Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2000, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
KagasMg
Gamli
PlayStation-
leikjavélin er án
efa ein vin-
sælasta leikjavél
sem framleidd
hefur verið.
Ótrúlegur fjöldi
eintaka hefur ratað í hendur tölvu-
leikjavina og leikjavélin selst enn þá
betur heldur en vélar keppinautanna,
Sega og Nintendo, i Japan.
Þegar PlayStation-leikjavélin kom
á markað hafði Nintendo-fyrirtækið
öll tögl og hagldir á markaðinum.
Reyndar byrjaði PlayStation upp úr
samkrulli hjá Sony og Nintendo i
kringum árið 1990. Sony hafði gert
samning við Nintendo um fram-
leiðslu á aukabúnaði fyrir SNES-
Það er ekki hvað síst leikjum eins
og Resident Evil að þakka að
PlayStation hefur haldið velli.
PlayStation-leikjavélin í fullu fjöri þrátt fyrir háan aldur:
grái jálkurinn er orðinn 5 ára
- enn söluhærri en Sega og Nintendo í Japan
leikjavélina sem gerði henni
kleift að nota sér nýja tækni
sem nefndist CD Rom. Sony
gerði þá einnig samning um að
fyrirtækið mætti framleiða eig-
in leikjakerfi sem gæti nýtt sér
aukabúnaðinn og fékk það
kerfi nafnið Play Station.
Nintendo ákvað hins vegar
að virða ekki samkomulagið og
sleit samstarfmu við Sony áður
en að framleiðslu aukabúnað-
arins kom. Nintendo gerði þess
í stað samning við Phillips um
framleiðslu sams konar búnað-
ar. Sony ákvað þá að henda
Play Station i ruslið og byrjaði
þróunarvinnu á leikjavéi sem
bar vinnuheitið PlayStation X
eöa PSX.
Lítil samkeppni
Loks þann 9. september 1995
kom PlayStation-íeikjavélin á
markað. Vélinni fylgdi einn
stýripinni, sjónvarpssnúra og
geisladiskur með alls konar
demóum. Fullt af leikjum kom
út um leið og vélin kom á
markaö, eins og Ridge Racer
akstursleikurinn vinsæli sem
átti eftir að koma út aftur og
aftur, Battle Arena Toshinden,
frekar slappur bardagaleikur í
ætt við Tekken, og The DNA
Imperative sem lítið er vitað um
en var víst fyrstu persónu skot-
leikur. Fleiri tölvuleikir fylgdu
svo í kjölfarið og ekki leið á
löngu þar til Sony hafði gert
samninga við yfir 150 tölvu-
leikjaframleiðendur.
Þegar PlayStation kom á mark-
að voru fyrir leikjavélar eins og
Sega Saturn sem var ein sorgar-
saga frá upphafi, Atari Jaguar
sem hvarf og leikjavél frá Pana-
sonic-fyrirtækinu sem ekki
margir muna eftir. Það má því
segja að PlayStation-leikjavélin
hafi fengið kjörið markaðsum-
hverfi strax i byrjun.
Magn og smávegis gæði
Það má segja að velgengni
PlayStation hafi verið þvi að
þakka að ótrúlegt magn leikja
hefur komið út fyrir leikjavél-
ina. Þó svo að meirihlutinn af
þessum leikjum hafi ekki verið
upp á marga fiska þá komu
alltaf fLottir leikir út með reglu-
legu millibili. Ekki má svo
gleyma því að Sony-fyrirtækið
í Japan er aöeins PlayStation2-leikjatölvan sölu- hefur alltaf lagt mikið upp úr
hærri en gamli grái jálkurinn. auglýsingum og einnig hefur
Það má segja að vel-
gengni PlayStatíon
hafí verið þvi að þakka
að ótrúlegt magn leikja
hefur komið út fyrir
leikjavélina. Þó svo að
meirihlutinn afþessum
leikjum hafí ekki verið
upp á marga fiska þá
komu alltaf flottir leikir
út með reglulegu milli-
bili.
það alltaf verið frumlegt í þeim efn-
um.
PlayStation-leikjavélinni hefur
gengið allt í haginn á þessum fimm
árum sem hún hefur verið á markan-
um. Reyndar er búið að hressa upp á
vélina og gefa hana út aftur sem
PlayStation One og er PlayStation-
vélin í ööru sæti á sölulistum í Japan
enn þann dag í dag, í fyrsta sætinu er
PlayStation2-leikjavélin. Það verður
gaman að fylgjast með hvort sagan
endurtaki sig og PlayStation2 eigi eft-
ir að ná sömu velgengni og gamli
grái jálkurinn. -sno
ItflT'WirillWIIHMU
—
Föt og tölvuleikir:
Diesel auglýsir
í Driver 2
Það er margt skrýt-
ið gert til að aug-
lýsa vörur og er
tölvuleikjaiðnaður-
inn engin undan-
tekning þar á. Nú hefur tölvu-
leikjafyrirtækið Infogames gert
samning við fataframleiðandann
Diesel, sem er best þekktur fyrir
gallabuxurnar sínar, um sam-
vinnu í kynningarmálum fyrir-
tækjanna.
Samningurinn felur í sér að að-
alsöguhetjan og aukaleikarar í
tölvuleiknum Driver 2 munu allir
klæðast fötum frá Diesel og aug-
lýsingaskilti frá fataframleiðand-
anum munu birtast sem partur af
umhverfinu í leiknum. Það sem
Infogames fær á móti er að Driver
2 mun vera auglýstur í búðum
Diesel-fyrirtækisins, sem eru ansi
margar og fjölsóttar. Einnig verð-
ur hægt að bragða á sýnisútgáfu
af leiknum i verslunum Diesel
um leið og slík útgáfa verður fá-
anleg. Þetta er auðvitað bráðsnið-
ugt fyrir bæði fyrirtækin þar sem
markhópur þeirra er af svipuðum
toga.
Þaö verður hátískuklæönaöur á persónunum í nýja Driver-leiknum.
Þótt Advance-útgáfan sé komin a< Game heldur Konami áfram aö framleiöa leiki á Color-vélina.
Konami-leikjafyrirtækið:
Með Game Boy á heilanum
- bæði Color og Advance
Leikjafyrirtæk-
ið Konami er án
efa best þekkt
fyrir hinn frá-
bæra leik, Metal
Gear Solid. Ekki
er það þó það eina sem Konami-fyr-
irtækið gerir því það er einnig af-
kastamikið í framleiðslu á leikjum
fyrir Game Boy Color og Game Boy
Advance-leikjavélamar.
Um síðustu helgi kynnti einmitt
Konami-fyrirtækið nýjustu afurðir
sínar fyrir þessar leikjavélar. Það
sem er helst á döfmni hjá Konami
fyrir Game Boy Advance er útgáfa
af leiknum Castlevania: Circle of
the Moon sem er hlutverka/ævin-
týraleikur af bestu gerð. Einnig eru
þeir hjá Konami aö leggja lokahönd
á leikina Mail de Cute og Monster
Breeder.
Konami er ekki búið að gleyma
Game Boy Color, þó svo að arftaki
þeirrar leikjavélar sé aö taka við.
Þeir eru með í smíðum leik sem
nefnist Mini Game Hajime Mashita
fyrir Game Boy Color. Leikurinn er
í raun safn af alls konar litlum
leikjum og er hann einn fyrsti leik-
urinn sem nýtir sér samtengingar-
möguleika Game Boy Color við far-
síma. Það gerir notendum kleift að
hlaða niður nýjum mini-leikjum í
Game Boy Color leikjavélina. Það er
greinilega nóg að gera í herbúðum
Það sem er helst á
döfinni hjá Konami fyr-
ir Game Boy Advance
erútgáfa af leiknum
Castlevania Circle of
the Moon sem er hlut- t
verka/ævintýraleikur1 *
afbestu gerð. Einnig
eru þeir hjá Konami að
leggja lokahönd á leik- i
ina Mail de Cute og
Monster Breeder.
■jrsiýip