Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Blaðsíða 13
i
Það virðist blunda lítill meikari í öllum íslendingum og þrálátur athyglissýkifaraldur. Hér á landi virðist
furðulega auðvelt að ná athygli fjölmiðla og frekar erfitt að falla af stalli frægðarinnar þegar honum er náð.
Sömu grínistarnir þurrausa brunna eigin skopskyns og sprella í skemmtiþáttum Ríkissjónvarpsins fram í
rauðan dauðann. Popparar sem byrja í bransanum með colgate-bros og slétta húð enda ferilinn með i
hnjásíða bauga, skaddaða slímhúð í nefi og rödd eins og ropvöði Malboromannsins. Stjórnmálamenn
breyta um stefnu og skipa sér í flokka og bandalög eftir vindátt og maka krókinn með nýjustu málunum
milli þess sem þeir þvo hendur sínar af gömlum hneykslum. Það eru gamlir jaxlar á öllum sviðum þjóðlífs-
ins sem dagar uppi í sviðsljósinu og steingervast. Flest er þetta mjög fyrirsjáanlegt og gaman er að velta
fyrir sér hverjir muni fylla skörð hinna þjóðkunnu manna nútímans eftir 15 eða 20 ár, þegar lög Nirvana og
Spice Girls hljóma á Gullinu og talað verður um GSM-síma eins og fótanuddtæki nú til dags.
Skemmtik r af t urinn
Pétur Kristjánsson.
„Birgir Örn og Maus leika fyrir
dansi á Kringlukránni íbstudags-
kvöld og á Næturgalanum laugar-
dag.“ Það er ekki svo langsótt að
þessi auglýsing kunni að birtast á
korktöflum í mötuneytum ríkis-
stofnana í náinni framtíð. Birgir
verður líklega svona útjaskaður og
raddlaus rokkhundur í einkakross-
för. Þjóðkunnur maður sem er
alltaf í viðtölum hjá Þór Bæring,
en enginn kippir sér upp við að
hitta í Bónus. Fær að djamma með
Adda Fannari og Hreimi endrum
og eins, en væri ekki í neinni
Broadway-sýningu ef það væri
ekki fyrir tengsl hans við skemmt-
anastjórann. Eins og allir vita er
Maus reyklaus hljómsveit, því er
ekki úr vegi að ímynda sér Birgi
sem plöggara fyrir Tóbaksvama-
ráð. Kannski næsti Þorgrímur Þrá-
insson, sem skrifar unglingabækur
þar sem aldrei kemur fyrir svo
mikið sem tóbaksklípa og fjallar
um rokk í staðinn fyrir knatt-
spymu í skáldskap sínum. Með
suð í eyrunum og Tár, maus og gít-
amögl kunna aö sjást I komandi
jólabókaflóðum..
Steinn Ármann Magnússon og Ómar
Ragnarsson.
Birgir Mausari.
Steinn Ármann verður orðinn
svona sígildur grinari eftir nokkur
ár; ofvirki spéfuglinn sem er á þön-
um, hlaupandi á milli Þjóðleik-
hússins og tökustaða en mætir
reglulega til að kynna á Broadway.
Fær að segja dónalega Hafnfirð-
ingabrandara á árshátíð Eimskips
og íþróttafélaganna, einokar kab-
arettsýningar og er áskrifandi að
áramótaskaupinu. Þá verður Radí;
us orðið svona svipuð pæling og
Kaffibrúsakallamir, eitthvert óg-
urlegt grín í afmörkuðum hópi
menntaskólastráka.
Selma Björnsdóttir.
Helga Möller.
Popp
drottn-
ingin
Þó að gríðarlegir sönghæfileikar
Selmu minnki vart með árunum er
óvíst að hún nenni að tjútta í Júró-
visjón fram undir eftirlaunaaldur,
og kannski líklegara að hún safni
spiki og taki til við að kynna tölur
kvöldsins í Lottóinu. Það gæti orð-
ið gleðilegt sjónvarpsefni. Til dæm-
is: „Þá em þær komnar, tölur
kvöldsins, og vonandi eru ekki all-
ir „All out of luck“. Við kveðjum
að sinni, og þangað til næst segjum
við bara „Respect yourself‘. Selma
mun þó ömgglega hafa mörg jám í
eldinum og troða reglulega upp.
Kannski verður hún í Britney
Spears-sýningunni hans Robba
Chronic, með Emilíönu Torrini og
Svölu Björgvins, á milli þess sem
hún kemur fram með Quarashi á
Kringlukránni.
*
Eva Sólan og Rósa Ingólfs
Eva hefur komið ótrúlega sterk
inn í þulustarfið hjá Ríkissjón-
varpinu og enginn þyrfti að undr-
ast, enda mikið skáld þar á ferð-
inni og kjamakvendi. Það fer ylur
um stofur áskrifenda RÚV þegar
Sólan birtist á skjánum og dregur
úr skúmaskotum oröaforða síns
fegurstu orð íslenskunnar til
kynningar á Kavanagh lögmanni
og tíufréttum. Mörgum þykir sem
þeir sjái mikinn svip með Rósu og
Evu á skjánum. Ef til vill er helsta
einkennið að þær kunna báðar að
nota andlitsfarðann til að lífga upp
á útlitið og láta þannig áhorfend-
um líða eins og málverk eftir ex-
pressjónista sé að kynna dag-
skrána, og allt á mannlegu nótun-
um. Það hlýtur að vera þjóðarvilji
fyrir því að hafa Evu i þessu starfi
um ókomin ár og hvemig væri að
slengja æviráðningu og fálkaorðu
á skjátuna, við tækifæri?
Kanebo
|
Uciihi
d á SKJAEINUM
! Winsælasti islenski þáttur siðasta sot
gþngu sína og nú i nýjum búníngr. ffl
og nýr tími. Fy/gstu með Dóru TakSi
kvold klukkan 22.30 á SKJÁEINUM^
kjallarann og taktu þátt i fjörinu. SK:
f
29. september 2000 f ÓktlS