Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
I>V
Fréttir
Blönduós og Engihlíöarhreppur í sameiningarviðræður:
Stef nt að kosn-
ingu í vetur
Hreppsnefnd Engihlíðarhrepps
samþykkti á fundi sínum nýlega að
óska eftir viðræðum við bæjar-
stjórn Blönduóss um sameiningu
sveitarfélaganna. Bæjarstjórn
Blönduóss tók erindið fyrir nú í
vikunni og samþykkti á fundi sín-
um að stefnt skyldi að því að kjósa
um sameininguna I vetur.
Valgarður Hilmarsson, oddviti
Engihliðarhrepps, segist hafa orðið
þess var að ýmsir í hreppnum telji
að til sameiningar i héraðinu þurfi
að koma en kannski hafi ekki ver-
ið uppi á borðinu til þessa svona
lítil sameining. Valgarður segist
ekkert vita um það hvort meiri-
hluti verði í hreppnum fyrir sam-
einingu við Blönduós en væntan-
lega muni það ráðast mikið af því
hvaða þjónusta verði í boði fyrir
hreppsbúa. í Engihlíðarhreppi búa
um 70 manns. Valgarður segir að
það sé orðið mjög erfitt að reka
svona litlar einingar vegna þess að
verkefnin sem sveitarfélögunum sé
ætlað að sjá um séu orðin það mörg
að þau ráði ekki við þau nema
stofna um þau byggðasamlög og
það leiði af sér mjög þunglamalega
og stirða stjómun. „Kerfið verður
ákaflega þunglamalegt og þau eru
orðin mörg byggðasamlögin, mað-
ur hefur varla á þeim tölu, og svo
er það héraðsnefndin," segir Val-
garður.
„Ég held að ef eitthvað á að ger-
ast í þessum málum fyrir næstu
kosningar þá verði það á þessum
vetri,“ segir Valgarður sem á von á
því að viðræður við Blönduós muni
hefjast fljótlega eftir að göngur og
réttir og mestu haustannir verði af-
staðnar. Aðspurður hvort þessi
sameining, ef af yrði, mundi leiða
af sér stærri sameiningar á svæð-
inu sagðist Valgarður ekki geta
spáð fyrir um það en sjálfsagt yrði
það til að auka umræðuna. Að
hans mati hefur engin alvara verið
í sameiningarumræðunni í A-
Húnavatnssýslu til þessa.
Einmitt í þessu sambandi má
nefna vandræðaganginn í sam-
bandi við Vindhælishrepp síðustu
árin en hann hefur verið undir
„leyfilegri" tölu í mörg ár og hefði
átt að vera búinn að sameinast
öðru sveitarfélagi fyrir mörgum
árum. Það hefur ekki gengið og
málið verið í höndum ráðuneytis í
nokkur misseri án þess að á þvi
hafi fundist lausn. -ÞÁ
DV-MYND DANlEL V. ÓLAFSSON
Gömul vinnubrögð
Ullarselskonur 1 fallegum lopapeysum sem bera vott um gott handverk. í
selinu eru gömlu vinnubrögöin í heiöri höfö.
Ullarselið á Hvanneyri nýtur vinsælda og þar eru gömul handbrögð í heiðri höfð:
Kemba, spinna, flækja og vefa
DV. HVANNEYRI:________________________
Ullarselið á Hvanneyri virðist
vera vinsælt meðal ferðamanna og
salan hefur aukist ár frá ári. í fyrra
var selt fyrir 2 milljónir króna og
stefnir í enn meiri veltu á þessu ári.
Ullarselinu á Hvanneyri var komið
á fót haustið 1992, sem þróunar-
verkefni, að tilstuðlan Bændaskól-
ans á Hvanneyri, Búnaðarsamtaka
Vesturlands og kvenfélagasamband-
anna á Vesturlandi.
Ullarselið hefur það markmið að
framleiða gæðavörur úr úrvalsull
og ýmiss konar handverk úr nátt-
úrulegu hráefni, s.s. kanínufiðu,
bómull, skeljum, hornum, tré og
leir. Vörumar eru til sölu í Ullarsel-
inu á Hvanneyri og eru 20-30 hand-
verksmenn úr héraðinu þar með
muni sína til sölu.
Ullarselið er einnig vinnustofa
fólks af Vesturlandi í ullariðn þar
sem gömul vinnubrögð við ullar-
vinnslu eru notuð. í vinnustofunni
er handverkið haft í hávegum. Þar
er meðal annars kembt, spunnið,
prjónað, flækt, ofið og spjaldofið.
Ullarselið er opið á sumrin alla
daga, frá 13-18 en á veturna er opið
á mánudögum og fimmtudögum en
þá hittast félagsmenn i vinnustof-
unni og vinna saman. Að sögn
þeirra Ullarselskvenna koma marg-
ir hópar og kaupa vömr þar. -DVÓ
Rafstöðvar
Mikið ún/al bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
Mosfellsbær:
Áhyggjur af
niðurskurði
til vegamála
DV, MOSFELLSBÆ:
Bæjarstjóm Mosfellsbæjar hefur
miklar áhyggjur af áformuðum nið-
urskurði í vegamálum á höfuðborg-
arsvæðinu. Samþykkt var að senda
stjórnvöldum svohljóðandi ályktun
vegna þessa.
„Bæjarstjórn Mosfellsbæjar lýsir
áhyggjum sínum af fyrirhuguðum
niðurskurði á framkvæmdum við
mislæg gatnamót Vikurvegar og
Vesturlandsvegar sem boöaður er í
drögum að fjárlagafrumvarpi fyrir
Vegaframkvæmdir
Mosfellingar hafa áhyggjur af þeim
niöurskuröi sem áformaöur er í
vegamálum.
næsta ár. Viljum við benda á að
mikil uppbygging á sér nú stað í
Grafarholti, Grafarvogi og Mosfells-
bæ og ljóst að gatnamótin anna ekki
þeirri umferð sem fylgir hinni
miklu fjölgun íbúa á þessum upp-
byggingarsvæðum. í ljósi þessa lýs-
ir bæjarstjórn jafnframt yfir áhyggj-
um sínum um framhald tvöföldunar
Vesturlandsvegar til Mosellsbæjar
samkvæmt vegaáætlun."
Tillagan var samþykkt samhljóða
og send samgönguráðherra og fjár-
málaráðherra. Samþykktin er mjög
í anda þeirra umræðna sem að und-
anfórnu hafa verið í bæjarfélaginu
og á höfuðborgarsvæðinu vegna
tíðra umferðarslysa á Vesturlands-
vegi undanfarin ár, ekki síst sl. vet-
ur. -gg
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Þau eru heppln
Þessir krakkar á leikskólanum Garöaseti hafa leikskólapláss. 26 önnur bíöa eftir plássi.
Sjálfstæðismenn vilja eyða biðlistum við leikskólana:
26 börn bíða eftir plássi
DV, AKRANESI:_______________________
A fundi bæjarstjómar Akraness
í vikunni lögðu sjálfstæðismenn
fram tillögu um að byggt verði við
leikskóla á Akranesi þar sem mik-
ill biðlisti er eftir plássi. Tillagan
gerir ráð fyrir að bæjarstjóra, leik-
skólafulltrúa og byggingarfulltrúa
verði falið að skoða hvort hag-
kvæmara sé að stækka leikskólann
Vallarsel eða leikskólann Garðasel.
Meta skal hvort sé hagkvæmara að
byggja eina deild við hvorn skóla,
eða tvær við annan.
Vinnu þessari á að Ijúka það tím-
anlega að hægt verði að taka tillit
tO þessara mála við gerð fjárhagsá-
ætlunar.
Sjálfstæðismenn segja í greinar-
gerð með tillögu sinni að ljóst sé að
mikil þörf sé fyrir aukið leikskóla-
pláss á Akranesi - biðlistar séu í
samræmi við það. Núna bíða 26
börn eftir plássi.
Einnig er talið ljóst, miðað við
þróun undanfarinna missera, að
biðlistar muni lengjast frekar en
hitt, og því nauðsynlegt að taka
ákvörðun um næstu skref í fjölgun
leikskólaplássa á Akranesi sem
fyrst.
Tillagan var afgreidd til bæjar-
ráðs. -DVÓ