Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Page 28
NISSAN PRIMERA
fmÍkAN | ( ) Hfrísason
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
Vilhelm Þorsteinsson EA:
Landaði í
fyrsta sinn á
íslandi í gær
DV, GRINDAVÍK:
** Nýjasta og glæsilegasta skip ís-
lenska flotans, VOhelm Þorsteins-
son EA, landaöi í fyrsta skipti á ís-
landi í Grindavík i gær þegar skip-
ið kom inn með um 1600 tonn af
kolmunna eftir viku á veiðum. Vil-
helm fór í fyrstu veiðiferðina 10.
september og hefur landað þrisvar
sinnum í Færeyjum en veiðin ver-
ið hálftreg og hefur þurft að toga í
allt að 20 tíma en algengt er að
taka trollið með 300-500 tonnum.
Voru strákamir um borð ánægðir
með skipið, sögðu það frábært í
alla staði og að varla væri hægt að
tala um byrjunarörðugleika. Enn
er aðeins búið að prófa skipið á
kolmunnaveiðum en það getur
^stundað veiðar með botn- og
flottrolli og einnig með nót. Um
borð er svo hægt að vinna allan
afla og plássið á vinnsludekkinu er
feikilegt. -ÞGK
L
New York, New
York
tar 1 Fókus á morgun er púlsinn tek-
inn á hausttískunni hjá kvenfólki í
Reykjavík og skyggnst í hvað verð-
ur á seyði á opnunardegi Airwaves-
hátiðarinnar. Fókus skellti sér til
New York með nokkrum hljóm-
sveitum og segir sólarsöguna auk
þess sem Mikael Torfason rithöf-
undur segir frá nýjustu bókinni
sinni. Halldór Gylfason og Friðrik
Friðriksson leika enn einu sinni í
sama verkinu um þessar mundir og
ræða þeir um allar tilviljanimar og
þá er rætt við Chloe Opheliu sem
dvelur á sumrin í New York. Lífið
eftir vinnu er svo auðvitað á sínum
stað, nákvæmur leiðarvísir um
menningar- og skemmtanaliflð.
w I l 1 U ‘jf*■ J. .0 þJHBH • ifi
ikl
DV-MYND ÞGK
Stærsta skipið í Grindavíkurhöfn
Fjöldi fólks fylgdist meö Vilhelm Þorsteinssyni sigla inn en þetta er langstærsta skip sem siglt hefur inn í Grindavíkur-
höfn og heföi þetta ekki veriö möguleiki fyrir aöeins tveimur árum en siöasta sumar var dýpkaö bæöi innan og utan
hafnar. Allir helstu útgeröarmenn bæjarins fóru svo í kynnisferö um sktpiö meö leiösögn Þorsteins Más Baidvinsson-
ar ásamt fleiri áhugásömum um útgerðarmáta.
Drengurinn á
batavegi
Litli drengurinn sem slasaðist á
höfði í Stykkishólmi er á batavegi.
Slysið átti sér stað skömmu eftir há-
degið í gær og mun drengurinn hafa
fallið á höfuðið. Kalla þurfti út
þyrlu Landhelgisgæslunnar og flutti
hún drenginn, sem er þriggja ára, á
sjúkrahúsið í Fossvogi þar sem
hann liggur á gjörgæsludeild. Hann
gekkst undir höfuðaðgerö í gærdag
og að sögn vakthafandi læknis gekk
aðgerðin vel og er drengurinn því á
batavegi. -aþ
Stórt fíkniefnamál:
íslensk stúlka
handtekin
Islensk stúlka, búsett í Kaup-
mannahöfn, er í hópi fimm manna
sem teknir hafa verið höndum og
eru grunaðir um stórfellt flkniefna-
misferli. Frá þessu var greint í Rik-
isútvarpinu í gær. Rannsókn lög-
reglunnar mun hafa staðið um
nokkurt skeið en 2,2 kíló af am-
fetamíni fundust í bifreið og síðar
fundust sextán kíló í aflögðu veit-
ingahúsi í borginni. Talið er að
fikniefnaviðskiptin nemi tugum
milljóna íslenskra króna. -aþ
Sameining Landsbanka og Búnaðarbanka:
Ekki útilokað að hún
takist fyrir helgina
- segir viðskiptaráðherra. Stenst ekki lög, segir Gylfi Magnússon
Stefnt er að því að ríkisstjórnin
gefi út tiikynningu um sameiningu
Landsbanka og Búnaðarbanka fyrir
helgi en ekki er þó víst að það takist.
„Ég get ekki alveg fullyrt að þetta
takist en það er ekki útilokað. Fjár-
málaráðherrann er ekki í landinu og
ef hann kemur ekki fyrr en á fóstu-
dag, þá setur það auðvitað strik í
reikninginn. Annars er allt í góðum
gír,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra í samtali við DV í
morgun.
- Stenst þessi sameining sam-
keppnislög?
„Það er nú eitt af því sem við erum
að ræða.“ Aðspurð sagði Valgerður
aö ekki væri búið að senda málið fyr-
ir samkeppnisráð. Ýmislegt þyrfti að
afgreiða áður og ef af því yrði. Hún
sagðist ekki geta svarað neinu um
það á þessari stundu hvort sam-
keppnislög stæðu í vegi fyrir af-
greiðslu málsins en sagist þó kunna
sæmileg skil á
þeim lögum sem
yfirmaður Sam-
keppnisstofnunar.
Guðmundur E.
Magnússon, for-
stöðumaður sam-
keppnissviðs hjá
Samkeppnisstofn-
un, gerir ráð fyrir
að stofnunin muni
fjalla um samein-
ingu bankanna þó
málinu hafi ekki
formlegá verið
vísað til stofnun-
arinnar.
Össur Skarp-
héðinsson vakti
máls á bankasam-
einingu á Alþingi
í gær. í samtali
Gylfi við DV sagði hann
Magnússon. a5 þag Væru ákaf-
lega sterkar líkur
á að sameining
bankanna bryti
gegn gildandi
samkeppnislög-
um. „Þetta hefur
m.a. komið fram
hjá leiðandi sér-
fræðingi á þessu
Össur sviöi' Þess vegna
Skarphéðinsson. flnnst mér ein'
boðið að ríkis-
stjórnin óski eftir fyrirfram áliti sam-
keppnisráðs sem mögulegt er sam-
kvæmt lögunum. Þannig verði feng-
inn úrskurður ráðsins hvort það telji
líklegt að sameiningin brjóti gegn
samkeppnislögum í þeim mæli að það
verði til þess að ógilda samrunann."
„Ég held að það sé borðleggjandi
eins og þetta er lagt upp, þá sé þetta
það mikil samþjöppun á markaði sem
þegar ber einkenni fákeppni að það
geti hreinlega ekki staðist lögin," seg-
ir Gylfi Magnússon, dósent í Háskóla
íslands. „Samkeppnisstofnun og sam-
keppnisráð yrðu því að leggjast gegn
því að öðru óbreyttu. Búnaðarbank-
inn og Landsbankinn yrðu saman
með um 60% af hinum hefðbundna
viðskiptabankamarkaði og við sam-
einingu fækkaði bönkunum úr fjór-
um í þrjá. Það þyrfti mjög sérstækar
aðstæður til að slíkur samruni yrði
leyfður. Erlendis, þar sem samkeppn-
islöggjöf hefur lengri hefð, yrði slíkur
samruni einungis leyfður ef t.d. ann-
að fyrirtækið væri að verða gjald-
þrota eða gæti af öðrum slíkum or-
sökum ekki starfað áfram. Ef þessi
samruni yrði ekki stöðvaður má eig-
inlega hugsa sér að það megi sameina
eiginlega hvað sem er. Það er varla
hægt að hugsa sér nokkum samnma
á íslandi sem hefði önnur eins áhrif i
þá átt að draga úr samkeppni í við-
skiptalífinu." -HKr.
Valgeröur
Sverrisdóttir.
Össur
Skarphéðinsson.
Ný sjónvarpsrás Ríkisútvarpsins:
Athuganir á lokastigi
Athuganir á kostnaði við upp-
setningu annarrar sjóhvarpsrásar
hjá RÚV eru nú á lokastigi. Að sögn
Markúsar Amar Antonssonar út-
varpsstjóra er gert ráð fyrir að nið-
urstöður liggi fyrir eftir 2-3 vikur.
Þær verða þá lagðar fyrir útvarps-
ráð.
„Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins, og Rún-
ar Gunnarsson dagskrárstjóri hafa
verið að vinna að kostnaðaráæti-
anagerð að undanförnu. Sú vinna
hefur ekki miðað að því að ný rás
yrði íþróttarás, heldur höf-
um við séð þetta fyrir okk-
ur sem efhi af blönduðum
toga,“ sagði útvarpssfjóri.
„Að hluta er áhersla á
fræðsluþáttinn og hugsan-
legt samstarf við mennta-
stofnanir, skólastofnanir
og fleiri aðila. Ég undir-
strika að það var aldrei
lagt upp með það af minni
hálfu að þetta yrði alfarið
íþróttarás."
Eins og DV hefur greint
frá gerðu fyrstu áætlanir
ráð fyrir að uppsetning og
rekstur slíkrar rásar
myndi kosta um 300 millj-
ónir á fyrsta starfsári.
Markús Öm sagði að þær
--tölur hefðu í raun verið
hrein ágiskun. Ekki væri
hægt að nefha neinar upp-
hæðir vegna nýrrar kostn-
aðaráætlunar fyrr en nið-
Markús: urstöður lægju endanlega
Ekki sérstök fyrir.
íþróttarás. .jss
TfcEher
P-touch 9200PC
Prentaöu merkimiða beint úr tðlvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Gæði og glæsileiki
smort
Csólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
*
i
i
t
t
t
t
t
t
t
t
é
t
t
t
t
i
t
t
t
t
4
4