingslegra laga frá 1995 sem Fast-
eignamat ríkisins túlkaði á þann hátt að
meta skyldi nývirði húsa.
„Þessum lögum var breytt í fyrra og
það náðist í gegn vegna þess að trygg-
ingafélögum og bændum þótti ótækt að
fólk væri að borga af húsunum eins og
þau væru ný. Við höfum verið að berj-
ast við þennan draug í 4 ár,“ segir hann.
Hann segist ekki telja að fólk muni
eiga í vandræðum með að koma sér
upp heimilum á ný.
„Það era mjög fá hús sem era alveg
ónýt og þótt fólk geti kannski ekki
byggt sér sambærileg ný hús fyrir and-
virði brunabótamatsins þá hefúr verið
til nóg af húsum á markaðnum í þétt-
býli úti á landi,“ segir Freyr. -jtr
Námsflokkar Reykjavíkur meö námskeið fyrir útlendinga:
Aðsókn í íslenskunám sprengir allt
mmmmm i
Bara EES-fatafellur
Frá því að ný lög um nektar-
dansmeyjar frá löndum utan EES-
svæðisins tóku gildi 26. maí síðast-
liðinn hafa 20 atvinnuleyfisum-
sóknir borist Útlendingaeftirliti og
Vinnumálastofnun. Þessar um-
sóknir eru samkvæmf heimildum
blaösins einskorðaðar við tvo
nektardansstaði, Óðal og Club
Seven, sem þýðir samkvæmt bók-
inni að allar fatafellur hinna nekt-
ardansstaðanna eru frá löndum
EES-svæðisins. Dagur sagði frá.
Mörg skemmtiferðaskip
í dag mun ferðaskrifstofan Atl-
antik taka á móti fjórum skemmti-
ferðaskipum á Akureyri og í
Reykjavík. Hér er um fjölmenn-
asta dag sumarsins að ræða hvað
varðar ferðir ferðamanna af
skemmtiferðaskipum hér á landi.
Vísir.is sagði frá.
Fór lek af staö
Sjópróf hafa ekki farið fram enn
vegna þess atburðar er Æskan SH
sökk suður af Látrabjargi sl. laug-
ardag. Þau fara fram hjá Þórólfi
Halldórssyni, sýslumanni á Pat-
reksfirði, á vegum Héraðsdóms
Vestfjarða á næstu dögum. Dagur
greindi frá.
Landsbankinn gagnrýndur
Forstjóri Is-
landsbanka-FBA
segir Landsbank-
ann ekki geta vikið
sér undan því að
hafa átt frum-
kvæði í lokun
gjaldeyrisvið-
skipta. Seðla-
bankastjóri segir bankann ekki
hafinn yfir gagnrýni. Gott sé að
hún hafi komið úr báðum áttum.
Dagur greindi frá
Þyrlan í viögerö
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-
LÍF er vart væntanleg úr viðgerö
fyrr en eftir verslunarmannahelg-
ina. Vélarbilun kom í ljós eftir
sjúkraflug síðastliðinn sunnudag.
Stöö tvö greindi frá.
Aödáandi - ekki elgandi
nÞorsteinn Vil-
helmsson, fyrrum
eigandi í Samherja
og nú stóreigandi í
Hraðfrystihúsinu -
Gunnvör á ísafirði
og stjómarformað-
ur, segir það fjarri
öllum sanni að
hann hafi keypt stóran hlut í
enska úrvalsdeildarliðinu Totten-
ham Hotspur. Dagur greindi frá.
- þótt ekki hafi verið unnt að senda út kynningarbréf í sl. mánuði
Gríðarleg aðsókn er að námskeiðum
í íslensku fyrir útlendinga sem Náms-
flokkar Reykjavikur standa fyrir.
Námsflokkamir gátu að vísu ekki
fengið hsta yfir nö&i þeirra útlendinga
sem nýfluttir era til landsins hjá Út-
lendingaeftirlitinu þegar leitað var eft-
ir þeim í júni sl. Tilgangur með beiðni
Námsflokkanna var að senda fólkinu
bréf til að kynna íslenskukennslu fyrir
útlendinga hér á landi. Beiðni um
nafnalista var lögð fram með góðum
fyrirvara áður en önnin í íslensku-
kennslu hófst. Útlendingaeftirlitið gat
ekki orðið við henni vegna bilunar í
tölvubúnaði þannig að fólkið fékk eng-
in kynningarbréf. Engu að síður er að-
sóknin mjög mikil því tæplega 400
manns stunda nám á vegum Náms-
flokkanna i sumar.
Útlendlngar f íslenskunáml
Hátt í 400 útlendingar leggja nú stund á nám í íslensku hjá Námsflokkum
Reykjavíkur. Kennslan fer fram á þremur stööum í þorginni, Austurbæjarskól-
anum, Miöbæjarskólanum og í Þönglabakka í Mjódd. Þessi mynd var tekin í
kennslustund.
„Þetta kom varla að sök því hér er
yfirfúllt af fólki,“ sagði Guðrún Hall-
dórsdóttir, forstöðumaður Náms-
flokka Reykjavíkur, við DV um
nafnalistana. „Ef við hefðum fengið
einhverja lista hefðum við ekki getað
bætt fleiri við hjá okkur. Hugsanlega
hefúr þessi kennsla farið fram hjá
einhveijum af þessum sökum en
skilaboðanetið meðal fólksins virðist
vera nokkuð gott.“
Jóhann Jóhannsson hjá Útlend-
ingaeftirlitinu sagði að ekki hefði
reynst unnt aö setja saman nafha-
lista fyrir Námsflokkana þegar um
þá var beðiö vegna bilunar í tölvu-
búnaði. Nú væri kerfið komið í lag,
listamir tilbúnir og ekkert þvi til fyr-
irstöðu að Námsflokkamir gætu
fengið þá. -JSS
íslendingur farinn
Víkingaskipið íslendingur er
lagt af stað frá Narssaq á Græn-
landi til L’Ans aux Meadows á Ný-
fundnalandi. Áöur en lagt var í
hann kom áhöfnin saman í Þjóð-
hildarkirkju og baðst fyrir. Ferðin
til Nýfundnalands er tæpar 700 sjó-
mílur. Morgunblaðið greindi frá.
Hrói rændur
Brotist var inn á Hróa hött við
Hringbraut i fyrrinótt. Vaktmenn
Securitas fóru á staðinn þegar
vaktkerfið fór i gang en urðu
einskis varir. Þegar framkvæmda-
stjórinn kom til vinnu um morg-
uninn sá hann að búið var að
brjótast inn á skrifstofuna. Litlu
var stolið. Morgunblaðið greindi
frá.
-ÓRV