Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2000, Blaðsíða 12
... og þó svo að ég eigi enga
raunhæfa möguleika á þvi að
vinna á Ólympíuleikunum þá
ætla ég að fara af því að ég náði
lágmarkinu. Það er út af fyrir sig
árangur sem ég er mjög ánægður
með enda er núna margra ára
draumur að rætast. Þegar ég var
lítill og að byrja í íþróttum þá
spurði fólk mig oft: „Hvað ætlar
þú að gera þegar þú verður
stór?“ og ég sagöi alltaf: „Ég ætla
að ná íslenska Ólympíulágmark-
inu. Og ef ekki þá ætla ég að ná
einhverju öðru mjög sanngjörnu
.. Iágmarki.“
Ég er orðinn mjög þreyttur á því
hvað fólk gerir mikið grín að ís-
lenskum íþróttamönnum. íþrótta-
fólk í útlöndum nýtur miklu meiri
virðingar, það fær að koma fram í
spjaliþáttum, það auglýsir bjór og
hóstasaft og það eru meira að segja
gerðar styttur af frægu íþróttafólki
í sumum austantjaldslöndum. Þaö
er annað en hér. íslenska þjóðin
myndi aldrei samþykkja að það
yrði gerð stytta af Kristni Bjöms-
syni nema í mesta lagi ef hann
væri á kafi í snjóskafli með rass-
inn upp í loftið. Alltaf sama gamla ...
.. grínið
Fyrir utan að vera íþróttamaður
lifi ég mjög gefandi og hamingju-
sömu lífi. Ég kynntist konunni
minni á Glaumbar fyrir nokkrum
ánnn og við fórum að vera saman
upp úr því. Hún er stórglæsileg
kona. Fjölskyldan hennar tók
reyndar ekkert allt of vel í þetta
vegna þess að konan mín hefur
oft verið talin þroskaheft (sem
hún er ekki). Hún þurfti þess
vegna að fara í þroskamat til að
fá að giftast mér en ég get sagt
það með miklu stolti að hún náði
.. lágmarkinu.
Við búum í lítilli ósamþykktri
íbúð í Breiðholtinu (sem nær því
samt að vera íbúöarhæf) með
dóttur okkar og hundinum Jesú.
Dóttir okkar er mjög falleg og
skemmtileg en óeðlilega smávax-
in og skilur ekki mikið. Hún er
orðin tíu ára en hún er á hæð við
blómapott og hefur þroska á við
Mick Pollock í Utangarðmönn-
um. Kennarinn hennar vildi að
hún væri látin sitja eftir í skól-
anum til þess að hún gæti verið
með jafnstórum krökkum (og
jafnklárum) en við neituðum því al-
veg. Það sem ég sagði er: „Á meðan hún nær öllum lögbundnum lág-
mörkum þá á hún rétt á því að færast...
.. upp.“
Viö látum engan troöa á okkur og
okkar rétti. Við eigum bíl (sem fékk
endurskoðun en ég geri mér vonir
um að hann sleppi næst) og við
kaupum aldrei matvörur sem eru
komnar fram yfir síðasta söludag
(ef þær eru merktar daginn áður þá
er það í lagi). Rétt er rétt og rangt
er rangt. Og ég náði Ólympíulág-
markinu og ég ætla að fara á
Ólympíuleikana. Ég ætla að ganga
inn á Ólympíuleikvanginn, með ís-
lenska fánann blaktandi í hend-
inni, í hinum gullfallega fatnaöi
sem var sérstaklega hannaður á ís-
lensku ólympíufarana, og bera höf-
uðið hátt. Ekki af þvi að ég sé kominn til þess að vinna heldur af
því að ég náði helvítis lágmarkinu. Og ég er sannfærður um það að
ef það væri keppt í lágmörkum I íþróttum þá væru íslenskir íþrótta-
menn meðal þeirra fremstu í heiminum ... miöað við höfðatölu.
í dag verður opnuð myndlistarsýningin Bezti Hlemmur í heimi.
Hún er á vegum Alþjóða sýningarfélagsins - Exintern. Sýningin
á sér stað á og við skiptistöðina Hlemm, eina helstu umferðar-
miðstöð í Reykjavík. 9 listamenn taka þátt í henni og eru verk-
in jafn ólík og þeir eru margir. í kvöld er haldið opnunarboð og
eru allir hvattir til að miða strætóferðir sínar við það og vera
mættir á réttum tíma í þessa ófægðu perlu Reykjavíkur.
hjartað slð&r
Hekla Dögg Jónsdóttir
Innsetning í 6 blóma-
kössum.
íyar Valgarðsson
Álpappírsrúlla, 2 m í
þvermál, rúllar um.
Birgir Órn Thoroddsen
Tímaáætlun SVR,
gjallarhorn um húsið.
Hlynur Helgason
„Ráðandi sjónarmið".
Textahringir málaðir í
stéttina.
Lilja Björk Egilsdóttir
„Vatnskeppir og loft-
belgir“. Fylltir plastpok-
ar dreifðir um húsið.
Þóroddur Bjarnason
„Nýjar hæðir - ný tæki-
færi“. Vinnulyfta.
wHKNuam
,
Sara Björnsdóttir
Sögur af fólkinu á
Hlemmi, hátalarar
vegar.
Særún Stefánsdóttir
„Shoparf. Verslun
með smálistaverk.
Magnús Sigurðsson
Broskarlar á klukku-
skífu.
12
f Ó k U S 28. júlí 2000