Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Page 11
Jiu Jitsufélag Reykjavíkur hoimasiöa. littp:www.wjif.com/iceland MANUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000 I>V Fréttir Mosfellsbær: Jón á Reykjum heiðursborgari DV, MOSFELLSBÆ:___________ A fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 30. ágúst sl. var samþykkt að Jón M. Guðmundsson á Reykjum, fv. oddviti um langt skeið, yrði gerður að heiðursborgara Mosfells- bæjar. Svohljóðandi tillaga var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum: „Bæjar- stjóm Mosfellsbæjar sam- þykkir að Jón M. Guðmundsson verði gerður að heiðursborgara Mosfellsbæjar. Með því móti vill bæjarstjóm f.h. Mosfellsbæjar láta í ljós þakklæti sitt og viðurkenningu á hinu mikilvæga framlagi Jóns til Jón M. Guðmundsson. uppbyggingar sveitarfélags- ins en Jón var oddviti Mos- fellshrepps frá árinu 1962 til 1981, á miklum umbrotatím- um í sögu sveitarfélagsins, og hreppstjóri frá árinu 1984 til 1990. Auk þess hefur hann tekið virkan þátt í félags- starfl innan og utan sveitar- félagsins og lagt þar drjúgt af mörkum. Nafn hans hefur verið samoílð sögu sveitarfélagsins um áratugaskeið og þykir vel við hæíl að Mosfellsbær votti honum virð- ingu sína með þessum hætti nú þeg- ar 80 ára afmæli hans stendur fyrir dyrum þann 19. september nk.“ -gg SMlUFWiflWO JIU JITSU Nú er rétti tíminn að læra eitthvað nýtt ! Jiu Jitsu er sjálfsvörn ekki keppnisíþrótt. Jiu Jitsu er eflir sjálfstraust. Jiu Jitsu er fyrir alla. ! SB 863-2801 & 863-2802 Ármann Einholti 6 Rvk Mánud. kl 19:30 Fimtud. kl 19:30 IR Heimilið Skógarsei 12 Rvk Þriðjud. kl 21:00 Fimtud. kl 21:00 FRÍR PRUFUTÍMIKOMDU OG PRÓFÁÐU Úttekt Landsbjargar á fyrstu 7 mánuðum ársins: Tuttugu og fimm hafa látist af slysförum - þar af fimmtán manns í umferðarslysum Tuttugu og fimm manns létust af slysfórum hér á landi á fyrstu sjö mánuðum ársins samkvæmt nýrri samantekt Slysavamafélagsins Landsbjargar. Langstærstur er hóp- ur þeirra sem látist hafa í umferðar- slysum á þessu tímabili, eða fimmt- án manns. Fimm fórust í sjóslysum eða drukknunum og fjórir af völdum annarra slysa. Þar með eru m.a. tal- in tvö vélsleðaslys og fall af vinnu- palli. Einn lést i bilslysi erlendis. Skipting milli kynja í umræddum slysum er þannig að fimm karlar lét- ust í sjóslysum og vegna drukknana en engin kona. í tólf umferðarslysum létust tólf karlar og fjórar konur. í ýmsum slysum létust þrír karlar og ein kona. Séu fyrstu sjö mánuðir ársins 1999 tekir til samanburðar hvað þetta varðar þá höfðu nítján látist af völd- um slysa á því tímabili. Þar af létust karl og kona í tveimur sjóslysum og drukknunum, níu karlar og fjórar konur létust í þrettán umferðarslys- um og þrir karlar og ein kona af völdum annarra slysa. -JSS DV-MYND DANIEL V. OLAFSSON Slá ekkí af Þær eru hörkuduglegar, konurnar í þvottahúsinu á Höföa og slá ekki af. Á myndinni eru, taliö frá vinstri: Jóna Björk Guömundsdóttir og Vilborg Guöjónsdóttir Dauöasly - frá 1. jan. til 31. úlí 1999 og 2000 Sjóslysog dmkknanir Duglegri en á lægri launum - þvottahús elliheimilisins gæti lækkað kostnað DV, AKRANESl: Að undanfornu hefur ráðgjafar- fyrirtækið Deloitte & Touche unnið að skýrslu um hugsanlegt samstarf Dvalarheimiliins Höfða og Sjúkra- húss Akraness og heilsugæslustöðv- ar. Þar er meðal annars tekið út þvottahús, eldhús og ræsting. í niðurstöðum fyrir þvottahús Dvalarheimilisins Höfða kemur fram að kostnaður við þvott á Dval- arheimilinu Höfða er í lægri kantin- um miðað við aðra aðila sem ráð- gjafar hafa unnið fyrir. Munar þar mest um launakostnað starfsmanna. Afköst á hvern starfsmann á Höfða eru sögð 27% meiri en á sjúkrahús- inu. Þá er launakostnaður á hvert stöðugildi 17% lægri á Höfða en á sjúkrahúsinu. Þá segir að lækka mætti þvottakostnað sjúkrahússins um 19% við að Höfði þvægi fyrir sjúkrahúsið á óbreyttu einingar- verði. -DVÓ DV-MYND DANÍEL V. ÓUFSSON Buslað og buslaö Þessir ungu drengir kunna vel viö sig í lindinni á Langasandi. Volg lind á Langasandi DV, AKRANESI:______________________ í framhaldi af umræðum í stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar og Akranesveitu um að nýta af- fall hitaveitunnar á Langasandi hef- ur verið útbúin volg lind á sandin- um neðan Jaðarsbrautar. í lindinni er nýtt affallsvatn frá Jaðarsbakkalaug hitað upp með vatni frá hitaveitunni og kunna gestir á sandinum að nýta sér lind- arvatnið í sturtunni til að skola af sér sand og salt. Einnig er vinsælt á góðviðrisdög- um að leika sér við volga lækjar- sytru sem rennur frá lindinni eftir sandinum til sjávar. Þegar vetrar verður skrúfað fyrir lindina en hún verður væntanlega látin renna aftur næsta vor. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.