Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Page 4
Fréttir
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
I>V
Raufarhafnarhreppur samþykkir lán til sveitarstjórans:
Algjörlega siðlaust
og kolólöglegt
- segir Hafþor Sigurösson - brýt ekki lög, segir sveitarstiórinn
Sveitarstjórinn á Raufarhöfn,
Reynir Þorsteinsson, stofnaði fyrir
nokkru netverslunarfyrirtækið Net-
ver. Til að markaðssetja fyrirtæki
Reynis samþykkti meirihluti sveit-
arstjómar sl. mánudag að veita því
10 milljóna króna víkjandi lán, sem
valdið hefur hörðum deilum.
Hafþór Sigurðsson verksmiðju-
stjóri er fulltrúi Raufarhafnarlist-
ans, sem situr í minnihluta hrepps-
nefndar, en í meirihluta sitja þrír
fulltrúar sem buðu sig fram í nafni
Alþýðubandalags. Hann segir að
þetta „lán“ hafi verið knúið fram
með meirihlutavaldi. „Þetta er al-
gjörlega siðlaust og út fyrir allt vel-
sæmi. Þetta stangast á við sveitar-
stjórnarlög, því þar er skýrt kveðið
á um það að sveitarfélagið er ekki
lánastofnun. Þarna eru sveitarstjór-
anum lánaðar án allra ábyrgða 10
milljónir króna. Hann er að ná sér í
fé úr sveitarsjóði til einkanota. Ég
er búinn að kynna mér það hjá fé-
lagsmálaráðuneytinu og Sambandi
íslenskra sveitarfélaga að þetta er
kolólöglegt. Þetta verður því kært.
„Forsendan fyrir þessu er að þeg-
ar Raufarhafnarhreppur seldi hlut
sinn í Jökli eignaðist hreppurinn
peninga. Þá samþykktu allir fulltrú-
ar sveitarstjórnar að þessir pening-
ar skyldu fara í að styrkja atvinnu-
lífið og koma á fót öðrum valkostum
í atvinnulífinu. Ég er búinn að láta
smíða verslunarvef á Netinu sem
hefur kostað mig 10 milljónir króna.
Hann er nú tilbúinn en markaðs-
setningu vantar. Mín hugmynd var
hvort hreppurinn gæti ekki komið
að því. Mönnum líst þó greinilega
Raufarhöfn.
ekki betur á uppbyggingu atvinnu-
lífs úti á landi en svo að menn vilja
helst byrja á því að draga hana ofan
í svaðið til sín.
Þarna er um víkjandi lán að ræða
sem hægt er að breyta í hlutafé.
Sveitarfélögum er heimilt að kaupa
hlutabréf. Það stendur heldur
hvergi í lögum sveitarfélaga að þau
.rnegi ekki lána peninga. Það sem
hins vegar stendur í lögum er að
þau megi ekki skrifa upp á sem
ábyrgöaraðilar fyrir þriðja aðila.
Ég er nú búinn að tala bæði við
lögfræðinga félagsmálaráðuneytis-
ins og eins hjá Samtökum íslenskra
sveitarfélaga. Þeir segja að það
standi ekkert skýrt um þetta í lög-
um. Það hafi heldur aldrei reynt á
það. Á ráðstefnu um verkefni sveit-
arfélaga vildu sumir meina að túlka
ætti sjöundu grein laga um verkefni
sveitarfélaga mjög þröngt. Ef það
standi ekki í greininni sé það
óheimilt. Þetta snýst því fyrst og
fremst um lagatúlkun. Það er ekki
búið að veita þetta lán og ef það er
minnsti vafi á lögmæti þess þá verð-
ur það ekki gert. Þetta er ekkert
flóknara en það. Hér ætla menn
ekki að brjóta nein lög,“ sagði Reyn-
ir Þorsteinsson. -HKr.
Metuppskera á
korni í Skagafirði
DV, SAUDÁRKRÓKl:
Kornskurði er nýlokið i Skaga-
firði. Uppskeran er mjög góð, sú
besta síðan kornræktartilraunir
byrjuðu þar 1993. Að sögn Eiríks
Loftssonar, jarðræktarráðunautar
hjá Búnaðarsambandi Skagfirðinga,
eru bændur að fá um fimm tonn af
þurru korni af hektaranum þar sem
best er, en líklega um fjögur og hálft
tonn að meðaltali.
Eiríkur segir kornuppskeruna
aldrei hafa verið jafn mikla og jafna
á milli svæða og nú í sumar. Korn-
spretta var mjög góð í Hjaltadal og í
Hegranesi, en besta svæðið er þó
eins og undanfarin ár Vindheima-
svæðið og þar er komið líka allt
saman fullþroskað.
„Það er engin spurning að bænd-
ur hér eru að bera mikinn hag af
komræktinni, sérstaklega eftir
svona sumar. Við erum líka komnir
með góða stofna og höfum náð tök-
um á áburðargjöfinni, þannig að
menn eru að ná tökum á flestum
þáttum og tilkostnaðurinn verði
sem minnstur," sagði Eiríkur Lofts-
son. Á liðinu sumri var komi sáð í
um 300 hektara í Skagafirði. Korn-
bændur í Skagafirði eru tæplega 30
talsins. -ÞÁ
DV-MYND ARNDÍS ÞORGEIRSDÖTTIR
Myndarleg uppskera
Strákarnir á myndinni voru að skoða kornuppskeruna hjá Reykdælingum í lok ágúst, þá átt enn eftir að bæta við
sprettuna, sem vargóð þar eins og víðar um landið.
Skartgripaþjófnaður:
Rúmeninn enn í
gæsluvarðhaldi
Hæstiréttur hefur staðfest fram-
lengt gæsluvarðhald yfir Rúmena
sem ákærður er fyrir að hafa komið
hingað til lands og brotist inn í
nokkrar skartgripaverslanir á höf-
uðborgarsvæðinu í sumar. Maður-
inn er sakaður um að hafa stolið
skartgripum að verðmæti 25 millj-
ónir króna og sent mikinn hluta
þýfisins úr landi til Rúmeníu. Lög-
reglu hefur aðeins tekist að ná hluta
þýfisins til baka.
Fulltrúi lögreglunnar, Hjalti
Pálmason, æskti þess að maðurinn
sæti i gæsluvarðhaldi til 17. nóvem-
ber, en héraðsdómur stytti þann
tíma til 3. nóvember og staðfesti
Hæstiréttur þann úrskurð.
Héraðsdómur taldi að ef mannin-
um er gefið frelsi sé hætta á að
hann reyni að flýja land eða haldi
áfram brotaferli sínum hér á landi.
Maðurinn hefur játað á sig sjö inn-
brot hér á landi. Einnig er hann
sakaður um að hafa villt á sér heim-
ildir, en hann sótti um hæli á Is-
landi sem pólitískur flóttamaður
undir röngu nafni og gekk einnig
undir þremur nöfnum utan síns
rétta nafns. -SMK
Deilur um vigtun
afla í Bolungarvík
Mikil óánægja er meðal trillusjó-
manna í Bolungarvík með vigtun afla
í höfninni. Telja þeir að mörg fiski-
kör, sem skrifuð eru sem 60 kíló, séu
ekki nema 50-55 kíló og aflinn því
áætlaður mun minni en hann er í
raun. Að sögn Guðmundar Halldórs-
sonar, formanns smábátafélagsins
Eldingar, hefur þetta viðgengist mán-
uðum saman. „Samkomulag var gert
við hafnaryfirvöld um að notuð væru
40, 50 og 60 kílóa kör. Hins vegar hef-
ur verið þrjóskast við að kalla þau
annaðhvort 40 eða 60 kíló þó aö mörg
þeirra séu þar á milli. Það er komin
nokkur stífni í þetta mál en þetta
vandamál er hvergi á Vestfjörðum
nema hér í Bolungarvík," segir Guð-
mundur. Einar Helgason hafnarvörð-
ur vildi ekki tjá sig um málið. -MT
Fíkniefnamál:
Þrír áfram í gæslu
Hæstiréttur hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur yflr
þremur mönnum sem sæta gæslu-
varðhaldi vegna fikniefnamisferlis.
Einum þeirra er gert að sitja í
gæsluvarðhaldi til 13. október en
hinir tveir skulu eyða tíma sínum á
Litla-Hrauni til 19. október.
Lögreglan er enn að rannsaka
fikniefnamálin. Allir mennimir eru
grunaðir um að eiga aðild að inn-
flutningi á fikniefnum. -SMK
Wðríð t hvolt! | §í»lí»rgé!»tgiir o|í &júvé!rföll VPÖríð kl. 6
KtTrUAVm AAUKtTKI
Sólarlag í kvöld 18.17 17.58
Sólarupprás á morgun 08.12' 07.10
Síðdegisflóð 17.59 22.32
Árdegisflóð á morgun 06.16 10.49
O. Skýríngar á veöurtákmim
Hæg breytileg átt
Norðlæg átt, 5 til 8 m/s vestanlands, en
annars 81 il 13. Él noröan til en léttskýjað á
Suðurlandi. Hiti 0 til 5 stig. Hæg breytileg átt
og léttskýjaö í kvöld. Frost 0 til 5 stig í nótt.
Færðin á landinu
Hálka eöa hálkublettir á Holtavöröu-
heiöi og víða á heiöavegum á Vest-
fjöröum og á Noröur- og Norðaustur-
landi.Þungfært er á Þorskafjaröarheiöi
og Lágheiði. Ófært er taliö um Hellis-
heiöi eystri. Greiöfært á öðrum
þjóðvegum. Á hálendisvegum er víöa
ekki vitaö um færö en þó er talið ófært
um Kaldadal, Kjalveg aö sunnanveröu,
Fjallabaksleiö syöri og nyrði og í Laka.
—VINDATT 15) ~WSVINDSTYRKUR í motruin i sökúntlu 10°*_ HITI 10“ NkFROST HBOSKÍRT
o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
i*
ÉUAGANSUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Rigning um mestallt land
Á morgun verða austan 13 til 18 m/s og rigning sunnan til en vaxandi
austanátt og skýjaö noröan til fram aö hádegi. Austan 13 til 18, rigning
um mestallt land og hiti 2 til 7 stig síðdegis.
Vintíun .—- 'SCI
5-13 /
Hiti 4“ til 8°
Suðaustlæg átt, 8-13 m/s
allra vestast en annars
5-10. Skúrir sunnan- og
vestan til en skýjað með
köflum á Norðurlandl. Hltl
4 tll 8 stlg.
Vindur:
10—15 m/s '
Hiti 4° tii 9°
Suðaustan 10-15 m/s
austan tll en annars
hægari austanátt. Rignlng
um mestallt land. Hlti 4 til
9 stlg.
MfUlUShig!!
Vindur O
5-10 „v»
Hiti 4° til 9°
Suðaustlæg átt og skúrir
sunnan- og vestanlands en
léttskýjað á Norðurlandi
og áfram mllt.
AKUREYRI léttskýjaö -4
BERGSSTAÐIR alskýjaö -1
BOLUNGARVÍK alskýjaö 0
EGILSSTAÐIR -1
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 0
KEFLAVÍK léttskýjað -2
RAUFARHÖFN skýjaö 1
REYKJAVÍK hálfskýjaö -3
STÓRHÖFÐI léttskýjaö -1
BERGEN rigning
HELSINKI alskýjaö
KAUPMANNAHÖFN skýjað
ÓSLÓ alskýjaö
STOKKHÓLMUR rigning
ÞÓRSHÖFN skýjaö
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö
ALGARVE skýjað
AMSTERDAM léttskýjaö
BARCELONA rigning
BERLÍN skýjaö
CHICAGO heiösktrt
DUBL|N léttskýjaö
HALIFAX léttskýjaö
FRANKFURT léttskýjaö
HAMBORG léttskýjaö
JAN MAYEN rigning
LONDON skýjaö
LÚXEMBORG hálfskýjaö
MALLORCA rigning
MONTREAL léttskýjaö
NARSSARSSUAQ rigning
NEW YORK heiöskfrt
ORLANDO hálfskýjaö
PARÍS skýjaö
VÍN skýjaö
WASHINGTON heiöskírt
WINNIPEG heiðskírt
12
10
11
11
10
8
12
14
9
13
10
8
6
8
10
7
6
10
7
18
7
5
15
17
9
17
9
9