Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 Fréttir DV Sýslumaðurinn í Borgarnesi bað um meira fé í þágu umferðaröryggis: Ætli við fáum ekki bara pappalöggur - segir sýslumaður og þarf að sæta niðurskurði DV, BORGARNESI:_____________________ Sýslumaðurinn í Borgamesi, Stef- án Skarphéðinsson, er alls ekki sátt- ur við þær fjárveitingar sem emb- ættinu eru færðar á fjárlögum. Frumvarpið gerir ráð fyrir 1,7% flötum niðurskurði þrátt fyrir auk- in verkefni embættisins og endur- teknar óskir um ríflegra fé til lög- gæslu í héraðinu. Dulin búseta í héraöinu hefur verið reiknuð út. Að meðaltali dvelj- ist um 3.800 manns í umdæmi Borg- arneslögreglu yflr sumarmánuðina (maí til ágúst) umfram þá sem þar eiga lögheimili. Liggur nærri að þetta sé tvöfoldun á íbúafiölda. Sam- bærilegar tölur fyrir heilsugæslu- mndæmið eru um 3.300 manns. Um- ferðarþungi við Hafnarfjall hefur aukist um 50% á árunum 1995 til 1999 og jókst enn í fyrrasumar. Sýslumaðurinn í Borgamesi segir að eðlilegt sé að fjárveitingavaldið taki tillit til þessara staðreynda þeg- ar ákvarða á umfang heilsugæslu- og löggæsluþjónustu í Borgarfirði. „Ég er búinn að gera öllum grein fyrir því sem ég get að það þarf að auka fjárveitingar til embættisins Meiri verkefnl - minna fé Sýslumaðurinn í Borgarnesi, Stefán Skarphéöinsson, er ósáttur viö fjár- veitingar sem færöar eru embættinu - í staö hækkunar kemur lækkun. DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON og enn sem komið er hefur ekki ver- ið hlustað á það,“ segir Stefán Skarphéðinsson. „í dag eru fimm lögreglumenn sem ganga þrjár vakt- ir þannig aö það er aðeins einn maður á einni vaktinni og það hef- ur verið krafan hjá okkur að ná því að vera með sex menn á vöktum með yfirlögregluþjóni sem er sjö- undi maðurinn, en ef maður ætti óskastund þá væri óskastaðan að vera með þrjá menn á vakt og það myndi þýða að það væru tveir í eft- irlitsvinnu og einn inni við skýrslu- gerð.“ Stefán segir að fámennið í lög- reglunni komi niður á eftirliti á veg- um og annars staðar. „Ætli við verðum bara ekki að hafa pappalöggur. Það er í tísku í dag en þær gera nú litið af skýrsl- um. Fjárveitingar til flestra lög- regluembætta eru svo knappar að aðeins verður unnt að halda sjó og mun þykja gott ef tekst,“ sagði Stef- án. - Fjárveiting til Akranesembætt- isins aukin um 12 milljónir, ertu ekki óhress með það? „Við erum ekki í neinum saman- burðarleik heldur lítum við á raun- veruleikann hjá okkur og viljum öðrum allt gott. En þegar skorið er niður hjá flestum embættum þá þykir manni athyglisvert að Akra- nesembættið er eina embættið utan höfuðborgarsvæðisins sem fær auknar ijárveitingar. -DVÓ 1 ísafjarðardjúp: Tengivagn hrap- aði 40 metra Tengivagn slitnaði aftan úr flutn- ingabíl á fóstudagskvöfdið og hrapaði ofan í 40 metra djúpt gif í ísafjarðar- djúpi. Bíffinn var á leið yfir brúna yfir Laugardalsá í Súðavíkurhreppi og var eitthvað af fiski og tóm fiskkör í tengi- vagninum sem var nýlegur. Lögreglan á ísafirði rannsakar nú tildrög þess að vagninn losnaði en talið er að beislið hafi brotnað með þeim afleiðingum að vagninn slitnaði frá. Hann kastaðist á vegrið brúarinnar, fór yfir það og nið- ur í gilið. Bílstjórann sakaði ekki og flutningabíllinn er óskemmdur. Búið er að ná vagninum upp en hann er talinn ónýtur, sem og innihald hans. -SMK Borgames: Rúður brotnar Skemmdarverk voru unnin í Borg- amesi aðfaranótt sunnudagsins. Brot- in var rúða í íþróttahúsinu og fóru ein- hveijir pörupiltar yfir girðinguna sem umkringir sundlaugina og inn á svæð- ið. Ekki virðist sem fólkið hafi komist inn í íþróttahúsið. Einnig var brotin rúða í skólanum. Lögreglan í Borgar- nesi er með málið i rannsókn. -SMK DV-MYND REYNIR NEIL. Stórir árgangar á feröinni Tveir óvenjustórir árgangar eru aö alast upp í Neskaupstaö. Á myndinni eru nokkrir krakkar úr þessum árgöngum, 4 og 5 ára krakkar. Kristín Guömundsdóttir leikfimikennari og Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir hafa undanfariö veriö meö börnin í hring- og stöövaþjálfun sem þau hafa gaman og gagn af. Hér eru nokkrir tilvonandi blakmenn fyrir Þrótt i Neskaup- staö á fullri ferö. -RN Björgunarsveitir fá Tetra-kerfi Á Agora-ráðstefnunni í Laugar- dalshöll var skrifað undir samning milli fjarskiptafyrirtækisins Stiklu, Fjarskiptaráðs björgunarsveita og Radíóþjónustu Sigga Harðar um notkun Tetra-fjarskiptakerfis. Þessu kerfi er ætlaö að auövelda fjarskipti björgunarsveita og gerir kleift að stjórna björgunaraðgerðum frá einni stjómstöð. Áður hefur þurft að hafa staðbundna stjómmiðstöð nálægt því svæði sem björgunarað- gerðir fara fram, og sú miðstöð hef- ur svo þurft að hafa samband við stjómstöðvar annars staðar á land- inu. Fjarskiptaráð björgunarsveita á og rekur um 40 endurvarpa sem not- aðir eru til fjarskipta hjá rúmlega 100 björgunarsveitum Slysavamafé- lagsins Landsbjargar víða um land. Hægt er að nota áfram núverandi VHF-talstöðvabúnað sveitanna. í fréttatilkynningu frá Stiklu seg- ir: „Fulltrúar fjarskiptarisans Nokia, sem er framleiðandi Tetra- kerfis Stiklu, hafa sýnt mikinn áhuga á þessu verkefni sem er ein- stakt sinnar tegundar í heiminum, en þetta er liklega í fyrsta sinn sem slík samtenging hefur átt sér stað milli Tetra-fjarskiptakerfis og VHF- endurvarpakerfa." Sigurður Harðarson hjá Radíó- þjónustu Sigga Harðar hefur sett upp flesta endurvarpa björgunar- sveitanna og átti hugmyndina að samtengingu fiarskiptakerfanna tveggja. -SMK Björgunarsveitarmenn aö störfum. Hiö nýja Tetra-kerfi gerir björgunar- sveitum kleift aö stjórna öllum björg- unaraögeröum frá einni stjórnstöö. Umsjón: Höröue Kristjánsson netfang: sandkom@ff.ls Leggur mat á jólabækur §Sagt er að rit- höfundar landsins og jafhvel heims- ins alls biði nú með öndina (jafn- vel heilu anda- stofhana) í háls- inum eftir nýjum þætti í morgun- sjónvarpi Stöðv- ar tvö. Er spenna sögð mikil í þeirra herbúðum, enda hyggst stórkanónan sjálf, Kolbrún Berg- þórsdóttir menningarritstjóri Dags, þar skyggnast inn í heim ritsnillinga og þá trúlega í þeim tilgangi að leggja nokkurt mat á hvemig vinsælum jafnt og minna vinsælum höfundum tekst til. Þó Kolbrún sé aflra manna hugljúfi, þá er talið víst að hún muni ekki bregðast áhorfendum og segja stundum sársaukafullan sannleika um allt það sem hripað er á blöð og sett í fallegar jólagjafaumbúðir Framliðin bleikja í héraðsfréttablaðinu Austur- landi er sagt frá þvi að „Dagur myrkurs" verði haldinn hátíðleg- ur á Austin'landi í byijun nóvem- ber. Sagt er að margir af þekkt- ustu draugiun landsins hafi þar boðað komu sína. Eru þar nefndir Sand- víkur-glæsir, Viðfiarðarundrin, Bjamar-Dísa og fleiri. Eru íbúar fiórðungsins hvattir tfl að taka vel á móti þeim. Þá hefur veitingamönnum verið bent á að tilvalið væri að setja saman sérstakan matseðfl í tilefhi dagsins. T.d. mætti bjóða upp á framliðna bleikju, flamber- að lík af lambi, hálsskorin svið og ótal margt fleira ... Björn eða ... Spennan vegna leitarinnar miklu að nýjum ritstjóra Morgun- blaðsins er nú í hámarki. Ýmsir hafa verið orðaðir sem arftakar Matthíasar Jo- hannessens sem lætur af störfum innan skamms vegna aldurs. Þar hafa heyrst nöfn eins og Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson. Menntamálaráðherra hefur þar líka verið nefndur. „Ég get ekki staðfest að Bjöm Bjama- son menntamálaráðherra hafi ver- ið ráðinn ritstjóri Morgunblaðs- ins,“ sagði Hallgrímur Geirsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, út- gáfufélags Morgunblaðsins, í sam- tali við blaðamann DV. Gárungar fullyrða að málið snúist um hvort Bjöm fái útskoma eftirlíkingu af ráðherrastól eða ekki... „í djúpum - mannau Ýmsa rak í rogastans er það fór að spyijast út að Rangárvalla- hreppur væri að standa fyrir kvik- myndagerð og hygðist fá íbúa í hreppnum til að fiármagna hver sinn hluta af myndinni. Einhver misskilningur mun þó hafa verið á ferðinni og kvikmyndagerðin af öðrum toga en menn héldu. Rétt er þó að hreppurinn hefur ákveð- ið að fá fyrirtæki til að mynda. Myndatakan mun hins vegar fara fram í skolpræsum íbúanna til að kanna hvort lagnir hafa skemmst í jarðskjálftunum í sumar. Áhuga- menn segja þó að vel megi búa til úr þessu áhugaveröa heimflda- mynd og mun nafn myndarinnar liggja í augum uppi. Hún gæti sem best heitið; „í djúpum - manna“...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.