Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Side 25
29
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
X>V Tilvera
Djöfullinn velur sér líkama
Laugarásbíó og Háskólabíó frum-
sýnir á morgun spennutryllinn Lost
Souls. í henni leikur Winona Ryder
unga konu, Maya Larkin, sem á
trúnni líf sitt aö þakka. Djöfullinn
sjálfur haföi hana í greipum sér þeg-
ar faðir Lareaux (John Hurt) náði
að bjarga henni á elleftu stundu og
varð í framhaldi af því lærimeistari
hennar og vemdari. Hann hvetur
Mayu til þess að ganga til liðs við
hóp af prestum sem trúa því stað-
fastlega að djöfullinn muni dag einn
taka sér bólfestu í líkama mannveru
og hrinda heiminum í eilífa glötun.
Á meðan er rithöfundurinn Peter
Kelson (Ben Chaplin) að skoða sig
um í hugum þekktra ofbeldisglæpa-
manna og reyna að átta sig á því
hvað rekur þá til glæpaverka. Hann
trúir því ekki að til sé eitthvert eitt
illt afl í heiminum og að hans mati
eru andsetningar tómar kerlinga-
bækur. En um leið glímir hann við
eigin fortíð því i bamæsku hans
voru báðir foreldrar hans myrtir og
olli það því að hann sneri baki við
kirkjunni þrátt fyrir að hafa verið
alinn upp hjá presti.
Leiðir þessara tveggja ólíku per-
sóna liggja saman þegar Maya tekur
þátt í særingarathöfn á vegum
kirkjunnar en viðfangsefnið er
Henry Birdson, ofbeldisfullur
glæpamaður. Eftir að athöfnin mis-
tekst leggst Maya yfir síðustu skila-
boðin sem komu frá Henry Birdson
og eftir nokkra yfirlegu sér hún að
merking þeirra er á þá leið að djöf-
ullinn sé búinn að velja þá mann-
veru sem hann muni taka sér ból-
festu í og er það Peter Kelson.
Leikstjóri Lost Souls er Janusz
Kaminski sem er einn fremsti kvik-
myndatökumaður í heiminum í dag
og kvikmyndaði meðal annars Sav-
ing Private Ryan. -HK
Winona Ryder
Hún leikur konu sem djöflar og illir andar ná tökum á.
Fantasía 2000
KBBHi
Dancer in the Dark
Dancer in the Dark er hámeló-
dramatísk sápuópera gerö af hjartans ein-
lægni og miklu næmi en um leiö læöist
stöðugt aö manni sá grunur aö von Trier sé
aö skemmta sér viö aö hafa áhorfandann
aö fífli. -ÁS
High Fidetity
**** Þetta er sérlega skondin mynd um
ofur venjulegt nútímafólk og ofur venjulegar
raunir þess, þannig gerö aö manni stendur
ekki á sama um fólkið í henni og vill þvi allt
hiö besta. Þaö er gott aö finna þannig til
þegar maöur gengur út úr bíóinu. -ÁS
Buena Vista Social Club
**** Einstök upplifun, innihaldsrík og
skemmtileg heimildamynd um tónlist og tón-
listarmenn á Kúbu sem voru velflestir horfnir
af sjónarsviðinu þegar blúsgítarleikarinn og
kvikmyndatónskáldið Ry Cooder hafði upp á
þeim áriö 1997 og geröi meö þeim plötu
sem ber sama heiti og kvikmyndin. Tæpum
tveimur árum síöar fór Ry Cooder aftur til
Kúbu og þá var Wim Wenders meö í förinni
og afraksturinn er ein besta heimildarmynd
síöari ára, gefandi kvikmynd, ekki eingöngu
um tónlist og tónlistarmenn heldur einnig líf-
ið sjálft. -HK
The Straight Story
**★* Hugljúf og gefandi mynd úr smiöju
Davids Lynch sem sýnir aö hann getur veriö
á mannlegum nótum. Myndin er óvenjuleg
vegamynd þar sem segir frá mörg hundruð
milna ferö mannas á áttræöisaldri á sláttu-
vél. Hinn nýlátni leikari, Richard Farnsworth,
er kjölfestan í myndinni og Lynch leyfir hon-
um að njóta sín. -HK
X-Men
★** X-Men er mikið sjónarspil, tæknilega
fullkomin. Hraðinn í atburöarásinni kemur þó
aldrei niður á sögunni sjálfri, sem hefur
marga anga, og þaö er merkilegt hvaö tekist
hefur aö gera teiknimyndaofurmenni að jafn-
lifandi persónum og raunin er. Leikarar eru yf-
irleitt mjög góöir, meö þá lan McKellan og
Patrick Stewart fremsta meðal jafningja. -HK
101 Reykjavík
Michelle Pfeiffer og Harrison Ford
Þau leika hjón sem þurfa aö ganga í gegnum mikla lífsreynslu.
Fimmtíu og níu ár er sjálfsagt
það lengsta sem liðið hefur á milli
framhaldskvikmynda en það er
tímamunurinn á tnilli Fantasíu,
sem gerð var 1941, og Fantasíu
2000. Fantasía var tilraunakennt
meistaraverk þar sem Walt Disn-
ey nýtti sér alla sína bestu teikn-
ara til að myndskreyta klassískt
tónverk. Myndin hefur síðan verið
sýnd í kvikmyndahúsum um allan
heim með jöfnu millibili og ber
aldurinn vel. Disney sjálfur sagði
að það ætti að gera Fantasíu ár-
lega en það er ekki fyrr en nú að
önnur mynd er gerð sem byggð er
á hugmyndum hans.
Eins og í fyrri myndinni skipt-
ist Fantasía 2000 í nokkra hluta
þar sem tónlistin ræður ferðinni.
Sá sem hratt þessu stórvirki í
framkvæmd var Roy Disney sem
lengi var við stjómvölinn í Disn-
ey-samsteypunni. Hann var
frændi Walts Disneys og var faðir
hans einn af stofnendum fyrirtæk-
isins. Verkin eru öll meðal þekkt-
ustu klassískra tónverka. Má þar
nefna Sinfóníu nr. 5 eftir Beet-
hoven, píanókonsert nr. 2 eftir
Shostakovich, Eldfuglinn eftir
Stravinski og Rhapshody in Blue
eftir George Gerswin. Til að
teikna og semja sögu í kringum
verkin voru fengnir allir fremstu
listamennirnir hjá Disney, menn
sem hafa skapað hinar stórkost-
legu teiknimyndir síðari ára. -HK
Rhapsody in Blue
Hraðinn í New York er myndræna útlistunin á þessu fræga verki eftir Ge-
orge Gerswin.
*** Hilmir Snær leikur auðnuleysingjann
Hlyn sem lifir og hrærist í hverfi 101 Reykja-
vík. Líf hans er í föstum skorðum þar til vin-
kona móöur hans kemur í heimsókn og úr
verður einhver sérkennilegasti ástarþríhyrn-
ingur íslenskrar kvikmyndasögu. Fjörug
mynd sem býr þó yfir þungri og alvarlegri
undiröldu. -BÆN
íslenski draumurínn
*** Líflegt og skemmtilegt handrit sem er
uppfullt af lúmsku háöi og skemmtilegum
oröaleikjum. Styrkleiki myndarinnar er
Áannski einnig helsti veikleikinn. Persónurn-
ar tala mikiö í myndavélina og þótt handritiö
bjóöi upp á skemmtileg tilsvör og oröaleiki,
þar sem góöir leikarar skapa eftirminnilegar
persónur og fara vel meö textann, þá er
ekki laust viö aö atburöarásin hafi hæöir og
lægðir. íslenski draumurinn lofar góöu um
framtíöina hjá Robert Douglas. -HK
Leikstjórinn og leikararnir
Robert Zemeckis ræöir viö Harrison Ford og Michelle Pfeiffer.
Draugagangur
og hvísl
Á morgun verður frumsýnd í Regn-
boganum, Stjömubíói, Bíóhöllinni og
Borgarbíói á Akureyri spennumyndin
What Lies Beneath sem hefúr nokkrar
vikur verið meðal vinsælustu kvik-
myndanna í Bandaríkjunum. Leik-
stjóri er Robert Zemenicks og með að-
alhlutverkin fara Harrison Ford og
Michelle Pfeiffer. Myndinni hefur ver-
ið lýst sem spennumynd í anda
Hitchcocks gamla, þar sem viðbótin
felst í tæknibrellum nútímans.
Norman Spencer er vísindamaður
sem vinnur við rannsóknir. Honum
hafði orðið á i messunni fyrir einu ári
síðan þegar hann hélt við unga stúlku.
Claire, eiginkona hans, hefur fyrirgef-
ið honum og allt virðist vera í sóman-
um þegar Norrnan fer að taka eftir
ýmsu í fari eiginkonu hans sem hann
hefur ekki áður orðið var við. Hún er
farin að heyra raddir og sjá sýnir á
heimili þeirra. í fyrstu telur Norman
þetta vera ímyndanir í henni en þegar
Claire fer að bendla sýnir sínar við
hjón sem eru nágrannar þeirra verður
Norman að taka eiginkonu sina alvar-
lega, sérstaklega þar sem nágrannafrú-
in virðist hafa horfið sporlaust. Sál-
fræðingi sínum segir Claire að draug-
ur sé á heimili hennar. Þegar sálfræð-
ingurinn segir henni að eina ráðið sé
að ná sambandi við drauginn....
Robert Zemeckis hefur verið í farar-
broddi leikstjóra sem nýta sér tækni-
brellur í miklu magni. Hann lærði
kvikmyndafræði í Northwestem-há-
skólanum og fékk verðlaun kvik-
myndaakademíunnar fyrir útskriftar-
verkefni sitt, Field of Honor. Það var
síðan Steven Spielberg sem gaf Zem-
eckis tækifæri til að sanna sig og fram-
leiddi fyrir hann I Wanna Hold Your
Hand (1978). Zemeckis tók síðan þátt í
að skrifa handritið að mynd Spielberg,
1941 (1979), og þrátt fyrir að sú mynd
ylli vonbrigðum fannst Spielberg mik-
ið til hæfileika Zemeckis koma og átti
samstarf þeirra eftir að bera góðan
ávöxt.
Romancing the Stone (1984), gaman-
söm ævintýramynd, var fyrsta mynd
Zemeckis til að slá verulega í gegn.
Næsta verkefni Zemeckis var tíma-
ferðalagaævintýrið Back to the Future
(1984) með Michael J. Fox og
Christopher Lloyd í aðalhlutverkum.
Zemeckis var í essinu sínu: iburðar-
miklar tæknibrellur, ævintýralegur og
fjörugur hasar og stanslaust grín. Ser-
ían gerði Zemeckis að stórstjömu með-
al leikstjóra. í millitíðinni gerði Zem-
eckis Who Framed Roger Rabbit (1988),
eina af vinsælustu myndum áratugar-
ins. Enn var hann í hinum tæknOega
fararbroddi með Death Becomes Her
(1992), gamanmynd með Meryl
Streep, Goldie Hawn og Bmce Will-
is, þar sem fórðunarbrellur vom í
fyrirrúmi.
Þrátt fyrir miklar vinsældir
mynda Zemeckis var hann ekki
tekinn neitt sérstaklega alvar-
lega sem kvikmyndagerðar-
maður, en það átti eftir að
breytast. Forrest Gump (1994)
var ekki aðeins þrekvirki á
sviði tæknibrellna, þar sem
Zemeckis blandaði meistara-
lega saman leiknum atriðum
og upptökum af ýmsu frægu fólki, þar
á meðal þremur forsetum, þannig að
svo virtist sem persónur myndarinnar
væm að hafa samskipti við sögufræg-
ar persónur. Myndin bjó einnig yfir
sterkum mannlegum þætti og vann
hug og hjörtu áhorfenda. Segja má
að Contact (1997) hafi verið eðli-
legt framhald á þeirri þróunar-
braut. Stutt verður í að næsta
kvikmynd Zemeckis verður
frumsýnd, er það Cast
Away með Tom
Hanks og Helen
Hunt í aðalhlut-
verkum.
-HK
*