Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Side 24
28
______________________________________FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
Tilvera DV
í fiö
1 K V I N N II
Kristnihátíð
kaþólsku
kirkjunnar
í dag hefst hátið Kaþólsku kirkj-
unnar á íslandi og kaþólska safnað-
arins í Landakoti. Hátíðin er há-
punktur hátíðahalda kirkjunnar á
yfirstandandi ári í tilefni að því að
2000 ár eru liðin frá fæðingu Krists
og þúsund ár frá því kristni hófst á
íslandi. Hátiðin hefst með messu í
dag kl. 18 í dómkirkjunni í Landa-
koti. Jóhannes Gijsen biskup syng-
ur messuna og predikar og minnist
heilags Þorláks, vemdardýrlings Is-
lands. Hátíðahöldin standa fram á
sunnudag.
Klúbbar
■ SVEINBJORN A THOMSEN Herra
Sveínbjörn er mættur á Thomsen og
sér um funkhouse diskó í kvöld þar
sem auövitað er að finna góö tilboð
á barnum eins og alltaf í miöri viku.
Krár
■ CHRONIC KVOLD A 22 Þaö er
Chronic kvöld á efri hæö Café 22 í
kvöld og mæta nokkrir skemmtilegir
piltar á svæöiö til aö skemmta fólk-
inu. Dj Fingaprint, B-Ruff, Big-G og
Dj Platurn eru mennirnir sem rokka
húsið í kvöld þannig fólk veröur bara
aö halda sér.
Pjass___________
■ Peanut Factorv A Tuborgdjassi
nr. 4 á „heitum fimmtudegi" í
Deiglunni í kvöld leikur djasskvartett
frá Kaupmannahöfn. Kvartettinn,
sem kallast Peanut Factory, var
stofnaður áriö 1999 af Hauki
Gröndal, Stefan Pasborg og Jesper
Lövdal. Kvartettinn hefur tvívegis
komiö fram á Copenhagen
Jazzfestival. Aögangur er ókeypis á
tónleikana sem hefjast kl. 21.30.
Kabarett
■ SOGUSYNING OG ISLENSKI
HESTURINN I.OIfushöllinni aö
Ingólfshvoli í Ólfusi er nú í fýrsta
sinn hérlendis boöiö upp á
sögusýningu tengda íslenska
hestinum. Sýningin er í þremur
leikþáttum þar sem íslenska
hestinum er fýlgt í gegnum 1000
ára sögu þjóöarinnar. I fýrsta þætti
er fjallað um Faxa, stoltan og
sterkan hest, annar þáttur greinir frá
niöurlægingartímabili íslenska
hestsins og þjóöarinnar og sá þriöji
sýnir okkur hestinn eins og hann
kemur okkur fýrir sjónir nú á dögum.
Á meðan á sýningu stendur gefst
fólki kostur á aö njóta þriggja rétta
máltíðar. Sýningar eru frá
fimmtudegi til sunnudags og hefjast
kl. 19.
Myndlist ________________
■ Keizo Ushio Sýning japanska
myndhöggvarans Keishos Ushios í
Hafnarborg stendur enn yfir. Einnig
getur fólk lagt leiö sína í Ljósaklif,
Itka í Hafnarfiröi, og skoðað
vinnuferli listamannsins. Sýningu
Ushios lýkur sunnudaginn 23. júlí
nk.
Opnanir
■ GALLERÍ NEMA HVAÐ Þeir halda
áfram aö vera sniðugir, krakkarnir í
Galleri Nema hvaö. Fyrst breyttu þeir
galleríinu í fiskabúr og svo byrjuöu
þeir aö bjóöa listamönnum að
hengja hugöarefni sín upp í rýminu.
Músíkhvatur startaði dæminu en nú
tekur listneminn Maggi Logl viö af
kauða og heldur uppi merki íslenskr-
ar æsku.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Alnæmissamtokin fá peningagjöf
Árni Friðrik Ólafarson, varaformaður Atnæmissamtakana, tekur við 650.000 kr.
frá Rósu Guðmundsdóttur, skemmtanastjóra á Spotlight.
Alnæmissamtökin fá peningagjöf:
að „þetta þýði að samtökin hafi úr
meira fé að spila til fræðslu- og for-
vamarstarfa því þessir peningar
eru fyrst og fremst hugsaðir til þess.
Alnæmissamtökin eru illa fjársvelt
af ríki og borg, peningar sem við
fáum þaðan duga engan veginn i
það sem við erum að reyna að gera
í forvarnarmálum. Við erum að
reyna ná til krakkanna í efstu
bekkjum grunnskóla og í fyrstu
bekkjum framhaldsskólanna og við
höfum líka farið í félagsmiðstöðv-
arnar.
Þetta starf er algerlega unnið í
sjáifboðavinnu og stundum borga
menn ferðir úr eigin vasa, en skól-
amir úti á landi hafa þó stundum
borgað þær. Landlæknisembætið
hefur styrkt þetta framtak annað
slagið en það virðist vera tilviljun-
um háð hvenær það gerir það. Við
vorum til dæmis að reyna að fá
styrk til að dreifa smokkum á tón-
leikum Utangarðsmanna en fengum
neitun.
Fjárstuðningur frá rikinu lækk-
aði úr 500.000 krónum í 250.000 í ár
þannig að okkur munar svo sannar-
lega um þessa viðbót. Eitt af vanda-
málum okkcir er að við náum ekki
til yngra fólksins hvorki hvað varð-
ar forvarnir né þeirra sem hafa
smitast. Við fáum að sjálfsögðu ekki
neinar upplýsingar frá læknum um
þá sem greinast með HlV-veiruna
og getum því ekkert gert fyrir fólk
nema það leiti til okkar.“
Alnæmissamtökin reka félags-
heimili á Hverfisgötu 69 í Reykjavík
og þar er rekin öflug félags- og
Náum ekki til
yngra fólksins
- helmingur af miðaverði eins kvölds á sjö skemmtistöðum
Fyrir skömmu færði Rósa Guð-
mundsdóttir, skemmtanastjóri á
Spotlight, Alnæmissamtökunum
peningagjöf frá nokkrum skemmti-
stöðum í Reykjavík. Upphæðin, sem
er 650.000 kr„ slagar hátt í það sem
samtökin fá í opinbera styrki í ár en
sú upphæð er 750.000 kr.
Rósa segir að peningamir séu
gjöf frá nokkrum skemmtistöðum í
Reykjavík sem ákváðu að gefa hluta
af tekjunum eitt kvöld. „Þetta er
helmingurinn af miðaverði á sjö
stöðum, þ.e. Spotlight, 22, Thomsen,
Nelly’s, Astró, Óðali og Skuggabarn-
um. Samtökin leituðu til min um
aðstoð og þegar ég fór að vinna
heimavinnuna hugsaði ég: „What
the hell“, við getum þetta alveg ef
við stöndum saman. Ég leitaði því
til nokkurra staða og við söfnuðum
650.000 kr. á einu kvöldi.“
Náum ekki til yngra fólksins
Ámi Friörik Ólafarson, varafor-
maður Alnæmissamtakanna, segir
fræðsluþjónusta. Fólk sem greinist
með HTV-smit getur leitað til félags-
ráðgjafa á vegum samtakanna og
fengið upplýsingar um sjúkdóminn.
Almenningi er einnig boðiö að
koma og kynna sér starfsemi sam-
takanna.
-Kip
Endurnýting í Hveragerði:
Gömul húsgögn öðlast tilgang
DV, HVERAGERDI:__________________
Það vakti forvitni fréttaritara
DV í Hveragerði þegar sást til
tveggja stúlkna sem báru stóla,
borð og fleira langa vegu með
fram Hamrinum hér í Hvera-
gerði. I ljós kom að þær Ester
Erla Jónsdóttir og Þórey Indriða-
dóttir voru að safna húsgögnum
og ýmsu öðru til þess að nýta
kjallara í húsi tengdafóður Þór-
eyjar. Nýlega voru ruslagámar
bæjarins fluttir að Ullarþvotta-
stöðinni og þar fundu stúlkurnar
ýmsa nýtilega hluti. „Við náðum
þessu áður en búið var að henda
því í gámana. Það er alveg ótrú-
legt, hverju fólk hendir,“ sögðu
þessar hressu stúlkur. „Við ætl-
um að útbúa nokkurs konar tóm-
stundaherbergi í kjallaranum, en
nú stendur hann alveg auður og
ónotaður. Hér fundum við flott
borð, stráhúsgögn og fleira, og
þetta verður voða fínt hjá okkur.
Fæturnir brotnuðu reyndar und-
an borðinu nú á leiðinni, en það
verður fljótt gert við það,“ sögðu
stúlkurnar. Fréttaritari getur vel
tekið undir það að flísalagt borð-
ið var ekkert slor.
-EH
Úr ruslinu í tómstundaherbergi
Þórey Indriðadóttir og Ester Erla Jónsdóttir hvíldu sig augnablik í „nýja“ sófanum.