Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
Fréttir DV
Umhverfisráðherra sagður stefna milljarðafiskeldi í óvissu:
Gangnamaður:
Ágreiningur er milli lögfræðinga
umhverfisráðuneytisins og lög-
manna Djúpavogshrepps um það
hvort starfsleyfi nýrrar laxeldis-
stöðvar Salar Islandica við Beru-
fjörð skuli háð nýjum lögum um
umhverfismat. Umhverfisráðuneyt-
ið hefur úrskurðað að stöðin, sem á
að veita 60 manns atvinnu, sé mats-
skyld. Rúmir fjórir mánuðir eru síð-
an sótt var um starfsleyfið og það er
mat heimamanna aö verið sé að
stefna framkvæmdinni í óvissu með
seinagangi og töfum. Málið er nú
hjá skipulagsstjóra eftir að um-
hverfisráðuneytið úrskurðaði að
þangað skyldi það fara. Mögulegt er
að umhverfisráðuneytið fái þaö aft-
ur til úrskurðar ef einhver unir
ekki niðurstöðu skipulagsstjóra.
Það er því óhætt að segja að starfs-
- segir Siv Friðleifsdóttir
leyfi laxeldisstöðvarinnar sé á
hringsóli um kerfið.
„Við fórum yfir málið lögfræði-
lega og úrskurðuðum að fara bæri
eftir nýju lögunum og þessi fram-
kvæmd væri tilkynningarskyld til
skipulagsstjóra," segir Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra
vegna þeirrar hörðu gagnrýni sem
fram kom hjá Ólafi Ragnarssyni,
sveitarstjóra á Djúpavogi, í DV.
Sveitarstjórinn lýsti því að tveggja
milljarða fjárfesting norskra aðila í
risalaxeldisstöð í Berufirði kynni
að vera í uppnámi vegna þess að
kerfið þvældi umsókn um starfs-
leyfi fram og til baka. Fárfestar
væru farnir að ókyrrast vegna
þessa. Hann benti á að sótt hefði
verið um starfsleyfið þremur vik-
um áður en ný lög um umhverfis-
Siv Friðleifsdóttir
- nýju lögin
gilda.
Olafur
Ragnarsson
- gömlu lögin
gilda.
mat tóku gildi og því hefði átt að af-
greiða umsóknina samkvæmt
gömlu lögunum en ekki þeim nýju
svo sem gert er. Siv stendur hörð á
því að ráðuneyti hennar standi rétt
að málum.
„Það var sótt um starfsleyfi og
ekki var hægt að afgreiða það á
þessum skamma tíma ef miðað er
við umfang málsins. Lögfræðileg
niðurstaða okkar var því sú að
vinna skyldi samkvæmt nýju lögun-
um,“ segir Siv sem vill ekkert segja
um það hver sín skoðun sé á því
hvort gefa eigi Salar Islandica
starfsleyfið.
„Ég get ekkert sagt um málið þar
sem það mun koma aftur til úr-
skurðar hjá mínu ráðuneyti ef úr-
skuröur skipulagstjóra verður
kærður," segir Siv og vill forðast að
verða vanhæf.
„Við treystum því að skipulags-
stjóri heimili þessa framkvæmd og
þessari vitleysu fari að linna,“ sagði
Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri í
gær.
-rt
Einstæð móðir býr með börnum sínum í skemmdu húsi á Skeiðum:
Sváfu á brettum í fýrrinótt
- ofboðslegur raki, segir Ann Winther sem er barnshafandi
DV+ÍYND NH
I óvissu
Ann Whinther og Anton, 3 ára sonur hennar, búa í stórskemmdu húsi á
Skeiöum og sofa í gámi - á brettum.
DV, SUDURLANDI______________________
„Þegar kominn er svona mikill
munur á hita dags og nætur þá er
ofboðslegur raki inni í gámnum.
Þegar ég vaknaði í gærmorgun og
lyfti upp dýnunum voru pollar und-
ir þeim. í gærkvöld þegar viö fórum
að sofa fékk ég mér bretti og setti
undir þær til að halda þeim þurr-
um,“ segir Ann Winther í Borgar-
koti á Skeiöum.
Bær Ann var einn þeirra sem stór-
skemmdust í jarðskjálftanum 21.
júní. Fljótlega eftir skjálftann kom
gámur frá Rauða krossinum á hlaðið
hjá Ann þar sem fjölskyldan sefur á
nóttunni en þau hafast við í húsinu
yfir daginn. Hluti af því er það mik-
ið skemmdur að ekki er talið óhætt
að sofa í því. Ann býr í Borgarkoti
með bömum sínum eftir að hún
skildi við mann sinn í vetur. Hún á
von á bami í byrjun október og þá
bætist við einn fjölskyldumeðlimur.
„Við verðum að hafa gluggana opna
og nú er sonur minn 3 ára orðinn
kvefaður. Við sofum ágætlega í gámn-
um en það er svo rakt. Það er hægt að
klæða sig frá kuldanum en rakinn
smýgur alls staðar," segir Ann.
Nú þegar nætumar lengjast verða
aðstæðurnar í Borgarkoti enn verri
og röskunin mikil á heimilishögum.
„Ég get ekki farið með drenginn
út klukkan sjö á kvöldin og lagt
hann niður og farið svo inn sjálf,
hann er útkeyrður eftir daginn á
leikskólanum og þarf að fá nægan
svefn. Mig langar ekkert að fara að
sofa klukkan sjö. Það er heldur ekki
hægt að láta barnið sofna hér inni
og bera hann út sofandi seinna um
kvöldið enda stækkar maginn á mér
stöðugt og þaö er orðið þungt að
bera hann,“ segir Ann.
Hún hefur meðal annars haft at-
vinnu af tamningu hrossa og hefur
fengið sér til hjálpar vinnukonur til
að sjá um heimilið eða til hjálpar í
hestunum en nú er það ekki verið
hægt vegna plássleysis. „Ég hefði til
dæmis viljað geta haft einhverja hér
til að þurfa ekki að rifa hann upp
eldsnemma á morgnana."
Enginn tók af skarið
Ann hefur búið á Suðurlandi í ell-
efu ár og þrátt fyrir erfiðleika og
hamfarir náttúrunnar er hún ekki á
leið í burtu. „Þaö gat allt gerst, hús-
ið brunnið eða eitthvað, en mér
finnst þessi silagangur vera ferleg-
ur,“ sagði Ann.
Viðgerðir á húsi hennar áttu að
hefjast í síöustu viku en ekkert ból-
ar á framkvæmdum. Aðstæður upp
til sveita bjóða ekki upp á að fólk
geti flutt sig í næsta hús á meðan
viðgerðir fara fram. Fólk getur farið
í næsta bæjarfélag en þá fer ýmis-
legt úr skorðum.
Ann fær rúmar fjórar milljónir til
að gera við húsiö sitt. Hún telur að
það verði hægt aö koma því í betra
horf en það var fyrir skjálftann fyr-
ir þann pening. -NH
Fékk hross-
ið yfir sig
Gangnamaður sem var ásamt
hópi manna á leið inn að Langa-
vatni í Borgarhreppi varð fyrir því
óhappi að hestur hans hnaut. Mað-
urinn, sem er á fertugsaldri, féll af
baki og varð undir hestinum. Slysið
átti sér stað á sjötta tímanum í gær.
Sjúkrabíll og læknir frá Borgamesi
komu á vettvang og var maðurinn
fluttur til aðhlynningar á Sjúkrahús
Akraness. Að sögn læknis á vakt á
sjúkrahúsinu er maðurinn fótbrot-
inn og þarf að gangast undir aðgerð.
-aþ
Harður árekstur
Tveir jeppar skullu saman á vegin-
um aö Dyrhólaey siðdegis á laugar-
dag. Alls voru fimm manns í bílun-
um tveimur og þurfti aö ftytja þrjá
meö sjúkrabíl til Reykjavíkur. Meiösl
fóiksins reyndust minni háttar. Veg-
urinn aö Dyrhólaey er malarvegur en
aö sögn lögreglu í Vík voru aksturs-
skilyröi góö þegar óhappiö varö.
Jepparnir tveir eru mikiö skemmdir
og jafnvel taldir ónýtir.
Innbrot í Kópavogi:
Gómaðir
glóðvolgir
Lögreglumenn í Kópavogi og
Hafnarfirði komu upp um innbrots-
þjófa í gærmorgun. Forsaga málsins
er sú að brotist var inn í fyrirtæki
við Engihjalla í Kópavogi aðfaranótt
sunnudagsins. Þegar lögreglumenn
komu á vettvang voru þjófamir á
bak og burt. Þeir munu ekki hafa
stolið miklu en þess í stað valdið
nokkrum skemmdum innandyra.
Þegar líða tók á sunnudagsmorgun
urðu lögreglumenn í Hafnarfirði
varir við grunsamlega menn í
sendibíl og við nánari eftirgrennsl-
an kom í ljós að þar voru þjófamir
á ferð. Málið er þó enn í rannsókn
hjá lögreglunni i Kópavogi.
-aþ
Veftrjö í kvöld
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólartag í kvöld 19.42 19.28
Sólarupprás á morgun 07.02 06.49
Síödegisflóð 21.14 01.47
Fremur kalt
Slydduél veröur noröaustanlands en annars
bjart veöur í öðrum landshlutum. Þaö veröur
fremur kalt, 1 til 7 stig.
Ardegisflóö á morgun Ö9.39 14.12
á veðuitáknum
K-vindátt 10°j-hiti -10°
VINDSTYRKUR i metrum á sekúndu ^FROST HEiÐSKÍRT
•&> Cv €>■ O
IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAD SKÝJAÐ AISKÝJAO
%í ©
RiGNiNG SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA
Hr
ÉUÁGANGUR ÞRUMD- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Góð færö um allt land .
Þjóövegir landsins eru greiöfærir.
Hálendisvegir eru flestir færir stærri
bílum ogjeppum. Vegurinn í
Hrafntinnusker er enn lokaöur. Vegur
F88 í Heröubreiöarlindir er líka lokaöur.
Minnkandi norðanátt
Minnkandi noröanátt veröur sunnan- og austanlands en hæg breytileg átt
norövestan til. Léttskýjað veröur sunnan- og vestanlands en smáskúrir
austanlands. Hiti veröur 3 til 10 stig aö deginum, mildast suðvestan til.
Vindur:
5-10
Hiti6° ti112°
Fremur hæg breytlleg átt
og víöa bjart veöur en
norðaustan 5-10 m/s og
skúrir vlö suöaustur-
ströndlna. Hltl 6 tll 12
stlg.
Vindur: 'p' '-v. Vindur:^'"'' ' '-v
Hiti 6ð til 13° «Víf Hiti 6° till3”
Austlæg átt, rlgnlng meö Austlæg átt, rlgnlng meö
köflum sunnan- og köflum sunnan- og
austanlands og hltl á austanlands og hiti á
blllnu 6 tll 13 stlg. blllnu 6 tll 13 stig.
Fostud'í
Fimmtu
AKUREYRI úrkoma 5
BERGSSTAÐIR skýjað 4
BOLUNGARVlK slydduél 2
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 8
KEFLAVÍK skýjað 6
RAUFARHÖFN súld 5
REYKJAVÍK léttskýjað 5
STÓRHÖFÐI úrkoma 7
BERGEN rigning 11
HELSINKI léttskýjaö 15
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 16
ÓSLÓ skýjaö 15
STOKKHÓLMUR 15
ÞÓRSHÖFN rigning 11
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 16
ALGARVE hálfskýjað 24
AMSTERDAM súld 16
BARCELONA alskýjaö 23
BERLÍN alskýjaö 13
CHICAGO heiöskírt 14
DUBUN alskýjaö 16
HAUFAX léttskýjaö 12
FRANKFURT skýjað 17
HAMBORG þokumóöa 14
JAN MAYEN skúr 3
LONDON skýjaö 17
LÚXEMBORG rigning 13
MALLORCA skýjaö 30
MONTREAL skýjaö 12
NARSSARSSUAQ hálfskýjaö 4
NEW YORK heiöskírt 13
ORLANDO rigning 21
PARÍS skýjaö 18
VÍN hálfskýjaö 19
WASHINGTON heiöskírt 8
WINNIPEG heiöskírt 5