Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Page 29
49
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
1>V
Tilvera
Frankie Avalon 61 árs
Þegar Elvis
Presley var kóng-
urinn í poppinu
voru ekki margir
aðrir söngvarar á
svipaðri línu sem
áttu greiðan að-
gang að vinsælda-
listum. Einn
þeirra fáu var
Frankie Avalon
sem verður 61 árs í dag. Hann átti
nokkur vinsæl lög á þessum árum en
hafði, eins og allir aðrir, litið í Presley
að gera. Avalon fetaði i fótspor meistar-
ans og gerðist kvikmyndaleikari og
voru svokallaðar „Beach Partí“-mynd-
ir, sem hann lék aðalhlutverkið í, mjög
vinsælar. Lék hann í fjölmörgum kvik-
myndum en hefur haft sig lítið í
frammi á undanfómum árum.
Gildir fyrir þriöjudaginn 19. september
Vatnsberinn (20. ian.-iR. fehr.):
, Þú ert að velta ein-
hveiju alvarlega fyrir
þér og það gæti dregið
athygli þína frá því sem
þú ert að vinna að. Ef þig skortir
einbeitingu ættir þú að hvíla þig.
Fiskarnir (19 febr.-20. mars):
Núna er góður túni til
lað bæta fyrir eitthvað
sem fór aflaga fyrir
stuttu. Komdu tílfinn-
ingamálunum í lag. Happatölur
þínar eru 4, 11 og 25.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Þú verður að vera á
varðbergi gagnvart
fólki sem viil hagnast
á þér. Það gæti eyði-
lagt vinnu sem þú ert búinn að
leggja á þig.
Nautlð 120. apríl-20. mail:
i Einhver reynir að
sverta mannorð þitt
með einum eða öðrum
hætti þótt þér verði
það ekki strax ljóst. Ekki láta
troða þér um tær.
Tvíburarnir (21. maí-2i. iúní):
V Þú átt skemmtilegan
/f9' morgun í vændum og
1 munt taka þátt í at-
hyglisverðum umræð-
um. Vinur þinn segir þér merki-
legar fréttir.
Krabblnn (22. iúní-22. iúiíi
Varastu að trúa
I orðrómi sem þú heyrir
um aðra. Dagurinn
einkennist af tog-
streitu milli aðila sem þú um-
gengst mikið.
Liónið (23. iúli- 22. aeústl:
Þér standa góð tæki-
færi til boða í vinn-
unni eða í sambandi
við fjárfestingu. Hugs-
aðu þig vel um áður en þú tekur
ákvörðun varðandi peninga.
Mevian (23. áaúst-22. sept.):
Einkamálin þarfnast
meiri tíma og þú þarft
kannski að neita þér
^ r um að hitta félagana
til að koma málunum á hreint.
Vogln (23._sept.-23. okt.i:
Forðastu að vera ná-
lægt fólki sem lætur
allt fara í taugarnar á
sér. Þú gætir lent í
deílum við samstarfsfélaga í dag.
Sporðdrekl (24. okt,-2i. nóv.):
Þér verður ekki tekið
jafnvel og þú vonaðist
S til af nýjum félögum.
Ekki hafa áhyggjur af
því, viðhorf þessa fólk til þín á
eftir að breytast.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.):
. Vinur þinn sækist eftir
r félagsskap þínum í
dag. Ef þú ert mjög
upptekinn skaltu láta
hann vita af því í stað þess að láta
hann bíða eftir þér.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.):
^ - Þú átt auðvelt með
i/rf samskipti í dag. Streita
w Jr\ er ríkjandi hjá þeim
sem þú umgengst en
þú getur fundið ráð til að bæta úr
því.
Vogln (23.
ý
Selur demanta fyrir hundruð milljóna:
Fólk að ganga
af göflunum
- segir Dorrit Moussaieff á Netinu
„Það fyrsta sem fólk gerir þeg-
ar það selur hlutabréfin sín er að
kaupa demanta," segir Dorrit
Moussaieff, unnusta forseta ís-
lands, sem nýverið seldi 27 ára
gamalli internetstjörnu fágætan,
gulan gimstein sem tækifærisgjöf
handa kærustunni. „Fólk er geng-
ið af göflunum," bætir Dorrit við
í viðtali á gagnvirku vefsíðu fyr-
irtæksins Icollector sem sérhæfir
sig í kynningu og sölu á skart-
gripum og listmunum á Netinu.
Á vefsíðu Icollector er Dorrit
kynnt sem einn helsti skartgripa-
sali hinna nýríku og meðal við-
skiptavina hennar sé að finna
fjölmarga milljónamæringa úr
Internetgeiranum og af verð-
bréfamarkaðnum. Dorrit er lýst
Dorrit Moussaieff
Hannar skartgripi í líki beinagrinda
með svarta rúbína í augntóftunum.
sem mikilli kaupkonu og hönnuði
skartgripa en orðrétt segir á vef-
síðu Icollector:
„Moussaieff hefur einnig hann-
að vörumerki fyrirtækja úr
demöntum, hestshausa úr skíra
gulli eða jafnvel litla báta þar
sem árarnar eru úr eðalsteinum.
Þá eru tilskorin hnattlíkneski
Moussaieff úr demöntum ákaf-
lega vinsæl, svo og upphafsstafir
viðskiptavinanna úr slípuðum
gimsteinum. Hún hefur einnig
hannað litlar beinagrindur með
svarta rúbínsteina í augntóftun-
um. Viðskiptavinir Moussaieff
eyða allt frá 200 þúsund krónum
upp í 200 milljónir fyrir skart-
gripi hennar án þess að depla
auga.“ -EIR
Jennifer Lopez kynnti sér sjónvarpsmyndir í London:
Horfði á fölbláa
með lífverðinum
Eitthvað verður maður að gera
sér til dægrastyttingar. Bandaríska
kvikmyndaleikkonan og poppstjarn-
an Jennifer Lopez valdi þann kost-
inn að horfa á fölbláa mynd uppi í
rúmi á glæsihótelinu sinu í London,
með lífvörðinn sér við hlið. Ekki er
vitað til að neitt meira hafi gerst.
Að sögn þrumu lostinna starfs-
manna hótelsins sem áttu erindi
inn í herbergi stjömunnar flissuðu
Jennifer og lífvörðurinn einhver
ósköp á meðan þau horfðu á mynd-
ina.
Virða má stúlkunni þetta til vor-
kunnar því hún var aiein og hund-
leið í London að fylgja úr hlaði nýj-
ustu kvikmyndinni sinni,
Frumunni, sálfræðitrylli um sál-
fræðing sem sekkur sér ofan í sálar-
lif raðmorðingja.
Já, kærasti ungfrúarinnar, amer-
íski rapparinn og margmilljónerinn
Sean „Puff Daddy“ Combs varð eftir
heima í Bandaríkjunum. Reyndar
er hann í farbanni vegna ákæru um
ólöglega byssueign sem lögð var
fram á hendur honum í fyrra eftir
að hann var viðriðinn skotbardaga
á næturklúbbi í New York. Jennifer
margítrekaði að þau væra enn sam-
Mariah tryggir
líkamann fyrir
einn milljarð
Mariah Carey, sem nú er orðin
syngjandi kvikmyndastjarna, er
hrædd um að verða fyrir óhappi við
tökur á myndinni All That Glitters
sem kunni að eyðileggja feril henn-
ar. Þess vegna hefur söngkonan
tryggt líkamann sinn fyrir nær 1
milljarð íslenskra króna. Tökuliðið
er farið kalla Mariuh milljarðaskutl-
una og hefur hún víst ekkert á móti
því. Hún gengur meira að segja sjáif
um og segir að hún sé milijarða-
skutla.
FemiCare® hylki með
mjólkursýrugerlum
fyrir leggöng.
Htuti af náttúrulegrí
ftóru konunnar!
Fæst í Apótekinu, LyQu, Lyf og heilsu og apótekum landsins.
•»
*
En Puffy, eins og pilturinn er
einnig kallaður, lét sér aftur á móti
ekki leiðast í íjarveru kærustunnar.
Öðru nær. Puffy brá bara undir sig
betri fætinum og bauð fyrrum kær-
ustu sinni, og bamsmóður, fyrirsæt-
unni fyrrverandi Kim Porter, út að
borða.
Puffy fór með sambýliskonuna
fyrrverandi á veitingastað sem
hann á sjálfur í borginni Atlanta.
Þar héldu þau rakleiðis að kertum-
hlöðnu borði og áttu saman róman-
tíska kvöldstund, hlógu og kjössuðu
og voru ekkert feimin þótt aðrir
gestir staðarins sæju.
„Þau gátu ekki slitið sig hvort frá
öðru. Það var furðulegt hversu
blygðunarlaus þau voru, hlógu og
flissuðu," sagði furðu lostinn sjón-
arvottur að öllu saman.
Kannski hefur Jennifer grunað
að eitthvað þessu líkt kynni að ger-
ast í fjarveru hennar. Hún var að
minnsta kosti ansi súr á svipinn í
partíinu á eftir frumsýningu mynd-
arinnar. Sötraði bara kampavín I
klukkutíma og fór svo heim á hótel.
Netsalan ehf
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ.
Sími: 565-6241, 893 7333.
Fax: 544-4211
Opið: Mánudaga - Föstudaga 10-18 • Laugardaga 10-14