Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Page 13
13
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000_
3Útlönd
Fujimori Perúforseti boöar nýjar kosningar og ætlar ekki fram:
Lét undan þrýstingi
vegna hneykslismáls
Mikill fögnuður ríkti í gær í her-
búðum andstæðinga Albertos Fuji-
moris Perúforseta með þá ákvörðun
hans að bjóða sig ekki fram í kosn-
ingum sem hann boðaði óvænt til á
laugardagskvöld. Margir óttast þó
að pólitískt tómarúm kunni að
skapast í landinu. Jafnframt til-
kynnti Fujimori að hann ætlaði að
leysa leyniþjónustuna upp.
Fujimori kom þjóð sinni í opna
skjöldu þegar hann tilkynnti um
kosningamar i útvarps- og sjón-
varpsávarpi. Stjórnmálaskýrendur
segja að með ákvörðun sinni hafl
forsetinn látið undan þrýstingi
vegna hneykslismáls sem hefur
skekið leyniþjónustu landsins. Til
er myndbandsupptaka sem sýnir
hvar yfirmaður leyniþjónustunnar
mútar þingmanni stjórnarandstöð-
unnar til að styðja forsetann.
Margir hafa áhyggjur af til hvaða
aðgerða her Perú kunni að gripa en
í gær var allt með kyrrum kjörum í
bækistöðvum hersins um land allt.
Talið er að yfirmaður leyniþjónust-
unnar hafi fengið yfirmenn hersins
á band Fujimoris.
Þúsundir ofsakátra andstæðinga
forsetans þustu út á götur og torg
höfuðborgarinnar Lima eftir ræðu
hans. Torgið fyrir framan forseta-
höllina var eitt ólgandi mannhaf og
báru margir borða þar sem farið
var miður fogrum orðum um Fuji-
mori.
Javier Perez de Cueliar, fyrrum
framkvæmdastjóri SÞ og andstæð-
ingur Fujimoris, sagði þetta upp-
örvandi fréttir fyrir lýðræði í Perú.
Alejandro Toledo, sem tapaði fyr-
Ákvörðun fagnað
Andstæöingur Fujimoris Perúforseta
fagnar því aö boöaö hafí veriö til
kosninga í landinu.
ir Fujimori í síðustu forsetakosn-
ingum, sagðist myndu bjóða sig
fram í næstu kosningum. Hann var
þó varkár, eins og svo margir aðrir.
„Ég efast um að Fujimori muni
standa við orð sín,“ sagði hann í
einu viðtali.
Tilkynning Fujimoris kom lands-
mönnum hans þeim mun meira á
óvart þar sem hann er vanur að
gefa sig hvergi. Hann hafði til dæm-
is staðið af sér harða gagnrýni um
að brögð hefðu verið í taíli í síðustu
kosningum.
Ráðamenn í Bandaríkjunum fögn-
uðu ákvörðun Fujimoris. „Það er
ljóst að perúska þjóðin vill fullt lýð-
ræði og við vonum að allar aðstæð-
ur í Perú geri kleift að það ferli nái
fram að ganga,“ sagði talsmaður
Clintons Bandaríkjaforseta.
Skelfirinn mikli
Carl I. Hagen hræöir Svía.
Vinsældir Hagens
vekja ótta Svía
Velgengni Framfaraflokks Carls
I. Hagens í Noregi skýtur Bo Lund-
gren, leiðtoga hófsama flokksins í
Svíþjóð, skelk í bringu. Hann telur
að Vinstriflokkurinn sé sænska út-
gáfa Framfaraflokksins þegar lýð-
skrumið er annars vegar.
„Lýðskrumarar eru allir eins,
hvað svo sem þeir kalla sig. Þeir eru
hlynntir einfoldum og auðveldum
lausnum," segir Lundgren við
norska blaðið VG. Hann telur leið-
toga Vinstriflokksins, Gudrunu
Schyman, til dæmis spila með að
létt sé að fjármagna styttri vinnu-
tíma fyrir alla.
Húllumhæ í Múnchen
Glatt var á hjalla í Munchen í Þýskalandi í gær þegar hin gleöiríka bjórhátíö Oktoberfest var sett með pompi og pragt.
Aö vanda var fariö í skrúögöngu um götur borgarinnar þar sem sjá mátti margan furöulega klæddan manninn. Búist
er viö allt að sjö milljónum gesta á þessari mestu bjórhátíö í heimi sem stendur næsta hálfa mánuöinn eða svo.
Paula Yates
Lík sjónvarpsstjörnunnar fannst í
svefnherbergi hennar í London.
Paula Yates
fannst látin í gær
Breska sjónvarpsstjarnan Paula
Yates fannst látin á heimili sínu í
Notting Hill-hverfinu í London í
gærmorgun. Hún var fertug. Lög-
reglan vildi ekkert segja um bana-
mein hennar í gær, annað en að
ekki voru neinar vísbendingar um
ofbeldi.
Það var vinkona Paulu sem fann
lík hennar í svefnherberginu og
hringdi hún þegar i stað á sjúkralið.
Paula Yates var sennilega þekkt-
ust fyrir ástarævintýri sín og hjóna-
bönd með rokkurunum Bob Geldof
og Michael Hutchence. Hún skildi
við þann fyrrnefnda eftir átján ára
hjónaband og tók saman við
Hutchence. Hann svipti sig lífi árið
1997. Paula átti fjórar dætur, þrjár
með Geldof og eina með Hutchence.
Sólar- og
öryggisfilma
Ef vandamálið er:
Sólarhiti- þá minnkar filman
hitann um ca 2/3
Sólarbirta- þá minnkar filman
birtu um ca 1/3
Upplitun- þá hættir hún nánast
Öryggi- þá styrkir filman
glerið um ca 300%
Filman gengur jafnt á
húsið og bílinn.
Ásetninq meðhita -fagmenn
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
Poul Nyrup Rasmussen:
Evran er trygging fyrir
áframhaldandi velferð
Danskir jafnaðarmenn ætla að
reyna að taka frumkvæðið í umræð-
unni um evruna, sameiginlegan
gjaldmiðil Evrópusambandsins,
með því að tryggja áframhaldandi
velferð og með loforðum um fleiri
störf.
Fyrsta skrefið var stigið um helg-
ina þegar Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra gaf tryggingu fyrir
því á þingi jafnaðarmanna í Ála-
borg að danska eftirlaunakerfið
myndi haldast þótt evran yrði tekin
upp.
Danskir kjósendur greiða um það
atkvæði 28. september hvort Dan-
mörk eigi að gerast aðili að mynt-
bandalagi ESB og taka upp evruna.
Ef marka má skoðanakannanir að
undanfómu hafa andstæðingar evr-
unnar öruggt forskot á fylgismenn
sameiginlega gjaldmiðilsins.
Marianne Jelved efnahagsmála-
ráðherra og leiðtogi róttæka vinstri-
flokksins, veittist að andstæðingum
evrunnar á landsfundi flokksins i
gær og sagði að nú væri komið að
Reiður ráðherra
Marianna Jelved, efnahagsmálaráö-
herra Danmerkur, er reiö út í and-
stæöinga evrunnar, myntar ESB.
þeim að standa reikningsskil gjörða
sinna og greina þjóðinni frá hvað
þeir hygðust fyrir með afstöðu
sinni.
Rut náði árangri hjá TrimFormi Berglindar
-það getur þú líka
eFtir
Frábært
mánaðartiiboð
Aloe Vera
Frfr pruFutímÍ komin til að vera
Fagmennskan í
Fyrirrúmi
TRIM /\F0RM
Benjfrxter
Grensásvegi 50,
sími 553-3818