Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Síða 30
50
MÁNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
I>V
‘Tilvera
Týra Banks
tilbúin
í sjónvarp
Ofurfyrirsætan lokkaprúða Tyra
Banks hefur tekið boði um að leika
eitt aðalhlutverkanna í sjónvarps-
þáttaröðinni Felicity. Ástæðan ku
víst vera sú að framleiðendumir
vilja laða aftur að sér áhorfendurna
sem hurfu á braut þegar aðalleik-
'*konan, Keri Russell, lét klippa
lokkaflóðið. Áhorfendur kunnu ekki
að meta stúlkuna stuttklippta og
sneru sér að öörum sjónvarpsþátt-
Tyra Banks þykir hafa til að bera
allt sem prýða má eina sjónvarps-
leikkonu. Hún er snoppufríð og með
fallegt hár. Hvort hún kann að leika
er svo annað mál.
Aguilera
þarf að
hvíla röddina
Poppsöngkonan Christina
Aguilera hefur þurft aö aflýsa
tvennum tónleikum upp á síðkastið
og voru margir farnir að velta því
fyrir sér hvort stjaman unga þyldi
bara ekki álagið sem fylgir frægð-
inni. Talsmaður stúlkunnar heldur
því hins vegar fram á opinberri
theimasiðu hennar að hún þurfi
bara að hvíla röddina í nokkra
daga, að læknisráði. Aguilera var
við afhendingu MTV tónlistarverð-
launanna í siðustu viku. Hún hafði
fengið nokkrar tilnefningar en vann
engin verðlaun.
Fallhlífarstökk:
Fallhlífar-
stökkströllasögur
- skildi tvær framtennur eftir
Komið Inn til lendingar
/ raunveruleikanum opna menn fallhlífina í tvö til þrjú þúsund fetum og efþeirgera þaö ekki lifa þeir einungis afsíö-
asta metrann eöa svo.
Það er sama hvað mannskepnan
tekur sér fyrir hendur, allt hefur til-
hneigingu til að magnast og verða
stærra og meira með timanum -
fjarlægöin gerir fjöllin blá og menn-
ina mikla.
Fallhlífarstökk er eitt af því sem
hálfgerður ævintýraljómi hvílir
yfir, alla langar til að prófa og sum-
ir láta jafnvel verða af því. Það hafa
orðið til alls konar tröllasögur um
hetjudáðir og djörfung í fallhlífar-
stökki. Sumar af þessum sögum
eiga eflaust einhverja stoð í raun-
verulekanum en hafa magnast með
tímanum og frá manni til manns.
Einnig hafa hugmyndir frá
Hollywood magnað upp sögur um
glæfrastökk.
Allt jafn hart
Þórjón Pétursson fallhlífar-
stökkvari segir að í bíómyndum séu
oft sýnd atriði sem ekki eiga sér
stoð í raunveruleikanum, t.d. var
myndin Dropzone full af „fiction".
„Atriðið þar sem stökkvari kemur
svífandi i fallhlíf og tekur völdin af
öðrum stökkvara með því að stýra
honum á rafmagnslínur á sér enga
stoð í veruleikanum. Sá sem fór á
línurnar hefði hæglega átt að geta
losað sig við aðalfallhlífina og notað
varagræjumar eða tekið snarpa
beygju og losnað þannig. Maður sér
líka í bíómyndum að menn eru að
tala saman í frjálsu falli, þetta er
náttúrlega alveg fráleitt, það er
hreinlega ekki hægt. Svo eru menn
að stökkva úr 4000 fetum og eru
heila mínútu í frjálsu falli. Þetta er
heldur ekki hægt því þeir væru
löngu komnir í jörðina. Þegar sýnt
er frá svona stökkum sér maður
strax að þeir eru í tólf til þrettán
þúsund fetum en ekki fjögur þús-
und.
Allar sögur um að menn liíi af
frjálst fall úr tíu þúsund metra hæð
eru líka della, það er hreinlega ekki
hægt. í raunveruleikanum opna
menn fallhlífina i tvö til þrjú þús-
und fetum og ef þeir gera það ekki
lifa þeir einungis af síðasta metrann
eða svo. Það skiptir engu máli hvort
menn falla einn eða tíu kílómetra,
þeir koma alltaf niður á sama hrað-
anum. Eftir 1000 feta fall er hraðinn
um 200 km á klukkustund og það er
hreinlega ekki hægt að lifa slíka
lendingu af. Ef menn detta úr meira
en 60 metra hæð er allt jafn hart og
það skiptir engu máli hvort það er
heysáta eða malbik. Þeir sem lenda
á annarri fallhlíf eru meira að segja
í vondum málum, brúnirnar á þeim
verða eins og hnífsblöð og menn
geta einfaldlega skorist í sundur eða
misst útlimi. Hraðinn er meiri eftir
því sem menn eru hærra uppi, í
30.000 fetum geta menn náð 300 til
400 km hraða en hægja svo á sér eft-
ir því sem loftið verður þykkara."
Belt flugvélina
„Það voru einu sinni fimm guttar
að stökkva allsberir hjá Flúðum.
Það var ákveðið að mynda stjömu
og sá fyrsti fór út á stífu og sleppti.
En þá var kominn einhver púki í
hina og þeir hættu við og til að gera
málið enn verra vom þeir yfir golf-
vellinum en ekki flugvellinum.
Minn maður kom því niður á golf-
völlinn á tippinu og vakti mikla at-
hygli þegar hann var að taka saman
græjumar.
Svo var það einu sinni þekktur
hrakfaUabálkur sem var að stökkva.
Hann kom sér fyrir og sleppti tak-
inu en rak framtennumar í plast-
hlífina sem er yfir dekkinu og skildi
þær eftir þar. Tennumar eru enn þá
í hlífinni og hlifin er geymd í flug-
skýlinu á Húsafelli.“
Þórjón segir að fyrir nokkrum
árum hafi kunningi hans stokkið
svokallað „basestökk" úr mastrinu
á Gufuskálum í miðjum febrúar.
Þegar hann kom á staðinn var há-
vaðarok en hann lét sig hafa það og
byrjaði að klifra. Hann fór upp í
tæplega fjögur hundruð fet og lét sig
vaða, það var fjörutíu hnúta vindur
þarna uppi. Þegar fallhlífin opnaðist
greip vindurinn hann og hann fauk
nokkra kílómetra aftur á bak og
þurfti að ganga í nokkra klukku-
tíma til baka til að finna bílinn.
-Kip
DV-MYND SIGUROUR K. HJÁLMARSSON
SPENNANDI OG OÐRUVISI
HÚSGA GNAÁKLÆÐI!
A K LÆ Ð I
SÍMI 555 3986 / 897 6666
HJALLAHRAUNI 8
HAFNARFIRÐI
OPIÐ MÁNUDAGA -
FIMMTUDAGA13 -18
FÖSTUDAGA13 -16
Þarfasti þjónninn:
Sem nýr eftir hálfa öld
PV, VlK I MÝRDAL:
Hann Þór Jónsson í Vík í Mýrdal
var eðlilega ánægður að fá að setjast
undir stýri á þessu fornfræga land-
búnaðartæki, Farmal Cub af árgerð-
inni 1949, þar sem tækið er í Vík.
Farmallinn er orðinn rúmlega
fimmtugur og er eins og sjá má í
besta formi. Þór er eflaust með véla-
áhugan í blóðinu því að pabbi hans
hefur í mörg ár verið veghefilsstjóri
hjá Vegagerðinni í Vík. Traktorinn
var keyptur nýr að Sólheimahjá-
leigu af Sæmundi Jónssyni, afa
Jóns Einarssonar sem gerði traktor-
inn upp. Vélvæðing hófst snemma í
Mýrdalnum. Nótan frá kaupfélaginu
fyrir gripinn er enn til. Farmallinn
var notaður í áratugi við öll bústörf
og dettur i gang um leið og þess er
óskað enn þann dag í dag.
Saga Farmallsins, Farm All, er
merkileg og segja má að þetta tæki
sem sjá mátti um land allt, hafi orð-
ið þarfasti þjónninn og tekið við af
hestinum.
-SKH