Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
23
tölvu-i tikni og vísinda
Netvæddir þingmenn
- aðeins 15 af 63 hafa heimasíðu
Lltil þjóö á sér einnig lítið þing og
því ætti netvæðing þeirra 63 þing-
manna og -kvenna sem þar sitja
einnig að ganga hratt og örugglega
fyrir sig, sem og það hefur gert.
I dag er Netið orðið óaðskiljanleg-
ur þáttur af lífl margra íslendinga,
þó svo að einhverjir sjái sér
kannski fært að lifa fullkomlega
eðlilegu lífi án þess. Þróunin hefur
verið ör á sviði netmála í heiminum
og eins og venjan er með nýjungar
hvers konar þá hafa íslendingar
verið afar fljótir að tileinka sér
þennan nýja miðO.
Það er ekki síst smæð þjóðarinn-
ar að þakka hversu vel gengur að
netvæða hana. Lítil þjóð á sér
einnig lítið þing og því ætti netvæð-
ing þeirra 63 þingmanna og -kvenna
sem þar sitja einnig að ganga hratt
og örugglega fyrir sig, sem og það
hefur gert. Það er ekki hvað síst því
að þakka að Alþingi sjálft er komið
með eigin vefsíðu og þar er hægt að
nálgast upplýsingar um flestallt það
sem þjóðþing gerir. Með tilkomu
vefssíðunnar var ráðist í það gefa
öllum alþingismönnum ímeil-
addressur. Þetta auðveldar mjög
samskipti við þá þar sem kjósendur
geta milliliðalaust lagt fram spurn-
ingar sínar, liggi þeim eitthvað á
hjarta.
Sumir hafa þó ekki stoppað þar
heldur eru nokkrir þeirra einnig
búnir að setja upp sína eigin heima-
síðu. Við talningu kom í ljós að 15
alþingismenn af 63, rétt tæp 24 %,
höfðu komið sér upp heimasíðu þar
sem bæði fylgjendum þeirra og and-
stæðingum er boðið að kynnast per-
sónunni í þingstólnum betur. Þetta
er lofsamlegt framtak og mættu
fleiri þingmenn taka þetta til eftir-
breytni.
Hér er listi yfir þá þingmenn og -
konur sem hafa komið sér upp úti-
búi á Netinu:
Arni R.
Árnason
www.alt-
hingi.is/ara.
Guðjón A.
Kristjánsson
www.alt-
hingi.is/gak.
Sigríður
Jóhannesdóttir
www.alt-
hingi.is/sigrjoh.
Guömundur Árni m - * 'i ) Siv
Stefánsson % < r Friöleifsdóttir
www.alt- www.alt- 9 vl
hingi.is/garni. hingi.is/siv.
Halldór
Ásgrímsson
www.alt-
hingi.is/halldor.
Jóhanna
Sigurðardóttir
www.alt-
hingi.is/johanna.
Jón
Kristjánsson
www.alt-
hingi.is/jonkr.
Kristján
Pálsson
www.alt-
hingi.is/kristjan.
Pétur H.
Blöndal
www.alt-
hingi.is/petur.
Björn
Bjarnason
www.alt-
hingi.is/bjb.
Rannveig
Guðmundsdóttir
www.alt-
hingi.is/rannveig.
Wired News dæmir Windows ME:
Ekkert nema
skreytt Internet Explorer 5.5
Veftímaritið Wired
News hefur nú gefið út
gagnrýni á nýja stýri-
kerfið frá Microsoft,
Windows Millenium,
og ekki verður sagt að það fái háa ein-
kunn.
Stýrikerfið er hannað með hags-
muni meðaljónsins i brjósti og sam-
kvæmt umfjölluninni kemst það ágæt-
lega frá því hlutverki. Sérstaklega er
minnst á forrit sem heitir PC Health
(PC Heilsa) sem virkar þannig að öll
forrit og skjöl sem nauðsynleg eru til
þess að kerflð virki eru afrituð og
geymd á vel vörðum stað. Ef að svo illa
viíl til að notandinn eyðir eða breytir
þessum forritum eða skjölum óvart þá
sér PC Health um að enduruppsetja
það. Þetta er talið henta óvönum not-
endum mjög vel.
Þegar umhölluninni um PC Health
er hætt er nokkurn veginn búið að
telja upp það sem er jákvætt við ME
kerfið. Það er kannski lýsandi fyrh-
gagnrýnina að hún byrjar á því að
segja að í stað þess að lagfæra það sem
miður er i Windows stýrikerfmu hafi
Microsoft einbeitt sér að því að setja
failegra andlit á það.
í samanburði við Windows 98 er ME
Séastaklega er minnst á forrit
sem heitír PC Health (PC
HeSsa) s&m vkkar þanrúg að
öíl forrit og skjöl sem nauð-
synieg eru tíl þess að kerfíð
vbid em afíítuð og geymd á
vel vörðum stað.
mun gjarnara á að hrynja þegar verið
er að vinna sömu verkefni og á 98. Oft-
ast eru það aðeins einstök forrit sem
hrynja en óþægilega oft fraus tölvan
eða hinn „Dauðblái skjár" kom upp
sem þýðir að endurræsa þarf tölvuna.
Einnig kom það upp úr krafsinu að
Windows 98 vann hraðar oft á tíðum að
keyra sömu forritin heldur en ME.
Það er álit sérfræðinga að þeir sem
kaupi sér tölvur með ME sett upp séu
ekki í eins mikilli hættu 'með þessa
galla og þeir sem setji það upp yfir
Windows 98 eða 95. Sérfræðingar mæla
einnig með því að fólk bíði með að fá
sér ME þangað til að búið verður að
gefa út þjónustupakka sem kæmu í veg
fyrir hrunið. Mesta athygli í greininni
vekja þau ummæli sem höfð eru eftir
ónafngreindum forritara hjá Microsoft
að ME sé „ekkert annað en Intemet
Explorer 5.5 með smá skrauti ofan á.“
Sturla
Böövarsson
www.alt-
hingi.is/sturla.
Svanfríður
Jónasdóttir
www.alt-
hingi.is/sij.
Sverrir Her-
mannsson
www.alt-
hingi.is/svh.
Richard Branson opnar hér fyrstu V shop tölvukioskið í Notting Hill í
London.
íslenskur hugbúnaður í Virgin tölvukioska:
Eskill og Degasoft forrita fyrir Branson
Aðspurður segir Ragnar
Gunnlaugsson h>já Eskfí
aðdragandann yera
þann að fúíKrúar Dega-
soft hafí faríð á sýningu í
Beríín sem ersérhæfð /
kiosk töhrutækni, Þar
hittu þeir fóik frá fyrír-
tæM sem heitír Epoínt
og framleíðir kioska.
Nú í september
opnaði Richard
Branson, eig-
andi Virgin-
stórveldisins,
nýja keðju
verslana sem
eru í raun tölvukioskar, undir nafn-
inu V shop. Áætlað er að opna um
100 kioska frá september til nóvem-
ber og munu þeir verða staðsettir í
Our Price verslunarkeðjunni.
Það athyglisverða við þetta er að
tvö íslensk fyrirtæki sáu alfarið um
hugbúnaðarhlið verksins. Kudos
hugbúnaður er uppistaðan í kiosk-
unum en það er íslenska fyrirtækið
Degasoft sem hannaði hann. Um
hönmm og forritun notendaviðmóts
sá íslenska fyrirtækið Eskill.
Aðspurður segir Ragnar Gunn-
laugsson hjá Eskli aðdragandann
vera þann að fulltrúar Degasoft hafi
farið á sýningu í Berlín sem er sér-
hæfð í kiosk tölvutækni. Þar hittu
þeir fólk frá fyrirtæki sem heitir
Epoint og framleiðir kioska.
„Epoint sérhæfir sig aðeins í því að
framleiða tölvurnar og vélbúnaðinn
og vantaði þvi einhvern til að
hanna hugbúnaðinn. Það varð úr
að fulltrúar Epoint komu til fundar
við Degasoft og buðu okkur að taka
þátt með það í huga að við hjá Eskli
hönnuðum notendaviðmót. V Shop
er afurð þessa samstarfs."
Ragnar segir að fleiri verkefni
gætu jafnvel verið á leiðinni en
ekkert væri öruggt með það enn
sem komið er.
tsufélag Reykjavíkur
tóllFtVÖRN
JIU JITSU
Nú er rétti tíminn að iæra eitthvað nýtt !
Jiu Jitsu er sjálfsvörn ekki keppnisiþrótt.
Jiu Jitsu er eflir sjálfstraust.
Jiu Jitsu er fyrir alla. !
fettuEU 863-2801 & 863-2802
Armann
Einholti 6 Rvk
Þriðjud. kl 21:00
Fimtud. kl 21:00
IR Heimilið
Skógarsel 12 Rvk
Mánud. kl 19:30
Fimtud. kl 19:30
Ffisfe: i=wiwiite iis@cw m
lioi niii
http: w w w .wjjf .coi 11/Ícela nd