Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2000, Blaðsíða 8
24
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 2000
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 2000
25
KR-Fylkir 2-1
2, DEILD KARLA
HK-KS...................1-2
KVA-Léttir .............2-4
Þór A.-KÍB..............3-1
Staðan:
Þór A. 14 14 0 0 47-10 42
KS 14 8 2 4 21-17 26
Afturelding 14 7 3 4 28-22 24
Selfoss 14 7 2 5 35-19 23
Víðir 14 7 2 5 22-17 23
Leiknir 14 5 2 7 27-28 17
KÍB 14 5 1 8 22-34 16
Léttir 14 3 3 8 22-40 12
KVA 14 2 3 9 2041 9
HK 14 1 4 9 17-33 7
A-riðill:
HSH-Fjölnir . . .
Bruni-Njarðvík
*)3. DEILD KARLA
Þróttur V.-Barðaströnd........2-4
Staða efstu liða:
Njarðvik 15 12 2 1 51-18 38
Fjölnir 15 9 1 5 31-10 28
Bruni 15 8 1 6 34-34 25
HSH 15 6 4 5 33-22 22
Barðaströndl5 5 1 9 34-40 16
Þróttur V. 15 0 1 14 17-76 1
B-riðill:
Hamar/Ægir-ÍH................7-0
GG-Reynir S..................2-6
Staðan:
Haukar-KFS
Haukar
KFS
Reynir S.
Ham./Ægir 12
GG
Grótta
ÍH
C-riðill:
Neisti-Nökkvi .................5-1
Hvöt-Völsungur.................1-6
Staða efstu liða:
12 8 4 0 38-11 28
12 8 3 1 47-15 27
12 6 3 3 28-15 21
12 4 4 4 39-25 16
12 3 2 7 20-33 11
12 2 2 8 19-48 8
12 1 2 9 14-58 5
Völsungur 12 8 2 2 32-10 26
Nökkvi 12 5 3 4 17-25 18
Neisti H. 12 5 2 5 17-15 17
Magni 12 3 6 3 17-22 15
Hvöt 12 1 3 8 14-25 6
D-riðUl:
Neisti D.-Þróttur N............3-5
Staða efstu liöa:
Þróttur N. 12 10 2 0 45-13 32
Hug./Hött. 12 5 1 6 19-27 16
Leiknir F. 12 3 2 7 15-30 11
NeistiD. 12 2 3 7 24-33 9
1. umferö i úrslitakeppni 3. deildar
karla fer fram 26. ágúst og þá mætast
i 8-liða úrslitum, Nökkvi-Njarðvík,
Huginn/Höttur-Haukar, Fjölnir-
Völsungur, KFS-Þróttur N.
Sport
Sport
* LANDSSÍMA.
Fylkir 15 8 5 2 32-13 29
KR 14 8 3 3 21-13 27
ÍBV 15 7 5 3 24-13 26
ÍA 15 6 4 5 14-12 22
Grindavík 14 5 6 3 17-12 21
Keflavík 15 4 6 5 17-24 18
Breiðablik 14 5 1 8 21-23 16
Fram 15 4 4 7 19-26 16
Stjarnan 15 3 4 8 12-23 13
Leiftur 14 1 6 7 16-34 9
Markahæstir:
Guðmundur Steinarsson, Kefl. ... 12
Andri Sigþórsson, KR ............10
Gylfi Einarsson, Fylki............7
Sverrir Sverrisson, Fylki ........7
Sævar Þór Gíslason, Fylki ........7
Hreiðar Bjamason, Breiðabliki ... 6
Ronny Petersen, Fram .............6
Steingrimur Jóhannesson, ÍBV ... 6
Guðmundur Benediktsson, KR ... 5
Kristinn Tómasson, Fylki..........5
Ólafur Öm Bjamason, Grindavík . 5
Það vantadi sex leikmenn í lið
Stjörnunnar og gátu þeir aðeins verið
með 3 varamenn á bekknum í leikn-
um gegn ÍA í gær.
Brasilísk sjónvarpsstöö fylgdist
með leik Leifturs og ÍBV og tók svo
viðtal við brasilíska leikmenn Leift-
urs. -HI/JJ
Úrslit íslandsmeistaramótsins í
knattspymu hafa nánast ráðist á KR-
vellinum í Frostaskjólinu undanfarin
fjögur ár en heimamönnum tókst að
koma í veg fyrir að nýliðar Fylkis
kæmust í lykilstöðu á toppnum í
Landssímadeild karla í gær og fram
undan er því spennandi toppbarátta.
Andri Sigþórsson sýndi hversu
hættulegur hann er þegar hann slapp
í gegn og tryggði KR sigurinn, 2-1,
með tíunda marki sínu í sumar. Þetta
mark var sennilega það mikilvægasta
af mörkum sumarsins enda kemur
það vesturbæjarliðinu í góða stöðu í
toppbaráttuni og gefur því tækifæri á
að tryggja sér toppsætið með sigri á
Leiftri á miðvikudag, leikur sem KR á
inni á hin liðin í toppbaráttunni.
„Þetta var mjög mikilvægt og þýðir
að við erum enn inni í þessu. Ef viö
hefðum ekki unnið þennan leik hefði
mótið nánast verið búið og þetta er
mikilvægasta mark sem ég hef gert
fyrir KR,“ sagði Andri Sigþórsson,
hetja vesturbæinga. „Ég fékk loksins
boltann, hef ekki fengið mikið af
stunguboltum í sumar og þegar hún
kom loksins varö ég að þakka fyrir
mig með marki. Það var frábær bar-
átta i KR-liðinu nánast allan leikinn.
Ef við náum henni áfram í sumar
veröur erfltt að stöðva okkur. Það var
líka frábær stemning á vellinum,
svona kannast maöur við stuðnings-
mennina okkar, þeir voru okkar tólfti
maður og hjálpuðu okkur mikið,“
sagði Andri, sáttur með gott mark og
mikilvægan sigur.
KR-ingar áttu meira í fyrri hálfleik
og leiddu, 1-0, í hálfleik eftir laglegt
mark frá Þórhalli Hinrikssyni. Andri
Sigþórsson var duglegur frammi en
bæði hann og Guðmund Benediktsson
vantaði meiri stuðning frá miðju-
mönnum sínum í leiknum. Einar Þór
Daníelsson gat ekki leikið með vegna
meiðsla og munaði mikið um hann og
þá voru miðjumenn liðsins, Þórhallur
Hinriksson og ívar Bjarklind, í algjöru
vamarhlutverki í leiknum. Bæði lið
fóru af mikilli varkámi í leikinn og
færin voru fá þegar upp var staðið.
Baráttan var mikil hjá báðum liðum
og harkan kannski oft of mikil en flest
þeirra skota sem komu voru af löngu
færi og fyrstu tvö mörk leiksins komu
eftir föst leikatriði.
Fylkismenn höfðu betri tök á leikn-
um í seinni hálfleik og eftir markið í
upphafi hálfleiksins voru það nýlið-
amir sem vora hættulegri í sóknarað-
geröum sínum. KR-ingar misstu ein-
beitinguna, hættu að spila sinn leik og
fóm að eltast við dómarann en þeir
áttu ás í erminni í Andra Sigþórssyni.
Fylkismenn sátu því eftir með sárt
ennið en KR-ingar fognuði vel enda
lyktin af íslandsmeistaratitli farin að
berast um Vesturbæinn.
Bjami Jóhannsson, þjálfari Fylkis,
þurfti að sætta sig við fyrsta tapið á
útivelli í sumai'. „Þetta er einn af 18
leikjum og við enun enn þá á toppn-
um. Við berum höfuðið hátt, þetta
datt bara þeirra megin. Við voram
lengi í gang og þeir reyndu að svæfa
okkur í fyrri hálfleik en við settum i
annan gír i seinni hálfleik, jöfnuðum
snemma og síðan var þessi leikur í
jámum. Við fengum á okkur slysalegt
mark í lokin og það var óþarfl að tapa
þessum leik. Þetta verður fjör fyrir
alla, komin enn meiri spenna í mótið,
það er lítið eftir og menn mega gera fá
mistök héðan í frá,“ sagði Bjami eftir
leik. -ÓÓJ
Hálfleikur: 1-0 Leikstaöur: KR-völlur. Áhorfendur: 4140.
Dómari: Pjetur Sigurðsson (4). Gceöi leiks: 3.
Gul spjöld: ívar, Þórhallur, Kristján (KR), Ólafur (Fylki).
SkoU 13-8. Horm 5-1. Aukaspymur fengnar: 17-15. Rangstöóur: 1-4.
Mörkim 1-0 Þórhaliur Hinriksson (36., með skalla eftir aukaspymu Guðmundar
Benediktssonar), 1-1 Kristinn Tómasson (51., með óvæntu skoti utan úr teig, eftir
að KR-ingum mistókst að hreinsa frá innkast Sævars Þórs Gíslasonar), 2-1 Andri
Sigþórsson (80., afgreiddi stungusendingu Sigurðar Amar Jónssonar á laglegan
hátt eftir að Siguröur Örn hafði unniö boltann af Fylkismönnum).
Einkunnagjöf
DVsport
ÍA-Stjarnan 0-0
ÍA (4-4-2)
Ólafur Þór Gunnarsson, 3, Sturlaugur
Haraldsson, 2, Gunnlaugur Jónsson, 4,
Alexander Högnason, 4, Pálmi Haralds-
son, 2, Haraldur Hinriksson, 1, Jóhann-
es Þór Harðarson, 3, Grétar Rafn
Steinsson, - (14., Baldur Aðalsteinsson,
2), Guðjón Heiðar Sveinsson, 2 (58., Jó-
hannes Gíslason, 4), Uni Arge, 2 (65.,
Hálfdán Gíslason, 2), Hjörtur Hjartar-
son, 1.
Stjarnan (5-3-2)
Zoran Stojadinovic, 4, Birgir Sigfússon,
3, Vaidimar Kristófersson, 4, Hafsteinn
Hafsteinsson, 3, Zoran Stocic, 3, Ólafúr
Gunnarsson, 3, Bemharður M Guð-
mundsson, 2, Rúnar Páli Sigmundsson,
3, Garðar Jóhannsson, 3 (85., Sæmund-
ur Friðjónsson, -), Kristián Másson, 2
(61., Sigurður Friðriksson, 1) Boban
Ristic, 4.
KR-Fvlkir 2-1
KR (4-4-2)
Kristján Finnbogason, 3, Sigurður Öm
Jónsson, 4, Bjarni Þorsteinsson, 4, Þor-
móður Egilsson, 3, Sigursteinn Gísla-
son, 4 (77., Haukur Ingi Guðnason, -),
Sigþór Júlíusson, 3, Iwhallur Hinriks-
son, 4, ívar Bjarklind, 2 (67., Þorsteinn
Jónsson, 3), Jóhann Þórhallsson, 3,
Guðmundur Benediktsson, 3, Andri Sig-
þórsson, 4 (88., Maikel Renfurm, -).
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson, 4, Helgi Valur Daní-
elsson, 3, Ómar Valdimarsson, 4, Þór-
hallur Dan Jóhannsson, 3, Gunnar Pét-
ursson, 3, Sverrir Sverrisson, 3, Finn-
ur Kolbeinsson, 4, Gylfi Einarsson, 2
(79., Ólafur Stígsson, -), Sævar Þór
Gislason, 3, Kristinn Tómasson, 4,
Theódór Óskarsson, 2.
Keflavík-Fram 3-3
Keflavík (4-3-3)
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, 4,
Gestur Gylfason, 3 (23., Haraldur Guð-
mundsson, 2), Hjörtur Fjeldsted, 3,
Mark McNally, 3, Paul Shephard, 2,
Ragnar Steinarsson, 2, Zoran Ljubicic, 2
(77., Georg Birgisson, -), Jóhann Ragn-
ar Benediktsson, 2 (46., Kristján
Brooks, 4), Þórarinn Brynjar Krist-
jánsson, 4, Guðmundur Steinarsson, 5,
Magnús S. Þorsteinsson, 3.
Fram (3-5-2)
Fjalar Þorgeirsson, 4, Albert Ásvalds-
son, 2, Eggert Stefánsson, 3, Steinar Þór
Guðgeirsson, 3, Ingvar Ólason, 3,
Kristófer Sigurgeirsson, 2 (60., Viðar
Guðjónsson, 2), Sigurvin Ólafsson, 4,
Baldur Knútsson, 2 (72., Bjami Péturs-
son, -), Daði Guðmundsson, 3, Þor-
bjöm Atli Sveinsson, 3, Ronny Peter-
son, 3 (60., ívar Jónsson, 3).
Leiftur-ÍBV 0-1
Leiftur (4-4-2)
Jens Martin Knudsen, 4, Albert Arason,
3, Hlynur Jóhannsson, 5, Alexandre da
Silva, 3, Steinn V. Gunnarsson, 4, Ingi
Hrannar Heimisson, 2 (46., Hörður Már
Magnússon, 4), Samal Joensen, 4, John
Petersen, 4, Jens Erik Rasmussen, 4
(65., Þorvaldur Guðbjömsson, 4), Alex-
andre Santos, 5, örlygur Helgason, 4.
ÍBV (4-4-2)
Birkir Kristinsson, 5, Bjarni Geir Við-
arsson, 3, Hlynur Stefánsson, 5, Páll Al-
marsson, 3, Páll Guðmundsson, 4, Ingi
Sigurðsson, 5, Goran Aleksic, 5, Baldur
Bragason, 3, Momir MUeta, 3 (74., Hjalti
Jónsson, -), Steingrímur Jóhannesson,
4, Tómas Ingi Tómasson - (9., Jóhann
MöUer, 3).
Einkunnaskali DV-Sport
6.......................StórkosUegur
5........................Mjög góður
4..............................Góður
3........................I meðallagi
2 ............................Slakur
1......................Mjög lélegur
Takmörkuð þátttaka
Stórt núll
- á Skaganum í leik ÍA og Stjörnunnar
Það er ekki ofsögum sagt að leik-
ur ÍA og Stjörnunnar á Skipaskaga í
gærkvöld hafi verið með slakari
knattspyrnuleikjum sem nokkru
sinni hefur farið fram í efstu deild.
Stjaman, með sex fastamenn fjarri
góðu gamni, mætti í leikinn með því
hugarfari að verjast og það reyndist
þeim auðvelt gegn hugmyndasnauð-
um Skagamönnum. Úrslitin, 0-0,
segja í raun allt sem segja þarf um
þennan leik sem var hrein hörmung
nánast frá upphafi til enda.
í byrjun leiks var strax ljóst hvert
stefndi. Skagamenn voru mun meira
meö boltann og sóttu töluvert en
þessar sóknir voru afar kraftlitlar
og engin vandi að verjast þeim. Uni
Arge komst tvívegis í gott færi í
fyrra hálfleik en slæm móttaka í
fyrra skiptið og máttlítið skot í
seinna skiptið gerðu þau færi að
engu. Á 38. mínútu vildu Skaga-
menn fá vítaspymu þegar Zoran
Stocic virtist verja skot Haraldar
Hinrikssonar með hendi innan teigs
en hvorki dómari né aðstoðardóm-
ari sáu ástæðu til að dæma víta-
spymu sem þó virtist augljós.
Skagamönnum tókst þó að skapa sér
eitt dauðafæri rétt fyrir leikhlé þeg-
ar Hjörtur skallaði af stuttu færi en
Zoran Stocic varði frábærlega.
Sami bamingur átti sér stað í síð-
ari hálfleik að öðru leyti en því aö
skyndisóknir Stjömunnar sköpuðu
öðru hverju hættu og átti Boban
Ristic það til að láta vamarmenn
Skagamanna hafa fyrir hlutunum.
En það var ekki fyrr en Jóhannes
Gíslason kom inn á sem varamaður
í lið Skagamanna að sóknarleikur
þeirra glæddist einhverju lífi. Hann
átti feikigóða innkomu og átti oft
frábærar rispur og sendingar inn í
teig sem samherjar hans hefðu að
ósekju mátt nýta betur. En það gekk
ekki eftir og markalaust jafntefli því
staðreynd.
„Við ætluðum okkur sigur í þess-
um leik en Stjarnan kom hingað
með því hugarfari að verjast. Það
var siöan eins og að við hefðum ekki
áhuga á að skora. Það vantaði mik-
ið upp á leik okkar og við verðum að
hrista af okkur slenið. Okkur hefur
gengiö illa að skora og það breyttist
ekki í þessum leik þar sem allar fyr-
irgjafir stoppuðu á fyrsta varnar-
manni,” sagði Alexander Högnason
eftir leikinn. Hann og Gunnlaugur
voru traustir í vörninni og þá kom
Jóhannes Gíslason sterkur inn eins
og áður sagði. En markaleysið háir
liðinu enn.
„Þetta var erflður leikur fyrir
okkur enda vantaði marga. Við get-
um því verið sáttir með eitt stig héð-
an. Við héldum ró okkar og vorum
skynsamir og það skóp þetta stig,”
sagði Valdimar Kristófersson, fyrir-
liði Stjömunnar. Valdimar, Stococ
og Stojadinovic markvörður mynd-
uðu ókleifan vamarmúr fyrir
Stjömuna og þá var Ristic hættuleg-
ur fram á við. -HI
Maður leiksins: Andri Sigþórsson, KR
Leikstaöur: Akranesvöllur. Áhorfendur: 300.
Dómari: Bragi Bergmann (3). Gœöi leiks: 1.
Gul spjöld: Guöjón, Hálfdán (ÍA), Valdimar, Hafsteinn, Stocic (Stjömunni).
SkoU 13-7. Honu 10-1. Aukaspymur fengnar: 14-16. Rangstööur: 1-0.
Maður leiksins: Zoran Stojadinovic, Stjörnunni
Markaveisla
Keflavík fékk Fram í heimsókn í
gærkvöldi I leik sem skipti bæði lið
gríðarlegu máli því þau eru ekki
laus við falldrauginn. Þeir Gunnar
Oddsson og Þorsteinn Bjarnason
stýrðu sínum fyrsta leik saman og
ljóst var að meira var lagt upp úr
sóknarleik, en á móti kom að vöm-
in opnaðist og þegar þessum
skemmtilega leik lauk höfðu bæöi
lið skorað 3 mörk sem verður að
teljast sanngjamt jafntefli.
Leikurinn fór nokkuð rólega af
stað en sóknir gestanna voru þó
beittari. Það vora þó heimamenn
sem skoraðu fyrsta markið og það
gerði markahrókurinn Guðmundur
Steinarsson úr vítaspymu sem hann
fiskaði sjálfur. Gestur Gylfason
sendi á Guðmund sem var 1 mikilli
baráttu við Steinar Guðgeirsson um
boltann og sú barátta endaði með
því að Steinar skellti Guðmundi nið-
ur rétt innan vítateigs.
Á 37. mínútu fékk Fram víta-
spymu eftir að brotið var á Ronny
Petersen. Sigurvin Ólafsson tók
spymuna en skaut í slá. Það kom
þó ekki á sök því góður dómari
leiksins, Kristinn Jakobsson, benti
aftur á punktinn því Gunnleifur
hafði farið fram fyrir marklínuna.
Sigurvin fékk því annað tækifæri
og það nýtti hann en var heppinn
því Gunnleifur sló boltann í slá og
þaðan fór boltinn inn. Fimm mín-
útum síðar fékk Þorbjöm Atli
stungusendingu fram vinstri kant-
inn. Haraldur Guðmundsson, vam-
armaður Keflavíkinga, rann á gras-
inu og það nýtti Þorbjöm sér, lék á
tvo vamarmenn og skaut hnitmið-
uðu skoti í fjærhomið sem Gunn-
leifur í markinu átti ekki mögu-
leika í. Staðan var því 1-2 i hálfleik.
Seinni hálfleikur var hraður og
skemmtilegur þar sem bæði lið
reyndu að sækja. Kristján Brooks
kom inn á fyrir heimamenn og
hann reyndist vera sú vítamín-
sprauta sem liðið þurfti. Allar sókn-
ir þess urðu miklu beittari og meiri
hraði í spilinu. Srax á 51. mínútu
skoraði Guðmundur Steinarsson
sitt annað mark eftir að skot Krist-
jáns var varið og jafnaði þar með
leikinn. Á sömu mínútu fékk Ronny
Petersen dauðafæri en hitti boltann
illa og klúðraði því. Guðmundur
kom síöan Keflavík yfir með þriðja
marki sínu og að þessu sinni var
það með skalla eftir góðan undir-
búning Magnúsar Þorsteinssonar.
Á 79. minútu fékk Fram aðra
vítaspymu og Sigurvin skoraði úr
spymunni og tryggöi þar með sín-
um mönnum eitt stig. Fram fékk
tvö ágætisfæri til að klára leikinn
en nýtti þau ekki og jafntefli því
staðreynd.
Leikurinn var hin ágætasta
skemmtun, sérstaklega í seinni
hálfleik. Keflvíkingar keyrðu
grimmt á gestina í byrjun seinni
hálfleiks og uppskára tvö mörk.
Það kom hins vegar niður á liðinu í
lokin þar sem mikil orka fór hjá
þeim á þessum kafla. Liðiðsaknaði
Gunnars Oddssonar í þessum leik
vegna meiðsla og þykja það tíðindi
þegar Gunnar missir úr leik.
Fram-liðið, með Sigurvin Ólafs-
son sem besta mann, getur sjálfu
sér um kennt að hafa ekki nýtt fær-
in betur. Sérstaklega var Petersen
klaufl að skora ekki. Liðið hefur
alla burði til að vera ofar í deildinni
og eitthvert lánleysi er yflr liðinu
en hafa ber í huga að hver er sinn-
ar gæfu smiður. -BG
KefKavík-Fram 3-3
Hálfleikur: 1-2 Leikstaöur: Keflavíkurvöllur. Áhorfendur: 550.
Dómari: Kristinn Jakobsson (5). Gteöi leiks: 4.
Gul spjöld.■ Hjörtur, McNally (Keflavík), Ingvar (Fram).
SkoU 11-15. Hortu 4-4. Aukaspymur fengnar: 10-17. Rangstööur: 4-5.
Mörkitu 1-0 Guðmundur Steinarsson (22., vítaspyma sem hann fiskaði sjálfur), 1-1
Sigurvin Ólafsson (37., vltaspyma eflir að brotið var á Ronny Peterson), 1-2
Þorbjöm Atli Sveinsson (42., tók frábæran sprett vinstra megin, lék á tvo
vamarmenn og setti hann í fjær homið), 2-2 Guðmundur Steinarsson (51., hirti
frákastið eftir skot Kristjáns Brooks og skoraöi af stuttu færi), 3-2 Guðmundur
Stelnarsson (55., skalli frá markteig eflir sendingu frá Magnúsi Þorsteinssyni), 3-3
Sigurvin Ólafsson (79., vítaspyma eflir brot á ívari Jónssyni inni í teig).
Maður leiksins: Guðmundur Steinarsson, Keflavík
ÍBV vann Leiftur á Ólafsfirði:
Enn ósigur
Leiftur mætti ÍBV í Ólafsfirði í
blíðskaparveðri. Áhorfendur voru í
færri kantinum eða rétt um 150.
Leiknum lyktaði með 0-1 sigri ÍBV.
Leiftursmenn byrjuðu leikinn flör-
lega og eftir flórar mínútur hafði ör-
lygur Þór Helgason átt tvö góð færi
en Birkir náði að koma í veg fyrir
mark í annað skiptið en seinna skot-
ið fór rétt fram hjá. Tómasi Inga var
svo skipt út af eftir níu mínútna leik
og víst er að hann er ekki alveg bú-
inn að ná sér af meiðslunum.
Leiftursmenn áttu svo sannarlega
skilið að fá að skora en besta færi
Leifturs í leiknum var þegar Santos
komst einn inn fyrir eftir frábæra
sendingu frá John Petersen en Birk-
ir Kristinsson var á réttum stað og
varði boltann í horn. Birkir bjargaði
Eyjamönnum nokkrum sinnum í
leiknum. Aðeins mínútu eftir færið
hans Santos þá skoraði Goran
Aleksic mark ÍBV eftir frábæran
undirbúning Inga Sigurðssonar á
hægri kantinum. Markið kom alveg
gegn gangi leiksins.
Leiftursmenn duttu niður við
markið og náðu sér ekki á strik það
sem eftir var af fyrri hálfleik. Leift-
ursmenn byrjuðu seinni háifleik eins
og þann fyrri. Þeir sóttu mikið en án
árangurs. Leiftursmenn söfnuðu
gulum spjöldum og var bekkur Leift-
ursmanna allt annað en ánægðir
með störf Garðars Arnar Hinriksson-
ar í leiknum. Santos var öflugastur
Leiftursmanna og átti hvert skotið af
öðru en boltinn vildi hreinlega ekki
inn. Hlynur Stefánsson var mjög góð-
ur í liði ÍBV ásamt Inga Sigurðssyni.
Á 90. mínútu leiksins tók Steinn
Viðar og klippti Jóhann Möller niður
þegar hann var á leiðinni aö mark-
inu en hann átti eftir að fara í gegn-
um þrjá vamarmenn Leifturs. Garð-
ar Óm dæmir aukaspymu réttilega
og rekur Stein út af með beint rautt
spjald. Liðsmenn Leifturs voru ekki
sáttir við þessa ákvörðun og töldu að
rautt spjald hefði verið ósanngjarnt.
Lánleysið heldur áfram hjá Leiftri.
Steinn Viðar að fara í bann, Hlynur
Birgis meiddur, ekki tekst að skora
og fall blasir við Ólafsfirðingum.
„Ég er ánægður með þrjú stigin en
mjög óánægður með leikinn. Ég er
virkilega ósáttur við okkar leik í dag.
Við spilum ekki eins og lið og við
verðskulduðum engan veginn þrjú
stig í dag. Leiftursmenn voru miklu
grimmari og vora að vinna návígin
og átti Leiftur frekar skilið þessi þrjú
stig en við en þetta er svona með lið
eins og Leiftur þar sem mótbyr hefur
verið í allt sumar og falldraugurinn
búinn að vera lengi yfir þeim. Það
virðist einkenna svona lið að þau
hafa ekki heppnina með sér eins og
kom á daginn í dag,“ sagði Hlynur
Stefánsson eftir leikinn.
-JJ
Leiftur-IBV 0-1
Hálfleikur: 0-1 Leikstaóur: Ólafsfjarðarvöllur. Áhorfendur: 150.
Dómari: Garöar Öm Hinriksson (2). Gœöi leiks: 4.
Gul spjöld: Ingi Hrannar, Þorvaldur Petersen, Hörður Már (Leiftri).
Rautt spjald: Steinn Viðar (Leiftri)
SkoU 14-14. Hortu 4-7. Aukaspyrnur fengnar: 8-7. Rangstööur: 3-0.
Mörkin: 0-1 Goran Aleksic (38., fylgdi eftir misheppnuðu skoti Steingríms
Jóhannessonar eftir góða fyrirgjöf Inga Sigurðssonar)
Maður leiksins: Ingi Sigurðsson, ÍBV
KR vann Fylki, 2-1, í toppslagnum í vesturbænum:
- sigurmark Andra Sigþórssonar galopnaði toppbaráttun