Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Page 6
Nú er komið haust og skólarnir byrjaðir aftur. Nemendur mæta í skólann eftir sumarið og við tekur alvara lífsins. Félagslífið er mikilvægur þáttur í skólastarfinu og er það gífurlega öflugt í flestum skólum, bæði á háskóla- og menntaskólastigi, hér á klakanum. Til að komast að því hvað er á seyði var haft samband við nokkra af þeim sem bera hitann og þungann af félagslífinu, þeir spurðir hvort félagslífið sé í raun nauðsynlegt og hvort það sé kannski orðið svo viðamikið að fólk komist ekki yfir allt saman. Hvað er á seyði í vetur? „Félagslíílð er byrjað af fullum krafti, leiklistamámskeið er hafíð og skráning I leikprufur fyrir nem- endamótssýninguna okkar sem er í febrúar. Þetta árið ætlum við að setja upp Wake me up (before you go go) þar sem tónlistin frá árun- um 1980-85 ræður ríkjum. Ný- nemaballið var haldið I vikunni en það er fyrsta ball vetrarins. Dag- skráin er þétt í vetur, fjölmörg böll, og við stöndum fyrir nám- skeiðum og ferðum. Við reynum að virkja sem flesta til að taka þátt i félagslífinu og höfum það fjöl- breytt. Markmið okkar í ár er að hafa sem minnsta klíku í félagslíf- inu, við reynum að taka nýja inn og kynna þeim starfsemina í nem- endafélaginu. Að taka virkan þátt í félagslífi er tímafrekt en þetta er allt spurning um skipulagningu. Það er nauðsynlegt að geta tekið þátt í félagsstarfi og vera ekki bara „Félagslífið er komið á fullt og við höfum nú þegar farið í tvær vísindaferðir en þær eru á tveggja vikna fresti allt skólaáriö. Fólk þarf að skrá sig í ferðina og slóg- um við met um daginn þegar ferð- in fylltist á 45 sekúndmn. Fram undan hjá okkur er m.a. „paint- ball“-mót, sameiginlegt ball með Tækniskólanum og svo auðvitað visindaferðimar vinsælu. Það er nóg um að vera hjá okkur og fólk ræður því auðvitað sjálft hversu virkt það er. í góðum skóla er auð- vitað gott félagslif og allir frnna eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem standa í þessu kynnast fjölda fólks og einnig er alveg nauðsynlegt að lyfta sér upp öðru hverju. Félags- störfin taka sinn toll en það er bara af hinu góða, þetta er bara spuming um að finna hinn gullna meðalveg." Davíð Olgeirsson, formaður nem- endafélags Háskólans í Reykjavík Tvífaramir koma að þessu sinni úr heimi stjómmálanna. Sverri Her- mannsson þekkja allir enda hefur pUtur staðið í eldlínunni svo áratug- um skiptir. Suharto var mn langt skeið forseti í Indónesíu, eða allt þar til hann var hrakinn frá völdum. Það er ekki nóg með aö þessir kappar séu á svipuðum aldri heldur eiga þeir ýmislegt sameiginlegt. Eins og sjá má em blessaðir mennimir sláandi líkir en auk þess hafa þeir í gegnum tíðina báðir verið bendlaðir við spillingu af ýmsum toga. Sverrir var sak- aður um að hafa farið frjálslega með fé Landsbankans þegar hann var þar bankastjóri og frægar em sögumar af laxveiðiferðunum á meðan alls kyns sögur gengu um óheilindi Suhartos þegar hann var við völd. Það eina sem greina má á milli er að Suharto er víst eitthvað veikur núna um stimdir á meðan Sverrir er við hestaheilsu. Sverrir Hermannsson alþingismaður. Suharto, fyrrverandi forseti Indónesíu. bundinn við bækumar.“ Ari Björnsson, féhirðir nemenda- félags Verzlunarskóla íslands „Við erum nú þegar búin að halda eitt bjórkvöld. Þannig kvöld em haldin að prófum loknum en við tökum próf á sex vikna fresti hér í Tækniskólanum. Bekkimir era svo með visindaferðir í tengsl- um við þessi bjórkvöld. Við höldum auðvitað árshátið sem er hápunkt- urinn á vetrinum. Einnig höfum við staðið fýrir íþróttamótum sem hafa mælst ágætlega fyrir. Félags- lífið er alveg nóg eins og það er, við erum með viðráðanlegri bekkjar- stærðir heldur en háskólarnir þannig að við höfum ýmsa mögu- leika. Klúbbastarfsemi hefur ekki gengið hjá okkur því að margir vinna með náminu og em kannski komnir með fjölskyldu; við erum meira í þvi að fagna stórum áföng- um. Það er viss kjarni sem er virk- ari en aðrir í félagslífinu og er það eðlilegt. Það em ekki allir sem eiga þess kost að stunda félagslífið mik- ið vegna vinnu og heimilis. Ég er ekki að segja að þetta komi niður á náminu, maður fer ekki ef maður hefur áhyggjur af náminu." Nína Hjaltadóttir, formaður nemendaráös Tœkniskóla íslands „Haustönnin er aðeins rólegri en vorönnin í félagslífinu hér í FB en við emm byijuð af fullum krafti og fram undan hjá okkur er t.d. busa- ball og afmæli skólans, sem verður haldið 4. október næstkomandi, og verða mikil hátíðarhöld í kringum það. Við tökum þátt í ræðukeppni framhaldsskólanna og höldum söngvakeppni, svo eitthvað sé nefrit. Við foram í ferðir út á land, höldum þemakvöld og tónleika og svo er það árshátíðin sem er topp- urinn á árinu. Við hér í FB getum valið hraðann í námi okkar og tek „Það eru fjórar deildir innan Kennaraháskólans og er félagslífið því mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Við byijuðum af krafti nú í haust þegar deildirnar fjórar (grunn- skólaskor, leikskólaskor, þroska- þjálfaraskólinn og íþróttakennar- háskólinn á Laugarvatni) fóru sam- an til Laugarvatns. Þar grilluðum við og skemmtum okkur saman, það var brjáluð stemning hjá okk- ur. Við verðum með menningcU•- kvöld einu sinni í mánuði þar sem listafólk innan skólans mun láta ljós sitt skína. Einnig ætlum við að halda málfundi þar sem málefni kennarastarfsins verða rædd, við fáum góða gesti til að halda fyrir- lestra og við nemendumir fáum að spyrja þá spjörunum úr. Svo eru það fostu dagskrárliðimir, eins og jólaball, árshátíð og minni uppá- komur. Félagslífið er ekki of mikið en auðvitað er þetta aukaálag að standa að þessu fyrir utan námið sjálft, en þetta gefur mikla reynslu sem á eftir að nýtast manni, þetta er allt spuming um skipulagningu. Gott félagslíf gefur jákvæða ímynd og það er gaman að vera í skólan- um þegar félagslífið er öflugt." Sara Dögg Jónsdóttir, formaður nemendafélags grunnskólaskorar Kennaraháskóla íslands „Við stöndum fyrir nýliðaráð- stefnu í næstu viku fyrir fyrsta árs nema í viðskiptafræðinni. Á ráð- stefiiunni er starfið kynnt og verð- ur boðið upp á ýmiss konar nám- skeið, auk þess sem farið verður í óvissuferð og skemmtilega leiki. Aðalmarkmið AIESEC er stúdenta- skipti og í febrúar förum við á ráð- stefnu erlendis þar sem við kynn- umst kollegum okkar frá hinum ýmsu löndum. Þar öðlast maður mikla reynslu í t.d. að koma fram og við stjómun. Starfið í kringum AIESEC gefur okkur sem stöndum að þessu gildi í náminu. Það sem maður lærir í skólanum er grunn- urinn en í þessu starfi er það mannlega hliðin - að starfa með fólki, læra að vinna undir álagi, annast skipulagningu og vera í sambandi við fólk utan úr heimi. Starfið er vissulega tímafrekt en það kemur frekar niður á vinnu eftir skóla heldur en á náminu sjálfú. AIESEC er opið fyrir alla og þetta er orðinn einn stór vinahóp- ur.“ Bergljót Steinsdóttir, mannauós- stjóri AIESEC, alþjóðlegs félags há- skólanema Inglbjor; ég t.d. færri einingar í ár því ég vil einbeita mér að formannsstarftnu. Ég lít á þetta sem stórkostlegan undirbúning fyrir lífið sjálft, ég læri mikið og kynnist mörgu nýju fólki, þetta er þroskandi og ómet- anleg reynsla. Þetta er eitthvað sem maður lærir ekki í skólanum eða heima hjá sér. Það er sérstök menning sem skapast í kringum fé- lagslífið og þátttaka í því er vissu- lega þroskandi fyrir hvem sem er.“ Ingibjörg Högna Jónasdóttir, formaður nemendafélags FB 6 f Ó k U S 29. september 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.