Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2000, Blaðsíða 11
Alþingeyskí dúettinn Túpílakar gaf nýlega út diskinn „Grínlögin illu“. Dúettinn skipa Oddur Bjarni Þorkelsson, sem syngur og semur alla textana, og Sigurður lllugason sem spilar á gítar og syngur. Til aðstoðar er einvalalið úr sveitinni sem spilar á ýmis hljóðfæri. Fókus sló á þráðinn til Húsavíkur og talaði við Odd. UUir og Qótir Það er létt yfir plötu Túpflakanna. Þjóðlagastraumar eru allsráðandi, Þokkabót og Súkkat eru nöfn sem koma upp í hugann. Þeir láta vaða í fjörugum sveiflum, sumum með írskum áhrifum en ballöður má einnig fmna á plötunni. „Ætli Radiohead og Hrekkjusvín séu ekki uppáhaldssveitimar mínar," segir Oddur og bætir við: „Ég hlusta lika mik- ið á það sem Egill Ólafsson hefur kom- ið nálægt og söngleikjatónlist. Ég er alæta en frábið mér þó rapp.“ Oddur segir Túpflakana hafa fæðst á leiksýningu þar sem þeir voru beðnir um að semja eitt lag. Siðan hafi lögin hrúgast upp og þeir að lokum látið und- an þrýstingi að gefa þau út. „Siggi hefur verið í ótal lókalsveitum og er núna í þorrablótasveit Illuga. Ég er hins vegar alveg grænn en hef gert texta fyrir nokkrar sveitir, t.d. Fantasíu og Byltingu." Málari og leikstjóri Þó Túpflakamir hafi spflað nokkuð að undanfömu, þ.á m. í Kafffleikhúsinu, hafa þeir atvinnu af öðru. Sigurður er málarameistari en Oddur leikstýrir á vetuma en hleður úr torfi og grjóti á sumrin. Hann tók þátt í að hlaða Þjóð- veldisbæ Áma Jónssonar á Grænlandi í fyrrasumar og segist hafa verið á góð- um launum. Hann grunar þó verktak- ann um að hafa tekið meiripartinn af þessum 70 millum sem fóm í verkið. Á Grænlandi komu svo Túpflakarnir til sögunnar, þessar útskomu ófreskjur sem inúítarnir skera út í bein. „Við vorum að leita að hlutlausu nafni og upptökumaðurinn stakk upp á Túpflakar því þeir em litlir og ljótir eins og við. Þetta er fínt nafn þó flestir misskilji það. Margir halda t.d. að við heitum Túlípanar og það er í góðu lagi.“ Öfundsjúkur nöldurseggur Skemmtilegheitin í lögunum fá aukna dýpt í textum Odds. Hvaða betri tækifæri gefast til að tjá skoðanir sínar en í dægurlagatextum? íslenskt texta- gerðarfólk virðist ekki alveg hafa fund- ið hjá sér þörf fyrir að syngja um annað en langanir klofsins síðustu árin en Oddur er óhræddur og lætur ýmislegt fjúka um ástand þjóðfélagsins og þær fígúrur sem þar fari mikinn. Hvem skyldi Oddur t.d. vera að syngja um í laginu „Þau em súr“? Ég er lítilmótlegur og Ijótur, meö lœpulegt skegg, / líkar að lítilsviröa aðra og leggja þeim lífsreglurmr um klœða- burö. / Ég er alls ekki yfirboröskenndur, einungis útlitsdýrkandi, / ég afneita eig- in kynhneigð. „Það þarf nú varla að nefna mann- greyið á nafn,“ segir Oddur. „Ég tók bara eftir því að hann er oft spurður um hin ólíklegustu mál og svarar alltaf svo ótrúlega glaðbeittur. Ég gat bara ekki á mér setið. Annars er þetta bara svona Séð og heyrt-texti og ömgglega saminn í öfundsýki því það hefur aldrei komið mynd af mér þar.“ Hver sér um tískulögreglustörf á Húsavík? „Það er engin löggæsla og því ríkir al- ger óreiða. Fínar frúr í jogginggöllum og háhæluðum skóm við og svona." Góðærið á Húsavík En hvernig virkar góöœrið á Húsavík? „Það hlýtur að vera að virka vel. All- ir em feitir og pattaralegir og betur bflandi en ég. Svo em líka allir í sumar- fríi nema ég svo, eftir á að hyggja, em allir textarnir líklega samdir í öfund- sýki. Annaðhvort það eða ég er bara hreinn og klár nöldurseggur. Nei, í al- vöm, þá em allir að syngja „Ég elska þig“ og eitthvað svona, nema kannski Bubbi, en maður trúir nú mátulega því sem hann segir núorðið." Hvað fannst þér skemmtilegast á kristnihátíð? „Mér! Við vomm með leiksýningu og út af henni missti ég eiginlega af öflu öðra. Við fengum mjög fáa áhorfendur. Lögreglan staðhæfði að það væri ekkert að gerast í þá átt sem við vorum og vís- aði öllum í burtu.“ Túpflakarnir spfla eitthvað á næst- unni, m.a. líklega í höfúðborginni seint í ágúst. Svo leggst bandið af í haust. Oddur er á leið í leikstjómarnám í Englandi og Sigurður flytur suður. „Ég vona þó að við gemm fleiri skemmtileg- ar plötur og störfum meira með band- inu,“ segir Oddur. „Það er svo skett- legt.“ Bróðirinn enn í klandri Lostavélin og soul-bróðir nr. 1, James Brown, er greinilega orðinn kengruglaður. Nýlega var hann kærður af starfsmanni rafveitunnar i Karólínu-ríki sem sakaði James um árás og mann- rán. Rafvirkinn var sendur heim til James til að athuga raf- magnsleysi sem hringt hafði verið út af. James kom til dyra og hélt á jakkafötum á herðatré. „Það þýðir að ég er erindreki ríkis- stjórnarinnar og get læst þig inni fyrir að læðast um á landar- eign minni,“ sagði kóngurinn og froðufelldi. Svo ógnaði hann raf- virkjanum með eldhúshníf. Það er ekkert nýtt að meistar- inn komist i klandur. Hann var lokaöur inni fyrir að ógna fólki með byssu og eyddi tveim árum í steininum. Árið 1998 var hann kæröur fyrir dóp- og byssueign og í fyrra kærði fyrrum starfsmaður hans hann fyrir kynferðislega áreitni hafði tvær milljónir dala upp úr krafsinu. n gott daginn eftir! Þessar verslanir selja Samarin: Nóatún, Bónus, Hagkaup, Nýkaup, Fjarðarkaup, KÁ verslun, Samkaup og öll apótek. 28. júlí 2000 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.