Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Síða 15
DV
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
A&stoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
VTsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Fíkniefni eru núna óheft
Þegar sólarstrandarhátíð ungmenna var haldin í Naut-
hólsvík um daginn, hélt lögreglan því fram, að hún hefði
séð þekkta fíkniefnasala í hópnum. Samkvæmt því veit
lögreglan um suma fíkniefnasala án þess að gera neitt í
því. Það vekur efasemdir um hæfni hennar í starfi.
Ef lögreglan getur ekki tekið fíkniefnasala höndum
vegna skorts á sönnunargögnum, ætti hún að geta fylgt
þeim eftir, hlerað síma þeirra og fundið slóðir til heildsal-
anna, sem sjá götuhornasölum fyrir efnum. Hún ætti að
geta rakið slóðina frá endapunkti viðskiptanna.
Reynslan sýnir, að þetta getur hún ekki. Allur þorri
fíkniefna, sem lagt er hald á, finnst í innflutningi, það er
að segja í gámum úr skipum, í pósti og við komu farþega
á Keflavíkurvelli. Það eru tollverðir, sem finna efnin, þótt
lögreglan taki svo við málunum og fylgi þeim eftir.
Stóru fíkniefnamálin i fréttum fjölmiðla hafa undan-
tekningarlaust hafizt vegna upplýsinga frá upphafspunkti
ferils efnanna en ekki vegna upplýsinga frá endapunkti
hans. Þetta segir athyglisverða sögu um árangursleysi
baráttunnar gegn fíkniefnaneyzlu í landinu.
Ekki er síður merkileg sú staðreynd, að verðlag fíkni-
efna sveiflast ekki, þótt hald sé lagt á stóra farma af fíkni-
efnum í innflutningi. Það segir okkur, að innflutningur-
inn sé svo mikill, að ekki sjái högg á vatni, þótt tollgæzl-
an detti einstöku sinnum i lukkupottinn.
Fyrir nokkrum árum opnaðist svigrúm fyrir bjána, sem
fóru ógætilega og létu kerfið taka sig í bakaríið. Það er
eina umtalsverða breytingin, sem orðið hefur í viðskipta-
heimi fíkniefna. Bjánarnir sitja nú á bak við lás og slá og
hafa látið yfirvegaðri heildsölum eftir markaðinn.
Niðurstaða kosningaloforða og annarrar hræsni stjórn-
málamanna er því sú, að fíkniefnamarkaðurinn heldur
sínu striki með óskertu framboði og verðlagi fíkniefna,
þótt upp komi fíkniefnamál, sem kölluð eru stór. Þau eru
samt ekki nógu stór til að raska markaðinum.
í ljósi þessa ástands er óhætt að kalla þá hræsnara, sem
eru andvígir þvi, að sala ólöglegra fíkniefna verði tekin úr
höndum glæpaflokka og afhent ríkisvaldinu, og segja, að
slík lögleiðing fíkniefna muni auka fíkniefnaneyzlu og þar
með magna óhamingju og ógæfu í landinu.
Reynslan sýnir okkur, að þvert á móti má búast við
óbreyttri óhamingju og ógæfu í landinu, ef viðskiptin
yrðu flutt frá glæpaflokkum til löggiltra fíkniefnasala á
borð við Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins og lyfjabúðirn-
ar í landinu. Óheft ástand verður ekki meira óheft.
Ríkið stundar sjálft verzlun með fíkniefni, sem eru
verri viðureignar en sum ólöglegu fíkniefnin og sama er
að segja um sum lyfin, sem afgreidd eru gegn lyfseðli sam-
kvæmt heimild löglegra yfirvalda. Það þjónar engum til-
gangi að láta annað gilda um ólögleg fikniefni.
Með þvi að kippa sölunni úr höndum ólöglegra aðila og
fela hana ríkinu og umboðsmönnum þess, er fótunum
kippt undan glæpaflokkum, sem hvarvetna hafa reynzt
þjóðfélaginu hættulegastir. Þannig missir ríkið ekki hluta
af valdi sínu í hendur forríkra glæpakónga.
Baráttan gegn fíkniefnum hefur nefnilega tvíþætt gildi.
Það er ekki bara mikilvægt að hamla gegn neyzlunni,
heldur er líka mikilvægt að koma í veg fyrir myndun
hættulegra valdamiðstöðva, sem grafa undan sjálfu þjóð-
skipulaginu með ógnunum og mútum og glæpum.
Þeir, sem býsnast yfir skoðunum af þessu tagi, skipa sér
i flokk ómerkilegra hræsnara, sem hafa ekkert málefna-
legt fram að færa til lausnar fíkniefnavandans.
Jónas Kristjánsson
• •
Ofgahægrimenn
Ég tel að einstaklingur-
inn eigi að vera frjáls und-
an sífeUdum afskiptum rík-
isvaldsins. Ég tel reyndar
einstaklinginn eiga heimt-
ingu á slíku frelsi. Og þetta
á við um alla, hverrar trú-
ar, kyns eða kynþáttar, þeir
kunna að vera. Hver og
einn hefur rétt til að haga
lífi sínu eftir sinu höfði svo
lengi sem hann beitir ekki
aðra ofbeldi og ríkisvaldið
hefur ekki rétt til þess að
hugsa fyrir menn og skipu-
leggja lif þeirra. Af þessum sökum
kalla ég mig hægrimann.
Með jöfnu millibili íjalla fjölmiðl-
ar um svokallaða „öfgahægrimenn",
nú síðast var það Jörg Haider frá
Austurríki sem fékk þennan titil. Til
rökstuðnings þessari nafngift benda
þeir á ýmis ummæli hans sem gefa
til kynna aödáun á Adolf Hitler, sem
þeir telja einnig að hafi verið öfga-
hægrimaður.
„Öfgahægrimaðurinn" Hitler
Adolf Hitler var leiðtogi Þjóðem-
issósíalistaflokks Þýskalands eins og
flestum er kunnugt. Eftirfarandi til-
vitnun í þennan fyrirlitna
kanslara er að finna í bók-
inni Hitler talar eftir Her-
mann Rauschning. Þar seg-
ir Hitler m.a. þetta: „Hver
athöfn og hver þörf einstak-
lingsins verður þannig háð
eftirliti og umönnun flokks-
ins, sem fulltrúa almEmna-
heillar. Þar verður ekki um
að ræða neinar undanþág-
ur né neitt olnbogarými,
þar sem einstaklingurinn á
með sjálfan sig. Þetta er
sósíalismi, hitt er hégómi,
þótt einstaklingar eigi framleiðslu-
tækin.“ Enn fremur segir Hitler:
„Hvers vegna ættum vér að þurfa að
baksa við að þjóðnýta banka og
verksmiðjur? Vér þjóðnýtum menn-
ina sjálfa."
Ef að hægristefnan felst í minni
afskiptum ríkisvaldsins af lífi ein-
staklingsins, hvemig getur þá öfga-
hægristefna gengið út á alræði ríkis-
valdsins yfir einstaklingnum og af-
nám einstaklingsfrelsis?
Viðurnefni vinstrimanna
Það er ljóst að Hitler og fasisminn
hafna valdi einstaklingsins yfir eig-
Hafsteinn Þór
Hauksson
laganemi
„Ef hœgristefnan felst í minni afskiptum rikisvalds af
lífi einstaklingsins, hvemig getur þá öfgahœgristefna
gengið út á alrœði ríkisvaldsins yfir einstaklingnum og
afnám frelsis hans?“ - Nú síðast var það Jörg Haider
sem hlaut titilinn öfgahœgrimaður.
in lífi, rétt eins og kommúnistarnir kenningar eiga það sameiginlegt að
gerðu, og gera. Þessar stjómmála- virða að vettugi rétt manna til þess
Tögl og
Á síðustu áratugum hefur margt
gerst á hinum pólitíska vettvangi í
heiminum sem hefur haft sterk áhrif
á skilning okkar á umheiminum.
Eitt af því sem hvað sterkast hefur
greypst í vitundina er andúðin sem
upplifa hefur mátt gegnum fjölmiðla
á einkennum hins kommúníska
veruleika. Smituð af þessum hug-
myndum stóðum við því til dæmis
sennilega mörg agndofa þegar
Berlinarmúrinn féll formlega og
óður Beethovens og Schillers til
frelsisins hljómaði í beinni útsend-
ingu. En hver voru þá þessi einkenni
kommúnismans sem gladdi menn
svo mjög að voru á undanhaldi?
Hvers kyns kúgun var auðvitað
hræðileg. Misbeiting valds hafði tek-
ið á sig fjölmargar myndir og flestar
slæmar. Eitt af þvi sem virtist ganga
hvað mest fram af fólki á Vestur-
löndum var þó það hve skipulega
upplýsingum var haldið frá fólki.
Hve sannleikurinn var að okkar
mati afbakaður til að viðhalda eigin
ímynd í þessum löndum. Við lifum á
því svæði heimsins þar sem hver
einstaklingur býr við mest frelsi.
Ekki tryggir þó okkar vestræna sam-
„Að geta selt tíma á símalínum sem er sú leið sem
farin er inn á Netið, er eins og að hafa fengið leyfi
til að rukka alla þá um aðgangseyri sem vilja
nálgast bœkur eða blöð. “
Meö og á móti
Löngu tímabært
„Það er löngu
orðið tímabært,
burtséð frá þessu
hörmulega rútu-
slysi á sunnudag-
inn var, að lögleiða notkun
bílbelta í langferðabílum og
öðrum fólksflutningabílum,
t.d. strætisvögnum. Við
þekkjum mörg dæmi um al-
varleg slys þar sem fólk kast-
ast til inni í þessum stóru far-
artækjum og slasar þannig
bæði sjálft sig og aðra farþega. í
starfi mínu fæ ég iðulega fyrirspurn-
ir frá áhyggjufullum foreldrum
barna sem fara í skólaferðalög eða í
aðrar ferðir á vegum leikskóla og
tómstundanámskeiða. Fólk
tryggir öryggi barna sinna í
heimilisbilnum en verður
svo að sætta sig við að börnin
sitji laus í rútum og strætis-
vögnum. Á það hefur verið
bent að rútubílar, sem lenda
á hvolfi, fullir af fólki sem
spennt er í bílbelti, þoli ekki
þungann og kunni að leggjast
saman við slíkar aðstæður.
Mér fmnst þau rök þó ekki
vega nógu þungt til þess að
eldri rútur séu undanþegnar bílbelt-
um, því í flestum tilfellum leggjast
rútur á hliðina. Alla vega má segja
að þar séu meiri hagsmunir fyrir
minni.“
Ragnheiöur
Davíósdóttir
forvarnarfulltrúi
VÍS
hagldir
félag öllum þegnum svæðis-
ins full mannréttindi. Hinar
óskemmtilegri hliðar kapít-
alismans eru auk þess fam-
ar að teygja sig miklu
lengra inn í líf hins almenn
borgara en okkur er ætlað
að halda.
Faðmlög kúgunarinnar
Gefum okkur það að að-
gengi að upplýsingum og
menntun sé eitt af því sem
einkennir, eða í öllu falli sé
stefnt að að einkenni, hinn
frjálsa heim. Lýðræði raunveruleik-
ans gengur jú ekki nema einstakling-
arnir séu í stakk búnir til að taka
þátt í því. Samfélag okkar er að
breytast svo hratt að líklegt er að
reynsla langafa og langömmu úr
torfkofum í einbýli þéttari byggða
með bílum, flugvélum og útvarpi
blikni við hliðina á því sem við eig-
um eftir að upplifa á næstu áratug-
um. Netið hefur alla burði til að
breyta lífi okkar mjög mikið og hafa
áhrif á stefnu og þróun á öllum
helstu sviðum mannlífsins. Aðgengi
að Netinu er því lykilatriði í framtíð-
arþróun. En það er þarna sem við
svo sorglega líkjumst því sem viö
fordæmum hvað mest. Það er þama
sem kommúnismi og kapítalismi
mætast í faðmlögum. Það er þarna
sem okkur hefur mistekist svo herfi-
lega að skapa og varðveita frelsi ein-
staklingsins og aögengi hans. Því
stéttskipting kommúnismans er í
raun ekki svo ólík þeirri skiptingu
sem fram kemur í þjóðfélaginu þegar
kapítalisminn fær að ráða.
Stéttskipting grundvölluð á
efnahagslegri stöðu er ná-
kvæmlega eins og sú sem
skapaði sérstökum hópum
gífurleg forréttindi eins og
gerðist austantjalds.
Milliliðir græða
Það hlýtur að vera óska-
staða hins sannkapítalíska
fyrirtækis að hafa tögl og
hagldir á einhverju því
sviði sem snertir í raun
mannréttindi einstakling-
anna og er um leið eitt sterkasta
áhrifaaflið til breytinga í samfélag-
inu. Þessa stöðu hafa símafyrirtækin.
Að geta selt tíma á símalínum, sem er
sú leið sem farin er inn á Netið, er
eins og að hafa fengið leyfi til að
rukka alla þá um aðgangseyri sem
vilja nálgast bækur eða blöð. Eða
rukka leikhúsgesti fyrir það að ætla í
leikhús áður en þeir greiða svo fyrir
sjálfan aðgöngumiðann. Vefurinn hef-
ur mótast til hins verra í þessu um-
hverfl og símakostnaður og svo ótölu-
legt magn auglýsinga hellist yfir sak-
lausa notendur. Þessi mikilvæga leið
að upplýsingum, menntun og menn-
ingu hefur verið sett í hendur einka-
fyrirtækja sem þegar upp er staðið
hafa þá eina skyldu að skila hluthöf-
um sínum arði. Þetta kyrkingartak á
framtíð okkar með innbyggðri stétt-
skiptingu á grundvelli efhahags er
svo stórt á skala mistaka í stjórnun
að líkja má við það að hafa selt lýð-
ræðið hæstbjóðanda.
Sigfríður Björnsdóttir
í langferðabíla
Falskt öryggi
; m .... „Því miður er
| því svo farið að
flestar rútur hér-
^ lendis eru einfald-
lega ekki nógu
sterkbyggðar svo hægt sé að
setja í þær öryggisbelti.
Eldri rútur eru ekki smið-
aðar með öryggisbelti í sæt-
um fyrir augum og þarf að
breyta þessum bílum mjög
mikið eigi beltin að gera
gagn.
Það væri því ekkert annað en
falskt öryggi sem fælist í þvi að setja
belti i gamlar rútur því beltin gera
að sjálfsögðu ekkert gagn ef undir-
stöðurnar halda ekki.
Ég þekki dæmi um rútu
sem var send utan í þeim til-
gangi að setja í hana öryggis-
belti. Þrátt fyrir að vera þetta
nýleg þurfti að styrkja allan
gólfflötinn sérstaklega og
setja nýjar sætisfestingar.
Slíkar breytingar eru afar
kostnaðarsamar.
Það jákvæða í þessum efn-
um er hins vegar að nýjar
rútur, sem fluttar eru hingað
til lands, eru mun öruggari
og nær undantekningalaust eru þær
búnar þriggja punkta beltum í öllum
sætum.“
Þórir
Garöarsson
eigandi Allrahanda
Oryggismál langferðabifreiöa hafa verið mjög í umræðunni að undanförnu, ekki síst vegna hins hörmulega slyss við Hólsfjöll um síðustu helgi. Menn velta
nú fyrir sér hvort setja eigi öryggisbelti í rútur en um það eru skiptar skoöanir.
i
Skoðun
að stjórna lífum sínum sjálfir. En
þrátt fyrir þetta sjá fréttamenn yfir-
leitt ástæðu til þess að fara öðrum og
mildari orðum um kommúnista. Á
meðan að Augusto Pinochet, sem
þeir telja öfgahægrimann, er sagður
einræðisherra er talað um kommún-
istann Fidel Castró sem forseta
Kúbu. Talað er um Brezhnev og
Khrústsjov sem fyrrum leiðtoga Sov-
étríkjanna í stað þess að nefna þá
einræðisherra, sem þeir vissulega
voru.
Vinstri og hægri
Sífellt er um það ritað hversu
munurinn á hægri og vinstri hefur
minnkað eftir að vinstriflokkamir
hófu að hvítþvo sig af kommúnisma
og færa sig nær miðju. Og það má
svo sem vel vera að fréttamenn jafnt
sem aðrir eigi erfitt með að fóta sig
í öllum hugtökunum. En eitt er ljóst,
á meðan að menn sem berjast fyrir
frelsi einstaklingsins eru kallaðir
hægrimenn, ætla ég að biðja frétta-
menn um að geyma kommana, fas-
istana og alla þá-sem boða alræði
Stóra bróður, undir einhverjum öðr-
um hugtökum.
Hafsteinn Þór Hauksson
Ummæli
deCODE - Ingólfur
grunlaus
„Stund sannleikans
er runnin upp fyrir
þúsundir íslenskra
fjárfesta og lands-
menn alla. í gærmorg-
un var útboðsgengi
bréfa deCODE genet-
ics, móðurfélags ís-
lenskrar erfðagreiningar ehf., til-
kynnt 18 dollarar hver hlutur..."
„Þegar Ingólfur Arnarson settist að
á þessu skeri datt honum ekki í hug
að rúmum ellefu hundruð árum sið-
ar yrði stofhað fyrirtæki sem byggði
grunn sinn á einangrun eyjunnar og
fordómum hennar gagnvart blöndun
við erlenda aðila. Einangrun okkar
hefur gert það að verkum að sam-
eindalíffræðinga heimsins klæjar í
lófana eftir að fá að kafa í einsleita
erfðafræðikvilla okkEir...“
Viöskiptablaöiö 19.-25. júlí 2000 og
febrúarblaö 1998.
Stærsti einkahluthafinn
„Seljendur meiri-
hlutans töldu það
mikilvægt við söluna
að þetta yrði óbreytt.
Auðvitað koma svo
inn einhverjar nýj-
ungar með nýjum meirihlutaeig-
anda. Við munum eflaust bæta við
þjónustuþáttum og þar af leiðandi
nýjum starfsmönnum, m.a. frá
Landsbankanum."
Martin H. Young, forstjóri Heritable-bank-
ans, í Morgunblaöinu 19. júlí 2000.
Röng ákvörðun...
„Hún kann að hafa
verið röng og ég get
tekið undir það með
seðlabankastjóra að
þetta voru óþarflega
hörð viðbrögð en á
móti verður Seðlabank-
inn líka að horfa í eig-
in barm og kanna hvort þeirra viö-
brögð að morgni fimmtudagsins hafi
verið rétt. Um það má einnig deila.“
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri LÍ, í
Degi 19. júlí 2000.
Hálfsannleikur
„Morgunblaðið sagði
landsmönnum að ríflega
helmingur Finna væri
andvígur inngöngu
Finnlands í hernaðar-
bandalag... ef 71% eru ríflega helm-
ingur þá hlýtur afgangurinn, þessi
29%, að vera tæplega helmingur. Sjá
menn ekki Morgunblaðið i anda með
baksíðufrétt á sínum tíma um að
Kvennalistinn njóti stuðnings tæp-
lega helmings kjósenda þegar sam-
tökin mældust rétt undir 30% fylgi?“
murinn.is 17. júlT 2000.
Mývatn á ekki
sinn líka
Mývatn er sérstæðasta
og lífríkasta vatn lands-
ins. Einstætt vistkerfi
þess skapar því stöðu á
heimsmælikvarða.
Vatnasvæði Mývatns og
Laxár er talið eitt af 40
mikilvægustu votlendis-
svæðum jarðar og er á
sérstakri skrá um vot-
lendi sem varðveita beri
á forsendum Ramsarsam-
þykktar. Um Mývatns- og
Laxársvæðið gilda sér-
stök lög umfram almenn
náttúruverndarlög. Með
tilliti til þessara staðreynda er ekki
að undra þótt kísilgúrvinnsla úr Mý-
vatni hafi sætt mikilli gagnrýni aÚt
frá upphafi þeirrar iðju fyrir 34
árum.
Stórfellt inngrip í lífríkið
Margir vísindamenn hafa rann-
sakað hina ýmsu þætti vistkerfis
vatnsins. Hvatamenn áframhaldandi
vinnslu styðja mál sitt m.a. þeim
rökum að ekki hafi með óyggjandi
hætti verið sýnt fram á skaðleg áhrif
vinnslunnar á lífríkiö. Á hinn bóg-
inn hefur því síður tekist að sanna
skaðleysi kísilgúrnámsins og eru
sérfræðingar einhuga
um að vara við því
stórfellda inngripi í líf-
ríkið sem kísilgúmám-
ið er þótt þeir taki mis-
jafnlega sterkt til orða.
Frá upphafi kísilgúr-
vinnslunnar og rekst-
urs verksmiðjunnar
hefur það legið fyrir
að hér væri um tima-
bundinn atvinnurekst-
ur að ræða. Tvívegis
hefur vinnslu- og
rekstrarleyfi verið
framlengt vegna mik-
ils þrýstings þeirra
sem þarna hafa at-
vinnu og hagnað af
rekstrinum. Síðast i
apríl 1993 var gefið út
slíkt leyfl sem miðaði
að því að tryggja
rekstrargrundvöll Kís-
iliðjunnar allt til árs-
ins 2010. Um leið var
gert samkomulag milli
umhverflsráðuneytis,
iðnaðarráðuneytis og
Náttúruvemdarráðs,
þar sem fram kemur
sá skilningur allra málsaðila
að með útgáfu leyfisins væri
verið að gefa svigrúm til að
hætta kísilgúrtöku úr Mý-
vatni. Nú voflr yfir sú hætta
að það samkomulag verði
einskis virt.
Kísilgúrsjóður í bílasafn
Á sama tíma var stofnaður
sérstakur sjóður til að stuðla
að aukinni íjölbreytni at-
vinnulífs i Mývatnssveit og
vinna þannig gegn neikvæð-
um áhrifum af lokun verk-
smiðjunnar á samfélag sveit-
arinnar. Hvorki ríkisvaldið né sveit-
arstjóm hafa hins vegar gert nokkuð
í því að búa samfélagið undir óhjá-
kvæmilegar breytingar af völdum
lokunar Kísiliðjunnar þrátt fyrir ít-
rekaðar áminningar. Ríkisvaldið
hefur með því sýnt verulega ámælis-
vert ábyrgðarleysi. Framtaksleysi
sveitarstjórnar sýnir væntanlega að
þar vilja menn ekki gera ráð fyrir
öðrum möguleikum en að halda
vinnslunni áfram hvað sem það kost-
ar. Forseti Alþingis og fyrrverandi
samgönguráðherra opnaði á dögun-
um gagnmerkt bíla- og vinnuvéla-
safn á Ystafelli í Köldukinn. í frétt
Morgunblaðsins af atburðinum segir
m.a.: „Halldór, sem manna mest hef-
ur stuðlaö að því að gera þetta glæsi-
lega safn að veruleika, þakkaði sér-
staklega stuðning Alþingis, Kisilgúr-
sjóðs, bílaumboða og fjölda sjálfboða-
liða.“ Hér er ekki verið fela hlutina.
Sjóðurinn, sem nota átti til að að
stuðla að aukinni fjölbreytni at-
vinnulífs í Mývatnssveit, er m.a.
nýttur til að byggja yfir gamla bíla í
Köldukinn!
Einstakt í veröldinni
Nýfallinn úrskurður Skipulags-
stjóra ríkisins um áframhaldandi
kísilgúrvinnslu úr Mývatni vekur
bæði hryggð og furðu og verður vafa-
laust kærður til umhverfisráðherra.
Mývatns- og Laxársvæðið er einstakt
í veröldinni fyrir náttúrufegurð og
lífríki. Landslagið er óvenjulegt og
jarðsaga þess sérstæð. Svæðið á ekki
sinn lika í viðri veröld hvernig sem
á það er litið. Með hliðsjón af nátt-
úruvemdargildi Mývatns- og Laxár-
svæðisins og með tilliti til varúðar-
reglunnar telur undirrituð einboðið
að hafna beri með öllu áframhald-
andi vinnslu kísilgúrs úr Mývatni.
Kristín Halldórsdóttir
„Með hliðsjón af náttúruvemdargildi Mývatns- og Laxársvœðisins
og með tilliti til varúðarreglunnar telur undirrituð einboðið að
hafna beri með öllu áframhaldandi vinnslu kísilgúrs úr Mývatni. “
Kristín
Halldórsdóttir
fyrrverandi
alþingiskona