Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Síða 23
27
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
H>"V Tilvera
Pavarotti 65 ára
Einn frægasti
óperusöngvari ald-
arinnar, Luciano
Pavarotti, er sex-
tiu og fimm ára í
dag. Pavarotti er
sjálfsagt þekktast-
ur meðal almenn-
ings fyrir að vera
einn af tenórunum þremur (Placido
Domingo og Jose Carreras eru hinir
tveir) sem af og til koma fram saman.
Pavarotti fæddist í Modena á Ítalíu og
var faðir hans bakari. Hann kom fyrst
fram í óperu La Boheme árið 1961 og
hefm síðan verið í hópi bestu óperu-
söngvara i heimi.
Gildir fyrir föstudaginn 13. október
Vatnsberlnn (20. ian.-l8. febr.):
i Mikilvægt er að þú
haldir ró þinni þó að
lgj‘, fólk sé eitthvað að æsa
_ ■ sig í kringum þig.
Gefðu þér góðan tíma áður en þú
tekur erfiða ákvörðun.
Fiskarnlmð. febr.-20. mars):
Hikaðu ekki við að
lleita þér aðstoðar við
að leysa erfitt verkefni
sem þú þarft að leysa.
Vinur þinn borgar þér gamla
skuld.
Hrúturlnn (21. mars-19. apríll:
Þú iiittir gamlan vin
^ og þið rifjið upp gömul
kynni. Þetta kemur
töluverðu róti á huga
þinn. Kvoldið verður ánægjulegt.
Nautlð 170. anril-?0. maíl:
Gerðu þér glaðan dag.
Þú átt það virkilega
inni þar sem þú hefur
staðið í ströngu undan-
5. Ungviðið er í stóru hlut-
verki.
Tvíburarnlr (21. maí-2i. iúníi:
Þér gengur ekki vel að
' koma þér að verki.
Töluverð samkeppni
ríkir í kringum þig og
hún gæti valdið dálítilli streitu.
&
farið. Ungv
verki.
Tvíburarnlr (2
h-l
Krabbinn (22. iúní-22. iúifi:
Þér verða falin flókin
I verkefhi í vinnunni og
þú veist ekki alveg
_____ hvemig best er áð
sriuasér í þeim. Þegar þú loksins
þorir að byrja gengur allt vel.
Llónlð (23. iúii- 22. áeústl:
Áætlanir þinar ættu
að standast ef þú fylgir
þeim vel eftir. Þú þarft
að vera vakandi fyrir
nýjum tækifærum. Happatölur
þínar eru 7, 14 og 17.
Mevian (23. áaúst-22. seoU:
Láttu ekki happ úr
hendi sleppa. Tækifær-
in eru nefhilega allt í
^ 1 kringum þig ef þú
bara kemur auga á þau. Vinir
standa saman.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Ý
ekki í máli
Hætta er á misklíð í
vinnimni. Ef hún
snertir þig ekki beint
er best að blanda sér
ekki í málin. Þér verður falin
aukin ábyrgð.
Sporðdreki (?4. okt.-?i... nóv.k
I Þeir sem ekki eru ást-
i fangnir nú þegar,
jverða það svo um
munar á næstunni.
Rómantíkin tekur öll völd.
Bogamaður (22. nðv.-2l. des.):
LÞú ert fremur einmana
rum þessar mundir. Þú
: þarft sjálfur að gera
eitthvað til að bæta
þar úr þar sem ekkert gerist al-
gjörlega án fyrirhafnar.
Steingeitin 122. des.-19. ian.):
Þér veitir ekki af að
nýta morguninn vel til
allra verka þar sem þú
verður fyrir truflunum
síðdegis. Þú færð fréttir af fjar-
lægum vini.
Heimurinn er heima - ráðstefna um fjölmenningarlegt samfélag:
Fjölbreytni auðgar
Um hádegi í dag hefst ráð-
stefnan Heimurinn er
heima - Fjölmenningarlegt
samfélag á íslandi á Grand
Hótel. Ráðstefnunni lýkur
siðdegis á morgun.
Samstarfsnefnd Reykja-
víkur um málefni nýbúa
stendur fyrir ráðstefnunni.
Samstarfsnefndin hefur fyr-
ir hönd Reykjavíkurborgar
imdanfarið unnið að stefnu-
mótun í málefnum útlend-
inga búsettum í Reykjavík
og er ráðstefnan liður i þess-
ari stefnumótun.
Snjólaug Stefánsdóttir,
verkefnisstjóri á þróunar-
og fjölskyldusviöi Ráðhúss
Reykjavíkur, er formaður
samstarfsnefndarinnar. „Á
ráðstefnunni verður rætt
um hvemig við getum nýtt
okkur kosti þess að við
erum að verða fjölmenning-
arlegt samfélag. Því fylgja
íjölmargir kostir en það er
líka ýmislegt sem við þurf-
um að hyggja að. Við þurf-
um að búa útlendingum
sem hingað flytjast sóma-
samlegar aðstæður sem em
til þess fallnar að valda ekki
fordómum í samfélaginu.
Við þurfum einnig að Fróóleg ráöstefna
tryggja þessu fólki íslensku- Snjólaug Stefánsdóttir er formaöur samstarfsnefndar Reykjavíkur um málefni nýbúa
kennslu o.s.frv.“ segir Snjó- ...............................
laug.
Á ráðstefnunni verða
einnig kynntar fyrstu niðurstöður
könnunar sem Gallup á íslandi
vann fyrir samstarfsnefndina á
viðhorfum útlendinga til ýmissa
þátta hér á landi. „Við fáum líka
erlenda fyrirlesara sem hafa ýmsu
að miöla okkur.“
Dagskrá ráðstefnunnar er þétt
og gríðarlega fróöleg. í kvöld verð-
ur svo í tengslum við ráöstefnuna
fjölmenningarleg veisla í Borgar-
bókasafninu við Tryggvagötu á
vegum Reykj avíkurborgar og sam-
takanna Fjölbreytnin auðgar. „Við
ætlum að nálgast málefnið með já-
kvæðum formerkjum,“ segir Snjó-
laug, „enda er þetta ekki vanda-
mál, flest af þessu fólki er hingað
komið fyrir atbeina vinnumarkað-
arins.“
-ss
Geri með
flottustu
brjóstin
Það hefur aldrei farið á milli
mála að Geri Halliwell er með
flottustu brjóstin í bænum. Nú
hefur það verið opinberlega stað-
fest að svo sé, að því er kvenkyns
lesendur breska timaritsins Pink
Ribbon Magazine úrskurðuðu.
Kryddpían fyrrverandi skaut
mörgum bijóstfögriun konum aft-
ur fyrir sig, þar á meðal Jennifer
Lopez, sem lenti í öðru sæti, og
Liz Hurley, sem lenti í þriðja sæti,
ásamt tveimur öðrum.
Aumingja Pamela Anderson
lenti bara í níunda sæti, enda bú-
in að fjarlægja eitthvað af sílokon-
púðunum úr barmi sínum.
Bíógagnrýni
Glæsilegt feilskot
The Legend of 1900 ★ ★
Ég veit satt að segja ekki hvort
maður á að vera þakklátur fyrir
margar fallegar senur í The Legend
of 1900 eða vonsvikinn yfir að
myndin gengur ekki upp; er glæsi-
legt feilskot. Og það fer ágætlega á
því að vera hvort tveggja.
The Legend of 1900 er ævisaga
manns sem fæðist um borð í
skemmtiferðaskipi og elur þar allan
sinn aldur. Hann hefur fullkomin
tök á þessari litlu veröld og skortir
kjark til að fóma örygginu fyrir
óvissu stóra heimsins. Fyrir galdur
ævintýrsins hefur hann öðlast náð-
argáfu; hann getur tjáð lífssýn sína
og tilfinningar gegnum nótnaborð
píanósins. Og hann hefur frjálsan
hug þótt hann sé sífellt á sama stað
(sem er reyndar umdeilanlegt þar
sem skipið er á endalausum sigling-
um milli Evrópu og Ameríku).
Margar senur í The Legend of
1900 er frábærar. Fæðingarsaga að-
alhetjunnar og bemska er til dæmis
glæsileg goðsaga með sérstæðum
persónum og í undarlegu en til-
komumiklu umhverfi. í raun má
segja að myndin komist á flug í
hvert sinn sem Tornatore lætur sög-
una þjóta hjá með röð örsmárra at-
riða en um leið og hann hægir á
höktir hún - og þegar hún staldrar
við samtal tveggja einstaklinga þá
er hún við það komin að gefa upp
andann; sá ljúfi endurminningar-
andi sem svífur
yfir frásögninni
hverfur og eftir
sitja tveir leikar-
ar sem reyna að
blása lífi í hálf-
ónýtan texta í of-
hlöðnum samtalssenum. Þetta leik-
ur Pruitt Taylor Vince sérstaklega
illa þar sem hann þarf að rekja sög-
una áfram - oftast gegn vilja áheyr-
enda sinna - og vera auk þess á
barmi andlegs skipbrots. Það er síð-
I 29. september - 12. október 2000
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík
an hipsum haps hvað af þessu
kemst til skila og hvað verður bara
hjákátlegt.
Eins og höf-
undarnir hafa
sterka löngun
til að búa til fal-
lega sögu um
fegurð lífsins og
veikleika mannskepnunnar til að
njóta hennar þá tekst þeim það
ekki. Endalokin sem þeir búa aðal-
persónunni eru billeg og innri rök
sögunnar standa ekki undir henni.
Og þar sem sagan er sögð af sam-
5».
Gunnar Smári
Egilsson
ferðamanni sem verður viðskila við
aðalhetjuna þá vantar stóran hluta í
söguna sem ekki tekst að fylla með
endursögn. Þegar höfundar vilja
bregða fyrir sig lífsspeki skortir þá
kjark og umvetja hana einhverri ár-
ans ljóðrænu þannig að eftir stend-
ur eitthvert hálfkák og bull.
Tim Roth tekur þann kostinn í
aðalhlutverkinu að gera frekar
minna en meira og kemst því gletti-
lega vel frá sínu. Hann fleytir sér
áfram á stórum augum og hlýlegu
glotti. Tónlistin er mikilvægur þátt-
ur í myndinni - eins konar dansi-
ballsdjass. Það er mikið á hana lagt
þar sem hún er látlaust mærö í
myndinni og auðvitað stendur hún
ekki undir því. Þegar upp er staðið
verður hún tákn fyrir hvað þessi
saga færi miklu betur á bók en í bíó.
Gunnar Smári Egilsson
The Legend of 1900. Ítalía 1998. Leik-
stjórn: Giuseppe Tornatore Handrit:
Giuseppe Tornatore byggt á texta Al-
essandro Baricco Tónlist: Ennio
Morricone, Roger Waters. Leikarar: Tim
Roth, Pruitt Taylor Vince, Clarence Willi-
ams III, Bill Nunn, Mélanie Thierry o.fl.
Jljó irriLjndaítoj'a E.ijkjauílzu.’i
‘finntjocjí ^axínónon
fý'ócJa’i
[jóiniLjn díri
cJTu£if-Li.cjötu 105 - 2. hæcí
JóunL 562 1166 - 862 6636