Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2000, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
29
DV
Tilvera
Bíófréttír
Kvikmyndaútfærslan á American Psycho frumsýnd á morgun:
Hrottafengnasta og um-
deildasta bók seinni tíma?
American Psycho eftir bandaríska
rithöfundinn Bret Easton Ellis er
meðal umdeildustu skáldsagna seinni
tíma. Hún segir frá Patrick Bateman,
sjarmerandi uppa sem veður bæði í
peningum og kvenfólki. Hann er þó
ekki allur þar sem hann er séður því
í frístundum sínum drepur hann
kvenfólk á hrottafullan hátt. Drápslýs-
ingamar í bókinni voru grófari en
áður þekktist (a.m.k. frá hendi virts
höfundar) og upphófust snemma mikl-
ar deilur um gildi bókarinnar. Margir
hötuðust við hana og sögðu Ellis ala
upp kynslóð kvenhatara og
fjöldamorðingja en þeir sem hrifust
sögðu hana hvassa gagnrýni á banda-
riskt samfélag þar sem veruleikafirr-
ingin er slík að hrottafengin dráp eru
vart annað en leikur. Þótt innihalds-
ins vegna sé skiljanlegt af hverju bók-
in kom ekki út í íslenskri þýðingu
verður að teljast furðulegt að umræð-
an um innihald bókarinnar skuli ekki
hafa ratað hingað til lands. Allt frá út-
komu hennar árið 1991 hefur hún þó
selst bæði vel og reglulega hérlendis
sem erlendis og margir lesenda mynd-
að sér sterkar skoðanir á henni. Á
fóstudaginn verður frumsýnd mynd
gerð eftir bókinni og því vel við hæfi
að leita álits Mikaels Torfasonar og
Bjöms Þórs Vilhjálmssonar á henni
og væntinga þeirra til myndarinnar.
Á erindi við íslendinga í dag
Mikael Torfason gekk í skáldsögu
sinni Fölskum fugli lengst íslenskra
rithöfunda í grófum ofbeldislýsingum.
Hann haíði þetta að segja um Americ-
an Psycho: „Bókin er ágæt og þá sér-
staklega ofheldisatriðin. Þau era mjög
vel útfærð og áður en ég las bókina
hafði ég hvorki lesið né séð annan
eins viðbjóð. Patrick Bateman er auk
þess mjög heildstæð persóna og hélt
manni við efnið þó hann endurtæki
sig aðeins of mikið. En í heildina var
þetta skemmtileg og fersk bók sem
kom á tíma þar sem ofbeldi var mjög
fyndið og sniðugt.
Bókin var náttúrlega innlegg í
þessa tilraunastarfsemi sem Tar-
antino og aðrir vora að gera á fram-
setningu ofbeldis um svipað leyti. En
hér heima þekkti maður enga uppa á
þessum árum og ég hugsa að hún eigi
meira erindi við íslendinga í dag en
þá. Bateman er ofsalega upptekinn af
merkjavöram og nafnspjöldum og
svona hlutum sem maður ímyndar sér
að starfsfólkið á Skjá einum hugsi
soldið um. Það er því nokkuð traust
að myndin sé að koma. Nú getur mað-
ur tengt hana íslandi í huganum.
Ég býst auðvitað við miklu af
Christian Bale leikur morðóða uppann I American Psycho, en með önnur heistu hlutverk fara Willem Dafoe, Jared
Leto, Reese Witherspoon, Samantha Mathis og Chloe Sevigny. Leikstýran Mary Harron skrifar einnig handritið eftir
samnefndri sögu Bret Easton Ellis.
Mikael Torfason rithöfundur.
„Ofbeldisatriðin eru mjög vel
útfærð og áður en ég las bókina
hafði ég hvorki lesið né séð
annan eins viðbjóð. “
myndinni þó ég efist um að hún geti
verið jafn fersk og bókin var á sínum
tíma. Bókin er náttúrlega búin að
hafa þau áhrif sem sagan hafði og því
varla hægt að ætlast til að myndin
geri mikið meira en að sýna bókina
án endurtekningana sem þar voru.
Sem gæti auðvitað þýtt að hún verði
miklu skemmtilegri en þessi annars
ágæta bók.“
Björn Þór Vilhjálmsson
bókmenntafraeöingur.
„Mér finnst hún fjalla um ameríska
drauminn eins og hann birtist í
neystudýrkun Trump-áratugarins og
segir skýrt og skorinort að um
martröð hafi verið að ræða. “
Misskilin satíra
Bjöm Þór Vilhjálmsson bók-
menntafræðingur er höfundur þátt-
anna Að baki hvíta tjaldinu sem flutt-
ir era um þessar mundir á Rás 1.
Hann hefur likt og Mikael ákveðnar
skoðanir á verkinu: „Mér fannst bók-
in góð, betri en ég átti von á. Ellis er
alltaf dálítið svipaður sjálfum sér en
ætli American Psycho sé ekki best
heppnaða bókin hans.
Ég held að þetta sé satíra þó ég
minnist þess að viðbrögðin við henni
þegar hún kom út hafi verið afar
hörð, og hún ekki lesin þannig af öll-
um. Ég held að hún hafi ekki haft
nein áhrif á samfélagið að öðru leyti
en því að umbótasinnar og góðborgar-
ar hlupu upp til handa og fóta í æs-
ingnum við að mótmæla henni. Það er
annað mál að mér finnst hún fjalla
um ameríska drauminn eins og hann
birtist í neysludýrkun Tramp-áratug-
arins og segir skýrt og skorinort að
um martröð hafl verið að ræða.
Kvikmyndin þarf að vera öfga-
mynd, bókin kallar tvímælalaust á
það, og það sem ég óttast er að þvert á
móti verði einhverjum meginstraum-
um fylgt í aðlöguniimi. Það er náttúr-
lega fyrirfram gefið að slettuatriði
bókarinnar verða ekki kvikmynduð,
myndin þarf því væntanlega að ná
kaldhæðninni og ádeilunni fram á
kraftmikinn hátt og gera það að út-
gangspunktinum. Ef það tekst þá held
ég maður geti átt von á góðu. Ef ekki
þá verður þetta bara enn eitt dæmið
um misheppnaða aðlögun þegar mað-
ur segir á leiðinni út, bókin var miklu
betri.“
American Psycho verður framsýnd
á morgun í Bíóborginni, Kringlubíó
og Nýjabíó Akureyri og Keflavík.
-BÆN
Molly Shannon
leikur Mary Katherine
sem grípur til örþrifaráða til að
fá almennilegan koss.
Stúlkan
sem enginn
vildi kyssa
Sagabió frumsýnir á morgun
bandarísku gamanmyndina
Superstar - Dare to Dream, sem
fjcillar um Mary Katherine Gallag-
her, óásjálega skólastelpu sem að-
eins á sér einn draum og það er að ^
einhver myndarlegur piltur kyssi
hana og það engan mömmukoss,
heldur almennilegan koss eins og í
bíómyndum. Þegar enginn fæst til
að kyssa hana þá tekur hún til
sinna ráða og tekur þátt í sam-
keppni, þar sem verðlaunin eru ferð
til Hollywood og möguleikar á að
leika lítið hlutverk í kvikmynd.
Samkvæmt hennar hugmyndum
ættu strákamir að verða vitlausir í
hana þegar það fréttist að hún hafi
leikið i kvikmynd. Hver vill ekki
kyssa kvikmyndastjörnu.... *
í aðalhlutverki er Molly Shannon
og er myndin byggð á persónu sem
hún leikur í hinni vinsælu gam-
anseríu í bandaríska sjónvarpinu,
Saturday Night Life. Molly Shannon
bjó til Mary Katherine Gallagher
þegar hún var í námi í New York
háskólanum og segir hún að það
fyrsta sem henni hafi dottið í hug
hafi verið að búa til taugaveiklaða
stúlku sem alltaf er að taka duglega
í hendumar á fólki og veit aldrei
hvenær hún á að sleppa handtak-
inu.
Molly Shannon hefur verið í Sat-
urday Night Live hópnum síðan
1995. Auk þess sem hún reglulega
kemur fram í hlutverki Mary
Katherine Gailagher þykir hún góð
eftirherma og túlkun hennar á
Courtney Love, Lizu Minnelli og
Monicu Lewinsky er með því besta
sem Saturday Night Life býður upp
á. Hún hefur einnig leikið í
nokkrum kvikmyndum, meðal axm-
ars A Night at the Roxbury, Analyze
This og Never Been Kissed. -HK
,staklinga
Bílar í eigu ui
- verulegur <
^.-aa.jáii
bílar án útborgunar
1. gjalddagi í haust, e5a
þegar þér hentar best.
ÉyRORA
BljLASALA SSlU
„Tákn um fraust" fax58l 1566.
ww evropa.is - www evropa.is - www evropa.is ■ www evrot
AFSLATTUR
VISA/EURO
SKULDABRÉF
BÍLALÁN
BÍLASAMNINGAR
Lengri opnunartími
fimmtudaga til kl 21.00,
föstudaga til kl 21.00.
BILAR I OLLUM VERÐFLOKKUM
opa.is - www evropa.is - www evroc
*