Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Page 4
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
Fréttir
I>V
Lögregluvarðstjóri á Patreksfirði segir óvenjuslæmt ástand ríkja á staðnum:
Óhófleg drykkja
unglinga og ófriður
- þeir hafa ekkert að gera, segir forstöðumaður félagsmiðstöðvar
Mikið hefur borið á drykkjuskap
unglinga með tilheyrandi ófriði á
Patreksfirði um helgar í sumar.
„Ég veit ekki af hverju þetta er,
það er bara búiö að vera
óvenjuslæmt ástand í sumar,“
sagði Jónas Þór lögreglumaður
sem gegnir stöðu varðstjóra á Pat-
reksfirði.
„Málið er það að þau hafa enga
viðveru. Þau hafa ekkert að gera,“
sagði Sigurbjöm Sævar Grétars-
son, unglingaráðgjafi og forstöðu-
maður félagsmiðstöðvar sem Vest-
urbyggð rekur fyrir 12 til 16 ára
unglinga. Félagsmiðstöðinni er
hins vegar lokað á sumrin og þá er
lítið inn að vera fyrir alla unglinga
á Patreksfirði. En yngri unglingar
valda minni vanda en þeir eldri.
Jónas Þór sagði að aðaldrykkjulæt-
in væru í fólki á aldrinum 17 til 24
ára, eða eftir að félagsmiðstöðin er
þeim lokuð.
„Á meðan bömin eru í grunn-
skóla er nóg að gera fyrir þau. En
á milli 16 og 18 ára hafa þau ekki
neitt. Þau þjóna engum í þjóðfélag-
inu. Þetta er bara einhver glufa og
þetta er það sem krakkarnir
skynja. Þau verða bara að bíða þar
til þau verða fullorðin,“ sagði Sig-
urbjöm.
Hann bætti því viö að það auð-
veldaði ekki málin að unglingum
frá 16 ára aldri er hleypt inn á
sveitaböll þar sem mikil drykkja
Patreksfjöröur
Drykkjuskapur og fyllirísólæti unglinga á Patreksfiröi valda lögreglu og unglingaráögjafa
staöarins miklum áhyggjum.
tíðkast oft. Þótt börnin megi ekki
drekka áfengi samkvæmt lögum er
þeim þaö litlum vandkvæðum
bundið að nálgast áfengi á þessum
böllum. Einnig sagði Sigurbjöm að
svo virtist sem foreldrar heföu lít-
inn áhuga á því að virða útivistar-
tíma bamanna, en foreldrar og
heimili unglinga skipa stærstan
sess í forvömum gegn óhóflegri
drykkju áfengis.
Það vekur athygli að í
samræmdu prófunum vorið 1999
féllu 22 af 23 nemendum
10. bekkjar grunnskólans
á Patreksfirði. Hvort sú
staðreynd tengist drykkju
ungmennanna á
Patreksfirði er óvíst.
Ekki nógu harðir?
Fjórir fastráðnir lög-
reglumenn eru á Patreks-
firði, ásamt þremur hér-
aðslögreglumönnum sem
aðstoða þá um helgar.
Jónas útskýrði að ef fólk
væri vistað i fangageymsl-
um lögreglunnar væru
tveir lögreglumenn bundn-
ir við fangavörslu. Því
væri reynt að komast hjá
því að vista fólk svo fleiri
menn gætu sinnt almenn-
um löggæslustörfum.
Jónas bætti því við að
hann og samstarfsmenn
hans kysu frekar að setjast
inn á kafiistofu með ófrið-
arseggjunum og tala við þá
til þess að róa þá niður
heldur en að stinga þeim í
steininn.
„Kannski stafar þetta af
því að við erum ekki nógu harðir
að setja fólk inn. Það kann að vera
skýringin á því að menn komast
upp með meiri ólæti því við erum
að reyna að lappa málin og laga
þau til heldur en að setja fólk inn,“
sagði Jónas. -SMK
Niðurstöður rannsókna á slysinu við Grímsstaði:
Kom skökk inn á brúna
Skökk á brúna
Niöurstööur rannsókna hafa sýnt aö
ekiö var skakkt inn á brúna og haföi
þaö þessar skelfilegu afleiöingar.
Óvíst er aö eins heföi fariö heföi
Lögreglan á Húsavík hefur sent
frá sér fréttatilkynningu um nið-
urstööur rannsókna á rútu þeirri
er lenti í slysinu við Grímsstaði á
sunnudag.
Svo virðist sem rútan hafi kom-
ið skökk inn á brúna yfir Hólsels-
skíl með þeim afleiðingum að aft-
ari hluti hennar lenti á brúarstöp-
ul. Við það kastaðist bifreiðin til
og lenti úti í brúarhandriðinu
hægra megin. Við þetta gáfu sig
og slitnuðu festingar á fram-
hjólastelli rútunnar. ökuritaskífa
bifreiðarinnar hefur gefið til
kynna að ekið var á 75 km hraða.
Hámarkshraði á veginum var 80
km.
Af lýsingum lögreglunnar á
Húsavík og sjónarvotta slyssins er
óvíst að það sama hefði verið upp
á teningnum hefði brúin verið tvi-
breið.
-ÓRV
Veðríö á morgtm
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólaríag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síódegisflóö
Árdegisflóó á morgun
23.09
04.00
20.57
09.17
23JLS
03.20
01.30
13.50
SkýHngar ö vfi&iiriáJínum
Rofar til í kvöld
Sunnan 8 til 13 m/s veröa fram eftir degi og
súld eða rigning sunnan- og vestanlands -
dálítil rigning um tíma noröaustan til síödegis.
Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Norðaustur- og
Austurlandi. Suðvestan 5 til 10 og rofar víða
til I kvöld,
J^VINDÁTT ^ <—HITI 15\ ,10o *
'VINDSTYRKUR I metrtnn á sekúndu ^FROST HBOSKÍRT
íD O o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
w O W Ö
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
© w + =====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Fært fyrir alla um Kjöl
Helstu þjóðvegir landsins eru
greiðfærir. Víöa er unnið aö vegagerö
og eru vegfarendur beönir um aö sýna
sérstaka tillitssemi. Hálendisvegir eru
nú flestir færir fjallabllum. Enn þá er
ófært inn í Hrafntinnusker og um Öxi.
Talið er fært fyrir alla bíla um Kjöl, í
Landmannalaugar af Sigöldu og um
Kaldadal.
Þykknar upp norðaustanlands
Gert er ráö fýrir sunnan 8 til 13 og rigningu sunnan- og vestan til á
morgun en þykkna á upp noröaustanlands.
Laugai
Surmird,
Vindur:
8-13
Hiti 10° «1 22°
Sunnan- og suövestanátt,
súld eóa rigning á Suóur-
og Vesturlandl en bjartvlóri
norftan- og austanlands.
Hltl vifta yflr 20 stlg á
norftaustanverftu landlnu.
mu
Manud,
Vindur:
5-10 m/9
Hitfi 10° til 20°
Suftlæg átt og hlýtt i
veftri, léttskýjaft um landlft
norftan- og austanvert en
súld meft köflum vift
sufivestur- og
vesturströndlna.
MU
Vegaframkvæmdir:
Bættar sam-
göngur í
Suðursveit
DV. SUDURSVEIT:
Vegaframkvæmdum í Suður-
sveit er lokið að sinni eftir að
bundið slitlag var lagt á rúmlega 6
km vegarkafla frá Staðará austur
fyrir Hestgerði. Að þessari fram-
kvæmd lokinni er eftir þriggja km
vegarspotti í framhaldi af þessum,
með óbundnu slitlagi eða svokall-
aður malarvegur, á leiðinni frá
Reykjavíkur til Homafjarðar. Að
sögn Reynis Gunnarssonar, um-
dæmisstjóra hjá Vegagerðinni, er
ekki kominn neinn tími á þessa
þrjá km, það er gamla sagan að
ekki hefur náðst samkomulag um
vegarstæðið en vonir standa til
þess að þetta verði boðið út á
næsta ári. Núna er verið að vinna
að endurbótum á veginum yfir Öxi
og lagður verður vegur og settar
rennur í læki og ár. Segir Reynir
að eftir næsta sumar ætti vegurinn
að verða fær öllum bílum. Vegur-
inn yfir Öxi er um 20 km og hefur
aðeins verið jeppavegur og einung-
is fær yfir sumarið. Leiðin milli
Djúpavogs og Egilsstaða sem er 146
km, styttist um 60 km þegar farið
er yfir Öxi. Vegurinn yfir Öxi er
lokaður allri umferð eins og er á
meðan vegagerðarmenn eru að
vinna þar. -JI
Ekið á kind
Bíll skemmdist mikið eftir
árekstur við sauðkind sunnan við
Húsavik, á móts við Saltvík, i gær-
morgun. Þrennt var í bílnum, allt í
bílbeltum, og slapp fólkið ómeitt.
Bíllinn varð óökufær og var fluttur
bmt með dráttarbíl. Kindin drapst
samstundis við áreksturinn. -SMK
Tónleikar í
gufubaöi
Stórhljómsveitin Big Band Bru-
tal, sem skipuð er mörgum af efni-
legustu tónlistarmönnum þjóðar-
innar af yngri kynslóðinni, er að
leggja upp í tónleikaferðalag til
Finnlands. Þar mun hljómsveitin
leika í einu stærsta gufubaði Finn-
lands þar sem venjan er að tón-
leikagestir séu klæddir handklæði
einu fata. Sjálf mun hljómsveitin
vera alklædd að venju.
-EIR
Vindur:
5-10 m/s
Hiti 10°tíl 20°
Áfram suftlæg átt og
hlýlndl. Léttskýjaft verftur
um landlft norftan- og
austanvert en súld meft
köflum vlfi suftvestur- og
vesturströndlna.
AKUREYRI
BERGSTAÐIR
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐI
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
ST0KKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCEL0NA
BERLÍN
CHICAGO
DUBUN
HAUFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
BnÉSCE
skýjaö
skýjaö
alskýjaö
skúrir
rigning
skýjaö
rigning
rigning
skýjaö
skýjaö
alskýjaö
skýjað
rigning
alskýjaö
rigning
heiöskírt
þokumóöa
léttskýjaö
alskýjaö
hálfskýjaö
skýjaö
skýjaö
skýjaö
súld
skýjaö
léttskýjað
léttskýjaö
heiöskírt
léttskýjaö
alskýjaö
alskýjaö
þokumóöa
hálfskýjaö
rigning
rigning
léttskýjaö
11
9
9
9
8
10
8
9
9
11
17
14
17
15
10
11
19
13
22
14
15
13
15
14
14
4
16
14
20
13
9
18
26
17
14
16
9
UW.YSINGUM FRA VEOURSTOFU ISIANDS