Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Page 10
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
Furðulegt heilkenni, kennt við dr. Strangelove:
Stjórnlaus hönd ræðst
gegn eiganda sínum
Peter Sellers lék hinn furöulega dr. Strangelove, í samnefndri kvikmynd, af
mikilli snilli. Önnur hönd brjálaða vísindamannsins lét ekki aö stjórn og átti
eigandinn í sífelldri baráttu viö hana.
p"**“***fl***w^ Dr. Strangelove
, . er ekki einn um
iJiJrj,-1 að þurfa að berj-
’r IM i \' i'n 111 ast við óstýriláta
.J^JJJJJ JMJ : hönd sem virðist
!.............búa yfir eigin
vilja. Skráð til-
felli þessa sjúkdóms, sem sumir vilja
kenna við áðumefnda aðalpersónu
samnefndrar kvikmyndar Stanleys
Kubricks, með Peter Sellers í titil-
hlutverkinu, eru fjörutíu, eða þar
um bil.
„Þetta er undarlegt heilkenni,"
segir Sergio Della Sala, ítalskur pró-
fessor við háskólann í Aberdeen í
Skotlandi.
Heilkenni þetta, sem er bæði afar
sjaldgæft og oft vitlaust greint, or-
sakast af skemmd í framheila, til
dæmis eftir slys eða heilablæðingu.
Sjúklingurinn missir þá gjörsamlega
stjóm á annarri hönd sinni. Hún á
það þá til að taka upp á ýmsu sem
sjúklingurinn hafði alls ekki ætlað
sér að gera. Oft endar þetta með
ósköpum þegar hendurnar tvær fara
að slást, eins og í kvikmyndinni um
dr. Strangelove þegar sjálfstæða
höndin réðst i sífellu á eiganda sinn
og heilsaði að nasistasið. Hin hönd-
mmmmmmwmmmsíimtmtíaírnmmmííi
in reyndi þá hvað hún gat til að
stöðva vitleysuna.
„Sjúklingarnir eru alveg eins og
Peter Sellers," segir ítalski prófess-
orinn.
Einn sjúklingur hans kom til
dæmis til hans með höndina bundna
aaBgaw
fyrir aftan bak, af ótta við að hún
kynni að gera einhvern óskunda.
Annar sjúklingur átti í mestu
vandræðum með að borða fisk þar
sem stjómlausa höndin gerði ekki
annað en reyna að troða fiskbeinun-
um upp í hann aftur.
Tr«iif»wiii*i»gifrrB!TiíiíiMiiir»ri
Sjúkimgumm míssít þá
Hún é þsð þá íii sið
t&ka upp á ýmsu sem
sjúklíngurlnn hafdí ails
ekki ætlað sér að gera.
„Þetta veldur sjúklingunum mikl-
um þjáningum og raskar daglegu
lífi þeirra," segir Della Sala og bæt-
ir við að einkennin séu stundum
svo stórkarlaleg að þau jaðri við að
vera kómisk.
Fyrsta tilfelli heilkennis þessa
var skráð í Þýskalandi árið 1909. En
þótt aðeins fjörutíu tilfelli séu skráð
á bókum segir Della Sala að þau séu
áreiðanlega fleiri þar sem sjúkling-
arnir séu greindir með geðrænar
trutlanir. Á síðustu árum hafa að
minnsta kosti tveir sjúklingar með
heilkenni þetta komið til meðferðar
á Grensásdeild Borgarspítalans.
Della Sala segir að eitt tilfelli
stjómlauss fótar hafl verið skráð í
læknisfræðibækur.
Norður-írskur vísindamaöur teiur líklegt aö brot úr halastjörnu hafi gert mik-
inn usla á jöröinni fyrir 1500 árum.
Hamfarir geröu usla í heiminum fyrir 1500 árum:
Lesið í árhringi trjánna
Eitthvað hræði-
legt kom fyrir á
jörðinni fyrir
tæpum fimmtán
hundruð árum,
reyndar svo
hræðilegt að það
kann að hafa getið af sér hinar
myrku miðaldir. Atburður þessi
gerðist á sama tíma og Artúr kon-
ungur lést og rómverska heimsveld-
ið leið undir lok.
Mike Baillie, prófessor við
Queen’s háskólann i Belfast á Norð-
ur-írlandi, segir ekki ljóst hvað hafi
gerst en hugsanlega hafi brotum úr
halastjömu rignt yfir jörðina, eða
þá að einhver ofureldgígur hafi spú-
að eldi og eimyrju. BaOlie ræddi
þetta á visindaráðstefnu í Englandi
á dögunum.
En hvað svo sem þetta var er það
kirfilega greypt í árhringi trjáa frá
þessum tíma um víða veröld.
Sögubækur greina ekki frá at-
burði þessum sem varð um árið 540
að okkar tímatali en úr árhringjun-
um má greinilega lesa að hér hafi
verið á ferðinni eitthvað meira en
lítið.
„Þetta voru miklar náttúruham-
farir sem koma fram í trjám um all-
an heim,“ segir Baillie.
Hæð trés er vísbending um gæði
jarðvegsins sem það vex í en ár-
hringimir geyma upplýsingar um
Mike Baillie, prófessor
við Queen’s háskólann
í Beifast á Norður-ír-
lancii, segír ekkl Ijóst
hvað hafí gerst en
hugsanlega hafl brot-
um úr halastjörnu
rígnt yfir jörðina, eða
þá að einhver ofureld-
gígur hafi spúð eldi og
eimyrju,
loftslag fyrri tíma og hafa verið not-
aðir til að dagsetja atburði í fortíð-
inni. Þannig má til dæmis lesa úr
árhringjum að árið 1816 hafi ekkert
sumar komið í Norður-Ameríku.
Baillie telur að hægari vöxt í
trjám um árið 540 megi rekja til
brota úr halastjömu. Gamlar sögu-
sagnir sem skráðar voru á 13. öld
greina frá því að árið 540 hafi hala-
stjama farið yfir Gallíu og var sem
himininn logaði, að sögn BaiUies.
Háskólamenn hafa hins vegar ætíð
stimplað goðsagnir þessar sem hel-
beran hugarburð.
Baillie hvetur sagnfræðinga til að
viðurkenna að eitthvað hræðilegt
hafi gerst árið 540 og hvetur þá jafn-
framt til að finna gögn þar um.
hinr
...I
Rúmensk börn sem voru ættleidd til Bretlands:
Aldur við ættleiðingu
skiptir máli
Böm sem ætt-
leidd eru mjög
ung að árum
eiga meiri mögu-
leika á að
þroskast á eðli-
j legan hátt og yfírvinna erfiðleika en
1 þau sem eldri eru.
Þetta kom fram í máli breska sál-
; ffæðingsins Michaels Rutters á vís-
S indaráðstefnu í London fyrir
J skömmu. Rutter sagði að rannsókn á
! rúmenskum bömum hefði leitt í ljós
að börn sem voru sex mánaða eða
| yngri þegar þau voru ættleidd hefðu
hærri greindarvísitölu og ættu í
minni erfiðleikum en börn sem
dvöldu lengur á munaðarleysingja-
hælum.
„Það sem skipti meira máli en
nokkuð annað í þessu sambandi var
aldur barnanna þegar þau voru ætt-
leidd,“ sagði Rutter á fundi með
fréttamönnum á ráðstefnunni.
Rutter og samverkamenn hans
rannsökuðu 165 böm sem bresk hjón
höfðu ættleitt. Börnin voru á aldrin-
um sex mánaða til þriggja og hálfs
árs og var fylgst með þeim i sex ár.
Flest bamanna höfðu búið við
afar erfiðar aðstæður á munaðar-
leysingjahælum. Þau voru vannærð
mörg hver og ekki höfðu þeim ver-
ið auösýnd nein blíðuhót. Engu að
siður, sagði Rutter, sýndu þau
mikla seiglu og þau sem vom ætt-
leidd fyrir tveggja ára aldur stóðu
sig best.
Þriðjungur bamanna sem voru
ættleidd eftir tveggja ára aldur átti
áfram i vanda en meirihluti þeirra
sem voru ættleidd áður en þau
urðu sex mánaða var í engu frá-
brugðinn öðrum börnum þegar þau
voru skoðuð fjögurra og sex ára.
Greindarvisitala bama sem
dvöldu lengur en tvö ár á stofnun-
um var 24 stigum lægri en þeirra
sem voru skemur en sex mánuði á
stofnunum.
Þrátt fyrir þetta var breiddin af-
skaplega mikil í elsta hópnum þar
sem greindarvísitalan var frá þvi
að vera undir 50 upp í að vera rúm-
lega 130 sem er afburðagott.
„Það er greinilegt að jafnvel
langvarandi skortur gerir ekki öll
börn eins,“ sagði Rutter.
Börn sem ættleidd eru mjög ung eiga meiri möguleika á aö þroskast á eöli-
legan hátt en börn sem hafa dvaliö lengi á stofnunum, segir í niðurstöðum
breskrar rannsóknar. Á þessari mynd má sjá Sonju Noregsdrottningu í
heimsókn á rúmensku munaðarleysingjahæli.
r jjuhjj'
Eilíf æska meö ösnu-
mjólk
Kleópatra
drottning í Eg-
yptalandi hinu
forna var ekki
svo vitlaus þegar
hún baðaði sig í ösnumjólk fyr-
ir tvö þúsund árum. Vísinda-
menn við háskólann í borginni
Lucknow á Indlandi hafa kom-
ist að því að í ösnumjólk er að
finna efni sem örvar ónæmis-
kerfi líkamans, auk þess sem
það vinnur á hrukkum.
JJUJJUH
.........
Skokkað fyrir lengra lífi
Karlar sem
skokka geta átt
von á þvi að lifa
lengur en kyn-
bræður þeirra
sem ekki eru jafnduglegir að
i hreyfa sig.
Danskir hjartasérfræðingar
hafa skrifað grein í Breska
læknablaðið þar sem þeir segja •
frá rannsókn sinni á 4500 karl- j
mönnum, á aldrinum 20 til 79
ára. Niðurstaðan varð sú að
; dánartíðnin var lægri hjá þeim
sem skokkuðu reglulega.
Þættir eins og reykingar, lík-
; amsþyngd, blóðþrýstingur og
j kólesteról voru ekki teknir með
I í reikninginn.
„Þó svo að létt líkamsrækt
geri nokkurt gagn er nú álitið
að miðlungs og röskleg líkams-
rækt sé betri fyrir heilsuna,"
segir í grein dönsku vísinda-
mannanna.
jjajjj-i!
Indversku vísindamennirnir
hafa þegar sótt um einkaleyfi á
efni þessu sem einnig á að virka
vel gegn lifrarsjúkdómum og
fleiri meinum.
Þegar hafa verið gerðar til-
raunir á dýrum en á haustmán-
uðum stendur til að hefja til-
raunir á mönnum.
Snuð valda eyrnabólgu
Finnskir vís-
indamenn telja
að tengsl séu
milli mikillar
snuðnotkunar
ungbarna og hættunnar á
eyrnabólgu. Talið er að sogið
setji loftþrýstinginn í eyranu úr
skorðum og komi í veg fyrir að
eyrað geti losað sig á eðlilegan
hátt við vökva sem safnast fyrir
í því.
Rannsókn á rúmlega fjögur
hundruð börnum í Finnlandi
leiddi í ljós að eyrnabólgutilfelli
voru 33 prósentum færri hjá
börnum sem ekki tottuðu snuð-
ið stöðugt. Eyrnabólga er ein al-
gengasta ástæðan fyrir því að
farið er með ungbörn til læknis
og fyrir því að þeim eru gefin
sýklalyf.
Niðurstöður fmnsku rann-
sóknarinnar eru birtar í banda-
ríska bamalækningatímaritinu
Pediatrics.
JJalJj-J