Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Side 8
8 MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000 Fréttir Hrun félagslega íbúðakerfisins „sem grenjað var út“ á Vestfjörðum: Martröð sveitar- stjórnarmanna - heilu blokkirnar byggðar á fölskum forsendum og fólksflótti bætir ekki úr skák „Ýmis sveitarfélög á Vestfjörðum fóru offari í uppbyggingu félagslegra íbúða fyrir nokkrum árum, aðallega til að halda uppi atvinnu fyrir bygg- ingaraðila á stöðunum. Það er megin- ástæða þess að félagslegar íbúðir eru nú að sliga sveitarfélögin þar vestra. Byggðastofnun og stjóm Húsnæðis- stofnunar, sem úthlutaði félagslegum ibúðum á grundvelli faglegrar úttekt- ar um íbúðaþörf á landinu, þurftu ár eftir ár að þola skammir og aftur skammir sveitarstjómarmanna og þingmanna kjördæmisins sem grenj- uðu út ileiri félagslegar íbúðir fyrir sveitarfélögin á Vestfjörðum." Þessi orð mátti sjá á heimasíðu Jó- hönnu Sigurðardóttur alþingismanns í framhaldi af umræðu í DV um vanda sveitarfélaga vestur á fjörðum. Og Jóhanna heldur áfram: Heimtuðu pólitísk afskipti „Þannig var ár eftir ár kveinað og kvartað við þingmenn Vestfjarða þeg- ar sveitarfélögin fyrir vestan fengu litlu eða engu úthlutað, en sú ákvörð- un var byggð á faglegu mati um að ekki væri skynsamlegt að fjölga fé- lagslegum íbúðum á Vestfjöröum. Allt ætlaði hreinlega af göflunum að ganga þegar ekki átti að úthluta neinni íbúð eins og á Vestfirði og sveitarstjómar- menn kjördæmisins heimtuðu póli- tísk afskipti af úthlutun íbúðanna og breyting á þegar gerðum úthlutunum á félagslegum íbúðum." Ekki svona einfalt Ekki em allir kátir með orð Jó- hönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra. Sveitarstjómar- menn vestra telja margir að hún fari þama með fullmikla einföldun á mál- inu. Það sé afskaplega auðvelt að koma nú tíu til funmtán árum seinna sem sakleysið uppmálað. Staðan hafi verið gjörólík í atvinnumálum og bú- setuhorfum á Vestfjörðum á þessum árum. Víða hafi verið oröinn svo þröngt setinn bekkurinn að engar íbúöir var að fá, hvorki til leigu né kaups. Þannig hafi staðan verið víða, hvort heldur var á Patreksfirði, ísa- firði, í Bolungarvík eða i öðrum pláss- um. Mikili fjöldi fólks hafi verið flutt- ur inn á svæöið í fiskvinnslu og til annarra þátta, svo sem kennslu í grunnskólum. Þetta fólk hafi þurft íbúðir og um tíma var t.d. húsaleigu- verð á ísafirði síst lægra en í Reykja- vík og í sumum tilfellum mun hærra vegna mikillar eftirspumar. Vegna íbúðaskorts hafi menn einmitt óttast það mest að missa fólk af svæðinu sem gjaman vildi vera áfram. Þetta hafi knúið á um byggingu íbúða, og þá sér í lagi leiguíbúða. Bæjaryfirvöldum á ísafirði var t.d. legið á hálsi að standa ekki í stykkinu varðandi út- vegun nýrra lóða. Eigi að síður veigraði allur almenningur sér enn við að leggja peninga sína i nýbygg- ingar. Því var horft til félagslega hús- næðiskerfisins og lagst þungt á þing- menn að knýja ffarn lausn á málinu. í upphafi skyldi endirinn skoða Jóhanna heldur áfram í netpistli sínum: „Helst má þó skilja af umræð- unni nú um fjárhagslega erfiðleika sveitarfélaga vegna félagslegra íbúða að íbúðunum hafi verið þröngvað upp á sveitarfélögin og þau beri enga ábyrgð á því hvemig komið er. En svo sannarlega bera þau ábyrgö því fyrst og fremst var verið að halda uppi atvinnubótavinnu fyrir bygging- araðila á staðnum fremur en hags- muni láglaunafólks, enda vom íbúð- Höröur Kristjánsson blaðamaður imar iðulega seldar á okurverði. Óráðsían í uppbyggingu félagslegra íbúða á Vestfjörðum hefur verið al- hæfð yfir allt landið og meira að segja notuð fyrir þremur árum til að leggja niður félagslega íbúðakerfið. Þá var af stjómarliðum mikið gert með að fé- lagslegar íbúðir stæöu lausar um allt land. Staðreyndin var þó sú að af um 11 þúsund félagslegum íbúðum höfðu aðeins 266 staðið lengur auöar en 2 mánuði, þar af tæplega 100 á Vest- fjörðum og nánast engin á öllu höfuð- borgarsvæðinu. Þannig er nauðsyn- legt að þeir sem ábyrgðina bera líti í eigin barm nú þegar allt er komið í óefni og gleymi ekki að í upphafi skyldi endirinn skoða.“ Héldu að þetta fsri ekki svona Sveitarstjómarmenn vestur á fjörð- mn hafa sumir viðurkennt að nokkuð geti verið til í orðum Jóhönnu um að íbúðir hafi verið „grenjaðar út“ eins og hún orðar það. Menn benda þó á, væntanlega sér til málsbóta, „að eng- an hafi órað fyrir að gamla húsnæðis- kerfið myndi ganga sér til húðar inn- an fárra ára. Það hafi heldur aldrei verið ætlunin að sveitarfélögin sætu uppi með íbúðimar og tækju rekstur þeirra á sínar herðar." Þá er líka bent á að fækkun íbúa og minnkandi tekj- ur sveitarfélaga í kjölfar þess, ásamt gríðarlegum flutningi á kvóta og at- vinnutækifærum frá Vestfjörðum, sé í raun höfuðorsök vandans. Ef það hefði ekki gerst þá væri enginn að velta sér upp úr vandamálum í dag. Þrjár blokkir á fölskum for- sendum Bygging félagslegra íbúða var vissulega aðferð sem beitt var til að halda byggingariðnaðinum gangandi eins og Jóhanna bendir á. Jafnvel var gengið svo langt að á ísafirði var stofnað Byggingafélag ísafjarðar fyrir rúmum áratug að frumkvæði bæjar- stjómarmanna og athafnamanna og stýrt af þáverandi bæjarstjóra. Sent var út boð til fyrirtækja á staðnum sem sárvantaði á þeim tíma leiguhús- næði fyrir sitt starfsfólk. Lagt var að þeim að þau sameinuðust um þátt- töku í byggingafélaginu. Fullyrt var að félagið fengi heimild til að byggja íbúðir á félagslegum gmnni og fengi lán úr félagslega íbúðakerfinu. Fyrir orð bæjarstjórans og þeirra sem við hlið hans stóðu var lagt upp með þetta og framkvæmdir hafnar. Þetta var gert þrátt fyrir að bent væri á að það stæðist ekki lög að veita fyrirtækjum lán á félagslegum forsendum til íbúða- kaupa. Allar slikar mótbárur vom þaggaðar niður. Á ísafirði var farið af stað með krafti og fullyrða má að þrjár blokkir að minnsta kosti hafi verið byggðar á fólskum forsendum og i besta falli fyr- ir hreinan misskilning. Þegar leið að lokum byggingartíma var ljóst að félagslega húsnæðiskerfið gæti ekki sveigt lögin að kröfu bygg- ingafélagsins, þrátt fyrir að miklum þrýstingi sveitarstjómarmanna væri beitt. Fór því svo að í það minnsta tveir byggingaverktakar kollsigldu sig vegna þessara bygginga. Eftir stóð fjöldi íbúða sem reyndust allt of dýrar til að þær væm seijanlegar á almenn- um markaði. Reynt var að klóra í bakkann eftir að byggingafyrirtækin lögðu upp laupana. Á endanum tókst að koma þessu inn í félagslega hús- næðiskerfið og selja í það minnsta hluta íbúðanna til einstaklinga. Enn sem fyrr reyndust þær þó allt of dýr- ar og sumar svo illa frágengnar að kaupendurnir gáfust flestir upp. Flóttamenn keyptu ekki heldur Heil blokk við Pollgötuna á ísafirði stóð því nær ónotuð og til reiðu þegar ákveðið var að taka við 30 flóttamönn- um frá Júgóslavíu. Þetta fólk var í raun happafengur fyrir rekstur þess- ara íbúða sem hvíldu eins og mara á sveitarfélaginu. Gældu menn við að þessir nýju íslendingar keyptu íbúð- imar í framhaldinu. Flóttamennfrnir frá Júgóslavíu lærðu fljótt á vestfirsk- an veruleika. Þeir áttuðu sig á að verð íbúðanna var allt of hátt og forðuðu sér úr þeim eins fljótt og kostur var. Sumir keyptu annað húsnæði en á endanum tóku þeir þátt í fólksflóttan- um suður. Kerfið oröiö aö martröö Saga félagslegra íbúðabygginga á íslandi er um margt merkileg. Víst er að hugsjónimar sem að baki lágu áttu fullan rétt á sér og neðra Breiðholtið í Reykjavík er stór minnisvarði um þá byltingu sem þetta olli í húsnæðismál- um mikils fjölda íslendinga. Víst er þó að á ferlinum hafa verið gerð mörg stór mistök og með nokkrum sanni má líkja húsnæðiskerfinu við bylting- una þegar sagt er að hún hafi étið bömin sín. Aðstæður á höfuðborgar- svæðinu hafa þó verið allt aðrar og betri til að leysa úr vanköntum kerfis- ins en í öðmm landshlutum. Fólks- fækkun og tekjuskerðing sveitarfé- laga virðist hins vegar hafa gert fé- lagslega íbúðakerfið að martröð sveit- arstjómarmanna víða um land. Gítarinn etif. v Laugavegi 45. --- ---V 5 m: frá 9.900 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.