Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2000, Page 32
Hringíða
1 í f i ö
MANUDAGUR 18. SEPTEMBER 2000
DV
< Tilvera
■ HLATURGAS 2000 stendur nú yf-
ir á Sjúkrahúsi Suðurlands á Sel-
fossi. Sýningin er unnin í samstarfi
við íslandsdeild norrænna samtaka
um læknaskop (Nordisk Selskap for
Medisinsk Humor) sem voru nýlega
stofnuð, fýrst sinnar tegundar.
Þekktir innlendir og erlendir
skopteiknarar og hagyrðingar leiöa
saman hesta sína en sýningin er nú
á ferð á milii 10 sjúkrastofnana
landsins. Sýningunni lýkur 7. oktð-
ber.
Myndlist
■ SAMLAGK) A AKUREYRI
Á laugardaginn kynnti Samlagiö
Listhús, Akureyri, nýjan félaga,
Halldóru Helgadóttur. Halldóra er Ak-
ureyringur og lauk námi frá Fagur-
listadeild Myndlistaskólans á Akur-
eyri síðastliðið vor. Á kynningunni
verða myndir sem Halldóra hefur
unnið á þessu ári, olíumálverk,
vatnslitamyndir og krítarteikningar.
Kynningin mun standa frá 16. sept-
ember til 24. sama mánaðar og
veröur hún opin frá kl. 14 til 18 alla
daga nema mánudaga.
■ SKULPTURAR
I dag kl. 15.00 opnar Kristfn Guð-
jónsdóttir sýningu á skúlptúrum úr
keramiki og steyptu gleri í Baksaln-
um Í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14-
16. í tilefni af sýningu Kristínar held-
ur listakonan stuttan tyrirlestur í
Gallerí Fold um verk sín og sýnir
skyggnur um gerö þeirra. Sýningin
stendur til 1. október.
■ í VÍNGARÐINUM
Um helgina var opnuð sýning Þóru
Þórisdóttur í galleri@hlemmur.is,
Þve,rholti 5, Reykjavík. Sýningin nefn-
ist f víngarðlnum og samanstendur
af myndbandsinnsetningu og tölvu-
útprentunum af myndböndum. Bak-
grunnurinn er umhverfi víngeröar-
þorpsins Villány í suöurhluta Ung-
verjalands. Þóra reynir að nálgast
nokkrar táknmyndir Biblíunnar og
ímyndir úr víngeröarþorpinu meö því
að upplifa þær og skrásetja á mynd-
band. Þetta er 7. einkasýning Þóru.
I fyrri sýningum hefur hún gjarnan
unnið út frá persónulegri reynslu
sinni með tákn Biblíunnar. Sýningin
er gerö með styrk frá NKKK og
stendurtil 8. okt. Galleriið er opið
fimmtud. til sunnud. frá kl. 14-18.
Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
1
Pac-man í
Gallerí Geysi
Baldur, Bibbi og Hari, sem
saman kalla sig Pac-man, halda
þessar mundir listasýningu í
Galleri Geysi. Pac-Man telur
hina ýmsu miðla henta vel til að
heiðra listagyðjuna en þeir hafa
^ sungið henni óða sína á Netinu,
i hljóðlistaverkum, skúlptúrum
og innsetningum. Samsýning
þeirra í Gallerí Geysi mun án
efa bera þeirri sannfæringu
vitni en boðið er upp á eftirfar-
andi kræsingar: „Þú skalt gefa
tíma“ sem er netlistaverk úr
smiðju baldur.com. Bibbi sýnir
verkið „Rock ‘n Roll“ sem er
hljóðinnsetning fyrir rokkara.
Framlag Hara til þessarar glæsi-
legu sýningar eru málverk sem
unnin eru sérstaklega fyrir rými
v* Gallerís Geysis.
Kabarett
DV-MYNDIR NH
Meistarinn á sviðinu
Megas sýndi og sannaöi aö hann hefur engu gleymt í flutningi laga og
framkomu.
Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík:
Síðasti upplesturinn
Á fóstudagskvöld stigu skáldin
Tahar Ben Jellhoun, Id Michael,
Magnus Mills, Einar Bragi og Þórar-
inn Eldjárn á stokk í Norræna hús-
inu og lásu úr verkum sínum. Upp-
lestrinum, sem var sá síðasti á Ál-
þjóðlegu bókmenntahátíðinni, var
vel tekið af áhorfendum sem
skemmtu sér hið besta. Bókmennta-
hátíðinni lauk á laugardag.
Megas hélt tónleika í Ingóifskaffi
í Öffusi á laugardagskvöldið. Þetta
voru fyrstu tónleikar meistarans á
Suðurlandi um árabil og var honum
afar vel tekið af Sunnlendingum.
Megas flutti bæði nýtt og gamalt
efni á tónleikunum svo menn fengu
bæði að hitta gamla vini og heilsa
nýjum. Hann kvaðst vera að ljúka
við plötu sem er væntanleg fyrir jól-
in.
Þrír ættliðir aðdáenda
Ættliöirnir þrír, Kristján Eldjárn
Þorgeirsson, sonarsonur hans,
Kristján Eldjárn, og sonurinn Er-
lingur heilsa upp á Megas aö lokn-
um vel heppnuöum tónleikum.
Áhorfendur á tónleikunum voru
á öllum aldri og einn þeirra var
Kristján Eldjárn Þorgeirsson, 78 ára
bóndi í Skógsnesi í Gaulverjabæjar-
hreppi. Kristján sagði í samtali við
DV að hann hefði hlustað á Megas
frá fyrstu tíð og alltaf verið hrifinn
af honum og verkum hans. Eftir
tónleikana hitti Kristján Megas og
fór vel á með þeim enda höfðu báð-
ir um nóg að tala. Það voru fleiri en
Kristján sem voru ánægðir með tón-
leikana því stemningin var rifandi
allt kvöldið. -NH
tali við goðið
Kristján Eldjárn Þorgeirsson, gam-
all Megasaraödáandi, hitti goöiö
eftir tónleikana.
DV-MYNDIR EINAR ÖRN
Andans fólk á upplestri
Sigurður A. Magnússon ásamt þeim systkinum Ólöfu og Þórarni Eldjárn.
Bókafólk
Pariö Óttar Proppé og Bryndís Lofts-
dóttir spjalla viö Svanborgu Siguröar-
dóttur.
Höfundi heilsað
Friörik Rafnsson, ritstjóri Tímarits
Máls og menningar og stjórnandi
bókmenntakvöldsins, heilsar
breska rithöfundinum Magnus
Mills meö handabandi.
Bíógagnrýni
Hvergi er ævintýramennskan i
kvikmyndum eins áþreifanleg og í
myndum sem án tíma og rúms gerast
úti i geimnum. Hægt er að gefa ímynd-
unaraflinu frjálsan tauminn án þess
hægt sé að ásaka myndina um að fara
út fyrir sitt svið því enginn veit hvað
býr í næstu sólkerfum eða stjömuþok-
um. Persónur eru oftar en ekki skraut-
legar og eiga meiri samleið með
teiknimyndafígúrum en manneskjum.
Það er þvi eiginlega furðulegt að
Hollywood skuli ekki hafa gert teikni-
mynd af stærri gerðinni, mynd i anda
Star Trek og stjömustríðsmynda Geor-
ge Lucasar, þar sem hið góða berst
gegn hinu illa, fyrr en nú að Titan
A.E. litur dagsins ljós. í henni sést
best hve teiknimyndaformið gefur
aukin tækifæri á þessum vettvangi til
að koma til skila hugmyndum sem
varla er hægt að framkvæma í leik-
inni mynd auk þess sem auðvelt er að
búa til ofurmenni og furðuverur sem
falia vel að forminu.
Það kemur því ekki á óvart að að-
all Titan A.E er útlitið. Myndin er
litskrúðugt sjónarspil þar sem þeyst
er á milli plánetna og sólkerfa í
einni andrá í farartækjum sem eru
jafnfjölbreytt í útliti og persónur
myndarinnar. Við erum stödd á 31.
Stjörnustríð
Regnboginn/Bióhöllin - Titan A.E.: ★ ★ -Á
Bjargvætturin
Cale brýst út úr prísund sinni.
öld. í upphafi fylgjumst við með því
þegar jörðinni er eytt. Þær fáu
mannverur sem komast úr vítiseld-
inum eru dreifðar um vetrarbraut-
ina. Aðalpersónan, Cale, hefur orðið
viðskila við jarðarbúa og býr með
furðuverum og telur sig lítið eiga
sameiginlegt með kynbræðrum sín-
um. Þetta breytist þó þegar hin
fagra Akima og stríðsmaðurinn
Korso koma til sögunnar. Þau vita
að Cale ber á sér hring sem faðir
hans eftirlét honum. Hringur þessi
inniheldur kort sem visar leiðina að
móðurskipinu Titan en til að sam-
eina eftirlifandi jarðarhúa þarf að
finna Titan sem faðir Cale stjórnaði.
Eins og gefur að skilja eru ýmsar
geimverur sem vilja koma í veg fyr-
ir að það takist og snýst myndin um
leitina að Titan og baráttuna gegn
hinum vondu Drejum.
Titan A.E. er stórfenglegt sjónar-
spil. Sagan er hentug fyrir formið
og í anda þekktra stjörnustríðs-
mynda. Það sem aftur á móti
skemmir er að það er eins og hinn
reyndi teiknimyndamaður Don
Bluth (An American Tail, The Land
before Time, Anastasia) og félagar
hans hafi farið af stað með það að
gera út á unglinga og við það
Hilmar
Karisson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
gleyma þeir stundum baminu í sér,
sérstaklega kemur þetta fram þegar
í tíma og ótíma er verið að skella
inn þungarokkslögum sem eiga ekk-
ert sameiginlegt með því sem er að
gerast á tjaldinu. Auk þess sem
þetta verður enn meira áberandi í
íslenskri talsetningu þar sem lögin
eru sungin á ensku.
Titan A.E er sýnd bæði með ensku
og íslensku tali og leyfði ég mér að
sjá fyrri hlutann á íslensku og þann
seinni á ensku. íslenska talsetningin
er vel heppnuð og íslensku leikar-
amir, Hilmir Snær Guðnason, Pálmi
Gestson og Þórunn Lárusdóttir, sem
fara með aðalhlutverkin, gefa stór-
stjörnunum Matt Damon, Bill
Pullman og Drew Barrymore ekkert
eftir nema síður sé.
Leikstjórar Don Bluth og Gary Goldman.
Handrit: Ben Edlund, Randall McCormick
og Joss Whedon. Helstu raddir: Hilmir
Snær Guönason, Pálmi Gestsson, Þór-
unn Lárusdóttir, Laddi, Hjálmar Hjálmars-
son, Egill Ólafsson, Teódór Júlíusson og
Karl Ágúst Úlfsson.
Hilmar Karlsson
Megas á tónleikum í Ölfusi:
Sunnlendingar
tóku vel á móti