Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2000, Blaðsíða 6
Plötusnúöurinn Boris Dlugosch kaffærir Thomsen í housemúsík yfir menningarnótt.
Flogin
úr hreiðrinu
íslendingar muna margir hverjir
eftir hinni skeleggu Aðalheiði Ingu
Þorsteinsdóttur, fréttamanni ríkis-
sjónvarpsins. Aðalheiður þykir hafa
góða rödd og er laus við alla hégóma-
girni, ólíkt mörgum öðrum frétta-
mönnum sem detta í pakkann að gera
eigin persónu að stórum hluta frétta
sinna. Aðalheiður hefur ekki sést á
skjánum undanfarið en hún er ekki í
sumarleyfi eins og svo margir aðrir
fréttamenn Sjónvarpsins en þjóðin
hefur áþreifanlega fundið fyrir því nú
þegar hver hörmungardreifbýlis-
fréttaritarinn á fætur öðrum er dreg-
inn ótalandi með öllu inn á almennar
fréttavaktir þar sem fjallað er um al-
varleg mál í stað handónýtra héraðs-
frétta. Þessi sama Aðalheiður hefur
nú hins vegar sagt skilið við RÚV og
er orðin verkefnisstjóri nýja MBA-
námsins hjá Háskólanum í Reykjavík.
Futurice
Ministry of Sound
ætlar að hljóð-
prófa landann
þegar Thomsen
verður hertekinn
á menningarnótt,
19 ágúst. Til
stendur að breyta
staðnum mikið fyrir
þessa uppá komu
og heimsþekktir
plötusnúðar sjá
um að fullnægja
dansfíklunum.
Eins og dyggir lesendur Fókuss
vita verður mikil gleði á klúbbn-
um Thomsen á Menningarnótt.
Hin víðfræga umboðsskrifstofa,
Ministry of Sound, er búin að fá
til liðs við sig tvo erlenda plötu-
snúða sem þeyta skífur sínar í
kapp við íslenska. Annars vegar
eru það Boris Dlugosch og hins
vegar Phats and Small¥s sem
munu trylla djammarana.
Þekkt nöfn að utan
Þetta eru þekkt nöfn úr dans-
tónlistinni og mikil eftirvænting
meðal þeirra sem við þá kannast.
Þjóðverjinn Dlugosch hefur feng-
ist við plötuspilun síðan 1986 og
er talinn einn fremsti
houseplötusnúður Evrópu. Hin
síðari ár hefur hann bætt hip-
hoppi og r&b við prógrammið og
fengist við að pródúsera lög og
endurhljóðblanda fyrir aðra tón-
listarmenn. Segja má að hann
beri ábyrgð á frægð Moloko, en
hann samdi og rímixaði lagið
„Sing it back“ sem kleif alla vin-
sældalista og heyrist enn á öldum
Ijósvakans.
Tvíeykið Phats and Smalls þarf
vart að kynna og stefnir það nú
hraðbyri að því að verða vin-
sælasta dansgrúppa Evrópu. Þeir
hafa meðal annars gefið út lögin
Turn around og Feel good sem
eru útvarpshlustendum að góðu
kunn. íslensku snúðarnir Ámi
Einar, Margeir og Frímann eru
allir miklar kempur á danssenu
landsins og verða þeim erlendu
til stuðnings.
Leikur á Fókusvefnum
Til stendur að breyta Thomsen
mikið fyrir kvöldið og verða flutt
til landsins um eitt og hálft tonn
af hljómtækjum, sérhönnuð til
þess að skelfa hljóðhimnur við-
staddra. Einnig verður heljarinn-
ar ljósa- og leysigeislasjó fyrir
gesti, jafnt innandyra sem utan.
Herlegheitin hefjast um 23 en
dansinn dunar til morguns og
hættir ekki fyrr en feita konan
(sem verður líklega orðin tálguð
til eftir brennslu næturinnar)
syngur. Fókus mun standa fyrir
leik í tengslum við uppákomuna
og verður ýmis varningur,
merktur „Ministry of Sound“, í
verðlaun, s.s. geisladiskar, jakk-
ar, hattar og bolir. Leikurinn
hefst á mánudag og fer fram á
Fókusvefnum, á slóðinni vis-
ir.is. Meira verður fjallað um
dagskrána á Thomsen i næsta
eintaki af Fókus.
Keppnin um herra ísland verður haldin á Broadway þann 23. nóvember. Þetta er í
fimmta skipti sem keppnin er haldin og virðist áhugi karlpeningsins á keppninni
stöðugt fara vaxandi. Sigurvegari keppninnar fer í ekki ómerkari keppni en Male of
the Year - Manhunt International á næsta ári. Fókus hafði samband við Ægi Örn Val-
geirsson, núverandi herra ísland.
Stórviðburður helgarinnar og stór-
tískuviðburður þessa árs er án efa
Futurice-sýningin sem haldin verður
nú um helgina. Fólk í tískuheiminum
heldur vart vatni af spenningi yfir að
hitta allt fína fólkið utan úr heimi og
sýna því hvemig við íslendingar emm
nú endanlega búnir að koma okkur á
kortið. Nú berast þær sögur að ýmsa
óvænta leynigesti muni bera að garði
og það nafn sem hvað oftast hefur ver-
ið nefnt í vikunni er stórhollywood-
leikarinn George Clooney sem ku
ætla að birtast óvænt. Annars hefur
Fókus fengið veður af því að þær syst-
ur, Hrafnhildur og Bára, hyggist
standa fyrir hörku Futurice-partíi á
Thomsen á laugardagskvöld. Segir
sagan að boðsmiðar séu í gangi í þessu
hörku VlP-partýi en meðal annars
mun Gus Gus sjá um tónlistina.
Jón Steinar Gunnlaugsson Ron Jeremy klámmyndalelkari.
hæstaréttarlögmaöur.
Tvífararnir hafa átt mikilli velgengni að fagna, hvor á sínum starfs-
vettvangi. Það verður samt að viðurkennast að í útliti eru hæstaréttar-
lögmaðurinn Jón Steinar Gunnlaugsson og klámmyndaleikarinn Ron
Jeremy sláandi líkir. Sem einn snjallasti lögfræðingur landsins og mað-
ur stórra orða á Jón Steinar sér marga óvildarmenn og pólitíska andstæö-
inga. En Jeremy hefur uppskorið mikla öfund í klámbransanum, enda
riðið meira en Sigurbjöm Bárðar og smurt ófáa hryggi i þeim þúsund
pomómyndum sem hann hefur leikið í um ævina. Þannig mætti segja að
báðir hafi þeir verið mikið á milli tannanna á óskammfeilnum kjaftakerl-
ingum, Jeremy þó í ögn bókstaflegri merkingu en Jón Steinar.
eitað að fallegjjstu
karlmönnum Islands
Óskað eftir
ábendingum
Forkeppni verður haldin víða um
land og er óskað eftir ábendingum
um unga og flotta karlmenn sem
fólk heldur að verði landi og þjóð til
sóma sem herra Island. Fyrir stóru
keppnina þurfa guttamir að koma
sér í form, fara í líkamsrækt og ljós
og læra að koma fram. í sjálfri
keppninni fáum við svo að sjá her-
legheitin í tískufótum, á boxers og
spariklæönaði.
Gefandi að taka þátt
„Keppnin er mjög gefandi og mað-
ur lærir alveg heilmikið á þessu,“
segir Ægir, sigurvegari keppninnar
í fyrra, og það er ekki laust við það
að blaðamanni finnist sem hann
hafi heyrt þessi orð áður. „Að
vera í svona keppni eflir sjálfs-
traust manns og sjálfsöryggi þannig
að það er margt sem maður fær út
úr þessu. Ég held að allir hafi gott af
því að taka þátt í svona keppni."
Af hverju ákvaðst þú aö taka þátt
í keppninni um herra ísland? “ Það
var nú bara þannig aö það var bent
muiv VI uic ICOI.VIU VUIIUIII
"«nui uivga i
á mig. Þegar haft var samband við
mig þurfti ég auðvitað að hugsa mig
vel um en svo ákvað ég að slá til. Ég
hafði aldrei prófað neitt þessu líkt,
aldrei verið að vinna sem módel eða
eitthvað svoleiðis," segir Ægir.
Flestir sem taka þátt í fegurðar-
samkeppni eru sammála um ómet-
anlegt gildi hennar og keppendur
tengjast þar gjarnan órjúfanlegum
vinaböndum. Haldiö þiö strákarnir,
sem voruð í keppninni í fyrra, sam-
bandi? „Við erum ágætis kunningj-
ar. Við höfðum allir mjög gaman af
þessu og það myndaðist aldrei
okkar maöur taki þetta.
neinn rígur á milli okkar.“
Ægir Öm er þessa dagana að
undirbúa sig fyrir Male of the Year
keppnina sem haldin verður í
Singapúr í september. „Já, ég er á
æfa mig þessa dagana, er í líkams-
rækt og svona og er að æfa fram-
komu mína. Maöur þarf að vera
með eitt skemmtiatriði og er að
græja mig í þaö.“Ertu stressaður?
„Já, svona smá. Maður fer nú samt
bara þarna út til þess að gera sitt
besta. Ég hlýt að eiga sama séns og
aðrir,“ segir Ægir að lokum en við
hin fylgjumst spennt með.
Keppnin um Herra ísland verður
stöðugt vinsælli enda virðast karl-
menn vera búnir að fatta að titillinn
herra ísland er ávísun á spennandi
framtíð og aðdáun ungra kvenna.
Þeir sem unnið hafa keppnina hing-
að til em þeir Þór Jósefsson, sem
vann fyrstu keppnina árið 1996 og
hefur frá því verið mjög sýnilegur í
íslensku skemmtanalífi (reyndar
þannig að mörgum þykir nóg um),
Reynir Logi Ólafsson, Andrés Þór
Björnsson og Ægir örn Valgeirs-
son sem vann titilinn í fyrra. Allir
hafa þeir eitthvað verið viðriðnir
módelstörf eftir sigurinn þannig að
það gefur augaleið að titilinn hjálp-
ar mönnum. Sigþór Ægisson lenti
í öðru sæti í fyrra og hann hefur
verið í New York og Mílanó síðan á
fullu í módelbransanum.
Keppendur þurfa að vera á aldr-
inum 18-30 ára sem er nokkuð
rýmra aldursbil en hjá stúlkum í
ungfrú ísland keppninni sem mega
ekki vera eldri en 24 ára. Mælst er
til þess að keppendur séu ekki lægri
en 180 cm.
f Ó k U S 11. ágúst 2000
6