Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
DV
11
Hagsýni
Viltu lifa lengur, hætta að eldast og hugsa skýrt?:
Töfraberin
bláu
- borðaðu bláber, soðin, bökuð, fersk, frosin...
Seint í ágúst má sjá virðulegar frúr
ásamt litlum krökkum krjúpa og
skríða um móa landsins með ýmiskon-
ar ílát sér við hlið. Öðru hvoru horfa
þær haukfránum augum í kring um
sig og standa svo upp og ganga nokkur
ákveðin skref til vinstri eða hægri eft-
ir því sem við á.
Þama er verið að leita beija. Helst
blábeija og jafnvel aðalblábeija sem
aðeins vaxa á ákveðnum stöðum og
eru best allra.
Svo er farið heim, búið til blábeija-
saft, blábeijasulta, blábeijahlaup, blá-
beijavín, blábeijatertur, blábeijaskyr -
og allir eru glaðir.
En bláber vaxa ekki bara á íslandi.
Þau vaxa líka í útlöndum og þar á
meðal í henni Ameríku. Þar hafa gáf-
aðir menn komist að þvi með rann-
sóknum að bláber innihalda fjöldan
allan af vítamínum, steinefnum og
andoxunarefhum og neysla þeirra leið-
ir af sér betri heilsu og „næstum því“
ódauðleika ef trúa má æsifregnum.
Við íslendingar höfum alltaf vitað
þetta og þess vegna borðað mikið af
blábeijum og sent blessuð bömin okk-
ar í beijamó um leið og grænjaxlamir
hafa fengið smá bláma á sig.
Nýlega vom hér á ferð tveir um-
boðsmenn amerískra blábeijaframleið-
enda en þeir sögðust hafa komið hing-
að í kjölfar þeirra upplýsinga að ís-
lendingar væm næststærsti kaupandi
blábeija frá þeim, aðeins Japanir
keyptu meira. Og ef hefðbundin hausa-
taining er notuð þá hljótum við að
borða mest allra af blábeijum. Sem út-
skýrir auðvitað hvers vegna við lifum
lengur en aðrar þjóðir.
Japanir kaupa bláberin fyrst og
fremst af þvi að þau hafa góð áhrif á
sjónina og skammtímaminnið.
Fersk bláber er hægt að fá allt árið
nú, innflutt frá útlöndum, en ódýrast
era þau frá því í maí og fram í septem-
ber þegar stórar uppskerur era í
Bandaríkjunum og Kanada og hafa
verslanir hér á landi notfært sér það í
ríkum mæli.
Frískandi blá-
berjahristingur
Þegar heitt er í veðri er gott að fá
sér svona blábeijahristing. Amerísk
bláber era ódýr þessa stundina, kosta
svipað og í Kalifomíu eða um 180 krón-
ur boxið. Berin era mikið góðgæti, full
af vítamínum, steineöium og andoxun-
arefnum og hristingur sem þessi er
hitaeiningasnauður og hollur.
11/4 bolli bláber, fersk eða frosin
2 bollar af appelsínusafa, kœldurn
2 bollar fitusnauó jógúrt
1/4 bolli undanrenna
Setjið allt í blandara og látið hann
ganga þar til blandan verður mjúk og
kekkjalaus. Hellið í 2 stór glös og njót-
ið vel.
Falleg og freistandi
Þaö er blái liturinn í bláberjum sem
inniheldur töfraefnið anthocyanin
sem taliö er auka lífslíkur
og heilsu fólks.
Bláberjakrap
6 skammtar
4 bollarfersk eöa frosin bláber
180 ml eplasafi
Blandið vel saman í blandara. Hellið
í ilát, helst úr jámi svo það kólni fljótt
(bökunarform era ágæt). Setjið í fryst-
inn og frystið í um það bil 2 tíma.
Hrærið þá i blöndunni og brjótið upp
það sem er orðið frosið. Ágætt að setja
hana andartak í blandarann aftur.
Setjið aftur í form og lokið því með
plastfilmu og setjið í frystinn. Notist
innan 3 daga.
Þeir sem eiga ísvélar nota þær auð-
vitað.
Hitaeiningar í skammti: 112
Eggjahvíta lg
Fita 0,5 g
Kolvetni 28 g
Bláberjakaka
4 bollar fersk eða frosin bláber
2 msk. sykur
2 msk. mýkt smjör eða smjörlíki
120 g haframjöl
6 msk. púðursykur
ofurlítið maple-síróp (má sleppa)
V2 tsk. salt
Hitið ofninn í 180" C.
Blandið saman blábeijum og sykri
svo þau verði alþakin sykrinum og
setjið 30 sm hringfrom. Hrærið saman
smjöri, haframjöli, púðursykri og salti
þar til það líkist grófum sandi. Dreiflð
blöndunni yfir bláberin og bakið í 35
mín.
Hitaeiningar í hverjum skammti (6
skammtar) eru 197
Eggjahvíta 3 g
Fita 7 g
Kolvetni 33 g
Bláberja granolastykki
V2 bollihunang
'/4 bolli púðursykur
3 msk. olía (bragðlaus)
1 V2 msk. kanill
1 'hbolli haframjöl
2 bollar fersk bláber
Hitið ofhinn í 180’ C. Smyrjið fer-
kantað 9“ form létt. Blandið saman
hunangi, púðursykri, olíu og kanil í
potti. Sjóðið í 2 mínútur en hrærið
ekki i. Setjið haframjölið og bláberin í
skál og hellið blöndunni úr pottinum
yflr. Hrærið vandlega saman. Setjið í
formið og bakið í um það bil 40 minút-
ur. Kælið og skerið í 18 bita.
Hitaeiningar alls: 484 (242 í hvorum
skammti)
Fita: 0,16 g
Treflar: 4 g
Hitaeiningar í hverjum bita: 97
Eggjahvíta 1 g
Fita 3 g
Kolvetni 17 g
A TILBODI
LEO 650 er kraftmikil og fjölhæf
hejmilistölva sem skilar þér inn á
Netið án nokkurra vandkvæða og
veitir öllum fjölskyldumeðlimum
aðgang að nýjum leiðum í
samskiptum og upplýsingaöflun á
öruggan og þægilegan hátt.
LEO 650
Intel Pentium III 650 EB MHz
256k flýtiminni, 133 bus
128 Mb SDRAM 133 MHz
20 GB harður diskur
Skjár 17”
16 Mb 3D skjákort
56k Voice/fax mótald
8 leshraða DVD geisladrif
Sound blaster 128 hljóðkort
Arowana hátalarar
Windows 98 SE
Lyklaborð og mús
Norton Antivirus
Skipholti 17
Sími 530 1800
Fax 530 1801
www.aco.is
pentium ///