Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Síða 2
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
20
9 J
UaiWiiiy
■ ■ ■ ■ ■ ■ Mi I
tölvu-* takni og vísinda
Ný tækni í framköllun DNA-mynda:
Erföaefni a gullkulum
- flýtir genaprófum margfalt
Nú er verið að
hanna nýja
tækni fyrir gena-
próf sem mun
aðeins taka
nokkra klukku-
tíma að fram-
kvæma í stað daga; er hægt að fram-
kvæma á heilsugæslustöð í stað
fjarlægrar rannsóknarstofu.
Tveir vísindamenn við Nort-
hwestern-háskólann í Bandaríkjun-
um kynntu þessa nýju tækni í
nýjasta tölublaði Science. Hún bygg-
ist á notkun sömu DNA-flagna og
notaðar eru í genarannsóknum
núna. DNA-flögur eru glerflögur
sem búið er að líma á lengjur af
gervi-DNA. Þegar flögunum er dýft í
DNA-sýni þá bindast DNA-lengjur í
sýninu við þær sem eru á glerinu.
Nýbreytnin er hins vegar sú að
nú eru notaðar gullkúlur sem eru
um einn nanómetri í ummál, 1
milljarðasti úr metra. Til saman-
burðar er hár um 100 nanómetrar.
Gullkúlurnar eru þaktar DNA-lengj-
um og þeim er síðan dembt yfir flög-
urnar. Kúlurnar bindast við réttar
lengjur á flögunni og síðan er flög-
unum dýft í framköllunarvökva þar
sem silfurjónir bindast við gubið og
Það virðist mikill kippur vera í rannsóknum á tækjabúnaði til DNA-rann-
sókna og er það ekki skrýtið þar sem miklir peningar eru f spilinu.
sýna hvar á glerinu gullið er og
hvaða DNA það er eftir að hafa ver-
ið sett í gegnum ljósmyndaskanna.
Aðferðin er um 100 sinnum næm-
ari en þær aðferðir sem notaðar
hafa verið hingað til. Kostnaður er
mun lægri. Ljósmyndaskanninn
kostar undir 100 dollurum (undir
7000 ísl. kr.) á meðan aðrar fram-
köllunaraðferðir þurfa að notast við
Gullkúíurnar eru þakt-
ar DNA-lengjum og
þeim er síðan dembt
yfir flögumar. Kúlumar
þindast við réttar
lengjurá flögunni og
síðan er flögunum dýft
í framköllunarvökva
þar sem sUfurjónir
bindast við gullið og
sýna hvar á glerinu
gullið er og hvaða
DNA það er eftir að
hafa verið sett í gegn-
um Ijósmyndaskanna.
60.000 dollara (4.200.000 ísl. kr.).
Nýja framköllunaraðferðin er enn
í hönnun en þegar hún verður til
verður hægt að nota hana til að
finna flestalla sjúkdóma sem gena-
breytingar. Einnig verður hægt að
nota aðferðina i hemaði til þess að
úrskurða hvers konar efnavopn er
verið að nota ef til þess kemur.
Formúlu-keppni á Shell-stöövunum:
Keppni í Grand Prix 3
- besti ökumaðurinn fær ferö á Silverstone
Fram til 5.
október næst-
komandi gefst
viðskiptavin-
um Shell-stöðv-
anna kostur á
að reyna fyrir
sér í kappakstri í nýjum og full-
komnum tölvuleik Grand Prix 3
sem nú er að koma á markað.
Allir sem kaupa eldsneyti á
Shell-stöðvunum munu fá gefins
kynniseintak af leiknum sem
gerður er fyrir PC-tölvur og sýn-
ir kappakstur á Suzuka-braut-
inni í Japan. Hægt verður að
taka þátt í leiknum meö því að
senda frammistöðu í tölvuleikn-
um inn á heimasíðu Skeljungs
Sá sem nær besta tímanum fær ferð
fyrir tvo á Silverstone-keppnina
næsta sumar þar sem Hákkinen og
félagar etja kappi.
www.shell.is. Þeir 10 keppendur
sem senda inn bestu keppnistím-
ana fyrir 5. október munu eiga
þess kost að keppa sín á milli um
verðlaunasætin í leiknum í sér-
stakri keppni sem fram fer á Sel-
ectstöðinni í Smáranum í Kópa-
vogi laugardaginn 7. október.
Fyrstu verðlaun eru ferð fyrir
tvo á Formúlu 1 kappaksturinn á
Silverstone í Bretlandi næsta
sumar. Önnur verðlaun eru
Compac Presario ferðatölva frá
BT tölvum og þriöju til sjöundu
verðlaun eru tölvustýri frá BT
tölvum.
Þá verða vikulega dregin 10
nöfn, óháð árangri, úr hópi
þeirra sem taka þátt í leiknum og
Allir sem kaupa elds-
neyti á Shell-stöðvun-
um munu fá gefins
kynniseintak af leikn-
um sem gerður er fyrir
PC-tölvur og sýnir
kappakstur á Suzuka-
brautinni í Japan.
Hægt verður að taka
þátt í leiknum með því
að senda frammistöðu
í tölvuleiknum inn á
heimasíðu Skeljungs
www.shell.is.
munu þeir fá Ferrari-bol að gjöf.
Þess má geta að þessi sami leik-
ur fer nú fram meðal viðskipta-
vina Shell-stöðva víðar i Evrópu.
Palm útvíkkar notkunarmöguleika lófatölva:
Raddstýrð dagbók geymd á Netinu
Lófatölvufram-
leiðandinn
Palm hefur nú
hafið samvinnu
við fyrirtækið
SpeechWorks
um aö gera not-
endum Palm-lófatölva fært að kom-
ast í upplýsingar af tölvunni sinni í
gegnum síma.
Fyrr á þessu ári keypti Palm net-
fyrirtækið AnyDay.com sem sér-
hæfir sig í dagbókum fyrir fólk á
Netinu. Fólk geymir oft dagbækur
sínar í lófatölvunni sinni og það er
Með raddskipunum er
hægt að komast f dag-
bókina og hún gefur
upp þær upplýslngar
sem leltað er eftlr. Með
þvf er fólk f raunínní á
Netlnu án þeas að sjá
það. Áætlað erað
þessí þjönusta verði
tllbúln fbyrjun næsta
árs.
einnig geymt á AnyDay. Með hug-
búnaðinum frá SpeechWorks geta
þær þrjár milljónir einstaklinga
sem skráðar eru hjá AnyDay nálg-
ast þær upplýsingar sem þeir þarfn-
ast í gegnum síma
ef lófatölvan
hefur gleymst
heima. Með
raddskipun-
um er hægt
að komast í
dagbókina og
hún gefúr upp
þær upplýs-
ingar sem leitað
er eftir. Með því er
fólk í rauninni á Net-
inu án þess aö sjá það
Áætlað er að
þjónusta verði tilbúin í byrjun
næsta árs.
Ef þessi tækni kemur til með að
virka hjá notendum er það stefnan
hjá Palm að gera öO lófatölvuforrit
sín aðgengileg í gegnum sima. í
framtíðaráætlunum fyrirtækisins
er einnig gert ráð fyrir að hægt
verði að raddstýra sjálfum Palm-
tölvunum. Það verður jafnvel
hægt að hringja úr þeim.
Palm er nú þegar búið að
lýsa því yfir að á fyrri
helmingi næsta árs
muni það koma með
nýja lófatölvu á
markað í Japan
sem hægt verður
að komast á Net-
ið á og senda
og taka á móti
ímeilum. Það
verður gert í
samvinnu við
japanska far-
símafyrirtækið
NTT DoCoMo.
Hægt er aö nálgast dagbókina sína á Netinu úr sfma ef svo illa vill til aö lófa-
tölvan gleymist heima.
Corning-fyrirtækið:
Tölvukubbarí
genarannsóknir
- leiðir í ljósleiðaragerð
Nú hefur fyrirtækið
Coming ákveðið að
hefja framleiðlsu á
tölvukubbum til
vinnslu á upplýsing-
um þúsunda gena í einu. Corning er
þekktast fyrir það að hafa fundið
upp og komið fyrst á markað með
ljósleiðaratæknina.
Talsmenn fyrirtækisins segjast
hafa komið með tækni sem muni
flýta framleiöslu tölvukubbanna.
Ætlunin er að framleiða einn kubb
á mínútu sem er um 10-20 sinnum
hraðar en hægt er að gera í dag.
Þetta mun þýöa að rannsóknir á
genum munu ganga hraöar auk
þess sem lyf byggð á genaupplýsing-
um munu koma fyrr á markað.
Coming er með háar hugmyndir
og stefnir að því að taka forystuna á
þessum markaði, eða alla vega vera
í ööra sæti.
ilílJJiiÚilf
[
j'jJ'jJhj1
SÍH gengur í Sl
lÓH^ÍÖllT
aðalfundi
Samtaka ís-
lenskra hugbún-
aðarfyrirtækja
(SÍH) sem hald-
inn var nýlega var sú tillaga
samþykkt að færa starfsemi SÍH
alfarið undir hatt Samtaka iön-
aðarins (SI). í ljósi þessa hefur
verið ákveðið að mynda nýjan
starfsgreinahóp í upplýsinga-
tækniiðnaði innan SI og um leiö
víkka starfsemina þannig að
hópurinn sé opinn öllum aðilum
að SI sem starfa á sviði upplýs-
ingatækni- eða þekkingariðnaö-
ar.
Undanfarin 2 ár hafa Samtök
iðnaðarins átt gott samstarf við
Samtök íslenskra hugbúnaðar-
fyrirtækja (SÍH) og í raun hefur
það félag virkað sem starfs-
greinahópur í upplýsingatækni-
iðnaði innan SI enda flestir aðil-
ar innan SÍH einnig aðilar að
SI. Stofnun starfsgreinahópsins
er því rökrétt þróun á málum.
Örskjáir á leiðinni
Áætlað er að 1
enda þessa árs
þurfi fólk ekki
lengur að nota
venjulega skjái
til þess að vinna við tölvur. Á
leiðinni eru svokaUaðir örskjáir
sem eru það litlir að þeir kom-
ast fyrir á litlum tölvukubb. Ör-
skjárinn er ekki nema um 1/10
úr tommu og til að horfa á hann
er notuð sérstök tækni sem
myndi fylla upp í sjónsviðið á
sérstökum gleraugum eða ann-
ars konar höfuðbúnaði. Það
væri jafnvel hægt að stækka
hann upp í bíótjaldsstærð. Eitt
af fyrstu tækjum þessarar teg-
undar er þegar tUbúið og mun
koma á markað innan skamms.
Þetta eru sólgleraugu sem kaU-
ast eShades og það er fyrirtækið
inViso sem framleiðir þau. Nú
getur fólk setið rólegt að horfa á
eina bláa í DVD á fartölvunni
sinni án þess að hafa áhyggjur
af því að sá í næsta sæti sé að
horfa yfir öxlina á honum.
|- i--- /S. V; ,
I -,
Fyrsti gallinn í Windows
ME
1" '*■!•""' j Nú þegar nýja
ÍJilíj* | stýrikerfið frá
UÍlJJlÖiljj windows' MU-
wifnrmwminíii ' lenium, er búið
að vera á markaði í rétt rúma
viku þá er strax búið að fmna
öryggisgaUa í því. GaUinn er
tengdur vefsjónvarpsforritinu
WebTV frá Microsoft. Tölvunot-
endur með Ult 1 huga geta tekið
yfir tölvrn- þeirra sem era með
WebTV og slökkt á viðkomandi
tölvu eða endurræst hana. Þessi
gaUi fannst reyndar einnig I
Windows 98 um miðjan ágúst
síðastliðinn. Talsmenn Micro-
soft segja að verið sé að fara yfir
stýrikerfið með það að mark-
miði að lagfæra gaUann.